08. feb. 2010 - 10:30
Er hægt að renna á lyktina? Mýs finna mun á þvagi þeirra sem eru með krabbamein og heilbrigðra

Getty Images
Bandarískir og japanskir vísindamenn hafa fundi út að mýs finna lyktarmun á þvagi músa með lungnakrabbamein og heilbrigðra músa. Nú vilja þeir gera tilraun með að finna slíkt hið sama með manneskjur.
Árlega greinast um 100 Íslendingar með lungnakrabbamein og sýna rannsóknir hér á landi að aðeins um 11 - 12% þeirra eru lifandi eftir 5 ár, þó ekki sé hægt að alhæfa slíkt um einstaklinga þar sem ekki er tekið tillit til aldurs, útbreiðslu og ýmissa annarra þátta. Þó er hægt að segja að því fyrr sem meinið greinist því meiri líkur séu á bata.
Gary K. Beauchamp, líffræðingur við Monell Chemical Senses miðstöðinni í Bandaríkjunum, segir tímann skipta öllu og þar geti mýsnar komið til skjalanna.
„Æxlismyndun virðist breyta líkamslyktinni sem hægt er að greina með þefnæmum dýrum og fullkominni efnatækni. Niðurstöður rannsóknarokkar bendir til að lyktarþátturinn geti gert það að verkum að meinið greinist mun fyrr en nú er.“
Sérþjálfaðar mýs eru afar leiknar að finna lyktarmun á þvagi þeirra músa sem hafa lungnakrabba og hinna og segja vísindamenn að efnabreyting í líkamanum breyti lyktinni verulega í þvaginu. Virðist sem ákveðin lyktarefni hverfi úr þvaginu við myndun lungnakrabbameins.
Og svo leiknar virðast mýsnar á þetta að í 47 tilfellum af 50 voru mýsnar öruggar með að greina á milli sýktra og ósýktra músa.
Nú vilja vísindamennirnir taka þessa tilraun á næsta stig og athuga hvort hægt sé að finna lungnakrabba í fólki með því að lykta af þvaginu.
„Við vonumst til að geta notað þessar efnabreytingar til að finna merki um lungnakrabba í reykingamönnum. Þetta gæti orðið nothæf leið til að finna krabbamein mjög snemma í ferlinu.“
Áætlað er að einungis fjórðungur lungnakrabbameinstilfella uppgötvist nægilega snemma til að hægt sé að fjarlægja það með skurðaðgerð í tíma. Vísindamennirnir segjast bjartsýnir á þessa tilraun en benda þó á að þróun krabbameinsins taki aðeins örfáar vikur í músum en ár í mönnum.
14.mar. 2010 - 22:08
Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02
Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:26
Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 18:36
Margrét Hallgrímsdóttir sló Íslandsmet í langstökki á landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1952 sem stóð í 20 ár. Hún fékk verðlaunapeninginn afhentan núna fyrir helgi, 58 árum eftir að mótinu lauk.
14.mar. 2010 - 17:45
Ein langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi hvítasunnuhelgi. Keppnin, sem síðast var haldin árið 2007, laðaði að sér hátt í 500 keppendur.
14.mar. 2010 - 16:20
Tveir lögreglumenn í þorpi skammt frá Spa í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið ölvaðir í vinnunni. Myndband, sem vegafarandi tók, er eitt af sönnunargögnunum en því hefur verið dreift á Youtube.
14.mar. 2010 - 15:17
Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37
Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 12:24
Hæstiréttur hefur hnekkt ákvörðun héraðsdóms um að hafna því að Pólverji verði framseldur frá Íslandi til að taka út fangelsisrefsingu í sínu heimalandi. Héraðsdómur taldi framsalið ósamrýmanlegt meðalhófsreglunni.
14.mar. 2010 - 11:21
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins átelur stjórnvöld fyrir andvaraleysi gagnvart samdrætti í byggingariðnaði. Þekking hverfi úr landi. Formaður Samiðnar vill koma hjólunum af stað með því að veita 80% lán til íbúðakaupa.
14.mar. 2010 - 10:00
Á föstudag barst lögreglunni í sænska bænum Vansbro sending, gamalt veski með þúsund krónum og orðsendingu frá iðrandi þjófi, sem hafði stolið því í samkvæmi fyrir fjörutíu árum. Réttmætur eigandi veskisins hefur þó engin not af því lengur, því að hann er látinn.
14.mar. 2010 - 09:00
Bæði Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Camiel Eurlings samgönguráðherra hafa ákveðið að hætta afskiptum af stjórnmálum og bjóða sig ekki fram í kosningum til hollenska þingsins í sumar. Þeir taka fjölskyldu sína fram yfir tímafrek störf í ríkisstjórninni þar sem efnahagsmálin hafa verið afar þjakandi undanfarin þrjú ár.
13.mar. 2010 - 21:00
Efnahyggjumenn segja jafnan að allt sé til sölu, aðeins ef nógu hátt verð er sett á borðið. Miðað við það sem gengið hefur kaupum og sölum á uppboðssíðunni eBay er heilmikið til í því. Pressan hefur tekið saman 10 skrýtnustu hlutina sem seldir hafa verið á þessari vinsælustu uppboðssíðu heims.
13.mar. 2010 - 19:45
Þetta kann að hljóma of ótrúlega til að vera satt...og það er það. Yfirvöld í Nova Scotia stóðu fyrir umfangsmikilli auglýsingaherferð þar sem nýr og byltingakenndur farsími var kynntur til sögunnar. Átti síminn að geta allt, meira að segja lagað kaffi.
13.mar. 2010 - 18:48
Svo gæti farið að Deutsche Bank höfði mál gegn íslenska ríkinu láti ríkisstjórnin verða að afskriftartillögum félagsmálaráðherra um bílalán. Fjármögnunarfyrirtæki segja tillögurnar vanhugsaðar og gætu orðið til þess að þau fari í þrot.
13.mar. 2010 - 17:25
Knattspyrnumaðurinn Jimmy Bullard sem leikur með Hull City í ensku úrvalsdeildinni gengur iðulega undir nafninu Jókerinn. Hann stendur svo sannarlega undir því nafni, enda meinfyndinn drengurinn. Hann hefur nú slegið í gegn í kostulegri sjampóauglýsingu.
13.mar. 2010 - 16:22
Guðjón Arnar Kristjánsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér sem formaður Frjálslynda flokksins. Nýr formaður verður kjörinn á landsþingi flokksins um næstu helgi. Guðjón Arnar hefur verið formaður flokksins síðan 2003.
13.mar. 2010 - 15:30
Yfirvöld í Georgíu eru í vandræðum þar sem fangelsi landsins eru að yfirfyllast. Til að ráða bót á vandamálinu hafa þau ákveðið að fara heldur óvenjulega leið, það er að senda smáglæpamenn í klaustur til að ljúka afplánuninni.
13.mar. 2010 - 14:30
Einar Skúlason, sem leiðir lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor, segir að Reykjavík beri skylda til þess að skoða kosti og galla sameiningar við Álftanes. Jafnvel gæti verið hagkvæmt fyrir Reykjavík að sameinast Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ.