22.maí 2013 - 18:00
Þriðju nóttina í röð voru óeirðir í Husby í Stokkhólmi en nú virðist sem óeirðirnar séu farnar að breiðast enn frekar út en auk bíla sem eldur var borinn að í Husby loguðu eldar í Rinkeby, Skarpnäck, Norsborg, Kista og Tensta og í Fittja, sem er suðvestan við Stokkhólm, var kveikt í bílum og gámi og voru það grímuklæddir menn sem voru þar að verki.
22.maí 2013 - 17:40
Pálmi Hilmarsson sem starfað hefur sem húsvörður á Laugarvatni um árabil sagði í samtali við Pressuna að það væri afar jákvætt fyrir staðinn að stjórnmálaforingjarnir skyldu hafa valið Héraðsskólann á Laugarvatni til að skrifa undir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar.
22.maí 2013 - 16:30
Kveðið er á um skipun sex starfshópa/nefnda í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Hóparnir munu meðal annars fara yfir fyrirkomulag verðtryggingar, ríkisútgjöld og Evrópusambandsumsókn. Fjölmörg verkefni verða sömuleiðis endurskoðuð eða könnuð frekar.
22.maí 2013 - 15:30
Lík sem ferðafólk gekk fram á í Kaldbaksvík á Ströndum þann 17. maí sl. er af Gunnari Gunnarssyni, fæddum 1962.
22.maí 2013 - 14:40
Tíu ára gömul skólastelpa fékk heldur óhefðbundna refsingu fyrir að leggja skólafélaga sinn í einelti fyrir klæðaburð. Stjúpmóðir stúlkunnar, sem búsett er í Utah í Bandaríkjunum, tók til sinna ráða. Hún keypti föt á nytjamarkaði og lét stúlkuna klæðast ódýrum og slitnum fötum í tvo daga.
22.maí 2013 - 13:35
Það verður forvitnilegt að fylgjast með framgangi mála innan herbúða Manchester United í sumar. Nú reynir á hvernig David Moyes, nýráðinn stjóri félagsins, gengur að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil. Fellaini er sagður ansi gómsætur biti fyrir David Moyes.
22.maí 2013 - 13:30
Heimilisköttur sem hafði verið saknað um skeið fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær en kötturinn hafði verið skotinn. Kötturinn var í eigu sjö ára stúlku.
22.maí 2013 - 10:45
Íslenski bardagajaxlinn Gunnar Nelson er fyrir löngu orðinn þekkt nafn innan vébanda UFC. Í tilefni þess að vinsældir sportsins fara nú um heiminn eins og eldur í sinu hefur FUEL TV gert greinagóða umfjöllun um feril og umhverfi Gunnars.
22.maí 2013 - 10:00
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, lýsti ánægju sinni með myndun nýrrar ríkisstjórnar, að loknum fundi hans og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Bessastöðum nú í morgun. Fyrsta ráðuneyti Sigmundar Davíðs tekur við á ríkisráðsfundi eftir hádegi á morgun.
22.maí 2013 - 09:50
Körfuboltasnillingurinn Dwyane Wade hefur gaman af því að koma stuðningsmönnum sínum á óvart, enda léttur og skemmtilegur persónuleiki. Hér sjáum við þennan magnaða leikmann Miami Heat koma ungri stúlku fullkomlega á óvart þegar hann mætti til hennar á skólaball.
22.maí 2013 - 08:54
Tveir menn brutu upp hurð á íbúð í Vesturbænum, ruddust inn og réðust á húsráðanda. Maðurinn hlaut áverka í andliti.
22.maí 2013 - 08:17
Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar er almennt orðaður þar sem markmið eru tilgreind frekar en ítarlegar útfærslur. Þannig eru úrlausnir í skuldamálum heimilanna ekki endanlega afgreiddar í sáttmálanum, heldur markmiðunum lýst og verðtrygginguna á að gera óþarfa með betri efnahagsstjórn.
21.maí 2013 - 22:30
18 ára unglingur sem vann hug og hjörtu fólks er hann greindi á einlægan hátt frá baráttu sinni við krabbamein í desember er látinn. Pressan sagði sögu hans á síðasta ári.
21.maí 2013 - 22:27
Guðjón Ólafsson
Þrír leikir voru á dagskrá í Pepsi-deild karla í kvöld. Skagamenn nældu sér í þrjú stig á heimavelli sínum með 2-0 sigri á Fram, Stjarnan og Valur gerðu jafntefli og Íslandsmeistararnir gerðu góða ferð á Kópavogsvöll.
21.maí 2013 - 21:23
Miðstjórnarfundir Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru hafnir. Á fundunum kynna þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson flokksmönnum sínum málefnaáherslur nýrrar ríkisstjórnar og verkaskiptingu. Eyjan birtir hér skiptingu ráðuneytanna milli flokkanna og færir lesendum fréttir af miðstjórnarfundunum.
21.maí 2013 - 18:05
Leiðtogar allra aðildarríkja ESB hittast á morgun á fundi í Brussel. Á dagskrá fundarins er að komast að samkomulagi um nýjar aðgerðir gegn skattsvikum.
21.maí 2013 - 16:45
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun á morgun, miðvikudaginn 22. maí, eiga fund með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, sem forseti fól umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar þann 30. apríl síðastliðinn. Fundurinn verður á Bessastöðum og hefst kl. 09:00.
21.maí 2013 - 15:30
Mynd dagsins tók Ágúst G. Atlason af Sveinbirni Hjálmarssyni, eða Simba eins og hann er kallaður í daglegu tali. Simbi er þekktur fyrir að birta skopmyndir af sér á Facebook-síðu sinni en hann birtir eina á dag.
21.maí 2013 - 15:00
Hér er á ferðinni skemmtilegt myndskeið sem tekur á öllu því merkilegasta sem gerðist á nýloknu tímabili í enska boltanum. Tímabilið 2012 til 2013 hafði í för með sér mörg eftirminnileg augnablik. Allur pakkinn hér, á einungis þremur mínútum!
21.maí 2013 - 14:10
„Þekki ég gang stjórnarmyndana rétt er bitist fram á síðustu stund um ráðherrastóla og mér kæmi ekki á óvart þó fram á kvöldið væru menn enn að tosast milli flokka um hvoru megin stöku ráðuneyti lendir,“ segir Össur Skarphéðinsson sem spáir í ráðherrakapalinn í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
21.maí 2013 - 12:45
Um helgina urðu Guðmundur Guðmundsson og félagar í Rhein Neckar Löwen Evrópumeistarar í handbolta þegar liðið bar sigurorð af Nantes í hreinum úrslitaleik. Guðmundur var að sjálfsögðu himinlifandi með þennan fyrsta titil félagsins.
21.maí 2013 - 12:19
Kona á Suðurnesjum sem hafði áhyggjur af heilsu eiginmanns síns óskaði fyrir skömmu eftir aðstoð lögreglu til að reyna tala um fyrir eiginmanni sínum. Hún kvaðst vera orðin langþreytt á mataræði hans.
21.maí 2013 - 12:00
Aðra nóttina í röð söfnuðust ungmenni saman í Husby hverfinu í Stokkhólmi og efndu til óeirða. Kveikt var í fjölda mörgum bílum og einn strætisvagn varð fyrir barðinu á brennuvörgum. Fjölmennt lögreglulið var til staðar í hverfinu en þrátt fyrir það voru ólætin í nótt verri en nóttina á undan.
21.maí 2013 - 11:30
Athyglisverður munur rataði á uppboð hjá netversluninni eBay í gær en hann var sagður vera síðasta tyggjóið sem Alex Ferguson notaði á stjóratíð sinni. Allar líkur er á því að um grín hafi verið að ræða en uppboðið hefur nú verið fjarlægt af síðunni.
21.maí 2013 - 11:00
„Í gegnum árin hef ég reynt að horfa fram hjá hvernig sumir hafa skrifað um mig á kommentakerfum en nú er nóg komið,“ skrifar tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens í pistli sem birtur var hér á Pressunni í morgun.
21.maí 2013 - 19:20
Það er sérstök upplifun að ferðast með Air Koryo. Flugfreyjurnar ganga um með tuskur til þurrka rakann sem drýpur niður á farþegana, maturinn er viðbjóðslegur og byltingarmarsar eru spilaðir fyrir flugtak og lendingu.
21.maí 2013 - 10:00
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur viðurkennt að hafa veitt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni umboð til stjórnarmyndunarviðræðna vegna þess að hann hreifst af hugmyndum flokksins að nota fé vogunarsjóða til skuldaniðurfellinga.
21.maí 2013 - 09:10
Um klukkan 01:00 að íslenskum tíma náði Ingólfur Geir Gissurarson því magnaða afreki að komast á topp Everest fjalls. Ingólfur er elstur Íslendinga til að ná toppi þessa hæsta fjalls heims en hann er 50 ára gamall. Everest er hvorki meira né minna 8,848 metrar á hæð.
21.maí 2013 - 08:45
Að minnsta kosti 91 hafa látið lífið, þar af 20 börn eftir að ægilegur skýstrókur lagði í rúst Moore, úthverfi Oklahomaborgar. Óttast er að talan eigi eftir að hækka mikið en margra er saknað. Á þriðja hundrað manns slasaðist.
21.maí 2013 - 08:00
Heimilislæknirinn Vilhjálmur Ari Arason segir að fjórða hvert barn komi á bráðamóttökuna í Huddinge í Svíþjóð vegna taugaeinkenna sem tengjast (TBE). TBE er veiruheilabólga sem berst í fólk með biti skógarmítils.
20.maí 2013 - 22:30
„Nú reynir á fjölmiðla, bæjarstjórn og almenning að vinda ofan af þessari vitleysu,“ segir rithöfundurinn Andri Snær Magnason um nýjan Álftanesveg. Hann segir umræðuna um veginn „úti í hrauni“.
20.maí 2013 - 21:00
Í þetta sinn verður litið í gamlar erlendar fréttir. Í Akureyrarblaðinu Gjallarhorni birtist fyrir 100 árum, eða 27. mars 1903, svofelld fréttaklausa:
20.maí 2013 - 11:09
Gunnar Bender
Samkvæmt heimildum Veiðipressunnar hefur samningum við Pálma Gunnarsson og félaga um Eldavatn í Meðalandi verið rift en veiðifélagið gerði fyrir skömmu samning við þá til sjö ára og áttu þeir að greiða næstum 28 milljónir, 4 milljónir á ári.
20.maí 2013 - 19:55
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðað til fundar annað kvöld. Þar verður fyrirhugað ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknarflokk kynnt og borið undir atkvæði.
20.maí 2013 - 20:00
Portúgalski þjálfarinn José Mourinho mun hætta sem þjálfari Real Madrid eftir þetta tímabil. Þetta staðfesti Florentino Perez, forseti félagsins, í fréttatilkynningu í dag. Flest bendir til þess að Mourinho taki við Chelsea.
20.maí 2013 - 22:00
Ný vitneskja um það magn af koltvísýringi sem hafið dregur til sín hefur vakið vonir hóps vísindamanna víða að úr heiminum um að líkurnar á mikilli hnattrænni hlýnun verði minni á næstu áratugum en talið hefur verið fram að þessu.
20.maí 2013 - 18:00
Það er ótrúlegt til þess að hugsa að það eru liðin 20 ár síðan Toyota frumkynnti RAV4. Ekki nóg að bíllinn væri nýr frá Toyota heldur markaði hann upphafið að nýjum flokki bíla, götujepplingaflokkinn. Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar og samkeppnin er eitilhörð í þessum stærðarflokki. Flestir framleiðendur bjóða fram sinn valkost í flokknum. Það er ekki síst af þeirri ástæðu að framleiðendur verða að vera á tánum og bjóða endurnýjaðar útfærslur og nýjar kynslóðir sinna jepplinga til að vera með í slagnum.
20.maí 2013 - 16:30
Í morgun hófu keppendur aftur leik á fyrsta stigamóti sumarsins í Íslandsbankamótaröðinni eftir frestun gærdagsins, en leikið er á Þorláksvelli. Úrslit liggja nú fyrir hjá strákunum í flokki 14 ára og yngri og hjá 15-16 ára drengjum.
20.maí 2013 - 16:00
Litháenskir fjölmiðlar halda því fram að Aserbajdan hafi keypt sér atkvæði fyrir atkvæðagreiðsluna í Eurovision á laugardaginn. Samtök Evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, taka þessum ásökunum alvarlega og ætla að rannsaka málið.
20.maí 2013 - 15:00
Gamli góði fótboltasnillingurinn Ronaldinho er langt frá því að vera hættur í boltanum. Um þessar mundir spilar hinn 33 ára gamli Brasilíumaður undir merkjum Atlético Mineiro í brasilíska boltanum. Þar vakti hann nýverið athygli fyrir framúrskarandi leikhæfileika.
20.maí 2013 - 14:30
Frásögn Láru Hönnu Einarsdóttur af því að hún hefði í desember sl. greinst með brjóstakrabbamein og ofan á erfiða meðferð bæst við að henni hefði verið sagt upp störfum sem þýðandi hjá 365 miðlum vakti gríðarlega athygli í gærkvöldi.
20.maí 2013 - 13:15
Íslandsþáttur Simpsons-fjölskyldunnar var frumsýndur vestanhafs í gærkvöldi. Í þættinum ómaði tónlist Sigur Rósar og var sögusviðið Ísland. Þar talaði Hómer m.a. íslensku eins og heyra má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
20.maí 2013 - 12:50
Guðjón Ólafsson
Þrír leikir eru á dagskrá í Pepsi-deild karla í dag þegar flautað verður til leiks í fjórðu umferð. Stórleikur í Vestmannaeyjum þegar heimamenn taka á móti KR, Ólsarar fara norður og Keflvíkingar fá Árbæinga í heimsókn.
20.maí 2013 - 11:30
Upp úr klukkan 22:00 í gærkvöldi var lögreglunni í Stokkhólmi tilkynnt að kveikt hefði verið í minnst fjórum bílum í Husbyhverfinu. Þegar lögreglan kom á staðinn hófu ungmenngi að grýta steinum í lögreglumenn.
20.maí 2013 - 11:15
Ansi vandræðalegt augnablik átti sér stað á íshokkíleik í Bandaríkjunum nú um helgina. Þá var söngkonan Alexis Normand fengin til að syngja þjóðsöng Bandaríkjanna fyrir leikinn, eins og tíðkast þar í landi, með vægast sagt pínlegri útkomu.
20.maí 2013 - 10:00
Leikarinn Stefán Karl Stefánsson gagnrýnir foreldra í Vesturbænum fyrir að grípa ekki í taumana þegar þau urðu vitni að því að tveir ungir drengir, um níu ára gamlir, stóðu úti á miðri götu og öskruðu ókvæðisorðum á annan pilt.
20.maí 2013 - 09:00
Já sem rekur meðal annars upplýsingavefinn Já.is, mun á næstu dögum hefja 360° myndatökur við helstu kennileiti og ferðamannastaði á Íslandi. Um er að ræða myndatökur sem gera Já kleift að bjóða upp á sambærilega þjónustu og Google hefur gert með svokölluðum Street View myndum. En slíkar myndir má sjá á kortavef Google af fjölmörgum stöðum í heiminum. Þó ekki frá Íslandi. Fyrirtækið hefur fengið sérútbúinn, umhverfisvænan Tyota Yaris Hybrid til verksins.
20.maí 2013 - 09:00
Lögreglunni á Selfossi barst að kvöldi Hvítasunnudags tilkynning um að hjón um sjötugt væru meðvitundarlaus í hjólhýsi í Þjórsárdal. Sjúkrabílar og lögregla fóru þegar á vettvang. Nærstaddir brutust inn í húsið og komu þeim út undir bert loft og hófu þar tilraunir til endurlífgunar
19.maí 2013 - 22:20
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að flestir Evrópumenn eigi sömu forfeðurna sem voru uppi fyrir um 1.000 árum, á víkingatímanum. Evrópumenn eiga samkvæmt þessari niðurstöðu rætur sínar að rekja til nokkurra forfeðra para sem voru upp fyrir 1.000 árum. Það voru vísindamenn við Davis háskólann í Kaliforníu sem framkvæmdu rannsóknina.
19.maí 2013 - 21:20
Í nýlegri kvikmynd eftir Steven Spielberg er því lýst hvernig Abraham Lincoln Bandaríkjaforseti kom “þrettándu viðbótinni” við bandarísku stjórnarskrána í gegnum þingið árið 1865. Henni var ætlað að afnema þrælahald í Bandaríkjunum og jafnan hefur verið litið á samþykkt hennar sem mikinn sigur fyrir Lincoln og baráttumenn fyrir mannréttindum í Bandaríkjunum.