07. feb. 2010 - 11:46

Enn rökrætt um sjávarútveg: Er kvótakerfið hrein skynsemi eða fyrningarleið nauðsynleg?

Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir ekki rétt að segja að þjóðin eigi að ráða fiskveiðikvóta, það séu aldrei ríflega 300.000 manns sem muni veiða hann. Það sé hins vegar mikilvægt að sem flestir njóti verðmæta hans. Guðbjartur Hannesson minnti á að bæði Samfylkingin og Vinstri græn hafi lofað fyrir síðustu Alþingiskosningar að innkalla aflaheimildir og úthluta á ný, fara svonefnda firningarleið.

Guðbjartur ræddi um starfshóp sem hafi verið skipaður af sjávarútvegsráðherra, til þess að endurskilgreina og setja markmið innan geirans til lengri tíma. Þetta kom fram á sérstökum borgarafundi um sjávarútvegsmál á Bylgjunni í morgun. Fyrir utan þá Einar og Guðbjart voru Grétar Mar Jónsson, fyrrum Alþingismaður og Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍU gestir en þeir ræddu um ástand sjávarútvegsins og firningarleið sem stjórnvöld hafa boðað. Grétar Mar sagði að hraða þyrfti fyrningarleiðinni og helst vill hann firna um 25% á ári og byrja í september á þessu ári.  

Guðbjartur segir að eftir hrun sé nauðsynlegt að fara í endurmat og viðræður um framtíðarskipulag. Starfshópinn, sem hann ræddi um, skipa fulltrúar helstu hagsmunahópa sjávarútvegsins, en Guðbjartur sagði að eftir þrjá fundi, hafi LÍÚ hætt að sækja þá. Friðrik segir það vera vegna þess að LÍÚ hafi ekki ætlað að útfæra fyrningarleiðina í samstarfi við stjórnvöld.

Um svörtu hliðar greinarnar tókust þeir á um skuldsetningu greinarinnar, t.d. hvað ætti að gera við gríðarlega skuldsetningu innan greinarinnar ef að kvótinn verði tekinn af útgerðarmönnum. Guðbjartur segir það hugmyndina að menn borgi sínar skuldir áfram, en það þurfi að skoða hvernig sé hægt að hjálpa mönnum svo þeir verði ekki skildir eftir á köldum klaka ef kvóti verður endurútgefinn. Einnig var bent á hversu erfitt væri fyrir nýliða að eignast bát og komast að í greininni. Grétar Mar kallar núverandi kerfi gjafakvótakerfi og ríkisstyrk og vonaðist eftir jöfnuði og jafnrétti innan fiskveiðigeirans.

Einar sagði að núverandi kerfi sé tekjumest og Friðrik spurði hvers vegna ætti að breyta því sem vel gengur og kallaði kvótakerfið heilbrigða skynsemi, þar sem það sé nauðsynlegt að takmarka kvótann.


15.mar. 2010 - 22:32

Sumar myndir þarfnast einfaldlega frekari útskýringa: 10 óskiljanlegar uppákomur

Svona á ekki að leggja bílum. Með tilkomu internetsins rata fyrir sjónir almennings myndir sem ekki með nokkru móti er hægt að útskýra án þess að vita söguna á bak við þær. Spakmælið að myndir segja meira en þúsund orð fellur í þessum tilvikum um sjálft sig.
15.mar. 2010 - 21:58

Bandaríkjamenn æfir yfir framgöngu Ísraela - Er áralöng vinátta þjóðanna fyrir bý?

