27. apr. 2010 - 11:50

Halldór: Lán banka til eigenda sinna sérstaklega ámælisverð - Illa farið með frelsi í fjármálum

Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra segir í samtali við Pressuna að Íslendingar hafi farið illa með nýfengið frelsi í fjármálum og viðskiptum á síðustu árunum fyrir hrun. Honum finnist sérlega ámælisvert hvernig bankarnir lánuðu háar fjárhæði til bankanna og sér sýnist reglur hafa verið gróflega brotnar.

Halldór segir augljóst að víða hafi verið farið illa með frelsi þar sem bankar víða um heim hafi verið að falla og ýmislegt verið að koma upp á yfirborðið.

Ég get verið sammála því að það hafi verið, sérstaklega á seinni hluta tímabilsins, farið illa með frelsið í fjármálum og viðskiptum. En það sem mér finnst vera sérstaklega ámælisvert eru há lán til eigenda bankanna og ég sé ekki betur en að þar hafi reglur verið gróflega brotnar. Að sama skapi er ámælisvert hvernig bankarnir lánuðu fé til hlutabréfakaupa án veða eða áhættu þeirra sem keyptu. Með því eru bankarnir í reynd að eignast miklu meira í sjálfum sér en þeir hafa heimild til og þess vegna stenst það engar reglur eins og kemur skýrt fram í þessari skýrslu [innsk. Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið] og maður er undrandi yfir því að hvorki Fjármálaeftirlitið né endurskoðendur bankanna skuli hafa séð í gegnum þetta. 

Aðspurður um hvort þáttur endurskoðenda komi á óvart, segir Halldór að svo sé. Honum finnist þær reglur esm hafi verið í gildi um mat á viðskiptavild og eigin fé hafi verið afskaplega frjálslegar. Sjálfur sé hann líklega af gamla skólanum í þessum efni en þetta sé ekki í samræmi við það sem hann hafi þekkt og kennt á árum áður. 

Hörð gagnrýni hefur komið fram á þá ákvörðun ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks um að hækka íbúðalán í 90% og fullyrt að það hafi valdið ofhitnum í hagkerfinu. Því er Halldór ekki sammála.

Þegar sú ákvörðun var tekin [innsk. að hækka lánin í 90%] þá töldu menn eðlilegt að íbúðalán hér væru með einhverjum sambærilegum hætti og í nágrannalöndum okkar. Hér í Danmörku er til dæmis boðið upp á að menn taki 95% lán. Þegar þetta var ákveðið lögðu menn upp með að gera þetta í áföngum miðað við tiltekna hámarksfjárhæð og það veitti sérstaklega ungu fólki á að fá þessi lán á hagstæðari kjörum í stað þess að taka yfirdráttarlán og stofna til alls kyns lausaskulda í bönkum.

Hann segir hins vegar að bankarnir hafi brugðist við með þeim hætti sem ekki var reiknað með.

Þeir fóru að yfirbjóða þenna markað og bjóða 100% lán og þetta leiddi til samtala mili stjórnvalda og bankanna og þeir beðnir um að sýna meiri varkárni í sínum útlánum. Þeirra viðbrög voru nánast þau að þeir vildu Íbúðalánasjóð feigan, hann færi af markaði og þeir myndu alfarið sjá um þetta. Það gátu stjórnvöld ekki fallist á og það voru átök þarna á milli, en að ég tel að bæði okkur og öðrum hafi mistekst að hefta þessa útþenslu bankanna á þessum tíma.

Halldór segir við Pressuna að komin hafi verið af stað umræða 2006 um stærð íslenskra banka og mönnum hafi verið ljóst að vel þyrfti að fylgjast með vexti þeirra.

Það var líka komin upp umræða um að einn af bönkunum kynni að flytja höfuðstöðvar sínar úr landi, sem  menn töldu að gæti verið jákvætt. Fyrsta skrefið væri að þeir gerðu upp sína reikninga í evrum en mér finnst að þessi umræða hafi síðan þróast afskaplega lítið. Það var líka alltaf undirliggjandi í þessu sambandi að krónan væri mjög viðkvæm og áhlaup gæti verið gert á hana. Á þessum tíma var ég mjög áhyggjufullur um framtíð íslensku krónunnar og meðal annars þess vegna var ég talsmaður þess að við leituðum allra leiða til að nálgast Evrópusambandið. Ég sé ekki betur en að það sé stærsta spurningin á Íslandi í dag, hvort og þá hvernig hægt sé að endurvekja traustið á íslensku krónuna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, bað á fundi um helgina, afsökunar á þætti flokksins í aðdraganda hrunsins, en hvað finnst Halldóri um það?

Það er hans mál. En þegar menn eru að biðjast afsökunar, verða þeir að vita hvað það er sem þeir eru að biðjast afsökunar á. Það verður hver og einn að dæma um það fyrir sjálfan sig.

Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.



02.sep. 2010 - 22:15

Taktu mjög vel eftir: Þetta fólk í þessum aðstæðum sést bara einu sinni - MYNDIR

Superman á skíðum í góðum fíling. Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 21:33

Vetur vofir yfir alls staðar... Nema á Íslandi: Útlendingur safnar íslenskum sundlaugum

Er smá haustlykt í loftinu? Eða hugsanir um vetur og kulda allsráðandi? Ekki á Íslandi, því á Íslandi eru heitar sundlaugar opnar allt árið, skrifar maður sem safnar íslenskum laugum.
02.sep. 2010 - 21:09 Gunnar Bender

Vel gengur í Jónskvísl

,,Síðasta holl sem fór í Jónskvísl Sýrlæk fékk 14 sjóbirtinga,  þar af var 9 gefið líf. Hollið þar á undan fékk 8 sjóbirtinga," sagði Rafn A. Guðjónsson er við inntum hann frétta af veiðinni í Jónskvíslinni.

02.sep. 2010 - 20:15

Kyrkt af eiginmanni? Framhjáhald komst upp vegna Facebook - Óhugguleg réttarhöld

Þau Vicky og Michael Roberts. Breskur eiginmaður liggur undir grun um að hafa kyrkt konu sína þegar hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr með að minnsta kosti tveimur öðrum konum.
02.sep. 2010 - 19:30

Íslenskum strætóbílstjórum tókst „mission“ sitt: Trylltust þið? Algjörlega!

Frá vinstri, Andrés Bergsson, Sigurjón Guðnason, Kristján Kjartansson, Hörður Tómasson liðsstjóri, Þórarinn Söebech, Steindór Steinþórsson, Róbert Daði Helgason og Björg Guðmundsdóttir. Íslenskir strætisvagnabílstjórar trylltust algjörlega þegar úrslit voru kunngjörð í Norðurlandamóti strætisvagnabílstjóra.
02.sep. 2010 - 18:00

Hvolpamorðinginn gaf sig fram: Segja almenningi standa ógn af henni - Hótað öllu illu

Þarna sést Katja Puschnik þrykkja hvolpunum í ána. Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 17:07

Ögmundur Jónasson skoðar hvort ákvörðun Kristjáns Möllers um ECA bindi hendur hans

Herþotur í Keflavík Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 16:50

Listhneigðir Hraunarar láta ljós sitt skína á Ljósanótt - Hafa nægan tíma til listsköpunar

Skartgripir sem fangi hannaði á Litla Hrauni og eru til sýnis á Ljósanótt Fangar á Litla Hrauni sýna verk sín og selja á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fangavörður segir margt verða til að gleðja augað á sýningunni því að margir fangar sýni og sanni að í þeim býr hreinræktaður listamaður sem fengið hefur tækifæri til að brjótast út.
02.sep. 2010 - 15:18

Útivistarfólki stafar hætta af eldisfiski sem stekkur þrjá metra í loft upp - MYNDBAND

Minnstu munar að vatnakarfinn stökkvi á Kirby og roti hann Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá  hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
02.sep. 2010 - 14:39

DV verður fyrir árás frá vesturströnd Bandaríkjanna: Skannaðu tölvuna þína til öryggis

Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23

Jóhanna segir „ótrúlegan árangur“ hafa náðst: Bjarni sér hins vegar afturhaldsstjórn

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 13:03

Verður nýja ríkisstjórnin æðisleg eða hræðileg? - Pressan spyr lesendur álits í netkönnun

Verður ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna betri með nýjum ráðherrum? Hvað finnst lesendum Pressunnar?
02.sep. 2010 - 12:18

Guðbjartur tók jakkafötin með til öryggis - Fékk staðfest fyrst í morgun að hann yrði ráðherra

Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49

Kristján Möller úr ríkisstjórn: Ekki aðalatriði hver opnar Héðinsfjarðargöng - Hætti stoltur

Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:34

Jóhanna Sigurðardóttir: Frekari breytinga á ríkisstjórn að vænta - Reynt að þétta raðirnar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að frekari breytinga sé að vænta á ríkisstjórninni innan tíðar Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:23

Eiður snýr baki við hinu ljúfa lífi – Ætlar að láta finna fyrir sér á fótboltavellinum

Knattspyrnuhetjan Eiður Guðjohnsen segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að kveðja heimsborgaralega lifnaðarhætti í Mónakó og snúa aftur í ensku úrvalsdeildina sem liðsmaður Stoke City.
02.sep. 2010 - 10:10

Guðbjartur Hannesson nýr ráðherra - Þingflokksfundi Samfylkingarinnar lokið

Guðbjartur Hannesson verður nýr ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
02.sep. 2010 - 09:53

Ný ríkisstjórn: Tveir karlar inn - Tvær konur og tveir karlar út - Almenn ánægja á fundinum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
02.sep. 2010 - 09:10

Jóhanna Sigurðardóttir: Erfið ákvörðun liggur fyrir - Ég ræði við nýja ráðherra á fundinum

Þingflokkur Samfylkingarinnar er að hefja síðasta fund sinn fyrir ríkisráðsfund vegna breytinga á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Fundurinn er haldinn á hótel Loftleiðum og þar fer einnig fram flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar kl. 10.
02.sep. 2010 - 08:00 Snæfríður Ingadóttir

Nýtt á Íslandi: Fyrsta hjálp fyrir ferðalanga

Glæný íslensk vara frá hómópatanum Svönu Ingvaldsdóttur: remedíublöndur fyrir ferðamenn í vanda. Blöndurnar eru seldar í handhægum umbúðum og henta því vel í ferðalagið. Hómópatinn Svana Ingvaldsdóttir hefur sett á markað sérstakar remedíublöndur sem hjálpa ferðalöngum að takast á við ýmsa kvilla sem fylgja ferðalögum. Blöndurnar taka á vandamálum á borð við flughræðslu, matareitrun, flugnabiti, sólbruna og fótapirringi.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 29.8.2010
Viðbjóðurinn blasir allstaðar við
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 29.8.2010
Opið bréf til Hæstaréttar
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 30.8.2010
Bestu kylfingar Íslands frá upphafi
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 29.8.2010
Móeiður í keppni Samúels
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 31.8.2010
Sjálftökuliðið færist í aukana
Þórarinn Jón Magnússon
Þórarinn Jón Magnússon - 01.9.2010
Björk litla í Samúel fyrir aldarfjórðungi
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 31.8.2010
Kemur tæplega á óvart
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson - 30.8.2010
ESB - undanþágur
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 01.9.2010
Er Hæstiréttur bara gúmmístimpill?
Ester Ósk Hilmarsdóttir
Ester Ósk Hilmarsdóttir - 01.9.2010
Kannt þú að vera góður gestur?
Sigrún Einars
Sigrún Einars - 31.8.2010
Að læra að elska - eða bara elska
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit