16. mar. 2009 - 14:53Björn Ingi
Tölvunördar í Valhöll náðu félagatali Samfylkingarinnar
Ungir og ákafir menn nýttu sér glufu í kosningakerfi, skrifuðu lítið
tölvuforrit og létu síðan mjög harðvirka tölvu bera allar kennitölur á
þjóðskrá saman við netkosningu í prófkjöri Samfylkingarinnar. Fyrir
vikið er eintak af flokksskránni í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi í
höndum tölvunörda Valhallar.
Þetta kemur á
bloggsíðu Páls Ásgeirs Ásgeirssonar blaðamanns, en hann fjallar um orðróm sem hefur verið í gangi um félagaskrá Samfylkingarinnar hafi verið hlaðið niður af óviðkomandi aðilum. Egill Helgason gerði málið að umtalsefni í þættinum Silfur Egils á sunnudag og spurði: „Hverjir skyldu hafa hlaðið niður félagaskrá Samfylkingarinnar“. Hann bætti við: „Ég hef á tilfinningunni að það hafi verið hægt að gera það og hef heimildir fyrir því.“
Fjallað er um málið á vefritinu
Herðubreið í dag og segir þar:
Egill hefur að vísu ekki alltaf fyrir því að kynna sér staðreyndir áður en
hann slær fram vafasömum fullyrðingum, svo að þetta ætti ekki að koma á
óvart.
Líklega er hann að vísa til þess að á
einhverjum tímapunkti var hægt að komast að því hvort tiltekinn einstaklingur
var á kjörskrá í prófkjöri og hvort hann væri búinn að kjósa. Það var alvarlegur
ágalli á kerfinu – og einn vandinn við kosningar á netinu – en hvergi var hægt
að nálgast félagaskrána í heild.
Egill hefði getað slegið inn hvaða kennitölu sem var og komist að því hvort
viðkomandi væri kjörskrá. Ef viðkomandi var búinn að kjósa hefði líka komið
melding um það enda ekki hægt að kjósa tvisvar.
Þetta var ágallinn. Félagaskrána í heild var hins vegar hvergi að finna á
netinu og hana gat enginn sótt.
Hvað sem heimildum Egils Helgasonar líður.
Nú hefur Páll Ásgeir semsé tekið undir með Agli og segir:
Það sem mun hafa gerst er að ungir og ákafir menn skrifuðu lítið tölvuforrit og létu síðan mjög hraðvirka tölvu bera allar kennitölur á þjóðskrá saman við netkosninguna. Með því að tölvan gaf ávallt til kynna hvaða kennitölur væru á félagaskrá Samfó eða ekki varð smátt og smátt til listi yfir þá sem fengu “grænt ljós”. Jafnframt komu fram upplýsingar um það hvort viðkomandi hafði þá þegar kosið þegar þessi samkeyrsla fór fram.
Til verksins mun þurft nokkra kunnáttu í forrritun, mjög öfluga tölvu, tölvutæka þjóðskrá og tæplega tvær klukkustundir sem samkeyrslan tók. Þetta var semsagt gert meðan umrædd glufa í kosningafyrirkomulaginu var enn opin.
Og hvað?
Félagaskrá Samfylkingar í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi er í höndum einhverra sem að jafnaði fengju ekki aðgang að henni. Og hvað með það? Á ekki allt að vera uppi á borðinu, gegnsætt og allt.
Ég get ómögulega séð að það steðji einhver sérstök hætta að flokksstarfi Samfylkingar þótt eintak af félagaskránni í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi hafi lent í hendur á tölvunördum Valhallar.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
02.sep. 2010 - 22:15
Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 21:33
Er smá haustlykt í loftinu? Eða hugsanir um vetur og kulda allsráðandi? Ekki á Íslandi, því á Íslandi eru heitar sundlaugar opnar allt árið, skrifar maður sem safnar íslenskum laugum.
02.sep. 2010 - 21:09
Gunnar Bender
,,Síðasta holl sem fór í Jónskvísl Sýrlæk fékk 14 sjóbirtinga, þar af var 9 gefið líf. Hollið þar á undan fékk 8 sjóbirtinga," sagði Rafn A. Guðjónsson er við inntum hann frétta af veiðinni í Jónskvíslinni.
02.sep. 2010 - 20:15
Breskur eiginmaður liggur undir grun um að hafa kyrkt konu sína þegar hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr með að minnsta kosti tveimur öðrum konum.
02.sep. 2010 - 19:30
Íslenskir strætisvagnabílstjórar trylltust algjörlega þegar úrslit voru kunngjörð í Norðurlandamóti strætisvagnabílstjóra.
02.sep. 2010 - 18:00
Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 17:07
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 16:50
Fangar á Litla Hrauni sýna verk sín og selja á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fangavörður segir margt verða til að gleðja augað á sýningunni því að margir fangar sýni og sanni að í þeim býr hreinræktaður listamaður sem fengið hefur tækifæri til að brjótast út.
02.sep. 2010 - 15:18
Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
02.sep. 2010 - 14:39
Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 13:03
Verður ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna betri með nýjum ráðherrum? Hvað finnst lesendum Pressunnar?
02.sep. 2010 - 12:18
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49
Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:34
Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:23
Knattspyrnuhetjan Eiður Guðjohnsen segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að kveðja heimsborgaralega lifnaðarhætti í Mónakó og snúa aftur í ensku úrvalsdeildina sem liðsmaður Stoke City.
02.sep. 2010 - 10:10
Guðbjartur Hannesson verður nýr ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
02.sep. 2010 - 09:53
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
02.sep. 2010 - 09:10
Þingflokkur Samfylkingarinnar er að hefja síðasta fund sinn fyrir ríkisráðsfund vegna breytinga á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Fundurinn er haldinn á hótel Loftleiðum og þar fer einnig fram flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar kl. 10.
02.sep. 2010 - 08:00
Snæfríður Ingadóttir
Hómópatinn Svana Ingvaldsdóttir hefur sett á markað sérstakar remedíublöndur sem hjálpa ferðalöngum að takast á við ýmsa kvilla sem fylgja ferðalögum. Blöndurnar taka á vandamálum á borð við flughræðslu, matareitrun, flugnabiti, sólbruna og fótapirringi.