03. jún. 2012 - 09:38

Eigandi flugfélagsins flugþjónn um borð í fyrsta flugi: Skúli Mogensen lét drauminn rætast

Skúli Mogensen, aðaleigandi og stjórnarformaður Wow Air.

Skúli Mogensen, aðaleigandi og stjórnarformaður Wow Air.

„Það var óneitanlega stórkostlegt að sjá drauminn rætast á fimmtudaginn þegar við fórum í loftið í jómfrúarflugið eftir botnlausa vinnu allra sem koma að þessu ævintýri okkar undanfarna mánuði,“ segir Skúli Mogensen athafnamaður glaðbeittur, en Wow air, nýtt flugfélag þar sem hann er aðaleigandi og stjórnarformaður, hóf starfsemi sína með formlegum hætti nú um helgina eftir fyrsta flug til Parísar á fimmtudag.
 
Skúli hefur verið áberandi í aðdraganda þess að vélar Wow fari í loftið og greinilegt er að hann ætlar að blanda sér persónulega inn í reksturinn frá fyrsta degi. Í jólmfrúarfluginu vakti þannig athygli að Skúli var sjálfur í að rífa af brottfararspjöldum farþega og bjóða þá velkomna um borð, auk þess sem hann tók þátt í starfi flugþjóna á leiðinni til Parísar ásamt Baldri Baldurssyni forstjóra og Matthíasi Imsland rekstrarstjóra.

Áhöfn gerir sig klára fyrir fyrsta flug frá Leifsstöð til Parísar á fimmtudag.
 
En hvers vegna að fara út í svo áhættusaman rekstur og stofna flugfélag á þessum tímum?
 
„Þetta er stórt og verðugt verkefni sem snýr ekki eingöngu að flugi heldur að því að efla ferðaþjónustu til og frá Íslandi í heild sinni,“ svarar Skúli glaðbeittur. Hann bendir á að ferðaþjónustan hafi skilað um 158 milljörðum í gjaldeyri í fyrra og því sé ljóst að um mikið hagsmunamál fyrir land og þjóð sé að ræða.
Það skiptir þess vegna gríðarlega miklu að við vinnum í sameiningu að því að tryggja að öll þjónusta og aðstæða hér á landi sé til fyrirmyndar.
 
Áætlunarflug hefst í dag

Á fimmtudaginn var jómfrúarflug WOW air og var ferðinni heitið til Parísar en félagið mun hefja formlegt áætlunarflug til 13 áfangastaða í Evrópu í dag,  sunnudaginn 3. júní.

Flugfloti WOW air samanstendur af tveimur Airbus A320, 168 sæta flugvélum, með auknu sætarými og fótaplássi fyrir farþega. Vélarnar eru leigðar frá félaginu Avion Express og eru merktar WOW Force One og WOW Force Two með fjólubláum stöfum sem er einkennislitur WOW air. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á einstaka þjónustu sem mun skila sér í mun léttari og skemmtilegri ferðaupplifun en Íslendingum hefur áður staðið til boða en félagið vill samsvara sér með flugfélögum eins og Virgin, South West og Kulula.

Félagið boðar aukna samkeppni á markaði en eitt af megin markmiðum er að gera flugferðir til og frá landinu ódýrari en áður hefur sést.  

Í dag starfa um 80 manns hjá félaginu en ráðningar á fjölmörgum starfsmönnum í viðbót standa nú yfir en um 450 manns sóttu um stöðugildi sem félagið auglýsti laus nýlega.  Félagið starfrækið einnig ferðaskrifstofuna WOW ferðir sem sérhæfir sig í ferðum á helstu áfangastaði móðurfélagsins og mun auka framboð sitt verulega á komandi misserum.
 
Sameiginlegt átak
 
Að sögn Skúla hafa forsvarsmenn Wow air sett sér það markmið að horfa fram á veg og vinna að því að stækka markaðinn enn frekar. Hann segist sannfærður um að það eigi hagsmunaaðilar almennt að gera, enda sé hægt með samstilltu átaki allra aðila hæglega að tvöfalda árlegan ferðamannafjölda til Íslands á næstu 5-6 árum.
 
Og hvernig gekk svo fyrsta flugið?
Það gekk vel og ótrúlega gaman að upplifa slíka drauma verða að veruleika. Þetta er mjög skemmtilegur og dýnamiskur iðnaður þar sem maður er í nánu sambandi við fjölda fólks út um allan heim og alltaf jafn ánægjulegt að heyra hvað erlendum ferðamönnum finnst landið okkar magnað.
Skúli segir að gaman hafi verið að prófa sig í hlutverki flugþjónsins um borð:
Það var líka virkilega gaman að vera í flugþjónahlutverkinu um borð í fyrstu ferðinni og fá að taka þátt í að þjóna gestum okkar.  Ég skemmti mér konunglega og það er alveg ljóst að ég mun taka að mér flugþjónahlutverkið reglulega í sumar,  það jafnast fátt við það að fá að heyra beint í okkar farþegum um hvernig við getum haldið áfram að gera betur.  Það var óneitanlega líka mjög skemmtilegt að labba með glæsilegum hóp flugfreyja og þjóna í Paris og sjá viðbrögðin, þetta er frábær hópur og ég er mjög stoltur yfir þeirra frammistöðu.
Skúli undirstrikar að margir komi að því að hrinda slíkri hugmynd í framkvæmd. Hann vill nota tækifærið til að þakka fyrir sig í þeim efnum:
Ég vil þakka öllum þeim frábæru samstarfsaðilum sem eru búin að leggja mikið á sig undanfarið við að hjálpa okkur að koma WOW air af stað svo sem Ísavia, KFS,Flugmálastjórn, Avion Express, Rikku og Steingrími Sigurgeirssyni með frábæran mat og vín um borð svo eitthvað sé nefnt.  Síðast en ekki síst vil ég þakka öllu því góða fólki sem nú þegar er búið að tryggja sér miða með WOW í sumar,  ég hlakka til að sjá ykkur öll um borð!

Það var tilkomumikið að sjá flugvél Wow fara í loftið fyrsta sinni.

Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.



20.jún. 2013 - 00:09

James Gandolfini fallinn frá einungis 51 árs að aldri

James Gandolfini  er látinn aðeins 51 árs að aldri. Hann fékk hjartaáfall á Ítalíu í dag en samkvæmt öllum helstu miðlum vestanhafs var hann staddur þar á kvikmyndahátíð.
19.jún. 2013 - 22:20

Veiðigjaldsfrumvarp: 22.700 undirskriftir komnar – ,,Kemur á óvart“ segir ráðherra

Hátt í 23.000 einstaklingar hafa ritað undir hvatningu til Alþingis þess efnis að samþykkja ekki frumvarp sjávarútvegsráðherra um lækkun veiðigjalda.
19.jún. 2013 - 21:40 Eva Gunnbjörnsdóttir

Vala farin í sjálfskipað fjölmiðlabann: Vill ekki spilla fyrir þeim sem nýta mat úr gámum

Jóhanna Vala Höskuldsdóttir, kölluð Vala, er nýútskrifuð sviðslistakona frá Listaháskóla Íslands. Síðustu daga hefur gjörningur hennar, sem gengur út á að eyða engum peningum í 30 daga, vakið mikla athygli. Þá hefur hún komið fram í fjölmiðlum og lýst því hvernig hún hafi komist af án peninga m.a. með því að nýta mat úr gámum.

19.jún. 2013 - 20:40

Ólafur E. Rafnsson er látinn

Ólafur E. Rafnsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og forseti FIBA Europe, Ólafur Eðvarð Rafnsson, er látinn, fimmtugur að aldri.
19.jún. 2013 - 20:00

Andy Carroll kostaði West Ham 17,5 milljónir punda: Slæm fjárfesting Liverpool

Andy Carroll fagnar marki í leik með West Ham á síðasta tímabili West Ham gekk í dag frá kaupum á enska framherjanum Andy Carroll, og rúmlega það. Lundúnaliðið þurfti að millifæra hvorki meira né minna en 17,5 milljónir punda á reikning Liverpool. West Ham hefur aldrei áður borgað jafn háa upphæð fyrir leikmann.
19.jún. 2013 - 19:45

Hvernig myndu Shakespeare, Hinrik VIII og Elísabet I líta út nú á dögum?

Breska vefsíðan og sjónvarpsstöðin Yesterday lét sérfræðinga sína nýlega breyta kunnum málverkum af ýmsu frægðarfólki úr sögunni. Breytingarnar áttu að gefa hugmynd um hvernig viðkomandi fólk myndi líta út nú ef það væri í fullu fjöri.
19.jún. 2013 - 18:30

Fjölmenn mótmæli í Brasilíu

Flestir mótmælenda eru ungir að árum og er samfélagsmiðlum á borð við Facebook þakkað fyrir hversu mikil þátttakan var. Á mánudag mótmæltu meira en 100.000 manns í Brasilíu og beindust mótmælin aðallega gegn almennt harkalegri framgöngu lögreglunnar, lélegri opinberri þjónustu og miklum kostnaði vegna undirbúnings HM í knattspyrnu.
19.jún. 2013 - 17:00 Kristjón Kormákur Guðjónsson

Söfnunarreikningur vegna Ísaks Inga

Ísak Ingi Guðbjartsson lést eftir skammvinn veikindi í síðustu viku. Mynd: Guðrún Guðbjartsdóttir / Facebook Íbúar í Bolungarvík eru harmi slegnir eftir að 11 ára piltur, Ísak Ingi Guðbjartsson, féll frá fyrir skömmu.  Nú hafa vinir fjölskyldunnar hrundið af stað söfnun fyrir foreldrana.  
19.jún. 2013 - 17:00

Hjólað hringinn í kringum landið til styrktar Barnaheillum

WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin hefst í dag kl. 18 og stendur yfir dagana 19. júní -22. júní .  Í keppninni verður hjólað  með boðsveitarformi hringinn í kringum landið, um Hvalfjörð og yfir Öxi, samtals 1.332 kílómetra á innan við 72 tímum.
19.jún. 2013 - 16:55 Júlía Helgadóttir

Sólseta á Skólavörðuholtinu

Júlía Helgadóttir ræðir við Guðlaug Valgarðsson Guðlaugur Valgarðsson útskrifaðist frá Listháskóla Íslands árið 2001 með skúlptúr sem sérgrein og hefur síðan starfað að myndlist á ýmsum vettvangi. Hér sýnir hann og ræðir verk sitt, Sólsetu, sem hann gerði fyrir sýninguna Undir berum himni.
19.jún. 2013 - 16:15

Þorvaldur Örlygsson nýr þjálfari Skagamanna

Þorvaldur við undirskriftina í dag Skagamenn hafa fundið eftirmann Þórðar Þórðarsonar, sem lét af störfum sem þjálfari liðsins á þriðjudag, en hann fundu þeir í Þorvaldi Örlygssyni, fyrrverandi þjálfara Fram í Pepsideildinni.
19.jún. 2013 - 15:30

Hæstiréttur snýr við sakfellingu í nauðgunarmáli: Héraðsdómur og lögregla gagnrýnd

Hæstiréttur sýknaði í dag tvo menn af ákæru um nauðgun gegn ungri stúlku. Stefán Logi Sívarsson og Þorsteinn Birgisson voru í Hæstarétti í dag sýknaðir af ákæru um nauðgun gegn stúlku á tvítugsaldri. Mönnunum var í ákæru gefið að sök að hafa, með ofbeldi og ólögmætri nauðung, þröngvað stúlkunni til samræðis og annarra kynferðismaka en þeir neituðu sök.
19.jún. 2013 - 15:00

Þriggja stiga skotið sem allir eru að tala um

Allen var hetja Miami Heat í nótt Ray Allen var hetja Miami Heat í nótt þegar liðið tryggði sér oddaleik gegn San Antonio Spurs í lokaúrslitum NBA-deildarinnar. Allt leit út fyrir að San Antonio Spurs væri að tryggja sér titilinn, en liðið leiddi allan leikinn og var þremur stigum yfir þegar örfáar sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma.
19.jún. 2013 - 14:22

Fékkst þú tölvupóst frá „Íslandsbanka“ í morgun? Tölvuþrjótar á höttunum eftir lykilorðum

Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinn.  Efni póstsins hefur þá verið: „Staðfesting reiknings Alerts“
19.jún. 2013 - 13:00

Fjármálaglæpir á Wall Street geta leitt til enn dýpri efnahagskreppu

Glæpastarfsemi innan fjármálastofnana á Wall Street hafa skaðlegri áhrif en hefðbundin skipulögð glæpastarfsemi, segir afbrotafræðingur. Hins vegar heyrir nánast til undantekninga að fjármálastofnanir og stjórnendur þeirra séu látnir sæta ábyrgð.
19.jún. 2013 - 12:45

Zoran rekinn frá Keflavík - Kristján Guðmundsson tekinn við

Zoran Ljubicic og Kristján Guðm. Það er mikið um að vera í þjálfaramálum í Pepsideild karla um þessar mundir. Knattspyrnudeild Keflavíkur og Zoran Daníel Ljubicic hafa nú komist að samkomulagi um að Zoran láti af störfum sem þjálfari liðsins. Eftirmaður hans er Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari liðsins.
19.jún. 2013 - 11:40

Óðs manns æði að tala um það að hér hafi ekki komið neitt sumar

Það eina sem hefur vantað er sólin. Að öðru leyti hefur þetta bara verið mjög fínt, milt veður og hiti yfir meðaltali. Sumarið er löngu komið,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Pressuna. Hún segir helgarspána góða, aðeins bjartara verði yfir landinu og hægur vindur.
19.jún. 2013 - 10:52

Hefur þú séð þennan mann? Lögreglan leitar hans

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.
19.jún. 2013 - 10:50

Pepsileikurinn: 23 tipparar með alla leiki rétta í sjöundu umferð

Hvað varst þú með marga rétta? Hvorki fleiri né færri en 23 tipparar höfðu alla leikina rétta í sjöundu umferð í Pepsileiknum okkar góða. Það þýðir bara eitt, fimm heppnir og sannspáir tipparar fá að gjöf kassa af Pepsi og tvo miða á leik í deildinni.
19.jún. 2013 - 10:20

Íslenska þjóðin yrði aðhlátursefni héldi ríkisstjórnin aðildarviðræðum áfram

Íslendingar kæmust enn og aftur í heimsfréttirnar, nú sem afreksfólk í aðhlátri, féllist ríkisstjórnin á þá skoðun að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik, segir fyrrum ráðherra.
19.jún. 2013 - 09:20

Krefjandi byrjun United á næsta tímabili - Mourinho byrjar heima gegn Hull

Englandsmeistarabikarinn eftirsótti Í morgun birti enska knattspyrnusambandið leikjaplanið fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Flautað verður til leiks þann 17. ágúst en óhætt er að segja að Englandsmeistarar United fái krefjandi byrjun í enska boltanum á komandi leiktíð.
19.jún. 2013 - 09:15 Kristján Kristjánsson

130.000 manns fluttu frá Þýskalandi 2012 vegna efnahagsástandsins

Þýskaland er fjölmennasta aðildarland Evrópusambandsins og stærsta hagkerfi ESB ríkjanna er það þýska. En nú ber svo við að fólk er farið að flytja frá Þýskalandi vegna vantrúar á að hagkerfið taki við sér og of flókinnar lagalegrar umgjarðar í kringum atvinnulífið.
19.jún. 2013 - 08:10

Nýtt mannránsmál í Ohio: Mæðgur frelsaðar úr prísund

Jordie L. Callahan, fórnarlambið Jessica L. Hunt og Daniel Brow. Myndir FBI. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, og lögreglan í Ashland í Ohio fylki frelsuðu í gær konu og barn sem hafði verið haldið föngnum í minnst tvö ár á heimili í Ashland við ömurlegar aðstæður.
18.jún. 2013 - 21:05

Léttu sig um 60 kíló: „Ég ætlaði ekki að láta hana líða fyrir það að eiga feita mömmu“

Frábær árangur hjá Guðrúnu og gjörbreyttur lífstíll. Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir létti sig um 40 kíló á síðastliðnum 2 árum. Hún segir á einlægan og opinskáan hátt frá baráttu sinni við aukakílóin en hún prófaði marga mismundandi megrunarkúra áður en hún náði þeim árangri sem hún stefndi að.
18.jún. 2013 - 20:09

NASA vill aðstoð almennings við að finna hættulega loftsteina

NASA telur að líklega séu um 25.000 loftsteinar á sveimi nærri jörðinni.

Á fimmtudaginn mun Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, í samvinnu við Hvíta Húsið biðja almenning um aðstoð við að finna loftsteina sem geta hugsanlega rekist á jörðina með hrikalegum afleiðingum.

18.jún. 2013 - 18:50

,,Hvað varð um séreignasparnaðarleið Sjálfstæðisflokksins?“

Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, hvers vegna séreignasparnaðarleið Sjálfstæðisflokksins væri ekki að finna í þingsályktunartillögu forsætisráðherra um aðgerðir vegna skuldavanda íslenskra heimila.
18.jún. 2013 - 17:32

Lýtalæknir dæmdur í fangelsi: Gleymdi þurrku í brjósti sjúklings

Kim Tjelum. Danski lýtalæknirinn Kim Tjelum var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi í undirrétti í Kaupmannahöfn fyrir ýmis afglöp í starfi.
18.jún. 2013 - 16:20

Mercedes-Benz GLA - enn einn lúxusblendingurinn senn á markað - Myndskeið

Enn einn lúxusblendingurinn er á leið á markað ef marka má bílavefinn inautonews.com. Þarna er um að ræða hreinan keppinaut við Audi Q3 og BMW X1. Bíllinn heitir Mercedes-Benz GLA og var fyrst kynntur sem hugmyndabíll undir sama heiti á bílasýningunni í Sjanghæ.

18.jún. 2013 - 15:00

Þingmaður: Alþingi beiti sér varðandi framtíð Reykjavíkurflugvallar – reynir á þanþol stjórnarskrárinnar, segir lögmaður

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist vonast eftir að Reykjavíkurborg hætti við áform sín um að færa Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýri
18.jún. 2013 - 15:00

Þórður Þórðarson hættir sem þjálfari ÍA

Þórður Þórðarson er hættur. Þórður Þórðarson er hættur sem þjálfari ÍA í Pepsideild karla. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér og birti á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu, en hana má í heild sinni lesa hér.
18.jún. 2013 - 14:00

Rautt spjald fyrir að skalla samherja

Volodymyr Lysenko og Mirko Raicevic í ruglinu í leiknum. Xavi og Iniesta ná ansi vel saman inná vellinum, það gerðu Cole og Yorke á sínum tíma líka og ekki var samvinna þeirra Eiðs Smára og Jimmy Floyd Hasselbaink slæm heldur. Volodymyr Lysenko og Mirko Raicevic ná hins vegar engan veginn saman.
18.jún. 2013 - 13:30

Ók á 150 km/klst á móti umferð á Stórabeltisbrúnni

Í ljós kom að bíllinn sem hann hafði ekið var stolinn og í honum fannst ætlað þýfi. 27 ára karlmaður olli stórhættu á Stórabeltisbrúnni á milli Sjálands og Fjóns í nótt þegar hann ók á allt að 150 km/klst á móti umferð.
18.jún. 2013 - 11:45

Mynd dagsins: Simmi Vill fluttur í sjúkrabíl á 8 ára brúðkaupsafmælinu

Mynd dagsins er af fjölmiðlamanninum Sigmari Vilhjálmssyni, betur þekktur sem Simmi Vill, en hann var fluttur með sjúkrabíl á 8 ára brúðkaupsafmæli sínu eftir að hafa fengið þursabit í ræktinni. Simmi sem er annar eigandi Hamborgarafabrikkunnar greinir frá þessu á Facebook-síðu.
18.jún. 2013 - 11:20

Gunnar Heiðar skoraði eitt og lagði upp annað

Gunnar Heiðar hefur nú skorað sjö mörk. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Norrköping, hefur verið sjóðandi heitur í sænska boltanum á þessu tímabili. Í gær hélt hann uppá þjóðhátíðardag okkar Íslendinga með því að skora eitt og leggja upp annað. Sjáðu taktana hér!
18.jún. 2013 - 11:00

Snowden leitast eftir hæli á Íslandi: Ráðherrar hundsa beiðni um fund

Forsætisráðherra og innanríkisráðherra hafa hundsað beiðni um fund með talsmanni Wikileaks sem hefur milligöngu um að bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden fái pólitískt hæli á Íslandi.
18.jún. 2013 - 09:47

Jón Hilmar Hallgrímsson er látinn

Jón Hilmar Hallgrímsson, betur þekkur sem Jón stóri, varð bráðkvaddur á heimili sínu í nótt. Hann var 34 ára gamall. Jón var ókvæntur og barnslaus en lætur eftir sig unnustu.
18.jún. 2013 - 09:30

Fjölskyldufaðir og sex unglingar dæmdir fyrir morð á línuverði

Richard Niewenhuizen minnst í leik PSG og Twente í hollenska boltanum. Í gær féll dómur yfir átta aðilum vegna morðs á línuverði á knattspyrnuleik 15 og 16 ára leikmanna í Hollandi í desember síðastliðnum.
18.jún. 2013 - 08:20

Google í baráttu við barnaklám

Google vonast til að geta innan árs opnað nýjan gagnabanka sem á að vera mjög áhrifaríkur í baráttunni við barnaklám á netinu. Gagnabankinn á að vera einskonar samskiptamiðstöð þar sem fyrirtæki og samtök geta skipst á gögnum um barnaklám sem þau finna á netinu.
17.jún. 2013 - 21:15 Kristján Kristjánsson

Lyfturnar bilaðar: Verða að ganga upp 97 hæðir til að komast í íbúðirnar sínar

Princess Towers í Dubai er hæsti skýjakljúfur heims með íbúðarhúsnæði samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Þar eru átta lyftur sem flytja íbúana upp og niður nema þessa dagana því það vill svo til að allar átta lyfturnar eru bilaðar og það þýðir aðeins eitt: Íbúarnir verða að nota stigana til að komast til og frá íbúðum sínum, sumar eru á 97. hæð.
17.jún. 2013 - 20:00

17. júní er víðar merkisdagur en á Íslandi: Skriðdrekar fóru á skrið á þessum degi

17. júní er ekki bara þjóðhátíðardagur Íslands. Víðar í veröldinni er þessi dagur, eða hefur verið, notaður til að minnast eða halda upp á merkisatburði í sögu ýmissa þjóða.
17.jún. 2013 - 18:40

Er Tom einn heppnasti maður í heimi? Féll af 15. hæð og lifði af

Hinn tvítugi Tom Stilwell er sagður hafa verið í fríi á Nýja Sjálandi þegar atvikið átti sér stað. Breskur karlmaður lifði í gær af fall af 15. hæð í fjölbýlishúsi í Auckland á Nýja Sjálandi. Tom Stilwell heitir maðurinn og féll hann af svölum nágranna síns sem býr á 15. hæð, en sjálfur er Tom með íbúð á 14. hæð.
17.jún. 2013 - 18:00

Stórbrotið tennisskot - Eitthvað alveg nýtt!

Gael Monfils í leiknum Franski tenniskappinn Gael Monfils stal senunni á Gerry Weber Open nú um helgina þegar hann gerði eitthvað sem mjög fáir hafa gert á tennisvellinum, í það minnsta í móti!
17.jún. 2013 - 17:15

Mynd dagsins: Forseti Íslands sæmdi níu Íslendinga hinni íslensku fálkaorðu

Mynd dagsins er af átta Íslendingum sem í dag voru heiðraðir á Bessastöðum.  Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands og Óli H. Þórðarson fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs eru í hópi þeirra níu Íslendinga sem forseti Íslands sæmdi í dag heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. 
17.jún. 2013 - 16:00

Þorgrímur Þráinsson borgarlistamaður Reykjavíkur 2013

Jón Gnarr borgarstjóri útnefndi í dag Þorgrím Þráinsson rithöfund sem borgarlistamann Reykjavíkur 2013. Útnefningin fór fram í Höfða og gerði Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs grein fyrir vali ráðsins á borgarlistamanni. Við þetta tækifæri var listamanninum veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé.
17.jún. 2013 - 15:50

Ólafur Stefánsson kvaddi í táskóm

Hver annar en Óli Stef? Skóbúnaður Ólafs Stefánssonar í kveðjuleik hans gegn Rúmeníu í gær hefur vakið athygli. Í stað þess að klæðast þessum hefðbundnu handboltaskóm skartaði Ólafur svokölluðum táskóm. Slíkir skór hafa meðal annars verið að ryðja sér til rúms í lyftingaríþróttum og eiga þeir að auka tilfinningu til muna.
17.jún. 2013 - 15:15

Einn magnaðasti skutbíll sögunnar - Mercedes AMG S 4Matic - Myndskeið

Hann er sneggri upp en Porsche 911 Carrera 4S og næstum jafnfljótur og Audi R8 V10 Plus. Samt er hann ekki eiginlegur sportbíll. Miklu frekar fjölskyldubíll með stærsta farangursrýmið í stærðarflokknum, 695 lítra. En hann á fátt sameiginlegt með öðrum skutbílum þegar tölur um afköst eru skoðaðar.


17.jún. 2013 - 12:35

Erum öll jöfn, þolum illa yfirvald, hvað þá kúgun

„Mikilvægi menntunar fyrir okkar fámennu þjóð verður seint ofmetið. Þekking er og verður undirstaða framfara. Íslendingar hafa upplifað miklar framfarir frá lýðveldisstofnun, framfarir sem þjóðin hefur unnið að í sameiningu, framfarir sem byggjast ekki síst á þekkingu, bjartsýni og því að þjóðin hafði til að bera þann kjark sem þurfti til að ráðast í að byggja upp samfélagið til lengri tíma.“
17.jún. 2013 - 12:15

Justin Rose sigraði US Open: Hans fyrsti sigur á stórmóti

Justin Rose með bikarinn Englendingurinn Justin Rose sigraði í gærkvöldi Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Þetta er í fyrsta sinn sem Rose sigrar eitt af stóru mótunum fjórum. Rose endaði mótið á einu höggi yfir pari, tveimur höggum færri en þeir Phil Mickelson og Jason Day, sem deildu öðru og þriðja sætinu.
17.jún. 2013 - 11:38

Kettir eru gáfaðri en hundar

Það eru skiptar skoðanir hjá fólki hvort það sé meira fyrir ketti eða hunda. Hvort dýrið er skemmtilegra, gáfaðra og svo framvegis. Nú hafa háskólanemar Bandaríkjunum komist að því að kettir eru betri í því að drekka.
17.jún. 2013 - 10:10

Nigella farin að heiman

Stjörnukokkurinn Nigella Lawson fór að heiman í nótt, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að myndir birtust af ofbeldi eiginmanns á hendur henni á veitingastaðnum Mayfair í London.

Sena - ebækur - frítt
Pressupennarvinsælast í vikunni
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.6.2013
365 miðlar í fararbroddi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.6.2013
365 miðlar í fararbroddi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar