27. apr. 2010 - 08:50

Halldór segir að tortryggni og vantraust hafi verið ein ástæða þess að svo fór sem fór
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir ljóst að eftirlit með fjármálakerfinu hafi brugðist á Íslandi. Hann segir jafnframt að að Davíð Oddsson hafi verið fullkomnlega hæfur til að gegna stöðu Seðlabankastjóra en tortryggni og vantraust hafi verið ein af ástæðum þess að hér fór sem fór.
Halldór, sem nú gegnir stöðu framkvæmdastjóra norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn, segir í samtali við Pressuna að miðað við það sem hann hafi séð af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið, þá virðist hún vera að mestu leyti vönduð.
Hún leiðir mjög skýrt í ljós að aðalástæðan fyrir þessu alvarlega hruni sem varð sé ofvöxtur bankanna og lítil viðbrögð til að stemma stigu við honum. En það er jafnframt ljóst að eftirlitið hefur brugðist.
Aðspurður um gagnrýni á einkavæðingu bankanna segir hann að það sé þannig með öll mannanna verk að sitt sýnist hverjum.
Ég er ekki í vafa að samkeppnisrekstur á að vera í höndum einkaaðila. Fyrstu skrefin að einkavæðingu bankanna voru stigin fyrir löngu. Þá var Útvegsbankinn einkavæddur þegar Alþýðuflokkurinn var í ríkisstjórn og ég get ekki betur séð en að almenn samstaða sé um að halda áfram á þeirri braut sem þá var lagt út á. Mér sýnist að núna sé gert ráð fyrir því að einkaaðilar komi til með að reka þá banka sem starfa áfram á Íslandi en ekki ríkið. Hins vegar setur þetta þær kröfur á herðar eftirlitsaðilum að þeir sinni skyldum sínum og það er ekki vafi á því að það hefur brugðist.
En var einkavæðing Búnaðarbankans og Landsbankans mistök?
Það hefur verið farið margoft yfir það mál, meðal annars af Ríkisendurskoðun. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu taldi þrjá aðila koma til greina af þeim sem buðu í þessa tvo banka. Það var Samson, hinn svo kallaði S-hópur og loks hópur sem kenndi sig við Kaldbak. Það var skýr niðurstaða framkvæmdanefndar um einkavæðingu, eftir ráðgjöf frá HSBC bankanum, að þetta væru bestu tilboðin. Eina spurning var hversu lítill munur var á tilboði Kaldbaks og Samson. Niðurstaðan var sú að Samson væri með betra tilboð og það var unnið áfram með það. Allt tal um pólitískt samkomulag um skiptingu bankanna er út í hött. Það áttu engin slík samtöl sér stað milli mín og Davíðs [innsk. Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra].
Pressan spyr Halldór hvort það hafi, þegar litið er til baka, verið mistök að skipa Davíð í stöðu bankastjóra Seðlabankans?
Nei, ég tel ekki. Ég tel að hann hafi haft alla þá þekkingu sem þurfti til að sinna því starfi. Hins vegar sé ég ekki betur en að ríkjandi hafi verið mikil tortryggni og vantraust milli ríkisstjórnarflokkanna [innsk. Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks] í aðdraganda hrunsins og það sé ein af ástæðunum þess hvernig fór. Á erfiðum tímum er mikilvægast af öllu að það ríki traust og samstaða milli þeirra sem glíma við mikil vandamál.
Pressan birtir síðari hluta viðtals við Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, síðar í dag. Þá ræðir hann meðal annars um hvort Íslendingar hafi farið illa með nýfengið frelsi í fjármálum og viðskiptum, um 95% lán til íbúðakaupa og afsökunarbeiðni núverandi formanns Framsóknarflokksins.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.