29. jan. 2010 - 07:03

Líkamsrækt er af hinu góða - en er þetta ekki einum of mikið af brjóstvöðvum? MYNDBAND

Hann er ánægður með vöðvana...en eru þeir flottir?

Hann er ánægður með vöðvana...en eru þeir flottir?

Það er almennt flestir sammála um að líkamsrækt er af hinu góða. Heilbrigð sál í hraustum líkama og allt það. En það er hægt að fara yfir strikið.

Hér er ágætt dæmi um það en því er ekki að leyna að maðurinn er ánægður með vöðvana þó flestir sem skoðað hafa þetta myndband á netinu séu á því að hann sé kominn með aðeins of stóra brjóstvöðva...

 




14.mar. 2010 - 14:37

Jóhann Hauksson, blaðamaður ársins, vill verða fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðherra

Jóhann Hauksson, blaðamaður á DV, sækir um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðuneytisins Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 12:24

Hæstiréttur snýr úrskurði héraðsdóms: Pólverji framseldur til að afplána fangelsisdóm

Hæstiréttur hefur hnekkt ákvörðun héraðsdóms um að hafna því að Pólverji verði framseldur frá Íslandi til að taka út fangelsisrefsingu í sínu heimalandi. Héraðsdómur taldi framsalið ósamrýmanlegt meðalhófsreglunni.
14.mar. 2010 - 11:21

Formaður Samiðnar vill veita 80% lán til íbúðakaupa til að rétta af byggingariðnaðinn

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins átelur stjórnvöld fyrir andvaraleysi gagnvart samdrætti í byggingariðnaði. Þekking hverfi úr landi. Formaður Samiðnar vill koma hjólunum af stað með því að veita 80% lán til íbúðakaupa.
14.mar. 2010 - 10:00

Skilaði veski sem hann stal fyrir fjörutíu árum: Samviskan hefur alltaf nagað hann

Á föstudag barst lögreglunni í sænska bænum Vansbro sending, gamalt veski með þúsund krónum og orðsendingu frá iðrandi þjófi, sem hafði stolið því í samkvæmi fyrir fjörutíu árum. Réttmætur eigandi veskisins hefur þó engin not af því lengur, því að hann er látinn.
14.mar. 2010 - 09:00

Hollenskir stjórnmálamenn: Slá skjaldborg um heimilið frekar en að þrátta um Icesave

Water Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Camiel Eurlings samgönguráðherra hætta báðir í pólitík Bæði Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Camiel Eurlings samgönguráðherra hafa ákveðið að hætta afskiptum af stjórnmálum og bjóða sig ekki fram í kosningum til hollenska þingsins í sumar. Þeir taka fjölskyldu sína fram yfir tímafrek störf í ríkisstjórninni þar sem efnahagsmálin hafa verið afar þjakandi undanfarin þrjú ár.
13.mar. 2010 - 21:00

Það má finna allt á netinu: 10 skrýtnustu munirnir sem boðnir hafa verið upp á eBay

Efnahyggjumenn segja jafnan að allt sé til sölu, aðeins ef nógu hátt verð er sett á borðið. Miðað við það sem gengið hefur kaupum og sölum á uppboðssíðunni eBay er heilmikið til í því. Pressan hefur tekið saman 10 skrýtnustu hlutina sem seldir hafa verið á þessari vinsælustu uppboðssíðu heims.
13.mar. 2010 - 19:45

Snjöll auglýsingaherferð: Farsími með innbyggðri rakvél og hellir upp á kaffi (MYNDBAND)

Farsíminn hellir upp á kaffi á 30 sekúndum. Þetta kann að hljóma of ótrúlega til að vera satt...og það er það. Yfirvöld í Nova Scotia stóðu fyrir umfangsmikilli auglýsingaherferð þar sem nýr og byltingakenndur farsími var kynntur til sögunnar. Átti síminn að geta allt, meira að segja lagað kaffi.
13.mar. 2010 - 18:48

Fjármögnunarfyrirtæki segja afskriftir vanhugsaðar: Hugsanleg málsókn frá Deutsche Bank

Deutsche Bank er sagður ætla að höfða mál gegn íslenska ríkinu fari Lýsing á hausinn vegna afskrifta. Svo gæti farið að Deutsche Bank höfði mál gegn íslenska ríkinu láti ríkisstjórnin verða að afskriftartillögum félagsmálaráðherra um bílalán. Fjármögnunarfyrirtæki segja tillögurnar vanhugsaðar og gætu orðið til þess að þau fari í þrot.
13.mar. 2010 - 17:25

Jókerinn stendur undir nafni: Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard í kostulegri auglýsingu

Jimmy Bullard skartar meðal annars þessari glæsilegu 80´s hárkollu í auglýsingunni. Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard sem leikur með Hull City í ensku úrvalsdeildinni gengur iðulega undir nafninu Jókerinn. Hann stendur svo sannarlega undir því nafni, enda meinfyndinn drengurinn. Hann hefur nú slegið í gegn í kostulegri sjampóauglýsingu.
13.mar. 2010 - 16:22

Guðjón Arnar hættir sem formaður Frjálslynda flokksins eftir sjö ár í brúnni

Guðjón Arnar stígur til hliðar eftir sjö ára formennsku. Guðjón Arnar Kristjánsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér sem formaður Frjálslynda flokksins. Nýr formaður verður kjörinn á landsþingi flokksins um næstu helgi. Guðjón Arnar hefur verið formaður flokksins síðan 2003.
13.mar. 2010 - 15:30

Gæti þetta verið lausnin á fangelsisvanda Íslendinga? Fangarnir sendir í klaustur

Klaustur í Georgíu munu hýsa fanga innan skamms. Yfirvöld í Georgíu eru í vandræðum þar sem fangelsi landsins eru að yfirfyllast. Til að ráða bót á vandamálinu hafa þau ákveðið að fara heldur óvenjulega leið, það er að senda smáglæpamenn í klaustur til að ljúka afplánuninni.
13.mar. 2010 - 14:30

Oddviti Framsóknar: Reykjavík skoði sameiningu við Álftanes, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes

Einar Skúlason, hægra megin, ásamt Óskari Bergssyni borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Einar Skúlason, sem leiðir lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor, segir að Reykjavík beri skylda til þess að skoða kosti og galla sameiningar við Álftanes. Jafnvel gæti verið hagkvæmt fyrir Reykjavík að sameinast Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ.
13.mar. 2010 - 12:30

Bubbi vandar Davíð Oddssyni ekki kveðjurnar: Skoðanakúgun voru og eru hans ær og kýr

Bubbi Morthens segir Davíð Oddsson snjallan textahöfund og frambærilegan rithöfund. „Davíð Oddsson hefur skaðað Ísland meira en nokkur annar Íslendingur í íslenskri pólitík frá stríðslokum,“ segir Bubbi Morthens sem lætur Davíð fá það óþvegið í nýjasta Pressupistli sínum. Hann segir Morgunblaðið áróðurstæki sem Davíð notar til að endurskrifa söguna.
13.mar. 2010 - 11:30

2 ára sjónhverfingamaður: Tókst á ótrúlegan hátt að festa sjálfan sig í leiktæki

Sá litli hafði það gott á meðan allir aðrir fyrir utan leiktækið vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Fótur og fit varð uppi á ítölskum veitingastað þegar tveggja ára dreng hafði tekist að skríða upp í sælgætisleiktæki og sat þar í mestu makindum innan um gnægð sælgætis. Enginn hafði hins vegar hugmynd hvernig hægt var að ná honum út.
13.mar. 2010 - 10:40

Segja fallin eignarhaldsfélög ekkert hafa með afskriftir til heimila og fyrirtækja að gera

Bankarnir eru undir miklum þrýstingi um að afskrifa lán sín til viðskiptavina enn frekar. Kjartan Broddi Bragaon, hagfræðingur, segir afskriftir á skuldum eignarhaldsfélaga engin áhrif hafa á svigrúm bankanna til að afskrifa skuldir heimila og fyrirtækja. Þingmaður segir gæði lánasafnanna bankanna batna með auknum afskriftum.
13.mar. 2010 - 09:50

Lykla- og kröfufrumvörp Lilju verða fléttuð saman við skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar

Lilja hefur barist fyrir bættri stöðu skuldara gagnvart lánveitendum. Ólíklegt er að lykla- og kröfufrumvörp Lilju Mósesdóttur verði að lögum, segja ráðherrar. Hins vegar verða þessi frumvörp, að einhverju leyti, fléttuð inn í aðgerðir ríkisstjórnarinnar fyrir skuldsett heimili og einstaklinga sem kynntar verða fljótlega.
13.mar. 2010 - 09:02

Segir vonlaust að ná sömu lífskjörum og á Norðurlöndum með fátæktarstefnu VG

Þorsteinn Pálsson. „Vonlaust er hins vegar að við náum sambærilegum lífskjörum á við hin velferðarhagkerfi Norðurlandanna ef þessari fátæktarstefnu VG í peningamálum verður ekki hrundið,“ segir Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra.
12.mar. 2010 - 21:00

Slæmur dagur í vinnunni: 10 myndbönd þar sem starfsmenn fara algjörlega yfir um

Það kannast allir við að eiga slæman dag í vinnunni. Sumir dagar eru verri en aðrir og þá getur verið freistandi að losa um hömlurnar og láta það bitna á því sem hendi er næst, svo sem vinnufélaganum eða borðtölvunni.
12.mar. 2010 - 20:00

Karlmenn taka fullan þátt í heimilisstörfum, konurnar taka bara ekki eftir því

Karlmenn telja sig duglega við að sinna heimilisstörfunum. Ný rannsókn leiðir í ljós að karlmenn telja sig taka fullan þátt í heimilisstörfunum, en konurnar taki bara ekki eftir því. Þeir vilja hins vegar ekki fara hátt með það að ótta við að konan fari að kvarta. Karlmenn segjast eyða að meðaltali 13 klukkustundum á viku í heimilisstörf.
12.mar. 2010 - 18:45

Formaður VG svarar litlu um uppstokkun: Könnumst ekki við umræðuna í fjölmiðlum

„Við lesum bara blöðin eins og aðrir og fáum ýmsar fréttir þaðan, en könnumst nú ekki mikið við þær,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um fyrirhugaða uppstokkun í ráðherraliðinu. Hann gefur lítið uppi um breytingar á ráðherraliðinu.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 09.3.2010
,,Hot sex pills"
Ágústa Johnson
Ágústa Johnson - 09.3.2010
Ert þú „Allt eða ekkert” týpan?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson - 09.3.2010
Getum við treyst brennuvarginum fyrir kyndlinum?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit