07. feb. 2010 - 15:56
Hera Björk vill helst taka Jógvan með sér: Lofar að vera í einhverju „fabulous“ í Osló

Hera Björk kom sá og sigraði undankeppni Eurovision í gærkvöldi.
Hera Björk Þórhallsdóttir, nývalinn Eurovision-fari fyrir Íslands hönd sagði að tilfinning væri yndisleg, þegar Pressan náði sambandi við hana í dag. Þá var hún á leið í vöffluboð til móður sinnar til þess að fagna sigri með sínum nánustu. Hera segir að gleði og íslenska þrautsegja verði sín leynivopn og lofar að vera í einhverri „fabulous“ íslenskri hönnun á sviðinu í Osló.
Hera Björk segist alveg eins hafa búist við sigri og að þau efstu (hún og Jógvan Hansen) hafi verið ansi sigurstrangleg. „Ég var mjög vongóð og fann góðan meðbyr úti í þjóðfélaginu. Þrátt fyrir það var ég að míga í mig rétt fyrir úrslit,“ segir hún kát í bragði. Undirbúningur fyrir stóra daginn hófst strax í dag en Hera segir að tilboðin streymi til hennar, þar sem hún er beðin um að troða upp í Júróvisjónpartíum fyrir gallharða aðdáendur áður en sjálf keppnin fer fram.
En hvað með Jógvan, ætli þau Hera séu ennþá félagar? „Við erum yndislegir vinir, spurning hvort við dúndrum þessu í dúett, maður veit aldrei,“ segir Hera sem vildi helst taka hann með sér til Oslóar. „Svo er hann þrællaginn hárgreiðslumaður. Ef ég finn stað fyrir hann treð ég honum inn.“
Hera lofar að slá í gegn á sviðinu á lokakvöldinu í maí. „Ég verð í einhverju fabulous, enda er þetta draumur hverrar söngkonu. Ég á eftir að baða mig í athyglinni í einhverri guðdómlegri, íslenskri hönnun,“ segir hún sem hefur gleði, meiri gleði og íslenska þrautsegju að leiðarljósi í því verkefni sem framundan er hjá henni.
17.mar. 2010 - 22:15
Pressan hefur að undanförnu birt fjöldann allan af furðulegum myndum. Á netinu virðist framboðið af furðulegum myndum óendanlegt og virðast engin takmörk fyrir furðulegheitum mannskepnunnar. Síðan er það auðvitað spurningin hvar liggja mörkin milli hins eðlilega og hins óeðlilega?
17.mar. 2010 - 21:56
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segist hafa lesið hluta af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hann segir alltof miklar væntingar gerðar til þess sem þar kunni að segja. Hann sagðist ekki hafa getað séð neina ástæðu til að tárast á þeim síðum sem hann las.
17.mar. 2010 - 21:30
Niðurstöður rannsókna bandarískra vísindamanna benda til þess að karlmenn sem byrja að missa hárið snemma á fertugsaldrinum eiga mun síður á hættu að greinast með blöðruhálskrabbamein heldur en karlmenn með hnausþéttan hárvöxt. Sköllóttir hafa hingað til margir orðið sorgmæddir við hármissinn en nú hugsanlega verður breyting þar á.
17.mar. 2010 - 20:57
Forstjóri fjármálafyrirtækisins Auðar Capital lagði áherslu á að Íslendingar þyrftu að finna hinn gullna meðalveg við endurreisn fjármálakerfisins. Fyrir og eftir hrun hefur öll umræða einkennst af miklum öfgum. Hún vill að ný fyrirtæki tileinki sér langtímamarkmið í stað þeirrar áherslu á skammtíma hagnað sem einkenndi íslenskt viðskiptalíf fyrir hrunið.
17.mar. 2010 - 19:31
Reynir Traustason, annar ritstjóra DV, ræðir nú við fjárfesta í því skyni að gera tilboð í DV, dv.is og tímaritið Mannlíf sem Hreinn Loftsson, aðaleigandi Birtíngs hf. hefur sett í söluferli. Hann segir enga útrásarvíkinga með sér í tilboðsferlinu.
17.mar. 2010 - 19:30
Danskur listamaður hefur valdið miklu fjaðrafoki í heimalandi sínu og víðar með nýjasta gjörningi sínum. Þar klæðir hún tæplega eins árs stúlkubarn sitt í gervi mestu harðstjóra heims, meðal annars Hitlers, Stalíns og Maós. Hún segir verkin eiga að sýna illskuna sem býr innra með okkur.
17.mar. 2010 - 18:31
Hæstaréttarlögmanninum Sigurði G. Guðjónssyni var meinuð aðganga að kröfuhafafundi þrotabús Fons í dag. Það voru öryggisverðir sem meinuðu honum inngöngu. Sigurður telur sig eiga rétt á að sitja fundinn.
17.mar. 2010 - 18:08
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir stóru breytinguna á framtíð íslensks fjármálakerfis liggja í breytingum á ríkisábyrgð fjármálafyrirtækja. Ekki sé boðlegt að ríkið taki ábyrgð á bönkum þegar illa gangi en að eigendurnir á móti hirði allan gróða þegar vel gangi. Ofurlaun bankastarfsmanna heyra sögunni til segir hann.
17.mar. 2010 - 17:05
Slitastjórn SPRON segir að rannsókn á innri starfsemi SPRON í aðdraganda yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á sparisjóðnum bendi til að framundan geti verið málsóknir vegna riftunar- og skaðabótamála. Þetta kom fram á kröfuhafafundi í dag.
17.mar. 2010 - 17:00
Krísuástand í Dubai og Grikklandi gerir það síður fýsilegt að hefja afnám gjaldeyrishafta hér á landi, segir aðstoðarseðlabankastjóri. Hann segir að mörgu leyti þægilegt að hafa gjaldeyrishöft því þau hafi tryggt áður óþekktan stöðugleika. Langtímakostnaðurinn sé þó mikill.
17.mar. 2010 - 17:00
„Hingað til höfum við leyst kreppur með því að láta fólk bera byrðar áratugum saman og láta elta það út fyrir gröf og dauða. Nú er sá tími liðinn,“ segir Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra um þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst ráðast í vegna skuldavanda heimilanna.
17.mar. 2010 - 16:25
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að dylgjur forsætisráðherra í garð sjálfstæðismanna um meint áhugaleysi þeirra á að koma í veg fyrir undanskot á skatti, beri þess greinilega merki að stjórnvöld eigi í verulegum vanda. Hann mótmælir harðlega orðum ráðherra.
17.mar. 2010 - 16:05
Fjöldi íslenskra karlmanna skartar nú myndarlegu yfirvaraskeggi til að sýna samtöðu með átakinu Karlar og krabbamein. En á forseti Íslands að taka þátt og fá sér mottu?
17.mar. 2010 - 15:19
Forstjóri Nasdaq OMX á Íslandi segir hugmynd félagsmálaráðherra um afskriftir bílalána niður í 110% af verðmæti bílanna með verri hugmyndum sem komið hafa fram. Hún er ekki sanngjörn og hefur ekki efnahagsleg áhrif til hagsbóta fyrir íslenska efnahagskerfið.
17.mar. 2010 - 14:43
Ríkisstjórnin kynnir um þessar mundir nýjar aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Meðal þess helsta sem ríkisstjórnin leggur til er „stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp.“ Þá verður stofnað sérstakt embætti umboðsmanns skuldara sem verður talsmaður lántakenda gagnvart lánardrottnum.
17.mar. 2010 - 14:15
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um hrun íslensku bankanna verður ekki birt í þessari viku. Samkvæmt svari frá Páli Hreinssyni, formanni rannsóknarnefndarinnar, verður ekki upplýst fyrr en eftir helgi hvenær skýrslan kemur út.
17.mar. 2010 - 13:45
Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason sér sig knúinn til að verja gestaval sitt í Silfur Egils og segist vera fjölmiðlamaður, ekki pólitíkus.
17.mar. 2010 - 13:00
Birna Einarsdóttir hefur verið ráðin bankastjóri Íslandsbanka. Staðan var ekki auglýst eins og fyrri stjórn bankans hafði ákveðið í samræmi við vilja ríkisstjórnarinnar.
17.mar. 2010 - 12:10
Seðlabanki Íslands ætlar að leggja sjálfstætt mat á lánsþörf ríkissjóðs í tengslum við áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Seðlabankastjóri segir að skortur á lánsfé hafi þvingað Ísland til að lifa við lágt gengi. Þannig hafi verið meira lagt á þjóðina til að flýta fyrir aðlögun efnahagslífsins.
17.mar. 2010 - 11:45
Brynhildur Ólafsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs Saga Capital, segir að heimilistekjurnar skerðist ekki, þótt manni hennar, Róberti Marshall, þingmanni Samfylkingarinnar, verði að ósk sinni um að bónusar fjármálastofnana verði skattlagðir „upp í rjáfur“.