08. feb. 2010 - 14:55

Kristilega hægrið rís upp: Ætlar að endurheimta „gömlu Ameríku“ undir stjórn Palin

Sarah Palin hefur farið mikinn undanfarið. Hún er nú stjórnmálaskýrandi hjá Fox News auk þess sem hún gaf út bók á dögunum, Going Rouge, sem selst hefur í bílförmum.

Sarah Palin hefur farið mikinn undanfarið. Hún er nú stjórnmálaskýrandi hjá Fox News auk þess sem hún gaf út bók á dögunum, Going Rouge, sem selst hefur í bílförmum. Getty images

Fyrir einungis ári síðan var hugtakið „Teboðið“ einungis hluti af sögu Ameríku og liður í sjálfstæðisbaráttu hennar. Í dag hafa grastrótarsamtök róttækustu hægri manna Ameríku tekið þetta hugtak upp á sína arma og hafa hafið krossferð til að endurheimta hin „gömlu gildi Ameríku“ á ný. Meðal þeirra sem fara fyrir hópnum er Sarah Palin.

Boðskapur samtakanna er í raun einfaldur. Það er verið að eyðileggja Ameríku og allt það sem hún stendur fyrir. Ríkisstjórnin boðar sósíalisma og hin hefðbundnu amerísku fjölskyldugildi fara ört hnignandi. Það þarf ekkert minna en byltingu til að snúa þróuninni við.

Samtökin voru stofnuð í fyrra og var beint gegn Barack Obama og ríkisstjórn hans. Samtökin, sem var fámennur félagsskapur áhrifaríkra hægri manna, létu mikið í sér heyra en fjölmiðlar veittu þeim litla athygli. Nema að sjálfsögðu Fox News, sem jafnan er álitið málpípa hægri manna vestanhafs, sem sýndi beint frá hverjum viðburði samtakanna.

Samtökin samanstanda af hópi óánægðra íhaldsmanna, áhrifamikilla kristilegra trúarleiðtoga og frjálshyggjumanna. Fyrsti viðburður Teboðssamtakanna (e. Tea Party) var haldinn í apríl í fyrra. Hópurinn var fámennur í byrjun en hefur stækkað á ógnarhraða, ekki síst fyrir tilstilli skipulagðra fjöldafunda í öllum krókum og kimum samfélagsins. Þúsundir manna sækja viðburði samtakanna nú og sá fjölmennasti hingað til var fyrst landsfundur þeirra um síðustu helgi. Staðsetning fundarins var viðeigandi fyrir boðskapinn, Nashville í Tennessee fylki sem er í hjarta Suðurríkjanna, en þangað sækir hreyfingin mesta stuðning sinn.

Fyrrum varaforsetaefni Repúblíkanaflokksins, Sarah Palin, er andlit hreyfingarinnar sem vinnur hörðum höndum að því að færa stefnu flokksins enn frekar til hægri. Slá margir sérfræðingar því föstu að hún muni gera harða atlögu að því að verða forsetaframbjóðandi Repúblíkana árið 2012. Sást bersýnilega á fundinum að Palin er vonarstjarna hægri manna, enda vakti ræða hennar á ráðstefnunni feykimikil viðbrögð.

„Andi Ameríku þarf að rísa á ný, við þurfum að hverfa aftur til róta okkar og verða Guðhrædd þjóð á ný.“

sagði Palin, og bætti því við að ameríska þjóðin þurfi að „leita guðlegrar íhlutunnar.“ En hvað er það sem fylgismenn hreyfingarinnar óttast svo mjög? Einn stuðningsmaður Palin orðar það þannig:

„Við viljum landið okkar aftur. Frá ríkisstjórn sem leiðir okkur sífellt lengra í átt að sósíalisma og lengra frá stjórnarskránni.“

Máli sínu til stuðnings bendir hreyfingin á fyrirhuguð áform Obamas um breytingar á heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna og kolefnisgjöld. Þetta mun vera argasti sósíalismi í Bandaríkjunum. Ofan á þetta bætist við að sífellt þrengir að kirkjunni í skólum landsins og hið hefðbundna fjölskyldumynstur virðist á undanhaldi. Þannig hafa nokkur fylki Bandaríkjanna lögleitt hjónabönd samkynhneigðra. Þessi þróun var reyndar vel á veg komin áður en Obama tók við völdum. Obama hefur hins vegar tekið þá stefnu að stórauka ríkisútgjöld til að koma efnahagslífinu í gang. Það þykir þyrnir í augum hreyfingarinnar sem vill algjör lágmarksafskipti frá Washington.

Líkt og búast mátti við segja gagnrýnendur hreyfingarinnar að málflutningur hennar sé sprottinn af kynþáttahatri. Það er, kristnir hægri menn þola ekki að sjá blökkumann í Hvíta húsinu. Benda þeir á ummæli fyrrum öldungadeildarþingmannsins Tom Tancredo í Nashville um helgina. Sagði hann að Obama hafi verið kosinn af fólki „sem kann hvorki að stafa né bera fram orðið atkvæði á ensku.“ Bætti hann því við að ef lestrarpróf þau sem innflytjendur voru látnir undirgangast á aðskilnaðartímabilinu, þá hefði þessi „einbeitti kommúnisti“ aldrei sigrað kosningarnar.

99 prósent þeirra sem sóttu ráðstefnuna í Nashville voru hvítir og 90 prósent voru á miðaldra eða eldri. Samtökin lögðu sérstaka áherslu á að borðar og fánar sem innihéldu niðrandi skilaboð um aðra kynþætti yrðu bannaðir á ráðstefnunni, en slíkir fánar voru áberandi á fyrstu viðburðum hreyfingarinnar.

Teboðssamtökin hafa vaxið mun hraðar bjartsýnustu menn þorðu að vona, ekki síst fyrir tilstilli Fox News. Má búast við því að enn frekar skerpist á umpólun bandarískra stjórnmála nái hún þeim styrk að geta haft varanleg áhrif á stefnu Repúblíkanaflokksins.


15.mar. 2010 - 07:50

Samtök lánþega: Lánardrottnar hagnast á hugmyndum ráðherra um niðurfærslu bílalána

Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40

Hrunskýrsla Alþingis ekki svo svört: Þeir sem þola mig ekki eiga eftir að verða svekktir

Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:00

Sláttumaðurinn slyngi snuðaður: 92 ára kona grunuð um morð á 98 ára eiginmanni sínum

Frá Sydney í Ástralíu Áströlsk kona er sökuð um að hafa myrt eiginmann sinn á heimili þeirra í Sydney, Ástralíu. Þetta þætti ekki í frásögur færandi hér hinum megin á hnettinum nema vegna þess að konan er níutíu og tveggja ára og manninn vantaði tvö ár í hundrað.
14.mar. 2010 - 22:08

Þrotabú Fons: Bankarnir leggi fram tryggingu til endurgreiðslu á milljarði króna til Jóns Ásgeirs

Skiptastjóri Fons vill rifta milljarðsgreiðslu frá félaginu til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22

Sigurður G.: Réttast að skoða lögmæti starfshátta og gerninga skiptastjóra Fons

Sigurður G. Guðjónsson skýtur föstum skotum að skiptastjóra í þrotabúi Fons Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02

Alþjóðlegt hagsmunasamsæri gegn þeim sem benda á að hlýnun jarðar sé staðreynd

„Ég veit það eru stór orð að tala um samsæri en ég endurtek þau þar til menn opna augun.“ Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:26

Breytingar á skilmálum bílalána: Félagsmálaráðherra lætur hótun um lögsókn ekki aftra sér

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 18:36

Íslandsmeistari í langstökki: Fékk verðlaunapening fyrir afrek sitt 58 árum of seint

Margrét Hallgrímsdóttir setti glæsilegt Íslandsmet 1952 en fékk gullpeninginn sinn 2010 Margrét Hallgrímsdóttir sló Íslandsmet í langstökki á landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1952 sem stóð í 20 ár. Hún fékk verðlaunapeninginn afhentan núna fyrir helgi, 58 árum eftir að mótinu lauk.
14.mar. 2010 - 17:45

Vélhjólamenn kætast: Klausturskeppnin endurvakin um hvítasunnuhelgina

Auðveldara verður að fylgjast með þolkeppni vélhjólamanna við Klaustur en áður Ein langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi hvítasunnuhelgi. Keppnin, sem síðast var haldin árið 2007, laðaði að sér hátt í 500 keppendur.
14.mar. 2010 - 16:20

Bæjarstjóri í Belgíu hundskammar góðglaða lögregluþjóna

Tveir lögreglumenn í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið fullir í vinnunni Tveir lögreglumenn í þorpi skammt frá Spa í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið ölvaðir í vinnunni. Myndband, sem vegafarandi tók, er eitt af sönnunargögnunum en því hefur verið dreift á Youtube.
14.mar. 2010 - 15:17

Ögmundur Jónasson: Íslendingum hjálpað á fætur en Svíar eiginhagsmunaseggir

Ögmundur Jónasson fagnar því að óréttmætri gagnrýni að utan sé svarað Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37

Jóhann Hauksson, blaðamaður ársins, vill verða fjölmiðlafulltrúi fjármálaráðherra

Jóhann Hauksson, blaðamaður á DV, sækir um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðuneytisins Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 12:24

Hæstiréttur snýr úrskurði héraðsdóms: Pólverji framseldur til að afplána fangelsisdóm

Hæstiréttur hefur hnekkt ákvörðun héraðsdóms um að hafna því að Pólverji verði framseldur frá Íslandi til að taka út fangelsisrefsingu í sínu heimalandi. Héraðsdómur taldi framsalið ósamrýmanlegt meðalhófsreglunni.
14.mar. 2010 - 11:21

Formaður Samiðnar vill veita 80% lán til íbúðakaupa til að rétta af byggingariðnaðinn

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins átelur stjórnvöld fyrir andvaraleysi gagnvart samdrætti í byggingariðnaði. Þekking hverfi úr landi. Formaður Samiðnar vill koma hjólunum af stað með því að veita 80% lán til íbúðakaupa.
14.mar. 2010 - 10:00

Skilaði veski sem hann stal fyrir fjörutíu árum: Samviskan hefur alltaf nagað hann

Á föstudag barst lögreglunni í sænska bænum Vansbro sending, gamalt veski með þúsund krónum og orðsendingu frá iðrandi þjófi, sem hafði stolið því í samkvæmi fyrir fjörutíu árum. Réttmætur eigandi veskisins hefur þó engin not af því lengur, því að hann er látinn.
14.mar. 2010 - 09:00

Hollenskir stjórnmálamenn: Slá skjaldborg um heimilið frekar en að þrátta um Icesave

Water Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Camiel Eurlings samgönguráðherra hætta báðir í pólitík Bæði Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Camiel Eurlings samgönguráðherra hafa ákveðið að hætta afskiptum af stjórnmálum og bjóða sig ekki fram í kosningum til hollenska þingsins í sumar. Þeir taka fjölskyldu sína fram yfir tímafrek störf í ríkisstjórninni þar sem efnahagsmálin hafa verið afar þjakandi undanfarin þrjú ár.
13.mar. 2010 - 21:00

Það má finna allt á netinu: 10 skrýtnustu munirnir sem boðnir hafa verið upp á eBay

Efnahyggjumenn segja jafnan að allt sé til sölu, aðeins ef nógu hátt verð er sett á borðið. Miðað við það sem gengið hefur kaupum og sölum á uppboðssíðunni eBay er heilmikið til í því. Pressan hefur tekið saman 10 skrýtnustu hlutina sem seldir hafa verið á þessari vinsælustu uppboðssíðu heims.
13.mar. 2010 - 19:45

Snjöll auglýsingaherferð: Farsími með innbyggðri rakvél og hellir upp á kaffi (MYNDBAND)

Farsíminn hellir upp á kaffi á 30 sekúndum. Þetta kann að hljóma of ótrúlega til að vera satt...og það er það. Yfirvöld í Nova Scotia stóðu fyrir umfangsmikilli auglýsingaherferð þar sem nýr og byltingakenndur farsími var kynntur til sögunnar. Átti síminn að geta allt, meira að segja lagað kaffi.
13.mar. 2010 - 18:48

Fjármögnunarfyrirtæki segja afskriftir vanhugsaðar: Hugsanleg málsókn frá Deutsche Bank

Deutsche Bank er sagður ætla að höfða mál gegn íslenska ríkinu fari Lýsing á hausinn vegna afskrifta. Svo gæti farið að Deutsche Bank höfði mál gegn íslenska ríkinu láti ríkisstjórnin verða að afskriftartillögum félagsmálaráðherra um bílalán. Fjármögnunarfyrirtæki segja tillögurnar vanhugsaðar og gætu orðið til þess að þau fari í þrot.
13.mar. 2010 - 17:25

Jókerinn stendur undir nafni: Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard í kostulegri auglýsingu

Jimmy Bullard skartar meðal annars þessari glæsilegu 80´s hárkollu í auglýsingunni. Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard sem leikur með Hull City í ensku úrvalsdeildinni gengur iðulega undir nafninu Jókerinn. Hann stendur svo sannarlega undir því nafni, enda meinfyndinn drengurinn. Hann hefur nú slegið í gegn í kostulegri sjampóauglýsingu.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Bryndís Gyða Grímsdóttir
Bryndís Gyða Grímsdóttir - 10.3.2010
Smokey eyes: Þegar þú vilt vera extra mikil gyðja - MYNDBAND
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 10.3.2010
Hagsmunaárekstur eða vanhæfni?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
Rifið í lóðin
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit