08. feb. 2010 - 21:30
Formaður Viðskiptanefndar: Vandamál að vera með ópólitískan viðskiptaráðherra

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og formaður viðskiptanefndar.
Formaður viðskiptanefndar Alþingis, Lilja Mósesdóttir telur það standa viðskiptaráðherra fyrir þrifum að vera ópólitískur. Lilja segir það standa ákvarðanatöku í ríkisstjórninni fyrir þrifum að viðskiptaráðherra hafi ekki pólitískt umboð frá kjósendum fyrir sín stefnumál.
Lilja og Guðlaugur Þór voru í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í dag og ræddu vinnubrögð bankanna við endurskipulagningu fyrirtækja en eins og
Pressan greindi frá í dag hefur Guðlaugur Þór farið fram á að fulltrúar Arion banka verði kallaðir fyrir viðskiptanefndar vegna vinnubragða við endurskipulagningu Haga og Samskipa.
Lilja og Guðlaugur voru sammála um að gegnsæið þyrfti að vera meira varðandi afskriftir bankanna en Lilja telur það eitt og sér ekki nóg heldur sé þörf á að ríkisstjórnin viti hvert eigi að stefna og fór hún yfir ástæður þess að ákvarðanir varðandi endurskipulagningu fyrirtækja hafi ekki verið teknar;
,,og kannski er vandamálið líka það að við erum með ópólitískan efnahags- og viðskiptaráðherra, hann hefur náttúrulega ekki fengið umboð frá kjósendum á grundvelli þeirra pólitísku stefnumála sem hann stendur fyrir. Þannig að mér finnst það vera okkar þingmanna að skilgreina hvert við ætlum."
Hægt er að hlusta á samræður þeirra tveggja í heild á vef RÚV.
15.mar. 2010 - 14:15
Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47
Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:59
Hálfsextug nunna í Skotlandi fékk óvæntan arf nýverið; eitt stykki hóruhús í Austurríki. Kom í ljós að móðir nunnunnar hafði um árabil rekið það með góðum hagnaði.
15.mar. 2010 - 10:08
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 08:53
Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 08:34
Lögreglan í Gautaborg handtók í nótt mann sem hafði hótað því að fremja fjöldamorð í Konunglega Tækniháskólanum í Stokkhólmi í dag. Lögreglan rakti slóð hans á netinu.
15.mar. 2010 - 07:50
Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40
Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:00
Áströlsk kona er sökuð um að hafa myrt eiginmann sinn á heimili þeirra í Sydney, Ástralíu. Þetta þætti ekki í frásögur færandi hér hinum megin á hnettinum nema vegna þess að konan er níutíu og tveggja ára og manninn vantaði tvö ár í hundrað.
14.mar. 2010 - 22:08
Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02
Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:26
Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 18:36
Margrét Hallgrímsdóttir sló Íslandsmet í langstökki á landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1952 sem stóð í 20 ár. Hún fékk verðlaunapeninginn afhentan núna fyrir helgi, 58 árum eftir að mótinu lauk.
14.mar. 2010 - 17:45
Ein langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi hvítasunnuhelgi. Keppnin, sem síðast var haldin árið 2007, laðaði að sér hátt í 500 keppendur.
14.mar. 2010 - 16:20
Tveir lögreglumenn í þorpi skammt frá Spa í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið ölvaðir í vinnunni. Myndband, sem vegafarandi tók, er eitt af sönnunargögnunum en því hefur verið dreift á Youtube.
14.mar. 2010 - 15:17
Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37
Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 12:24
Hæstiréttur hefur hnekkt ákvörðun héraðsdóms um að hafna því að Pólverji verði framseldur frá Íslandi til að taka út fangelsisrefsingu í sínu heimalandi. Héraðsdómur taldi framsalið ósamrýmanlegt meðalhófsreglunni.