23.júl. 2011 - 21:00
Skelfingunni sem braust út þegar maður hóf skothríð á norsku eyjunni Útey verður ekki lýst með orðum en ungmenni hlupu í allar áttir í dauðans ofboði. Ungum manni tókst að flýja inn í skóg.
23.júl. 2011 - 20:33
Þjóðernissinnar í finnska stjórnmálaflokknum Sannir Finnar fengu yfirlýsingu senda frá ódæðismanninum á Útey í gær strax eftir árásina en einn flokksmanna segir sendinguna óhugnarlega.
23.júl. 2011 - 20:00
Þegar Amy Winehouse dó í dag komst hún í hóp tuga tónlistarmanna sem látist hafa 27 ára gamlir á voveiflegan hátt en meðal þeirra eru Jimi Hendrix og Jim Morrison.
23.júl. 2011 - 19:42
Saksóknari hefur vísað frá kærum um kynferðisbrot á hendur Gunnari Þorsteinssyni, fyrrverandi forstöðumanni Krossins. Rannsókn málsins hefur verið hætt.
23.júl. 2011 - 19:00
Inocenta Hernandez frá Gvatemala brá heldur betur í brún þegar hún ákvað að fara aftur inn til sín eftir að hafa hlaupið út í dauðans ofboði.
23.júl. 2011 - 18:25
Minningarathöfn fer nú fram við Tjörnina í Reykjavík vegna voðaverkanna í Noregi í gær þar sem minnst 92 fórust í árás Anders Breivik.
23.júl. 2011 - 16:50
Amy Winehouse er látin en hún fannst á heimili sínu nú síðdegis. Lögreglan rannsakar málið sem óútskýrt mannslát. Faðir hennar er á leið til Bandaríkjanna og veit líklega enn ekki af málinu.
23.júl. 2011 - 16:45
Mæting í druslugönguna 2011 var vonum framar að sögn skipuleggjenda en þátttakendur voru á bilinu tvö til þrjú þúsund talsins.
23.júl. 2011 - 15:30
Prableen Kaur var í Útey þegar fjöldamorðinginn mætti á staðinn með sjálfvirka vélbyssu og hóf viðstöðulausa skothríð á allt sem hreyfðist. Hún hefur ritað pistil um þá hræðulegu lífsreynslu að horfa upp á vini sína skotna niður eins og dómínókubba.
23.júl. 2011 - 15:00
Íraninn Mehdi Pour, sem reyndi að kveikja í sér í höfuðstöðvum Rauða krossins í byrjun maí býður enn eftir svari frá Útlendingastofnun. Lögfræðingur hans segist hafa það á tilfinningunni að málinu ljúki á næstu dögum.
23.júl. 2011 - 14:30
Norsk hljómsveit mun spila í kvöld í Reykholti í Borgarfirði en sóknarprestur á staðnum segir þungt yfir þeim og raunar öllum á svæðinu. Íslendingar verði að taka atburðunum líkt og þeir hefðu gerst hér á landi.
23.júl. 2011 - 13:52
Druslugangan svokallaða verður haldin í Reykjavík í dag en fyrirmyndin er hin erlenda „Slutwalk“ sem ákveðið var að hrinda af stað vegna ummæla háskólaprófessors um klæðaburð kvenna og tengsl hans við kynferðisofbeldi.
23.júl. 2011 - 12:03
Annar maður hefur verið handtekinn í bænum Sundvolden þar sem þeir sem hyggja á ferð út í eyna Útey en talið er að hann tengist Anders Breivik sem banaði 91 manni í gær.
23.júl. 2011 - 11:49
Anders Behring Breivik, sem myrti tæplega eitt hundrað manns í Noregi í gær, segir að allar hatursstefnur stjórnmálanna og samfélagsins verði að meðhöndla á sama hátt.
23.júl. 2011 - 09:30
Anders Behring Breivik, maðurinn sem er ábyrgur fyrir ódæðinu í Noregi í gær, hafði lokað sig af með einhvers konar garðyrkjufyrirtæki en nú hefur komið í ljós að áburðurinn sem hann framleiddi þar notaði hann í sprengiefni sem grandaði minnst sjö í miðborg Oslóar.
23.júl. 2011 - 09:15
Forsætisráðherra Noregs segir að sumarparadísinni Útey hafi verið breytt í helvíti á jörðu eftir árás Anders Breivik þar sem hann skaut niður minnst 84 ungmenni með hríðskotabyssu.
23.júl. 2011 - 00:39
Gunnar Bender
,,Allt tal um að laxveiðin sé að glæðast er ekki rétt, jú aðvitað hefur veiðin aðeins glæðast en ekki mikið. Það er helmingi minni veiði en á sama tíma í fyrra," sagði veiðimaður sem var að koma úr Víðidalsá og var á leiðinni í Straumfjarðará. Núna hafa veiðst um 8400 laxar sem er helmingi minni veiði en á sama tíma í fyrra.
Norðurá hefur gefið flesta laxana eða um 1300 fiska.
23.júl. 2011 - 00:34
Sá sem grunaður eru um að standa að baki blóðbaðinu í Noregi í dag heitir Anders Behring Breivik. Hann er sagður tilheyra hægri öfgahreyfingu í austurhluta Noregs. Að minnsta kosti 80 manns voru drepnir í ódæðunum.
22.júl. 2011 - 23:20
Gunnar Bender
Veiðin hefur verið allt í lagi á Iðu í Hvítu fyrir austan. Veiðimenn sem voru við veiðar í morgun voru komnir með þrjá laxa fyrir hádegi og þeir höfðu misst allavega einn.
,,Við vorum þarna fyrir nokkrum dögum og fengum sjö laxa, það var all í lagi," sagði Adolf Ólason veiðimaður í samtali við Pressuna í morgun.
22.júl. 2011 - 21:04
„Ég sá fimmtán ungar manneskjur liggja niðri við ströndina. Ég veit ekki hvort þær eru látnar, en þær litu út fyrir það. Fólkið gæti líka bara verið slasað,“ segir ungur maður sem var staddur á norsku eynni Útey þegar maður hóf að skjóta niður unga jafnaðarmenn sem þar voru saman komnir á sumarhátíð.
22.júl. 2011 - 19:40
Í nýrri rannsókn á 43.000 sveinbörnum í Danmörku kemur fram að synir hárgreiðslukvenna og annarra kvenna sem vinna með sterk, hormónaraskandi efni, eru líklegri til að fæðast með vansköpuð kynfæri.
22.júl. 2011 - 18:00
Í dag var undirrituð sátt milli þjóðkirkjunnar og kynferðislegra fórnarlamba Ólafs heitins Skúlasonar biskups og fór athöfnin fram í Grensáskirkju.
22.júl. 2011 - 17:06
Hilmar Björnsson hefur verið ráðinn dagskrárstjóri á Skjá einum nú þegar Kristjana Brynjólfsdóttir lætur af störfum og flytur úr landi.
22.júl. 2011 - 16:33
Fjölmargir hafa haft samband við norska ríkissjónvarpið og tilkynnt um skotárás á sumarbúðir ungliðahreyfingar Verkamannaflokssins, norksra sósíaldemókrata. Fjöldi sjúkrabíla er á slysstað og ein sjúkraþyrla, en sumarbúðirnar eru á eyjunni Utøya.
22.júl. 2011 - 15:50
„Maður er ekki vanur þessu svona nálægt sér,“ segir leikmyndahönnuðurinn Karl Júlíusson sem er búsettur í Osló. Hann hefur unnið við hverja stórmyndina á fætur annarri, til dæmis Óskarsverðlaunamyndina Hurt Locker þar sem hann skapaði risastórar sprengingar. En sprengjusérfræðingurinn bjóst þó ekki við að hús yrði sprengt í næsta nágrenni við heimili hans.
22.júl. 2011 - 15:09
Íslendingur sem staddur var í Osló þegar sprengingin átti sér stað var á hljómsveitaræfingu þegar skyndilega kom mikill og stór hvellur sem hljómsveitarmeðlimir héldu í fyrstu að væri þruma.
22.júl. 2011 - 14:35
Allt að átta manns slösuðust alvarlega í dag eftir að gríðarmikil sprenginging varð í stjórnarbyggingu í Osló sem hýsir meðal annars sendiráð og höfuðstöðvar norska blaðsins Verdens Gang.
22.júl. 2011 - 14:15
Ljósmyndari telur að ástæaðn fyrir því að slóvensk yfirvöld krefjist þess að hann afmái öll andlit úr myndasafni sínum, sem telur yfir ellefu þúsund myndir, sé atlaga ríkisstjórnarinnar gegn Google tölvurisanum.
22.júl. 2011 - 13:40
Króatíska fegurðardrottningin Nives Celsius hefur tilkynnt að hún komi til með að spila stöðu framherja í leik króatíska knattspyrnuliðsins Slaven Belupo en hún er eini kvenkynsleikmaður þess.
22.júl. 2011 - 13:00
Það voru engir lifandi apar í Eden, eins og vonir stóðu til um. Hins vegar voru þar tveir fuglar, annar þeirra talandi páfagaukur. Þeim var ekki bjargað frá eldsvoðanum.
22.júl. 2011 - 11:50
Deilur hafa risið milli verktaka og eignarhaldsfélag Hörpunnar um greiðslur vegna verkkaupa í aðdraganda opnunar tónlistarhússins en málið er komið í lögfræðing.
22.júl. 2011 - 11:05
Hemmi Gunn bregst snöggt við eftir brunann í Eden í Hveragerði í nótt og vill endurbyggja húsið í upphaflegri mynd.
22.júl. 2011 - 10:15
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka hélt upp á fimmtugsafmæli sitt í glæsivillu Karls Wernerssonar á Ítalíu um miðjan júlí.
22.júl. 2011 - 09:50
Flóttamaðurinn Paul Ramses hefur skráð sig í flugnám í Keili og lítur framtíðina björtum árum.
22.júl. 2011 - 09:29
Eden í Hveragerði brann til grunna í nótt. Húsið varð alelda á skömmum tíma og slökkvilið réði ekkert við eldinn. Rannsókn á eldsupptökum hefst eftir hádegi.
22.júl. 2011 - 08:40
Eygló Harðardóttir segir fjármálaráðherra fara á svig við lög og furðar sig á því að hann kalli lögbrotin "tækniatriði". Þá gagnrýnir hún einnig framkvæmd einkavæðingar ríkisbankanna í stjórnartíð núverandi ríkisstjórnar.
22.júl. 2011 - 08:05
Róbert Spanó, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, skrifar grein í Fréttablaðið í morgun þar sem hann segir að óráðlegt sé að setja á laggirnar rannsóknarnefnd um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Slíkt gangi gegn þrígreiningu ríkisvaldsins með Hæstarétt sem æðsta dómsvald.
22.júl. 2011 - 07:15
Miðaldra hjón gengu fram á þetta hræ af óskilgreindu dýri á strönd í bænum Aberdeen í Skotlandi. Risavaxið höfuð og hryggjarliðir minnir marga á forsögulegar skepnur en aðrir segja hræið líklega tilheyra smávöxnum hval.
22.júl. 2011 - 00:23
Gunnar Bender
,,Ég var að veiða með Þórði Þorsteinssyni í Laxá í gærkvöldi og þá kom þessi fallegi hængur í Stórafossi á hálftommu Frances keilu. Laxinn var 10 cm og 50 cm að ummáli. Það þýðir ca.10,5kg," sagði Erling Ingvarson tannlæknir sem var við veiðar í Laxá í Aðaldal.
22.júl. 2011 - 00:07
Gunnar Bender
Það var mikið fjör við Elliðaárnar í dag og í morgun en þá veiddu konur í ánni sem höfðu lokið meðferð við brjóstakrabbameini. Þær fengu hven maríulaxinn á fætur öðrum en þetta var veiðihópurinn sem ber heitið ,,Kastað til bata" en í fyrrasumar veiddu þær á urriðasvæðið í Laxá í Þingeyjarssýslu.
21.júl. 2011 - 23:54
Gunnar Bender
Tveir veiðiþjófar voru gripnir við Gullinbrú í dag og voru þeir búnir að veiða tvo laxa. Þeim var bent á að ekki mætti veiða lax þarna og þóttust þeir þá alls ekki kannast við hvaða fisktegund þeir voru að veiða þarna við brúna. Hvernig lítur lax út sögðu þeir víst og urðu að að skila löxunum.
21.júl. 2011 - 20:45
Samkvæmt grein hagfræðings fæðast flestir Íslendingar 28. apríl á ári hverju. Það þýðir að flestir getnaðir eiga sér stað í kringum verlsunarmannahelgina, sérstaklega 28. júlí sem á fimmtudag í næstu viku.
21.júl. 2011 - 20:00
Hin 26 ára gamla Mayra Flores var handtekin nýverið eftir að hafa reynt að ræna þriggja ára stúlku með því að hrifsa hana úr höndum móður sinnar í dyragátt heimilis hennar.
21.júl. 2011 - 19:05
Móðir lést eftir að sautján ára dóttir hennar, sem var í æfingaakstri keyrði hana niður er hún var að leggja bílnum með aðstoð móðurinnar sem stóð bak við bílinn.
21.júl. 2011 - 18:10
Netdrottningin Marta María Jónasdóttir er stolt af móður sinni sem snæddi bæði hádegis - og kvöldverð með Margréti Danadrottningu í gær.
21.júl. 2011 - 17:05
Magnús Scheving, skapari Latabæjar og meirihlutaeigandi þar til nú, þurfti að leita á slysadeild nú síðdegis.
21.júl. 2011 - 16:20
Nýjasta útspil hryðjuverkasamtakanna Al Qaida er að gefa út teiknimynd sem ætluð verður ungum börnum til uppfræðslu um illsku Vesturlandabúa og mikilvægi heilags stríðs.
21.júl. 2011 - 15:00
Hrottanaugðari var dæmdur í dag í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga konu í heimahúsi. Honum var gert að sök að hafa nauðgað tveimur konum í heimahúsi á sérlega hrottafenginn hátt, en var sýknaður af annarri ákærunni.
21.júl. 2011 - 13:57
Maður sem varð fyrir biti skógarmítils fyrir nokkrum árum segir ástand sitt fara versnandi en hann finni nú fyrir miklum verkjum í fingrum, tám og liðum sem lýsi sér eins og tannpína á þessum stöðum.