02. feb. 2010 - 17:38
Jónas Fr. Jónsson hafnar ásökunum um lygar FME: Athygli beint frá heimavanda
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, hafnar ásökunum um að starfsmenn FME hafi logið að hollenskum starfsbræðrum sínum um stöðu Landsbankans vegna Icesave-reikninganna. Hann segir þetta aðgerð Hollendinga til að beina athygli frá heimavanda.
Jónas Fr. sendi frá sér yfirlýsingu í dag, þar sem segir meðal annars:
Starfsmenn Fjármálaeftirlitins gáfu þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Ásökunum um lygar starfsmanna Fjármálaeftirlitsins er vísað á bug, en þar lagði fólk sig fram um að sinna starfi sínu af fagmennsku og heiðarleika.
Jónas bendir á að í viðræðum við Hollendinga í ágúst og september 2008 hafi verið rætt um að Landsbankinn setti upp varasjóð í Hollandi. Tillagan hafi ekki verið ekki afgreidd af hálfu Hollendinga. Hefði það verið gert hefði sjóðurinn getað numið hátt í 600 milljónum Evra þegar bankinn féll. Hefði þar munað um minna.
Enginn sá fyrir þær einstæðu fjármálahamfarir sem urðu í heiminum í lok september og byrjun október 2008. Í Hollandi þurfti að þjóðnýta Fortis banka, ING bankinn þurfti verulega fjárhagsaðstoð frá ríkinu og smærri fjármálaþjónustufyrirtæki s.s. Aegon og SNS fengu ríkisaðstoð, auk almennra aðgerða. Haustið 2009 féll DSB bankinn. Embættismenn í Hollandi vilja beina athyglinni frá þessum heimavanda með yfirlýsingum og hörku gagnvart Íslendingum um Icesave.
Yfirlýsing Jónasar sé nokkuð á skjön við ummæli núverandi forstjóra FME, Gunnars Andersen, sem birtust á Pressunni fyrr í dag, en þar staðfesti Gunnar að einhverjir hafi logið þegar kemur að Icesave-reikningunum og samskiptum við hollensk stjórnvöld. Hver eða hverjir það voru, muni verða upplýst þótt síðar verði.
Yfirlýsing Jónasar Fr. Jónssonar.
Viðtalið við Gunnar Andersen.
11.mar. 2010 - 22:17
Það er nógu slæmt fyrir einstaklinga að vera handjárnaðir af lögreglu eða öðrum yfirvöldum í eðlilegum klæðnaði. Hvað þá að vera handjárnaðir uppáklæddir sem Spiderman, lukkudýr einhvers íþróttaliðs eða bara í gervi Mjallhvítar, vinkonu dverganna sjö? Svo ekki sé talað um ef einstaklingur er í heilgalla sem trúður.
11.mar. 2010 - 21:06
Umræða um neyðarhnapp á samskiptavefnum Facebook hefur komið upp á Bretlandseyjum í kjölfar sífellt fleiri dæmi um barnaníðinga sem nýta sér samskiptamátann til þess að komast í tæri við ungmenni.
11.mar. 2010 - 20:41
Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ skaut harkalega á þingheim á aðalfundi samtakanna í dag. Margrét sagði það einfeldni að halda að 63 þingmenn þjóðarinnar, með takmarkaða reynslu af atvinnulífinu, kæmi Íslendingum upp úr kreppunni. Þá sagði hún að Vinstri grænir þyrftu að ákveða hvorum megin við borðið þeir væru og að þingmenn ættu að eyða minni tíma í innihaldslaust karp og viðræður við fjölmiðla í tímabundnum vinsældarkosningum.
11.mar. 2010 - 19:55
Anna Arrowsmith, sem hefur sérhæft sig í gerð mörg hundruð klámmynda, býður sig fram til setu á breska þinginu fyrir flokk frjálslyndra demókrata í kosningum í vor. Kjördæmi Arrowsmith er Kent. Hún biður kjósendur að dæma hana af skoðunum sínum í málum tengdum kvenréttindum, en ekki af störfum sínum í klámmyndaiðnaðinum.
11.mar. 2010 - 19:24
Flugumferðastjórar aflýstu í kvöld verkfalli sínu sem átti að hefjast kl. 7 í fyrramálið. Eins og Pressan greindi frá átti ríkisstjórn landsins að funda um málið kl. 19:30 og setja lög um vinnudeiluna. Ottó Eiríksson, formaður flugumferðastjóra segir í samtali við Pressuna að verkfall geti enn skollið á næstkomandi miðvikudag.
11.mar. 2010 - 18:55
Starfsmaður Fóðurblöndunnar var í dag sakfelldur í Hæstarétti fyrir þjófnað á 15 tonnum af gölluðum áburði hjá fyrirtækinu og gefið skyldfólki sínu. Starfsmaðurinn sagði að áburðurinn hefði verið ónýtur og gæti því ekki verið andlag þjófnaðar.
11.mar. 2010 - 18:16
Ríkisstjórnin virðist hafa misst þolinmæðina gagnvart verkfalli flugumferðarstjóra, því ríkisstjórnin kom óvænt saman til fundar nú kl. 18 í kvöld og Alþingi hefur verið kallað saman kl. 19:30 vegna fyrirhugaðrar lagasetningar á vinnudeiluna.
11.mar. 2010 - 18:13
Hæstiréttur dæmdi í dag Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóra DV, fyrir ærumeiðandi ummæli í garð sakbornings í kókaínmáli. Hann segist oft hafa verið kærður fyrir meiðyrði en ekki dæmdur fyrr en nú.
11.mar. 2010 - 17:02
Hæstiréttur dæmdi í dag Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóra DV, og Erlu Hlynsdóttur blaðamann fyrir ærumeiðingar í garð Rúnars Þórs Róbertssonar, eins sakborninga í kókaínmáli sem Erla fjallaði um. Hæstiréttur sneri þar með sýknudómi héraðsdóms.
11.mar. 2010 - 16:30
Sjö konur hafa tilkynnt lögreglu á Norður-Sjálandi að maður, sem í dönskum fjölmiðlum er kallaður prumpkallinn, hafi áreitt þær með því að biðja um að þær leysi vind á sig. Lögreglan hvetur prumpkallinn til að gefa sig fram svo að hægt verði að veita honum viðeigandi sálfræðimeðferð.
11.mar. 2010 - 14:35
Í kjölfarið á sjálfsvígum tveggja ungmenna í Hafnarfirði með skömmu millibili hafa skóla- og félagsmálayfirvöld í bænum sent út hvatningu til foreldra um að huga sérstaklega vel að líðan barna sinna og hegðun. Þá er boðin fram aðstoð ef ástæða þykir til að hafa áhyggjur.
11.mar. 2010 - 14:23
Upplýst hefur verið hvað varð til þess að íbúar í franska þorpinu Pont-Saint-Espirit gengu af göflunum dag einn árið 1951. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, setti ofskynjunarlyfið LSD í brauð þorpsbúa í tilraunarskyni. Íbúar þorpsins glíma enn við afleiðingarnar.
11.mar. 2010 - 14:10
EFLA verkfræðistofa og Reitir fasteignafélag hafa skrifað undir samning um leigu á 3800m2 húsnæði í nýjum skrifstofugörðum Reita að Höfðabakka 9. EFLA sem er eitt stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins er nú með aðstöðu á fjórum stöðum í Reykjavík en mun sameina þær í eina starfsstöð í húsnæðinu að Höfðabakka.
11.mar. 2010 - 13:30
„Ég myndi aldrei standa svona að þessu,“ segir Sigurður Sveinn Sverrisson, sem fer með upplýsinga- og kynningarmál hjá LÍU, er hann var spurður út í viðamikla auglýsingaherferð gegn fyrningarleiðinni í Viðskiptablaðinu. Hann segir blaðið sjálft eiga frumkvæði að herferðinni.
11.mar. 2010 - 13:13
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fer háðulegum orðum um fjármálaráðherra Svía í viðtali við sænskt dagblað. Hann segist vera miður sín yfir því að svo virtur stjórnmálamaður afbaki staðreyndir um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave.
11.mar. 2010 - 12:14
Íslensk klettaklifurkona, Elísabet Birgisdóttir, hrapaði niður 6 metra úr hömrum í Ástralíu og brotnaði á báðum höndum. Lögreglan í Adelaide segir að miðað við aðstæður sé óskiljanlegt að hún hafi ekki slasast meira. Elísabet gekkst undir aðgerð í morgun.
11.mar. 2010 - 11:50
Viðskiptabankarnir hafa verulegar efasemdir um hið svokallaða lyklafrumvarp sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Telja þeir að frumvarpið geti jafnvel haft neikvæð áhrif á stöðu lægri tekjuhópa og að nær væri að styrkja þau úrræði sem eru í boði nú þegar.
11.mar. 2010 - 11:08
Utanríkisráðherra Noregs opnar á að veita Íslendingum lán þótt Icesavedeilan sé ekki leyst. Hann hittir norræna starfsbræður sína á fundi í Kaupmannahöfn síðdegis. Þar verða efnahagsmálin á Íslandi til umræðu.
11.mar. 2010 - 10:57
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, segir enga uppstokkun fyrirhugaða framundan innan ríkisstjórnarinnar. Ögmundur Jónasson hefur þrýst mikið á að komast aftur í stjórn og formaður flokksins hefur ekki aftekið að slíkar breytingar verði gerðar.
11.mar. 2010 - 10:20
Japanir kunna svo sannarlega að halda hjólum efnahagslífsins gangandi. Þeir byggja bara og byggja, jafnvel þótt engin þörf sé fyrir viðkomandi mannvirki. Það á við um hinn nýja alþjóðaflugvöll í Ibaraki sem tekinn var í notkun á dögunum. Þaðan fer aðeins eitt flug á dag.