08. feb. 2010 - 07:00

Hvað segja andstæðingarnir á EM? Hafa ekki miklar áhyggjur af litla Íslandi sem mun lenda neðst

Egill Drillo Olsen, þjálfari Noregs, Carlos Queiroz, þjálfari Portúgals, Morten Olsen, þjálfari Danmerkur og Ólafur Jóhannesson, þjálfari Íslands, við dráttinn í undankeppni EM 2012 í Varsjá í gær.

Egill Drillo Olsen, þjálfari Noregs, Carlos Queiroz, þjálfari Portúgals, Morten Olsen, þjálfari Danmerkur og Ólafur Jóhannesson, þjálfari Íslands, við dráttinn í undankeppni EM 2012 í Varsjá í gær.

Forráðamenn danska, norska og portúgalska landsliðsins hafa ekki miklar áhyggjur af því að litla Ísland nái árangri á Em í knattspyrnu en dregið var í riðla í gær.  Flestir telja að Ísland lendi í neðsta sæti H-riðils.

Carlos Queiroz, þjálfari Portúgals, sagði eftir dráttinn að hann væri afar ánægður með niðurstöðuna. Norðmenn gætu komið á óvart en það væru Danir sem yrðu helsta ógnin. Af öðrum þjóðum þyrfti ekki að hafa áhyggjur.

Egil „Drillo“ Olsen, þjálfari Noregs, sagðist himinlifandi yfir árangrinum. Nú yrði hægt að hefna þess óréttlætis sem varð þegar Ísland náði 2 - 2 jafntefli í Noregi og 1 - 1 á Íslandi í undankeppni HM. Til að tryggja að Noregur kæmist áfram yrði að tryggja að Ísland fengi ekki stig frá Noregi. Hann segist viss um að baráttan um annað sætið verði milli Danmerkur og Noregs, önnur lið [lesist: Ísland og Kýpur] eigi ekki möguleika.

Morten Olsen, þjálfari Dana, hefur þegar kortlagt riðilinn og veit upp á hár hvernig hann fer. Portúgal vinnur en Olsen er sannfærður um að Danir komist áfram.

„Danmörk lendi í öðru sæti. Norðmenn verða númer þrjú, Kýpur fjögur og Ísland verður í fimmta sæti. Við hlökkum til leiksins á móti Noregi.“

Morten Olsen minnir ennfremur á að Íslandi hafi ekki unnið Dani síðan í þýðingarlausum vináttulandsleik árið 1974 og það breytist ekki nú. Hann segir að auki gjarnan vilja hefja undankeppnina með sigri með því að spila fyrsta landsleikinn í Laugardal.

Sem sagt; þjálfarar Portúgals, Danmerkur og Noregs, hafa þegar afskrifað litla Ísland í undankeppni EM 2012.



16.mar. 2010 - 21:50

Eru karlar og konur jafnvíg þegar kemur að akstrinum? Dæmi um akstur kvenna - MYNDBAND

Karlar og konur hafa deilt í tugi ára um hvort kynið sé betra að keyra. Sumir segja karlar, aðrir segja konur og enn aðrir hallast að því að enginn munur sé þar á. Myndbandið sem fylgir hér á eftir sýnir dæmi nokkurra kvenmanna við stýrið.
16.mar. 2010 - 21:21

Mottukeppnin svo vinsæl að vefsíðan hrundi - Milljónir króna hafa safnast í áheitum

Mikið álag á vefsíðunni karlarogkrabbamein.is varð til þess að vefsíðan lá tímabundið niðri um síðustu helgi. Mottukeppnin hefur slegið rækilega í gegn en milljónum króna hefur nú þegar verið heitið á þúsundir keppenda. Í liðakeppninni standa Logos menn efstir en Rúnar Sigurðsson hefur fengið hæst áheit einstaklinga.
16.mar. 2010 - 20:13

Landsbankinn svarar fyrir gagnrýni á kaupaukakerfi: Segja umræðuna algerlega ótímabæra

