10. mar. 2010 - 15:20

Icesave er beiskur kaleikur segja Jóhanna og Steingrímur Getty Images
Formenn stjórnarflokkanna segjast klára Icesavesamningana upp á eigin spýtur velji stjórnarandstaðan að hlaupast á brott frá þeirri vinnu. Þeim beiska kaleik geti ábyrg ríkisstjórn ekki vikið frá sér. Tafir skaði íslenskt samfélag.
Formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins settu ýmsa fyrirvara við áform ríkisstjórnarinnar um að „vinda sér í að ljúka málinu“, eins og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra tók til orða í gær. Þverpólitísk samstaða um lausn málsins stendur því á brauðfótum.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir í samtali við Pressuna, að það sé hárrétt hjá stjórnarandstöðunni að ríkisstjórnin sé einbeitt í að ljúka þeim brýnu málum sem nauðsynlegt er að ná í höfn svo að endurreisn efnahagslífisns geti gengið hratt og vel fyrir sig.
Farsæl lausn á Icesavedeilunni er slíkt mál og tafir á lausn þess gera lítið annað en að skaða íslenskt samfélag. Ég trúi því einlæglega að hægt sé að ná lausn í málið á grundvelli þess uppleggs sem íslenska samninganefndin undir forystu Lee Buchheit og í samráði við formenn allra stjórnmálaflokkanna mótaði í sameiningu. Verulega hefur miðað í samkomulagsátt á grundvelli þessarar vinnu og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að stjórnarandstaðan ætli að hlaupast á brott frá þeirri vinnu í þeim eina tilgangi að koma höggi á ríkisstjórnina.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra er á sama máli og segist í samtali við Pressuna, undrandi á afstöðu stjórnarandstöðunnar.
Ég varð ekki var við ósamstöðu á fundi okkar í gær, menn settu vissulega fyrirvara, einkum Sigmundur Davíð, en þeir þurfa að skýra þá afstöðu sína sjálfir. Ef kemur upp úr dúrnum að það geti ekki orðið samstaða um að ljúka málinu, þá verðum við að endurmeta stöðuna. Ég útiloka ekki að það gæti tafið málið, því miður.
Jóhanna segir að þjóðin þurfi á því að halda að sátt sé um lausn Icesavedeilunnar.
Farsælast og eðlilegast væri, ekki síst í ljósi forsögu þessa hörmulega Icesave-máls, ef hægt væri að ljúka því með pólitískri sátt hér innanlands. Velji stjórnarandstaðan að segja sig enn og aftur frá málinu stendur hinsvegar uppá ríkisstjórnina að klára málið. Þeim beiska kaleik getur engin ábyrg ríkisstjórn vikið frá sér.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.