08. feb. 2010 - 20:00
Facebook firringin: Foreldrar fréttu á Facebook að 17 ára sonur hefði látist í bílslysi

Facebook samskiptasíðan.
Tvíburasystrum í Ástralíu varð heldur brugðið þegar þær skráðu sig inn á Facebook síðuna að morgni afmælisdags síns. Þær áttu 20 ára afmæli og áttu von á fjöldanum öllum af afmæliskveðjum frá vinum og kunningjum. Þess í stað voru veggir þeirra fullir af samúðarskilaboðum vegna láts bróður þeirra, lögregla hafði ekki náð að segja fjölskyldunni af hörmulegum tíðindinum og varð Facebook á undan.
Systurnar reyndu að hringja í bróðurinn sem hét Bobby Vourlis en enginn svaraði, þá hringdu þær í foreldra sína sem ekkert höfðu heyrt. Bobby hafði ætlað að gista hjá vini sínum og enginn hafði heyrt í honum síðan kvöldið áður. Foreldrarnir skráðu sig inn á Facebook síðuna og þar var það sama uppi á tengingnum. Ekkert nema samúðarskilaboð.
Móðirin gat ekkert annað gert en að hringja á næstu lögreglustöð og kanna hvort þetta gæti verið satt. Var sonur hennar látinn? Eftir einhverja bið kom lögregluþjónn í símann sem staðfesti að sonur þeirra og tveir vinir hans hefðu látist um nóttina í hörmulegu bílslysi. Fjölskyldan er skiljanlega sár og svekkt yfir að þurfa að komast að dauðsfalli Bobby í gegnum Facebook en sagan komst á kreik þar sem búið var að bera kennsl á vinina sem létust.
Lögregla segist hins vegar ekki hafa getað haft samband þar sem ekki hafði verið búið að bera kennsl á líkið. Fjölmiðlar í Sidney hafa þó verið gagnrýnir á vinnubrögð lögreglunnar en rúmlega 6 klukkustundir liðu frá slysinu og þar til fjölskyldan hringdi í lögregluna.
Facebook notkun landsmanna hefur verið talsvert á milli tannanna á fólki og er ekki langt síðan Pressupenninn
Sölvi Tryggvason sagði frá því hvernig net notkunin getur gengið út í öfgar og á kostnað fjölskyldumeðlima.
16.mar. 2010 - 18:25
Lögreglan í Macomb sýslu í Michigan-fylki í Bandaríkjunum vissi ekki sitt rjúkandi ráð þegar hún fékk í vörslu sína þriggja ára dreng sem skilinn hafði verið eftir í afmælisveislu á veitingastað. Drengurinn gat ekki gert grein fyrir sér og enginn vitjaði hans fyrr en tveimur dögum síðar.
16.mar. 2010 - 17:45
Kristján L. Möller, samgönguráðherra, er ekki á því að beita sértækum aðgerðum til að lækka bensínverð í landinu, þrátt fyrir að hafa kallað eftir slíkum aðgerðum þegar hann var í stjórnarandstöðu. Hann vonast til að bensínverð lækki eftir að samið verður um Icesave.
16.mar. 2010 - 17:40
Höldur-Bílaleiga Akureyrar og Suzuki bílaumboðið á Íslandi hafa skrifað undir kaup bílaleigunnar á að minnsta kosti 175 nýjum bílum af tegundunum Suzuki Swift og Suzuki Grand Vitara og hugsanlega verður bílunum fjölgað eitthvað þegar nær dregur sumri.
16.mar. 2010 - 17:05
„Það er þannig að hæstvirtur fjármálaráðherra samdi sérstaklega um það að það yrði árangurstengt launakerfi í ríkisbankanum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann telur réttast að Alþingi fjalli fyrst um bónusa Landsbankans áður en hjólað verður í aðra banka.
16.mar. 2010 - 16:04
Skorað hefur verið á forseta Íslands að taka þátt í átakinu karlar og krabbamein og láta sér vaxa yfirvaraskegg. En hvernig myndi forsetinn líta út með mottu?
16.mar. 2010 - 15:00
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að hefðbundnar vinaþjóðir hafi snúið baki við Íslendingum, sem treysti nú á Þjóðverja að aðstoða landið í þeim vandræðum sem nú steðja að landi og þjóð.
16.mar. 2010 - 14:13
Bónusgreiðslur til starfsmanna bankanna voru fordæmdar á Alþingi í dag. Lagt var til að þær yrðu annað hvort skattlagðar upp í rjáfur eða sett verði lög til að banna þær. Formaður viðskiptanefndar vill að Alþingi hóti að setja lög um afskriftir til skulda heimilanna til að fá uppgefið hvert svigrúmið er.
16.mar. 2010 - 12:58
Ríkisstjórnin og stjórnarandstaðan funda í dag með Lee Buchheit sem fer fyrir íslensku samninganefndinni í Icesave-málinu. Enginn formlegur fundur hefur verið boðaður með Hollendingum og Bretum. Ríkisstjórnin kannast ekki við að boltinn sé hjá Íslendingum í deilunni.
16.mar. 2010 - 12:32
Skattayfirvöld höfðu tvívegis gert tillögur um viðamiklar umbætur til að koma í veg fyrir skattaundanskot í bankakerfinu. Forsætisráðherra segir ljóst að enginn áhugi hafi verið hjá Sjálfstæðisflokknum að ráðast í slíkar umbætur þegar hann stjórnaði fjármálaráðuneytinu.
16.mar. 2010 - 11:59
Rökstuddur grunur leikur á að gömlu bankarnir hafi komið milljörðum króna undan skatti áður en þeir féllu. Ríkisstjórnin ætlar að koma á fót sérstakri sveit á vegum skattrannsóknarstjóra til að rannsaka umfangið.
16.mar. 2010 - 11:48
Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá árinu 1889. Brottfluttir útlendingar valda miklu um þessa fækkun. Íslendingum heldur áfram að fjölga.
16.mar. 2010 - 11:15
William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, sem í gær var ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland, gerði tillögu til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í október 2008 um að fella íslenska banka undir Straum í því skyni að komast að samkomulagi við erlenda kröfuhafa og tryggja eðlilegt greiðsluflæði frá Íslandi til útlanda.
16.mar. 2010 - 10:47
HönnunarMars, íslensk hönnunarhátíð fer fram í annað skipti á Íslandi, frá næsta fimmtudegi til sunnudags. Markmið hátíðarinnar er að kynna fyrir gestum nýjustu strauma og stefnur í íslenskri hönnun. Grasrót íslenska hönnunarsamfélagsins, yfir 500 einstaklingar, tekur þátt á hátíðinni og við skipulagningu ríflega 100 viðburða hennar.
16.mar. 2010 - 10:29
Bílaleiga Akureyrar-Höldur ehf. hefur samið við HEKLU um kaup á 200 nýjum Volkswagen og Skoda bifreiðum sem afhentar verða á vormánuðum.
16.mar. 2010 - 10:23
Fjölskyldufaðirinn og stjórnarformaðurinn Kristján Gíslason, segir í opnu bréfi til forsætisráðherra Danmerkur í danska fjármálablaðinu Börsen í dag, að Íslendingar skilji ekki af hverju Danir lyfta ekki litla fingri til hjálpar frændþjóð sinni. Íslendingar hafi heldur ekki skilið hvernig Íslendingar eignuðust þjóðargersemar í Danmörku.
16.mar. 2010 - 10:01
Sænska hljómsveitin ABBA var tekin inn í frægðarhöll rokksins, Rock and roll Hall of Fame, í nótt ásamt Genesis, Jimmy Cliff, The Hollies og The Stooges.
16.mar. 2010 - 08:48
Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sé þreyttur maður, sjálfum sér og öðrum til ama, og eigi að víkja.
16.mar. 2010 - 08:04
Heildarskuldir ríkissjóðs næstum fjórfölduðust við bankahrunið. Þær voru 310 milljarðar króna árið 2007 og fóru í 1176 milljarða 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu voru 78% í lok árs 2009.
16.mar. 2010 - 07:36
Lyfjastofnun bannar dreifingu á kynningar- og fræðsluhefti um sykursýki frá Icepharma og krefst þess að það verði innkallað. Þá fer Lyfjastofnun fram á að Icepharma sendi út leiðréttingu á upplýsingum í heftinu um meðferðarmarkmið í blóðsykurstjórn.
16.mar. 2010 - 07:00
Hratt gengur á sparifé Davids Stopher, tæplega sextugs Breta, sem missti eiginleikann til að segja nei takk við ágenga sölumenn efir að hann fékk heilablóðfall. Hann lét pranga inn á sig tíu farsímum samtímis þótt hann noti aðeins einn.