08. feb. 2010 - 12:18

Lee Buchheit verður íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar í hugsanlegum Icesave-viðræðum

Stjórn og stjórnarandstaða hafa fundað stíft undanfarnar vikur til að ná samstöðu um næstu skref í Icesave-málinu.

Stjórn og stjórnarandstaða hafa fundað stíft undanfarnar vikur til að ná samstöðu um næstu skref í Icesave-málinu. Pressan.is/Magnús

Ákveðið hefur verið að leita til Lee Bucheit um að verða íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar í mögulegum samningaviðræðum við Breta og Hollendinga í Icesave-málinu. Þetta var niðurstaða fundar milli stjórnar og stjórnarandstöðu í morgun.

Buchheit er sérfræðingur í samningatækni og alþjóðalögum og hefur sérhæft sig í þjóðarskuldum. Hins vegar er ekki enn komið á hreint hvort Bretar og Hollendingar fallast á að hefja samningaviðræður í ný. Þreifingar þess efnis hafa þó verið í gangi á síðustu vikum. Enn er stefnt að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave þann 6. mars.

Fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu funda aftur á morgun.




16.mar. 2010 - 17:45

Vill ekki beita aðgerðum til lækkunar bensínverðs - Hvatti til þess í stjórnarandstöðu

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra. Kristján L. Möller, samgönguráðherra, er ekki á því að beita sértækum aðgerðum til að lækka bensínverð í landinu, þrátt fyrir að hafa kallað eftir slíkum aðgerðum þegar hann var í stjórnarandstöðu. Hann vonast til að bensínverð lækki eftir að samið verður um Icesave.
16.mar. 2010 - 17:40

Bílaleiga Akureyrar kaupir 175 nýja bíla af Suzuki umboðinu

Bergþór Karlsson og Steingrímur Birgisson frá Bílaleigu Akureyrar ásamt Úlfari Hinrikssyni frá Suzuki-umboðinu, sem stendur í miðið. Höldur-Bílaleiga Akureyrar og Suzuki bílaumboðið á Íslandi hafa skrifað undir kaup bílaleigunnar á að minnsta kosti 175 nýjum bílum af tegundunum Suzuki Swift og Suzuki Grand Vitara og hugsanlega verður bílunum fjölgað eitthvað þegar nær dregur sumri.
16.mar. 2010 - 17:05

Guðlaugur Þór: Hvernig væri að byrja á að fara yfir bónus- greiðslurnar í ríkisbankanum?

Starfsmenn Landsbankans gætu átt von á ríflegum kaupauka gangi vel að endurheimta eigur bankans. „Það er þannig að hæstvirtur fjármálaráðherra samdi sérstaklega um það að það yrði árangurstengt launakerfi í ríkisbankanum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur réttast að Alþingi fjalli fyrst um bónusa Landsbankans áður en hjólað verður í aðra banka.
16.mar. 2010 - 16:04

Mottumars: Skorað á forsetann - Hvernig myndi Ólafur Ragnar líta út með mottu? MYNDIR

Samsett mynd af forsetanum með myndarlega mottu Skorað hefur verið á forseta Íslands að taka þátt í átakinu karlar og krabbamein og láta sér vaxa yfirvaraskegg. En hvernig myndi forsetinn líta út með mottu?
16.mar. 2010 - 15:00

Utanríkisráðherra: Hefðbundnar vinaþjóðir hafa snúið við okkur baki, nú treystum við á Þjóðverja

Össur vonast eftir aðstoð frá Þjóðverjum Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að hefðbundnar vinaþjóðir hafi snúið baki við Íslendingum, sem treysti nú á Þjóðverja að aðstoða landið í þeim vandræðum sem nú steðja að landi og þjóð.
16.mar. 2010 - 14:13

Þingmenn æfir yfir bónus- greiðslum bankanna: Skattlagðar upp í rjáfur og hóta lögum

Bónusgreiðslur til starfsmanna bankanna voru fordæmdar á Alþingi í dag. Lagt var til að þær yrðu annað hvort skattlagðar upp í rjáfur eða sett verði lög til að banna þær. Formaður viðskiptanefndar vill að Alþingi hóti að setja lög um afskriftir til skulda heimilanna til að fá uppgefið hvert svigrúmið er.
16.mar. 2010 - 12:58

Ríkisstjórnin fundar með Lee Buchheit í dag: Boltinn er ekki hjá okkur, segja ráðherrar

Jóhanna og Steingrímur hafna fullyrðingum Hollendinga að boltinn sé hjá Íslendingum. Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan funda í dag með Lee Buchheit sem fer fyrir íslensku samninganefndinni í Icesave-málinu. Enginn formlegur fundur hefur verið boðaður með Hollendingum og Bretum. Ríkisstjórnin kannast ekki við að boltinn sé hjá Íslendingum í deilunni.
16.mar. 2010 - 12:32

Jóhanna: Sjálfstæðisflokkurinn hafði engan áhuga á að koma í veg fyrir undanskot á skatti

Jóhanna segir að farið verði í rannsókn á skattaundanskotum af fullum krafti. Skattayfirvöld höfðu tvívegis gert tillögur um viðamiklar umbætur til að koma í veg fyrir skattaundanskot í bankakerfinu. Forsætisráðherra segir ljóst að enginn áhugi hafi verið hjá Sjálfstæðisflokknum að ráðast í slíkar umbætur þegar hann stjórnaði fjármálaráðuneytinu.
16.mar. 2010 - 11:59

Gömlu bankarnir réðu yfir svörtu hagkerfi: Rökstuddur grunur um stórfelld skattaundanskot

Rökstuddur grunur leikur á að gömlu bankarnir hafi komið milljörðum króna undan skatti áður en þeir féllu. Ríkisstjórnin ætlar að koma á fót sérstakri sveit á vegum skattrannsóknarstjóra til að rannsaka umfangið.
16.mar. 2010 - 11:48

Mesta fólksfækkun á landinu frá lokum 19. aldar - Íslendingum heldur þó áfram að fjölga

Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá árinu 1889. Brottfluttir útlendingar valda miklu um þessa fækkun. Íslendingum heldur áfram að fjölga.
16.mar. 2010 - 11:15

Ekkert gert með tillögu Fall: Vildi aðra banka undir Straum til að tryggja greiðsluflæði við útlönd

William Fall, fv forstjóri Straums. William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, sem í gær var ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland, gerði tillögu til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í október 2008 um að fella íslenska banka undir Straum í því skyni að komast að samkomulagi við erlenda kröfuhafa og tryggja eðlilegt greiðsluflæði frá Íslandi til útlanda.
16.mar. 2010 - 10:47

500 íslenskir hönnuðir taka þátt: HönnunarMars hefst á fimmtudag, 100 viðburðir í boði

Greipur Gíslason, verkefnisstjóri HönnunarMars og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar kynntu dagskrána. HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 10:29

HEKLA selur Bílaleigu Akureyrar tvö hundruð nýjar Skoda og Volkswagen bifreiðir á einu bretti

Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar-Hölds ehf. og HEKLU innsigla samninginn Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23

Opið bréf til Lars Lökke: Skildum heldur aldrei hvernig við gátum keypt danskar þjóðargersemar

Bréf Kristjáns í Börsen í dag Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.

 


16.mar. 2010 - 10:01

ABBA fyrsta hljómsveitin utan hins enskumælandi heims í Frægðarhöll rokksins

Sænska hljómsveitin ABBA var tekin inn í frægðarhöll rokksins, Rock and roll Hall of Fame, í nótt ásamt Genesis, Jimmy Cliff, The Hollies og The Stooges.
16.mar. 2010 - 08:48

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að fjármálaráðherra segi af sér: Sjálfum sér og öðrum til ama

Kristján Þór Júlíusson Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sé þreyttur maður, sjálfum sér og öðrum til ama, og eigi að víkja.
16.mar. 2010 - 08:04

Fjármálaráðuneytið: Bankahrunið jók skuldir ríkisins um 866 milljarða króna

Heildarskuldir ríkissjóðs næstum fjórfölduðust við bankahrunið. Þær voru 310 milljarðar króna árið 2007 og fóru í 1176 milljarða 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu voru 78% í lok árs 2009.
16.mar. 2010 - 07:36

Lyfjastofnun lætur innkalla fræðsluhefti um sykursýki: Icepharma fór ekki að lyfjalögum

Lyfjastofnun bannar dreifingu á kynningar- og fræðsluhefti um sykursýki frá Icepharma og krefst þess að það verði innkallað. Þá fer Lyfjastofnun fram á að Icepharma sendi út leiðréttingu á upplýsingum í heftinu um meðferðarmarkmið í blóðsykurstjórn.
16.mar. 2010 - 07:00

Óvænt hliðaráhrif heilablóðfalls: Missti hæfileikann til að segja nei - Kominn með 10 gsm samninga

Tæplega sextugur Breti varð fórnarlamb sílasömumanna af því að hann gat ekki sagt nei takk Hratt gengur á sparifé Davids Stopher, tæplega sextugs Breta, sem missti eiginleikann til að segja nei takk við ágenga sölumenn efir að hann fékk heilablóðfall. Hann lét pranga inn á sig tíu farsímum samtímis þótt hann noti aðeins einn.
15.mar. 2010 - 22:32

Sumar myndir þarfnast einfaldlega frekari útskýringa: 10 óskiljanlegar uppákomur

Svona á ekki að leggja bílum. Með tilkomu internetsins rata fyrir sjónir almennings myndir sem ekki með nokkru móti er hægt að útskýra án þess að vita söguna á bak við þær. Spakmælið að myndir segja meira en þúsund orð fellur í þessum tilvikum um sjálft sig.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Meig utan í lögreglubíl í miðbænum
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit