14. jún. 2012 - 20:00

Íslenskur arkitekt hannar umhverfisvænustu skrifstofubyggingu Hollands - Myndband

Íslenski arkitektinn Jón Kristinsson hefur hannað byltingarkennt hús í Hollandi sem framleiðir sína eigin orku. Húsið er byggt í tilefni Floriade gróðursýningarinnar 2012 í Venlo í Hollandi.

Mikil umræða hefur verið um sjálfbærni á undanförnum árum í heiminum, þar á meðal um mikilvægi bættrar orkunýtingar. Einungis 10% Íslendinga býr á svonefndum köldum svæðum þar sem raforka er notuð til húshitunar. Öðru máli gegnir í flestum öðrum löndum sem búa ekki við jarðhita í jafnríkum mæli og Íslendingar.

Hús Jóns er því talið byltingarkennt á þann hátt að það blandar saman gróðurhúsabyggingu og skrifstofubyggingu sem framleiðir sína eigin umhverfisvænu orku.

Jón Kristinsson arkitekt var prófessor í arkitektúr og byggingaverkfræði við Tækniháskólann í Delft frá 1992-2001. Um áratugaskeið rak hann og eiginkona hans einnig arkitektastofu í Deventer í Hollandi.

Jón hefur um áratugaskeið unnið við að bæta orkunýtingu við hitun og kælingu húsa og beitt til þess nýstárlegum aðferðum. Árið 1998 fékk hann Roayl Dutch Shell verðlaunin fyrir sjálfbærni í arkitektúr. Villa Flora hefur vakið mikla eftirtekt á hinni árlegu Floriade sýningu í Hollandi.

Villa Flora hefur verið nefnd umhverfisvænasta skrifstofubygging Hollands. Ráðgert er að nokkur af framsæknustu fyrirtækjum Hollands setji þar upp starfsstöðvar sínar að sýningunni lokinni, en gestum gefst kostur á að kynna sér innviði hennar fram til 7. október þegar sýningunni lýkur.  

Húsið er tilkomumikil glerbygging, yfir 30 metrar á hæð og státar af nýjungum á fjölmörgum sviðum. Inni í byggingunni eru geislar sólar fangaðir og nýttir til að hita upp og kæla niður húsið og til rafmagnsframleiðslu. Sérstökum aðferðum er beitt við förgun úrgangs og úr honum er einnig framleidd orka.

Myndbandskynningu á þessari byltingarkenndu byggingu er að finna hér:

The Greenest Building in the Netherlands: Villa Flora, Floriade 2012 from kris kristinsson on Vimeo.

Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.



21.maí 2013 - 08:45

Tæplega 100 látnir í Oklahoma: Margra er saknað

Að minnsta kosti 91 hafa látið lífið, þar af 20 börn eftir að ægilegur skýstrókur lagði í rúst Moore, úthverfi Oklahomaborgar. Óttast er að talan eigi eftir að hækka mikið en margra er saknað. Á þriðja hundrað manns slasaðist.
21.maí 2013 - 08:00

Heilabólgur og liðagigt eftir bit skógarmítla: Getur valdið lömun

Heimilislæknirinn Vilhjálmur Ari Arason segir að fjórða hvert barn komi á bráðamóttökuna í Huddinge í Svíþjóð vegna taugaeinkenna sem tengjast (TBE). TBE er veiruheilabólga sem berst í fólk með biti skógarmítils.
20.maí 2013 - 22:30

Andri Snær: „Er verið að gera grín að fólki?“

„Nú reynir á fjölmiðla, bæjarstjórn og almenning að vinda ofan af þessari vitleysu,“ segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason um nýjan Álftanesveg. Hann segir umræðuna um veginn „úti í hrauni“.
20.maí 2013 - 21:00

Æsilegar erlendar fréttir úr 100 ára gömlu blaði: Fækkaði Persakóngur konum sínum 1.640?

Í þetta sinn verður litið í gamlar erlendar fréttir. Í Akureyrarblaðinu Gjallarhorni birtist fyrir 100 árum, eða 27. mars 1903, svofelld fréttaklausa:
20.maí 2013 - 11:09 Gunnar Bender

Búið að rifta samningum við Pálma og félaga

Samkvæmt heimildum  Veiðipressunnar hefur samningum við Pálma Gunnarsson og félaga um Eldavatn í Meðalandi verið rift en veiðifélagið gerði fyrir skömmu samning  við þá til sjö ára og áttu þeir að greiða næstum 28 milljónir, 4 milljónir á ári.

20.maí 2013 - 19:55

Flokksráð Sjálfstæðisflokksins boðað til fundar

Flokksráð Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðað til fundar annað kvöld. Þar verður fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokk kynnt og borið undir atkvæði.
20.maí 2013 - 20:00

José Mourinho hættir hjá Real Madrid eftir þetta tímabil

José Mourinho yfirgefur Real Madrid Portúgalski þjálfarinn José Mourinho mun hætta sem þjálfari Real Madrid eftir þetta tímabil. Þetta staðfesti Florentino Perez, forseti félagsins, í fréttatilkynningu í dag. Flest bendir til þess að Mourinho taki við Chelsea.
20.maí 2013 - 22:00

Minni líkur taldar á hraðri hlýnun jarðar

Ný vitneskja um það magn af koltvísýringi sem hafið dregur til sín hefur vakið vonir hóps vísindamanna víða að úr heiminum um að líkurnar á mikilli hnattrænni hlýnun verði minni á næstu áratugum en talið hefur verið fram að þessu.
20.maí 2013 - 18:00

RAV4 - upp um flokk í stærð og gæðum - Reynsluakstur

Það er ótrúlegt til þess að hugsa að það eru liðin 20 ár síðan Toyota frumkynnti RAV4. Ekki nóg að bíllinn væri nýr frá Toyota heldur markaði hann upphafið að nýjum flokki bíla, götujepplingaflokkinn. Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar og samkeppnin er eitilhörð í þessum stærðarflokki. Flestir framleiðendur bjóða fram sinn valkost í flokknum. Það er ekki síst af þeirri ástæðu að framleiðendur verða að vera á tánum og bjóða endurnýjaðar útfærslur og nýjar kynslóðir sinna jepplinga til að vera með í slagnum.


20.maí 2013 - 16:30

Íslandsbankamótaröðin: Úrslit úr yngri flokkum drengja

Pétur Aðalsteinsson frá Íslandsbanka, Henning Darri Þórðarson, Óðinn Þór Rikharðsson, Gísli Sveinbergsson og Birgir Björn Magnússon Í morgun hófu keppendur aftur leik á fyrsta stigamóti sumarsins í Íslandsbankamótaröðinni eftir frestun gærdagsins, en leikið er á Þorláksvelli. Úrslit liggja nú fyrir hjá strákunum í flokki 14 ára og yngri og hjá 15-16 ára drengjum.
20.maí 2013 - 16:00

Rannsaka hvort svindlað hafi verið í atkvæðagreiðslunni í Eurovision

Litháenskir fjölmiðlar halda því fram að Aserbajdan hafi keypt sér atkvæði fyrir atkvæðagreiðsluna í Eurovision á laugardaginn. Samtök Evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, taka þessum ásökunum alvarlega og ætla að rannsaka málið.
20.maí 2013 - 15:00

Handsprengjufögnuður Ronaldinho

Það er stutt í glensið hjá Ronaldinho! Gamli góði fótboltasnillingurinn Ronaldinho er langt frá því að vera hættur í boltanum. Um þessar mundir spilar hinn 33 ára gamli Brasilíumaður undir merkjum Atlético Mineiro í brasilíska boltanum. Þar vakti hann nýverið athygli fyrir framúrskarandi leikhæfileika.
20.maí 2013 - 14:30

Uppsögn Láru Hönnu dregin til baka: Harma óvönduð vinnubrögð

Frásögn Láru Hönnu Einarsdóttur af því að hún hefði í desember sl. greinst með brjóstakrabbamein og ofan á erfiða meðferð bæst við að henni hefði verið sagt upp störfum sem þýðandi hjá 365 miðlum vakti gríðarlega athygli í gærkvöldi.
20.maí 2013 - 13:15

Sjáðu Hómer Simpson tala íslensku

Íslandsþáttur Simpsons-fjölskyldunnar var frumsýndur vestanhafs í gærkvöldi. Í þættinum ómaði tónlist Sigur Rósar og var sögusviðið Ísland. Þar talaði Hómer m.a. íslensku eins og heyra má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
20.maí 2013 - 12:50 Guðjón Ólafsson

Þrír leikir í Pepsi-deild karla í dag: Seðillinn klár?

David James verður í eldlínunni í dag þegar ÍBV fær KR í heimsókn í Eyjum Þrír leikir eru á dagskrá í Pepsi-deild karla í dag þegar flautað verður til leiks í fjórðu umferð. Stórleikur í Vestmannaeyjum þegar heimamenn taka á móti KR, Ólsarar fara norður og Keflvíkingar fá Árbæinga í heimsókn.
20.maí 2013 - 11:30

Óeirðir í Stokkhólmi í nótt: Mikið eignatjón

Upp úr klukkan 22:00 í gærkvöldi var lögreglunni í Stokkhólmi tilkynnt að kveikt hefði verið í minnst fjórum bílum í Husbyhverfinu. Þegar lögreglan kom á staðinn hófu ungmenngi að grýta steinum í lögreglumenn.
20.maí 2013 - 11:15

Fór pínlega með þjóðsönginn

Stressið yfirtók Alexis Normand! Ansi vandræðalegt augnablik átti sér stað á íshokkíleik í Bandaríkjunum nú um helgina. Þá var söngkonan Alexis Normand fengin til að syngja þjóðsöng Bandaríkjanna fyrir leikinn, eins og tíðkast þar í landi, með vægast sagt pínlegri útkomu.
20.maí 2013 - 10:00

Stefán Karl: „Það er ekki fallegt að kalla annað fólk „Fituklessur“ og „Helvítis homma“

 Leikarinn Stefán Karl Stefánsson gagnrýnir foreldra í Vesturbænum fyrir að grípa ekki í taumana þegar þau urðu vitni að því að tveir ungir drengir, um níu ára gamlir, stóðu úti á miðri götu og öskruðu ókvæðisorðum á annan pilt.
20.maí 2013 - 09:00

Sérútbúinn bíll til að taka 360° myndir við helstu kennileiti og ferðamannastaði

Mynd/Pressphotos.biz Já sem rekur meðal annars upplýsingavefinn Já.is, mun á næstu dögum hefja 360° myndatökur við helstu kennileiti og ferðamannastaði á Íslandi. Um er að ræða myndatökur sem gera Já kleift að bjóða upp á sambærilega þjónustu og Google hefur gert með svokölluðum Street View myndum. En slíkar myndir má sjá á kortavef Google af fjölmörgum stöðum í heiminum. Þó ekki frá Íslandi. Fyrirtækið hefur fengið sérútbúinn, umhverfisvænan Tyota Yaris Hybrid til verksins.
 

20.maí 2013 - 09:00

Hjón létust í slysi í Þjórsárdal

Lögreglunni á Selfossi barst að kvöldi Hvítasunnudags tilkynning um að  hjón um sjötugt væru meðvitundarlaus í hjólhýsi í Þjórsárdal.   Sjúkrabílar og lögregla fóru þegar á vettvang. Nærstaddir brutust inn í húsið og komu þeim út undir bert loft og hófu þar tilraunir til endurlífgunar
19.maí 2013 - 22:20

Evrópubúar eru allir komnir af sömu forfeðrunum

Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að flestir Evrópumenn eigi sömu forfeðurna sem voru uppi fyrir um 1.000 árum, á víkingatímanum. Evrópumenn eiga samkvæmt þessari niðurstöðu rætur sínar að rekja til nokkurra forfeðra para sem voru upp fyrir 1.000 árum. Það voru vísindamenn við Davis háskólann í Kaliforníu sem framkvæmdu rannsóknina.

19.maí 2013 - 21:20

Menn voru dæmdir í þrældóm fyrir að hafa hátt í návist kvenna!

Í nýlegri kvikmynd eftir Steven Spielberg er því lýst hvernig Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti kom “þrettándu viðbótinni” við bandarísku stjórnarskrána í gegnum þingið árið 1865. Henni var ætlað að afnema þrælahald í Bandaríkjunum  og jafnan hefur verið litið á samþykkt hennar sem mikinn sigur fyrir Lincoln og baráttumenn fyrir mannréttindum í Bandaríkjunum.

19.maí 2013 - 19:45

Maður í hjólastól lést við fiskveiðar: Fólk stóð aðgerðarlaust og horfði á

Myndin tengist fréttinni ekki beint. 58 ára gamall karlmaður sem var bundinn við hjólastól lést eftir að hafa farið til veiða í stíflu í nágrenni við heimabæ hans í Roermond í Hollandi.
19.maí 2013 - 19:00

Magnaðar myndir Helga Skúlasonar

Helgi Skúlason er einn fremsti ljósmyndari landsins: Þessi mynd var tekin í Vatnsmýrinni Helgi Skúlason hefur á síðustu árum getið sér mjög gott orð fyrir náttúrumyndir sínar og hefur sérhæft sig í fuglamyndum. Hann hefur haldið nokkrar sýningar á myndum sínum, til dæmis í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem vakið hafa mikla athygli. Sérstaka eftirtekt vekur hve persónulegar fuglamyndir Helga eru, enda leggur hann sig fram um að komast í mikið návígi við fuglana.
19.maí 2013 - 18:00

7 hlutir sem allar konur ættu að prófa fyrir þrítugt

Öll þroskumst við á lífsleiðinni. Við prófum margt og lærum á því sem við gerum. Sumt gengur upp, annað ekki … En, það sem gerir lífið svo skemmtilegt og fallegt er einmitt að horfa til baka og sjá að við prófuðum þó. Hér eru nokkrir hlutir sem allar konur ættu að prófa fyrir þrítugt:
19.maí 2013 - 17:00

Arsenal hélt fjórða sætinu og fer í Meistaradeildina á næsta tímabili

Arsenel tekur þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag þar sem einni spurningu var enn ósvarað. Lundúnalið Arsenal og Tottenham áttu í harðri baráttu um hið eftirsótta fjórða sæti, sem gefur jú sæti í Meistaradeild Evrópu.
19.maí 2013 - 16:55

Alex Ferguson lokaði ferlinum með markasúpu í leik númer 1500

Ferguson kvaddi enska boltann í dag. Í dag stýrði Alex Ferguson liði Manchester United í sínum síðasta leik á ferlinum. Það var vægast sagt mikið skorað á heimavelli WBA, The Hawthorns, í dag en leikurinn endaði með ótrúlegu 5-5 jafntefli. Ferguson að kveðja enska boltann með stæl!
19.maí 2013 - 15:30

Nautalundir notaðar sem gjaldmiðill í undirheimunum

Á skilti í einni Bónusverslun í Reykjavík segir: „Viðskiptavinir athugið. Nautalundir eru afgreiddar af lager. Vinsamlegast snúðu þér að næsta starfsmanni".  Er þetta gert til að reyna stemma stigu við þjófnaði á dýrari kjötvörum.
19.maí 2013 - 14:30

Tvöfaldur sigur Mjölnismanna á Írlandi

Stærri mynd má sjá hér að neðan. Það voru fleiri en Eyþór Ingi í sviðsljósinu á erlendri grundu í gærkvöldi. Á sama tíma og Eyþór tjáði fólki í Svíþjóð að hann ætti líf börðust tveir Mjölnismenn í blönduðum bardagaíþróttum í Dublin. Brynjólfur Ingvarsson og Damian Zorczykowski unnu báðir sína bardaga.
19.maí 2013 - 14:00

Gallað landbúnaðarkerfi: Íslenskir neytendur greiða eitt hæsta verð fyrir landbúnaðarafurð

Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að tillögur verkefnisstjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld hafi ekki fallið í kramið hjá formanni Bændasamtakanna.
19.maí 2013 - 12:45

Of fallegur til að geta verið hryðjuverkamaður

Dzokhar Tsarnaev sem framdi hryllileg ódæðsverk ásamt Tamerlan eldri bróður sínum í Boston á hóp aðdáenda sem hafa stofnað síður honum til heiðurs á netinu. Á vef Huffington Post segir að aðdáendurnir séu flestir unglingsstúlkur sem telja óhugsandi að svona myndarlegur ungur maður hafi hugsanlega skipulagt hræðilegar árásir á saklausa borgara.
19.maí 2013 - 11:00

Björn Bragi var tekinn í yfirheyrslu í morgun

Björn Bragi Arnarsson er fæddur árið 1984.  Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og þá er hann með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björn var fyrr í vetur kosinn sjónvarpsmaður ársins fyrir frammistöðu sína sem stjórnandi Týndu kynslóðarinnar og hlaut hann Edduna fyrir.
19.maí 2013 - 09:00

Öflugustu herskip sögunnar: Hvar eru bandarísku Nimitz-flugvélamóðurskipin stödd einmitt núna?

Öflugustu herskip sögunnar fyrr og síðar eru bandarísku flugvélamóðurskipin af Nimitz-gerð. Þau eru sjálf lítt vopnuð miðað við stærð og bera aðeins fáeina litla skotpalla með loftvarnaflaugum eða -byssum. En um borð eru líka um það bil níutíu þyrlur og flugvélar af flestum stærðum og gerðum, og það eru þessar vélar sem gera Nimitz-skipin að þeim ógnarlegu vopnum sem þau eru.
18.maí 2013 - 23:30

Beckham grét er honum var skipt útaf í sínum síðasta leik á ferlinum

Tilfinningaþrungið augnablik! Í kvöld lék David Beckham sinn síðasta fótboltaleik á ferlinum þegar hann leiddi lið PSG til 3-1 sigurs gegn Brest í franska boltanum. Beckham, sem bar fyrirliðaband PSG í leiknum í kvöld, var tekinn útaf á 83. mínútu og táraðist þá öll stúkan, líkt og Englendingurinn sjálfur.
18.maí 2013 - 22:25

Danir unnu Eurovision með glæsibrag

Eins og flestir Íslendingar vita fór Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fram í kvöld. Eyþór Ingi söng fyrir Íslands hönd og stóð sig frábærlega en það var hinsvegar Emelie de Forrest sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með framlagi Danmerkur Only Tearsdrop.
18.maí 2013 - 22:00

Eurovision: Það besta af Twitter og Facebook - „Hvar eigum við að halda þetta 2014?“

Samskiptasíðurnar Twitter og Facebook loguðu á meðan söngvarar stigu á svið í Eurovision-keppninni. Líflegar umræður fóru fram um lögin og á báðum samskiptasíðunum mátti finna skemmtilega gullmola um hina ýmsu listamenn í keppninni.
18.maí 2013 - 20:30

Staðan eftir fyrri hring á fyrsta stigamóti sumarsins

Kylfingar í Þorlákshöfn í dag Kylfingar á Íslandsbankamótaröðinni þurftu að glíma við ansi erfiðar aðstæður á Þorlákshafnarvelli í dag þegar slegið var til leiks á fyrsta stigamóti sumarsins. Það er þó óhætt að segja að kylfingarnir ungu hafi komið vel undirbúnir til leiks því sjá mátti frábær tilþrif og mörg mjög góð skor.
18.maí 2013 - 20:00

Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar

Helstu verkefni nýrrar ríkisstjórnar eiga að felast í því að takmarka stærð fjármálastofnana, stytta vinnutíma, draga úr álagi á umhverfið og stórefla lýðræðið. Þetta segir Kristinn Már Ársælsson í lýðræðisfélaginu Öldu. Eyjan hefur beðið hann og fleiri álitsgjafa úr þjóðfélaginu að setja á blað hver þau telja vera brýnustu verkefni nýrrar ríkisstjórnar.
18.maí 2013 - 18:30

Kveðja frá Eyþóri: Góða skemmtun í kvöld

Eyþór Ingi sem í kvöld flytur lagið Ég á líf í Eurovision-keppninni spjallaði á léttu nótunum við Davíð Lúther Sigurðarson. Þá sýndi hann skartið sem hann ber og ræddi um fataval fyrir stóru stundina.
18.maí 2013 - 17:35

Anna: Sigmundur er rómantískt ljúfmenni - Táraðist yfir ljótum ummælum

Anna Sigurlaug Pálsdóttir eiginkona  Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar segir að hún hafi um tíma tekið afar nærri sér allt baktal og ljót ummæli um eiginmann hennar í kommentakerfum fjölmiðlanna. Hún laumaðist í tölvuna á kvöldin, sat fram eftir nóttu og las ummælin með tárin í augunum.
18.maí 2013 - 16:25

Ræningjar skutu þrjá vegfarendur í Ängelholm í Svíþjóð í morgun

Af vettvangi: Sænska ríkisútvarpið segir að þrír hafi særst í skothríðinni Þrír grímuklæddir ræningjar rændu gullsmíðaverslun á Storgatan í Ängelholm á Skáni í morgunn. Eftir að þeir höfðu rænt verslunina skutu þeir mörgum skotum á fólk sem var fyrir utan verslunina og særðust þrír vegfarendur.
18.maí 2013 - 14:30

Líkfundur í Kaldbaksvík á Ströndum

Sjórekið lík fannst í fjöru í Kaldbaksvík á Ströndum í morgun. Ekki er vitað hvenær viðkomandi lést.
18.maí 2013 - 14:15

Skipting ráðuneyta: Ný ríkisstjórn að taka á sig mynd – Spáð í spilin

Stjórnarmyndunarviðræður Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru á lokastigi en þeim mun þó ekki ljúka fyrr en eftir hvítasunnuhelgina. Í dag og á morgun er talið að rætt verði við einstaka þingmenn. Stofnanir flokkana  verða líklega kallaðar til fundar á þriðjudag.
18.maí 2013 - 13:05

Einkennileg fagnaðarlæti Börsunga: Ætlaði Song að berja Pique?

Hvað er í gangi hér? Leikmenn Barcelona fögnuðu sigri sínum í La Liga nú á dögunum með því að keyra í gegnum Katalóníu á opnum bíl. Þar heilsuðu þeir stuðningsmönnum með tilheyrandi gleði og fagnaðarlátum. Eitthvað virðist þó hafa farið úrskeiðis um borð í bílnum.
18.maí 2013 - 12:00

Svona lítur hamborgarinn út í alvörunni

Flest gerum við okkur grein fyrir því að skyndibitamaturinn sem við kaupum lítur alltaf betur út í auglýsingunni en í raunveruleikanum. Ljósmyndarinn Dario D var hins vegar búinn að fá nóg af því að fá aldrei það sem auglýsingin lofaði honum.
18.maí 2013 - 11:10

Ingólfur Geir kominn í aðrar búðir á leið sinni á topp Everest

Ingólfur Geir Gissurarson Everest-farinn Ingólfur Geir Gissurarson kom í gær í aðrar búðir á leið sinni á toppinn. Í dag er hvíldardagur en snemma á morgun mun Ingólfur halda áfram upp í þriðju búðir. Ef allt gengur að óskum þá er stefnt að því að vera á toppnum að morgni 21. maí.
18.maí 2013 - 10:00

Fórnarlambið er enn á spítala eftir hrottalega árás í Breiðholti

Af vettvangi - skjáskot af fréttum Ríkissjónvarpsins Karlmaður sem slasaðist alvarlega þegar hópur manna réðst á hann í Breiðholti síðdegis í gær dvelur enn á sjúkrahúsi. Tveir menn hafa verið handteknir vegna árásarinnar en þeir hafa báðir hlotið dóm fyrir ofbeldisverk.
18.maí 2013 - 08:30

Mynd dagsins: Regnbogafánanum flaggað til stuðnings við hinsegin fólk

IDAHO-dagurinn, alþjóðlegur baráttudagur gegn hómó-, bi- og transfóbíu var í gær. Dagurinn hefur verið haldinn 17. maí ár hvert síðan árið 2005, en þann dag árið 1990 var samkynhneigð tekin út af sjúkdómalista Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.
17.maí 2013 - 21:25

Kristur neðansjávar: Þrár stórar Jesú-styttur boða trú og kærleika hverjum kafara

Ef kristinn kafari færi að synda í flóanum San Fruttuoso á Rívíeruströnd Ítalíu, þá er hætt við að hann færi fljótlega á fund skapara síns.
17.maí 2013 - 19:30

Hrottaleg árás í Breiðholti: Landsþekktur handrukkari talinn vera einn af árásarmönnunum

Árásin átti sér stað í Breiðholti: Skjáskot af vef Ríkissjónvarpsins - af vettvangi. Karlmaður er mikið slasaður eftir að minnst þrír menn réðust á hann í Breiðholti síðdegis í dag. Íbúar við Ystasel telja að um handrukkun hafi verið að ræða en árásarmennirnir notuðu m.a. hafnarboltakylfu þegar þeir gengu í skrokk á manninum fyrir allra augum.

Sena_eBækur_Inferno
Pressupennarvinsælast í vikunni
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 18.5.2013
Ógleymanleg heimsókn
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Ólafur Ragnar – Til hamingju með daginn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2013
Fjárhæli og andabú
Fleiri pressupennar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 12.5.2013
Good old times are back
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 13.5.2013
Óskiljanleg ákvörðun hjá Garcia á Players
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 13.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 5. hola - Myndband
Þórhallur Heimisson
Þórhallur Heimisson - 12.5.2013
Fimmti hringur Vítis
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 13.5.2013
Grenningarhollráð Sverris
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.5.2013
Kúgun, flekun og nauðgun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 12.5.2013
Bókarheiti úr Biblíunni — og þó
Fleiri pressupennar