Öll umræða um kaupaukakerfi í Landsbankanum er algerlega ótímabær þar sem engu slíku kerfi hefur verið komið upp og engin útfærsla samþykkt. Töluverð umræða upphófst á Alþingi í dag þegar stjórnarliðar gagnrýndu hugmyndir um bónusgreiðslur til bankastarfsmanna. Guðlaugur Þór gagnrýndi Landsbankann sérstaklega og sagði hann hafa komið umræðunni af stað.
16.mar. 2010 - 20:05

Svíar vildu banna meðlimum vélhjólagengja að klæðast merktum fötum á veitingahúsum

Sænskir dómstólar hafa komist að þeirri niðurstöðu að stjórnarskrá landsins heimili ekki að samtökum á borð við Hells Angels og Bandidos verði bannað að klæðast merktum flíkum á vínveitingahúsum. Telur dómstóllinn að með því séu sjálfsögð mannréttindi meðlima samtakanna brotin.
16.mar. 2010 - 19:15

Tiger Woods boðar endurkomu í golfið: Erfið umræða um hjákonurnar alræmdu að líða hjá

Kylfingurinn Tiger Woods tilkynnti í dag að hann sé tilbúinn til þess að snúa aftur í golfheiminn. Kylfingurinn hefur átt erfiða daga síðan hann keyrði á brunahana fyrir utan heimili sitt í nóvember síðastliðnum. Nú virðist sem lífið sé að færast í eðlilegt horf hjá snillingnum og margir sem bíða spenntir.
16.mar. 2010 - 18:25

3 ára drengur í óskilum hjá lögreglu eftir afmælisveislu: Sagði bara „pítsa“ og „ís“

Enginn vitjaði drengsins í tvo daga. Lögreglan í Macomb sýslu í Michigan-fylki í Bandaríkjunum vissi ekki sitt rjúkandi ráð þegar hún fékk í vörslu sína þriggja ára dreng sem skilinn hafði verið eftir í afmælisveislu á veitingastað. Drengurinn gat ekki gert grein fyrir sér og enginn vitjaði hans fyrr en tveimur dögum síðar.
16.mar. 2010 - 17:45

Vill ekki beita aðgerðum til lækkunar bensínverðs - Hvatti til þess í stjórnarandstöðu

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra. Kristján L. Möller, samgönguráðherra, er ekki á því að beita sértækum aðgerðum til að lækka bensínverð í landinu, þrátt fyrir að hafa kallað eftir slíkum aðgerðum þegar hann var í stjórnarandstöðu. Hann vonast til að bensínverð lækki eftir að samið verður um Icesave.
16.mar. 2010 - 17:40

Bílaleiga Akureyrar kaupir 175 nýja bíla af Suzuki umboðinu

Bergþór Karlsson og Steingrímur Birgisson frá Bílaleigu Akureyrar ásamt Úlfari Hinrikssyni frá Suzuki-umboðinu, sem stendur í miðið. Höldur-Bílaleiga Akureyrar og Suzuki bílaumboðið á Íslandi hafa skrifað undir kaup bílaleigunnar á að minnsta kosti 175 nýjum bílum af tegundunum Suzuki Swift og Suzuki Grand Vitara og hugsanlega verður bílunum fjölgað eitthvað þegar nær dregur sumri.
16.mar. 2010 - 17:05

Guðlaugur Þór: Hvernig væri að byrja á að fara yfir bónus- greiðslurnar í ríkisbankanum?

Starfsmenn Landsbankans gætu átt von á ríflegum kaupauka gangi vel að endurheimta eigur bankans. „Það er þannig að hæstvirtur fjármálaráðherra samdi sérstaklega um það að það yrði árangurstengt launakerfi í ríkisbankanum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur réttast að Alþingi fjalli fyrst um bónusa Landsbankans áður en hjólað verður í aðra banka.
16.mar. 2010 - 16:04

Mottumars: Skorað á forsetann - Hvernig myndi Ólafur Ragnar líta út með mottu? MYNDIR

Samsett mynd af forsetanum með myndarlega mottu Skorað hefur verið á forseta Íslands að taka þátt í átakinu karlar og krabbamein og láta sér vaxa yfirvaraskegg. En hvernig myndi forsetinn líta út með mottu?
16.mar. 2010 - 15:00

Utanríkisráðherra: Hefðbundnar vinaþjóðir hafa snúið við okkur baki, nú treystum við á Þjóðverja

Össur vonast eftir aðstoð frá Þjóðverjum Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að hefðbundnar vinaþjóðir hafi snúið baki við Íslendingum, sem treysti nú á Þjóðverja að aðstoða landið í þeim vandræðum sem nú steðja að landi og þjóð.
16.mar. 2010 - 14:13

Þingmenn æfir yfir bónus- greiðslum bankanna: Skattlagðar upp í rjáfur og hóta lögum

Bónusgreiðslur til starfsmanna bankanna voru fordæmdar á Alþingi í dag. Lagt var til að þær yrðu annað hvort skattlagðar upp í rjáfur eða sett verði lög til að banna þær. Formaður viðskiptanefndar vill að Alþingi hóti að setja lög um afskriftir til skulda heimilanna til að fá uppgefið hvert svigrúmið er.
16.mar. 2010 - 12:58

Ríkisstjórnin fundar með Lee Buchheit í dag: Boltinn er ekki hjá okkur, segja ráðherrar

Jóhanna og Steingrímur hafna fullyrðingum Hollendinga að boltinn sé hjá Íslendingum. Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan funda í dag með Lee Buchheit sem fer fyrir íslensku samninganefndinni í Icesave-málinu. Enginn formlegur fundur hefur verið boðaður með Hollendingum og Bretum. Ríkisstjórnin kannast ekki við að boltinn sé hjá Íslendingum í deilunni.
16.mar. 2010 - 12:32

Jóhanna: Sjálfstæðisflokkurinn hafði engan áhuga á að koma í veg fyrir undanskot á skatti

Jóhanna segir að farið verði í rannsókn á skattaundanskotum af fullum krafti. Skattayfirvöld höfðu tvívegis gert tillögur um viðamiklar umbætur til að koma í veg fyrir skattaundanskot í bankakerfinu. Forsætisráðherra segir ljóst að enginn áhugi hafi verið hjá Sjálfstæðisflokknum að ráðast í slíkar umbætur þegar hann stjórnaði fjármálaráðuneytinu.
16.mar. 2010 - 11:59

Gömlu bankarnir réðu yfir svörtu hagkerfi: Rökstuddur grunur um stórfelld skattaundanskot

Rökstuddur grunur leikur á að gömlu bankarnir hafi komið milljörðum króna undan skatti áður en þeir féllu. Ríkisstjórnin ætlar að koma á fót sérstakri sveit á vegum skattrannsóknarstjóra til að rannsaka umfangið.
16.mar. 2010 - 11:48

Mesta fólksfækkun á landinu frá lokum 19. aldar - Íslendingum heldur þó áfram að fjölga

Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá árinu 1889. Brottfluttir útlendingar valda miklu um þessa fækkun. Íslendingum heldur áfram að fjölga.
16.mar. 2010 - 11:15

Ekkert gert með tillögu Fall: Vildi aðra banka undir Straum til að tryggja greiðsluflæði við útlönd

William Fall, fv forstjóri Straums. William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, sem í gær var ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland, gerði tillögu til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í október 2008 um að fella íslenska banka undir Straum í því skyni að komast að samkomulagi við erlenda kröfuhafa og tryggja eðlilegt greiðsluflæði frá Íslandi til útlanda.
16.mar. 2010 - 10:47

500 íslenskir hönnuðir taka þátt: HönnunarMars hefst á fimmtudag, 100 viðburðir í boði

Greipur Gíslason, verkefnisstjóri HönnunarMars og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar kynntu dagskrána. HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 10:29

HEKLA selur Bílaleigu Akureyrar tvö hundruð nýjar Skoda og Volkswagen bifreiðir á einu bretti

Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar-Hölds ehf. og HEKLU innsigla samninginn Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23

Opið bréf til Lars Lökke: Skildum heldur aldrei hvernig við gátum keypt danskar þjóðargersemar

Bréf Kristjáns í Börsen í dag Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.

 



Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 16.3.2010
Meig utan í lögreglubíl í miðbænum
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 14.3.2010
Mikilvægasta málið
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.3.2010
Hugleiðingar vegna orða Jurshevskis
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit