10. mar. 2010 - 14:41
Hægt miðar með skipan nýrrar stjórnar Arion: FME athugar hæfi Kaupskila, svo stjórnarmanna
Fjármálaeftirlitið kannar nú hæfi stjórnarmanna móðurfélags Arion banka en ný stjórn bankans tekur ekki til starfa fyrr en því mati er lokið - og þá hæfi mögulegra stjórnarmanna bankans.
Samkvæmt sérstöku leyfi veitti Fjármálaeftirlitið Kaupskilum ehf., dótturfyrirtæki gamla Kaupþings, að fara með virkan eignarhluti í Arion banka en það var gert í framhaldi af því að samningar náðust milli Kaupþings og fjármálaráðuneytisins í haust að Kaupþing gæti eignast 87% hlut í Arion.
Kaupskil hefur lagt fram tillögu að stjórnarmönnum í félaginu og er hæfi þeirra nú til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu. Þegar því er lokið, getur stjórnin tekið til starfa. Eitt hennar fyrsta verk verður að gera tillögu að nýrri stjórn Arion banka. Sú tillaga verður lögð fyrir Fjármálaeftirlitið sem mun þá kanna hæfi mögulegra stjórnarmanna Arion banka.
Ný stjórn Arion banka mun að því loknu fara yfir þær 40 umsóknir um stöðu bankastjóra Arion banka sem bárust en umsóknarfrestur um stöðuna rann út í desember. Fjármálaeftirlitið mun væntanlega í kjölfarið fara yfir hæfi þess aðila sem væntanleg stjórn Arion banka velur og þá getur viðkomandi aðili tekið til starfa.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.
02.sep. 2010 - 22:15
Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 21:33
Er smá haustlykt í loftinu? Eða hugsanir um vetur og kulda allsráðandi? Ekki á Íslandi, því á Íslandi eru heitar sundlaugar opnar allt árið, skrifar maður sem safnar íslenskum laugum.
02.sep. 2010 - 21:09
Gunnar Bender
,,Síðasta holl sem fór í Jónskvísl Sýrlæk fékk 14 sjóbirtinga, þar af var 9 gefið líf. Hollið þar á undan fékk 8 sjóbirtinga," sagði Rafn A. Guðjónsson er við inntum hann frétta af veiðinni í Jónskvíslinni.
02.sep. 2010 - 20:15
Breskur eiginmaður liggur undir grun um að hafa kyrkt konu sína þegar hún komst að því að hann hafði verið henni ótrúr með að minnsta kosti tveimur öðrum konum.
02.sep. 2010 - 19:30
Íslenskir strætisvagnabílstjórar trylltust algjörlega þegar úrslit voru kunngjörð í Norðurlandamóti strætisvagnabílstjóra.
02.sep. 2010 - 18:00
Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 17:07
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra segja ekkert samkomulag hafa legið fyrir um að fráfarandi samgönguráðherra gæti heimilað Flugmálastjórn að undirbúa skráningu herþotna hollenska fyrirtækisins ECA program. Ögmundur Jónasson segir að morgunverk fráfarandi ráðherra hafi orkað tvímælis.
02.sep. 2010 - 16:50
Fangar á Litla Hrauni sýna verk sín og selja á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Fangavörður segir margt verða til að gleðja augað á sýningunni því að margir fangar sýni og sanni að í þeim býr hreinræktaður listamaður sem fengið hefur tækifæri til að brjótast út.
02.sep. 2010 - 15:18
Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
02.sep. 2010 - 14:39
Fréttavefur DV, dv.is, varð fyrir árás tölvuþrjóta frá Vesturströnd Bandaríkjanna. Þeim sem fóru inn á síðuna á þeim tíma sem árásin stóð yfir er ráðlagt að skanna tölvuna þar sem möguleiki er á að hún hafi sýkst af tölvuveiru.
02.sep. 2010 - 14:23
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að „ótrúlegur árangur“ hafi náðst í efnahagsmálum þjóðarinnar og að veturinn framundan verði síðasti stjóri hjallinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins sér hins vegar allt svart í efnahagsmálum þjóðarinnar.
02.sep. 2010 - 13:03
Verður ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna betri með nýjum ráðherrum? Hvað finnst lesendum Pressunnar?
02.sep. 2010 - 12:18
Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra í ríkisstjórn Íslands, segist hlakka til að takast á við velferðarmálin og að það vaxi sér ekki í augum að sitja yfir hálfum fjárlögum ríkisins. Hann hafi ekki vitað með vissu um það að hann yrði ráðherra fyrr en í morgun.
02.sep. 2010 - 11:49
Kristján Möller, fráfarandi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, segist líta stoltur yfir farinn veg, nú þegar hann víkur úr ríkisstjórn samkvæmt ákvörðun Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Það skipti ekki öllu hver opni Héðinsfjarðargöng heldur að hitt að þau verði opnuð.
02.sep. 2010 - 11:34
Jóhanna Sigurðardóttir boðar frekari breytingar á ríkisstjórn sinni um áramót í tengslum við fækkun ráðuneyta. Hún á von á því að allt verði rólegt við ríkisstjórnarborðið þar sem unnið hafi verið að því að þétta raðirnar í aðdraganda þeirra breytinga á ríkisstjórninni sem ákveðnar voru í dag.
02.sep. 2010 - 10:23
Knattspyrnuhetjan Eiður Guðjohnsen segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að kveðja heimsborgaralega lifnaðarhætti í Mónakó og snúa aftur í ensku úrvalsdeildina sem liðsmaður Stoke City.
02.sep. 2010 - 10:10
Guðbjartur Hannesson verður nýr ráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
02.sep. 2010 - 09:53
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur tilkynnt breytingar á ríkisstjórn sinni en flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar er sama og lokið. Út fara þau Kristján Möller, Álfheiður Ingadóttir, Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir. Í þeirra stað koma Guðbjartur Hannesson og Ögmundur Jónasson inn í ríkisstjórnina.
02.sep. 2010 - 09:10
Þingflokkur Samfylkingarinnar er að hefja síðasta fund sinn fyrir ríkisráðsfund vegna breytinga á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar. Fundurinn er haldinn á hótel Loftleiðum og þar fer einnig fram flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar kl. 10.
02.sep. 2010 - 08:00
Snæfríður Ingadóttir
Hómópatinn Svana Ingvaldsdóttir hefur sett á markað sérstakar remedíublöndur sem hjálpa ferðalöngum að takast á við ýmsa kvilla sem fylgja ferðalögum. Blöndurnar taka á vandamálum á borð við flughræðslu, matareitrun, flugnabiti, sólbruna og fótapirringi.