Benjamin Netanyahu hefur tekist að reita bandarísk stjórnvöld til reiði. Bandaríska ríkisstjórnin er æf yfir framgöngu Ísraela sem í síðustu viku kynntu áförm sín um stækkun ísrealskrar byggðar í Jerúsalem, á svæði sem Palestínumenn telja sig eiga rétt á. Ísraelar kynntu áform sín meðan á opinberri heimsókn varaforseta Bandaríkjanna og túlka menn það sem mikla móðgun við bandarísk stjórnvöld.
15.mar. 2010 - 20:45

Þráir heitast af öllu að verða titluð þyngsta kona heims: Vegur 272 kíló og er ekki hætt

Donna Simpson segist gera sér grein fyrir skaðsemi offitunnar en lætur sér fátt um finnast. Helsti draumur bandarískrar húsmóður er að verða þyngsta kona veraldar. Hún er nú þegar þyngsta kona veraldar sem fætt hefur barn. Í dag vegur hún 272 kíló en dreymir um að ná 450 kílóa markinu. Hún heldur úti vefsíðu þar sem fólk borgar sig inn til að horfa á hana borða.
15.mar. 2010 - 20:02

Félagsmálaráðherra: Auðvelda þarf fólki að sleppa undan skuldum sem það ræður ekki við

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir nauðsynlegt að gera fólki auðveldara að sleppa undan þeim skuldum sem það ræður ekki við að greiða. Hann segir fyrirtækin sem lánuðu almenningi fyrir bílakaupum hafa afgreitt lánaumsóknir á örfáum mínútum og aldrei tekið mið af greiðslugetu lánþegans, því eigi fyrirtækin að axla sína ábyrgð.
15.mar. 2010 - 19:12

Breska fjármálaeftirlitið kærir hjón fyrir innherjasvik: Eftirlitið aukið til mikilla muna

Breska fjármálaeftirlitið hefur eflt starfsemi sína til muna undanfarna mánuði. Breska fjármálaeftirlitið hefur ákært hjón fyrir innherjasvik sem áttu sér stað á árunum 2000 - 2009. Eiginmaðurinn starfaði í breskum fjárfestingarbönkum á þessum árum og er grunaður um að hafa nýtt sér upplýsingar sem hann fékk vegna starfs síns til að hagnast á hlutabréfakaupum. Maðurinn vann í nokkur ár hjá Dresdner Capital en síðasta árið hjá fjárfestingarbankanum Shore Capital.
15.mar. 2010 - 18:18

Í farbann fyrir að valda barni alvarlegum áverkum: Fóstur- faðirinn eftirlýstur í Póllandi

Erlendir foreldrar lítils barns sem talið er að hafi skaðast af því að vera hrist harkalega, hafa verið úrskurðaðir í farbann. Fósturfaðir barnsins er eftirlýstur í Póllandi fyrir ofbeldisglæpi og og fjársvik.
15.mar. 2010 - 18:15

Stefnir í skort á krabbameins- læknum: „Stefnir víða í óefni,“ segir formaður Læknafélagsins

Tveir krabbameinssérfræðingar hafa sagt upp á LSH. Tveir krabbameinslæknar hafa sagt upp störfum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og verða þeir báðir hættir störfum í september. Hafa þeir fengið vinnu í útlöndum. Formaður Læknafélags Íslands segir sérfræðilækna horfa í æ meiri mæli til útlanda og að víða stefni í óefni innan heilbrigðiskerfisins.
15.mar. 2010 - 17:33

Hollendingar bíða eftir Íslendingum í Icesave: Við erum tilbúnir - hvar eru tillögurnar?

Jan Kees de Jager og Steingrímur J. eru sammála um að boltinn sé hjá Íslandi Ekki stendur á Hollendingum og Bretum að hefja viðræður að nýju við Íslendinga um lausn á Icesave-málinu. Hins vegar sé enn beðið eftir tillögum frá Íslandi.
15.mar. 2010 - 16:44

William Fall fyrrverandi forstjóri Straums: Ráðinn í lykilstöðu hjá Royal Bank of Scotland

William Fall, fv. forstjóri Straums. William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingabanka, hefur verið ráðinn í lykilstöðu hjá alþjóðasviði eins stærsta banka í heimi, Royal Bank of Scotland. Er Fall ætlað að æðsti yfirmaður alþjóðasviðs samsteypunnar (e. Global Head of Financial Institutions Group).
15.mar. 2010 - 16:21

Bensínhækkanir: Engin mótmælir nú en allt varð vitlaust þegar lítrinn fór yfir 150 kr

Dropinn þykir dýr og þykir mörgum nóg um. Það hefur varla farið framhjá neinum manni að bensínlítrinn er í dag kominn yfir 200 krónur á flestum bensínstöðvum landsins. Öfugt við það sem gerðist árið 2000, þegar lítrinn fór fyrst yfir 100 krónur, hefur lítið örlað á kröfum um lækkaðar álögur. Meðal þeirra sem létu hæst heyra í sér á þeim tíma var núverandi forsætisráðherra.
15.mar. 2010 - 15:09

Wikileaks: Birtir kröfuhafaskrá Kaupþings í heild sinni - boðar frekari birtingu trúnaðargagna

Upplýsingaveitan Wikileaks birtir í dag 512 blaðsíðna kröfuhafalista Kaupþings og boðar um leið að frekari birting trúnaðargagna sé væntanleg.
15.mar. 2010 - 14:15

Vandræðaleg mistök í bæklingi: Bók um kynlífsleikföng í auglýsingu um barnavörur

Bókin Sex Toys á gólfinu í auglýsingu um Hannah Montana sængurver Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55

Stendur hrunskýrslan ekki undir væntingum? Stjórnsýsluúttekt en ekki neinn Stóridómur

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47

Stjórnmálafræðingur: Heitir það ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsað af fólki í skjóli nætur?

Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:59

Hálfsextug nunna fékk óvæntan arf: Eitt hóruhús í Austurríki frá sirkusstarfandi mömmu

Hálfsextug nunna í Skotlandi fékk óvæntan arf nýverið; eitt stykki hóruhús í Austurríki. Kom í ljós að móðir nunnunnar hafði um árabil rekið það með góðum hagnaði.

15.mar. 2010 - 10:08

Félagsmálaráðherra: Græði skuldari meira á dómi um bílalán en lögum, þá gildir dómurinn

Félagsmálaráðherra segir stjórnvöld gæta hagsmuna skuldara í landinu Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 08:53

Sýngin Netið 2010: Vísir að árshátíð netfyrirtækja að ári sem verður enn stærri í sniðum

Liðsmenn Allra átta fengu verðlaun fyrir glæsilegasta básinn á sýningunni. Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 08:34

Maður hótaði fjöldamorði í Stokkhólmi: Handtekinn eftir að slóð hans var rakin á netinu

Lögreglumenn í Svíþjóð gættu öryggis við Tækniháskólann í gær og í nótt Lögreglan í Gautaborg handtók í nótt mann sem hafði hótað því að fremja fjöldamorð í Konunglega Tækniháskólanum í Stokkhólmi í dag. Lögreglan rakti slóð hans á netinu.
15.mar. 2010 - 07:50

Samtök lánþega: Lánardrottnar hagnast á hugmyndum ráðherra um niðurfærslu bílalána

Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40

Hrunskýrsla Alþingis ekki svo svört: Þeir sem þola mig ekki eiga eftir að verða svekktir

Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 12.3.2010
Heit á Hótel Borg - Mynd vikunnar!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 13.3.2010
Davíðssálmur númer 1
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 13.3.2010
Enn og aftur bullar Gylfi
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.3.2010
,,Þeir sem þola mig ekki verða svekktir"
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 15.3.2010
Skvísuvaktin - Elín Kristjáns
Eiríkur Bergmann
Eiríkur Bergmann - 15.3.2010
Skussum bjargað – ráðdeildarsömum refsað
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 14.3.2010
Tuttugu þúsund verða að tvöhundruð þúsund
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 11.3.2010
Díva mánaðarins - BrianX.com
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Opin spurning til nýju bankanna
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 12.3.2010
Hvar eru afskriftirnar? - hvar er rannsóknin?
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 11.3.2010
Stoppaði ríkisstjórnarfund fyrir Spaugstofuna
Katrín Brynja Hermannsdóttir
Katrín Brynja Hermannsdóttir - 12.3.2010
Útbíuð í sýklum?
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit