11. feb. 2010 - 15:25
Hagfræðiprófessor: Sárt að sitja undir ósönnum ásökunum um að ganga erinda erlendra þjóða

Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor svarar ásökunum Evu Joly
Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor, segir að það sé sárt fyrir hann að sitja undir þeim sökum að ganga erinda erlendra þjóða þegar slíkt eigi ekki við rök að styðjast, eins og Eva Joly hélt fram í dag. Hann segist gruna að hluti af Icesave-peningunum sé fastur í tónlistarhöll á hafnarbakkanum í Reykjavík og í holræsum og götum vítt og breytt í byggðum Íslands.
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara í bankahruninu, bar Þórólf þungum sökum í grein sem hún birtir bæði í Aftenposten í Noregi í dag og í Morgunblaðinu. Þar sagði hún:
„Prófessor Þórólfur Matthíasson hefur um langt skeið stutt kröfur Breta og Hollendinga. Í grein hans, sem birtist í Aftenposten 2. febrúar, er ýmsu sleppt og rangt farið með staðreyndir.“
Jafnframt sagði hún að Þórólfur færi rangt með þegar hann segði að þrotabú Landsbankans muni duga fyrir megninu af skuldinni. Líklega muni salan ekki hrökkva nema fyrir um 30% af skuldinni. Og hún bætti við:
„Þórólfur gefur til kynna með lítt fræðilegum hætti að þeim, sem telja að Icesave-samningarnir séu dæmi um hráa valdníðslu og endurspegli fallið fjármálakerfi, megi líkja við Bernie Madoff, sem var dæmdur í 150 ára fangelsi. Óljóst er í greininni hvernig hann kemst að þeirri niðurstöðu.“
Eva Joly sagði ennfremur að hún teldi mikilvægt að muna að bróðurparturinn af Icesave-innlánunum hafi aldrei komið hingað, Íslendingari hafi ekki stungið af með peningana. Og hún segir Þórólf hafa rangt eftir sér þegar hann segi að hún sé sannfærð um að einfaldar lögfræði- og samningabrellur láti skuldirnar hverfa.
Þórólfur segir í samtali við Pressuna alrangt að hann hafi stutt kröfur Breta og Hollendinga.
„Ég hef hins vegar spurt sjálfan mig að því hver ábyrgð íslenskra stjórnvalda, íslenskra stjórnmálamanna og íslenskra kjósenda væri, bæði með hliðsjón af lögum og reglum og með hliðsjón af almennu siðferði. Þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að kjósendur beri ábyrgð á stjórnmálamönnum og að stjórnmálamenn beri ábyrgð á þeim embættismönnum sem þeir setja til verka. Hátti svo til að kjósendur í lýðræðisríki kkjósi, kosningar eftir kosningar, stjórnmálamenn sem setja spilafélaga og aðra vini og jafnvel venslamenn í eftirlits- og umboðsstöður án þess að huga að getu þessara einstaklinga til að sinna störufm sínum, þá er ábyrgðin á slökum verkum embættis- og eftirlitskerfisins ekkert síður kjósendanna en þeirra sem afglöpin frömdu.“
Hann rifjar upp að einhvern tímann hafi verið sagt: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum? Því segi hann að áður en Íslendingar hafi uppi stórkostlegar fjárkröfur á hendur öðrum þjóðum ættu þeir huga að því hvort sök okkar sé ekki einhver.
„Og komumst við að þeirri niðurstöðu að við berum einhvern hlut sakar, þá verðum við að vera menn og konur til að taka því. Það er sárt að sitja undir ásökunum um að ganga erindi erlendra þjóða þegar þær ásakanir eiga ekki við rök að styjast eins og í þessu tilviki.“
Þórólfur vitnar ennfremur í að Eva Joly hafi sagt að að Icesave-samningurinn gangi útá að hver Íslendingur „frá vöggubarni til karargamlingja“ skuli greiða 12.000 evrur. Samanlagt geri þetta tæpa 700 milljarða króna, sem er sú tala sem InDefense hefur haldið hvað hæst á lofti og hvað eftir annað hafi verið sýnt fram á að sé röng. Eva Joly undirstrikar með því að nefna þessa tölu að fullyrðing mín að hún hafi látið glepjast af áróðri InDefense sé rétt.
„Hið rétta er að þrotabú Landsbankans mun greiða yfir 90% af forgangskröfum, jafnvel meir, rétt eins og efnahags- og viðskiptaráðherra hefur undirstrikað með yfirlýsingu í dag.“
Þá segir hann að rangt sé hjá Joly að þrotabú Landsbankans muni aðeins greiða 30% af Icesave kröfunni.
„Icesave krafan er forgangskrafa og slitastjórnin og aðrir ábyrgir aðilar hafa gefið það upp opinberlega að eignir þrotabúsins muni duga til að greiða a.m.k. 90% af forgangskröfum. Nú eru farnar að heyrast hærri tölur. Vera kann að Eva Joly sé að rugla saman heildarkröfum og forgangskröfum. Þannig vill til að mat slitastjórnarinnar er að eignir þrotabúsins dugi til að greiða um 32% af öllum kröfum, en forgangskröfur koma framar almennum kröfum og greiðast fyrst. Ætla mætti að reyndur efnahagsbrotasaksóknari þekkti mun á forgangskröfum og almennum kröfum og því eru þetta líklega fljótfærnismistök af hálfu Evu Joly frekar en fáfræði.“
Þórólfur vitnar ennfremur í orð Evu Joly segir segir að megnið af Icesave-peningunum sé í umferð í Bretlandi og Hollandi.
„Vonandi er það rétt, enda hennar hlutverk að elta þessa fjármuni uppi. En ég leyfi mér samt að benda á að það virðist hafa verið lífsspursmál fyrir Gamla Landsbankann að eiga þess kost að flytja fé frá Bretlandi til Íslands á árinu 2008. Ella hefðu þeir skipulagt Icesave innan vébanda Heritable bankans á ábyrgð breska innistæðutryggingarsjóðsins. En það vildu þeir ekki vegna þeirrar kröfu að innistæðufé í Heritable yrði fest í Bretlandi.
Minn grunur er að hluti af IceSave fjármununum sé fastur í tónlistarhöll á hafnarbakkanum í Reykjavík og í holræsum og götum vítt og breytt í byggðum Íslands.“
Þórólfur bendir ennfremur á að Joly vilji, rétt eins og InDefense, skoða framtíðarvirði frekar en núvirði Icesave -skuldbindingarinnar. Henni sé það vissulega frjálst, en það breyti ekki þeirri staðreynd að núvirði skuldbindingarinnar sé á bilinu 120 til 180 milljarðar króna.
Og hann telur tæpt að Íslendingar kæmust upp með að mismuna innistæðueigendum í Reykjavík annars vegar og Rotterdam hins vegar fyrir Evrópskum dómstól.
„Þetta er talið mjög hæpið af þeim lögspekingum erlendum sem ég hef rætt við. Fyrir mína parta tel ég ekki á það hættandi að leggja slíkt mál í hendur dómstóla. Hættan á að við fáum óhagstæða niðurstöðu er of mikil.“
Loks vitnar Þórólfur í orð Evu Joly um að 5,5% nafnvextir og um 3% raunvextir séu okurvextir.
„Það eru nýjar fréttir fyrir Íslendinga sem hafa búið við 4-6% raunvexti og þaðan af hærra! Hitt er svo annað mál að það er sjálfsagt að reyna að fá þessa tölu lækkaða. Forgangsverkefni reyndar.“
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.
22.maí 2012 - 20:00
Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 17:23
Tveir fangar á Litla Hrauni hafa verið færðir í einangrunarvist á Litla Hrauni, grunaðir um að hafa veitt fanga alvarlega áverka með þeim afleiðingum að hann lést í fyrri viku.
22.maí 2012 - 17:00
Gunnar Birgisson, fyrrum stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, og Sigrún Ágústa Bragadóttir framkvæmdastjóri sjóðsins, voru í dæmd til greiðslu 150.000 kr. sektar hvor fyrir ranga upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins. Málskostnaðurinn nam yfir átta milljörðum kr. og var hann að mestu greiddur úr ríkissjóð. Gunnar segir að dómurinn hafi komið sér á óvart.
22.maí 2012 - 15:51
Sjálfur tel ég að tólf ár séu eðlilegur og jafnvel æskilegur tími í þessu embætti og er það drjúgur spölur í starfsævi manns, sagði dr. Kristján Eldjárn í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980, er hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist hverfa úr embætti eftir tólf ár á forsetastóli.
22.maí 2012 - 15:00
Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.
22.maí 2012 - 14:10
Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.
22.maí 2012 - 12:11
„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29
Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.
22.maí 2012 - 10:45
Hraðakstursbrotum og fíkniefnabrotum hefur snarlega fjölgað fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Í fyrra voru skráð 494 fíkniefnabrot á landinu fyrstu fjóra mánuðina en 650 fyrstu fjóra mánuði þessa árs.
22.maí 2012 - 09:30
72,4% allra sem svöruðu spurningum í skoðanakönnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, aka sjálfir til og frá vinnu.
22.maí 2012 - 07:45
Ríkisolíufélag Noregs, Statoil, leggur nú mesta áherslu á aukna nýtingu úr þeim olíusvæðum þar sem vinnsla fer fram. Frá árinu 2010 til 2011 jókst nýtingin úr 49% í 50%. Þetta virðist lítil aukning en hún skilaði samt gríðarlegum verðmætum í ríkiskassann norska.
21.maí 2012 - 21:00
Það er þekkt að allt að 6 metrar langir bandormar geta lifað góðu lífi í innyflum fólks en í ljós hefur komið að lirfur þeirra eru jafnvel enn skaðlegri. Þær komast í heila manna og geta þar nærst á heilavefjum án þess að hýsillinn verði þess var. Heilabandormar, sem einnig kallast innsíklar, herja gjarnan á miðtaugakerfið og eru til umfjöllunar í nýjasta hefti Discover Magazine.
21.maí 2012 - 18:43
Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 18:00
Sá óvenjulegi atburður varð í dag að það slokknaði á Ólympíukyndlinu aðeins þremur dögum eftir að hann kom til Englands. Kyndillinn var við hlið hjólastóls David Folletts, sem er meistari í badminton fatlaðra.
21.maí 2012 - 16:58
Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan er stundum kölluð til í slíkum málum og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið.
21.maí 2012 - 15:00
Verð á hlutabréfum í Facebook féll um 12% frá upphaflegu sölugengi þegar Nasdaq markaðurinn opnaði í dag. Upphaflegt gengi var 38 dollarar á hlut en strax við upphaf viðskipta féll það niður í 33,28 dollara.
21.maí 2012 - 13:45
Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall.
21.maí 2012 - 12:45
Nokkrir helstu leiðtogar heims hittust á leiðtogafundi G8-ríkjanna í Camp David um síðustu helgi. Þeir stóðust ekki mátið og horfðu á vítaspyrnukeppnina í úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta á milli Bayern Munchen og Chelsea sem fram fór í Þýskalandi sl. laugardag.
21.maí 2012 - 11:30
Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.
21.maí 2012 - 10:33
Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.
21.maí 2012 - 09:29
Stjórnvöld í Quebec-fylki samþykktu um helgina neyðarlög til að koma hömlum á stúdentaóeirðirnar sem hafa geisað síðan um miðjan febrúarmánuð. Lögin fela í sér lokun nokkurra háskóla og fjársektir sem nema allt að fjórum milljónum króna fyrir mótmæli.
21.maí 2012 - 08:22
Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent Innanríkisráðuneytinu tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins. Þær ráðstafanir kunna að hafa í för með sér að þegar félagið verður lagt niður verða ekki öruggar rekstrarforsendur til að ljúka málum er kunna að vera til meðferðar á vegum félagsins á þeim tíma.
20.maí 2012 - 23:51
Robin Gibb, einn hinna þriggja heimsfrægu Gibb-bræðra í hljómsveitinni Bee Gees er látinn, 62 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.
20.maí 2012 - 20:55
Íslendingar hafa fengið um 11 milljörðum króna meira úr styrkjasjóðum eða áætlunum Evrópusambandsins en þeir hafa greitt til þessara sömu sjóða.
20.maí 2012 - 19:27
Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.
20.maí 2012 - 17:30
Desmond Hatchett, 33 ára gamall maður frá Knoxville, Tennesee, hefur farið þess á leit við stjórnvöld að þau hjálpi honum við framfærslu á 30 börnum sem hann á með 11 konum.
20.maí 2012 - 16:00
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir gríðarlega tekjumyndun hafa verið síðastliðin fjögur ár í sjávarútvegi og greinin standi vel undir því að leggja meira af mörkum til eigenda auðlindarinnar.
20.maí 2012 - 14:00
Ísraelar hafa þróað öfluga njósnavél í formi fiðrildis sem getur flogið á bakvið óvinalínur og sent mynd á rauntíma. Fiðrildið vegur einungis 20 grömm og getur sent myndir innan úr byggingum.
20.maí 2012 - 12:24
Birgitta Jónsdóttir, þingkona, hefur ásamt sex öðrum, unnið mál gegn bandarískum stjórnvöldum fyrir rétti í New York vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga.
20.maí 2012 - 11:39
Tölvufyrirtækið Google hefur tilkynnt um nýja breytingu á hinni geysivinsælu leitarvél sinni. Með aukinni gervigreind og nýjungum í forritun er hugmyndin að koma með leitarvél sem muni geta hugsað meira eins og manneskja.
20.maí 2012 - 10:36
Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
20.maí 2012 - 09:18
Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi.
19.maí 2012 - 22:39
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi kveðst hálfklökk yfir öllum þeim fallegu og góðu kveðjum sem henni og Svavari Halldórssyni sambýlismanni hennar hafa borist í tilefni af fæðingu lítillar dóttur í gær.
19.maí 2012 - 21:52
Það var sem skrifað í skýin að Chelsea myndi vinna sinn fyrsta sigur í Meistaradeildinni eftir ævintýralega og dramatíska sigurgöngu í vetur og í úrslitaleiknum gegn Bayern Munchen í kvöld voru lukkudísirnar enn og aftur á bandi þeirra bláklæddu og Chelsea sigraði Bayern í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik.
19.maí 2012 - 15:30
Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45
Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
19.maí 2012 - 10:44
„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði, ók. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.“
19.maí 2012 - 08:58
Búið er að tryggja áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í gær. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.
18.maí 2012 - 20:34
Flugvél Icelandair sem snúið var við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli lenti heilu og höldnu klukkan 21:15. Vélinni var snúið við skömmu eftir flugtak eftir að í ljós kom að lendingarbúnaður vélarinnar hafði skemmst. Lendingin tókst með afbrigðum vel.
18.maí 2012 - 20:00
Kína er vinsælli meðal almennings en Bandaríkin, eftir því sem ný skoðanakönnun leiðir í ljós. 24.000 manns út um allan heim voru spurðir hvort þessi lönd og önnur hefðu áhrif til góðs eða ills í heiminum.
18.maí 2012 - 18:00
Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth.
18.maí 2012 - 16:00
Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.
18.maí 2012 - 15:20
Margir þekkja þá óþægilegu tilfinningu að hafa læst sig úti. Öllu sjaldgæfara er að fólki sé óvart læst inni en kemur þó fyrir. Sú var einmitt raunin með ónefnda konu á höfuðborgarsvæðinu en konan býr í fjölbýlishúsi.
18.maí 2012 - 14:10
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og frambjóðandi til forseta Íslands og Svavar Halldórsson sambýilismaður hennar eignuðust dóttur í morgun og heilsast móður og barni vel.
18.maí 2012 - 13:00
Danska ríkisstjórnin og verkalýðsfélög hafa komist að samkomulagi um að sleppa úr tveimur frídögum á hverju ári og skapa með því 20.000 ný störf. Með þessu móti á danski ríkissjóðurinn einnig að gildna um heila 80 milljarða króna á ári. Fækkun frídaga hefur aldrei komið til umræðu hér á landi en vilji er fyrir því innan Samtaka atvinnulífsins að færa til frídaga, einkum þá sem koma upp á fimmtudögum.
18.maí 2012 - 12:00
Nýr efnisþáttur, Bílapressan, hefur göngu sína á Pressunni á hádegi í dag. Eins og nafnið gefur til kynna verður þar fjallað um bíla og bílatengt efni út frá sjónarmiðum bíleigenda og bílkaupenda.
18.maí 2012 - 11:00
90% fjölgun hefur orðið á reiðhjólaslysum frá árinu 2002. 70% allra þessara slysa eru á höfuðborgarsvæðinu.
18.maí 2012 - 09:33
Framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta hefur rekið á reiðanum í tvær vikur. Enginn virðist passa sjoppuna meðan hún er í fæðingarfríi, segir fyrrverandi ritstjóri sem fullyrðir að forsetaefni getur aldrei verið i fríi af neinu tagi.
18.maí 2012 - 09:05
Það sem af er máímánuði er álagning olíufélaganna á bensín 6-7 krónum yfir meðalálagningu síðustu ára aðteknu tilliti til vísitölu neysluverðs og gengis dollars gagnvart krónunni.
18.maí 2012 - 07:55
Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hringir bjöllunni þegar Nasdaq markaðurinn opnar í. Ástæðan er sú að Facebook er loks að fara á markað og það fyrir metfé. Zuckerberg og félagar meta fyrirtækið á 104 milljarða dollara, 13 þúsund milljarða króna.