08. feb. 2010 - 14:00

Dýrasti auglýsingatími heims: Þessar báru af í hálfleik á Super Bowl - MYNDBÖND

Dýrasti auglýsingagluggi heims opnaðist í nokkrar mínútur í nótt, þegar leikið var í Super Bowl, eða um Ofurskálina, í bandaríska fótboltanum. Helstu stórfyrirtæki heims framleiða auglýsingar sérstaklega fyrir þennan atburð og óhætt er að segja að peningunum sé mokað út á þessum mínútum.

Í ár voru það fyrirtæki á borð við Volkswagen, Bridgestone, Coca Cola, Doritos og Chrysler sem keyptu dýrustu tímana en hér fyrir neðan má sjá nokkrar af þeim auglýsingum sem sýndar voru í dýrasta auglýsingatíma í heimi.

Bridgestone dekkjaframleiðandinn:

 


Cars.com eyddi drjúgum fjárhæðum í sína auglýsingu:

 

Audi bílaframleiðandinn:

 

Gatorade orkudrykkjaframleiðandinn átti sína auglýsingu:

 

Hyundai bílaframleiðandinn kom með sitt innlegg:

 

Doritos í Super Bowl 2010:

 

Og að lokum ein sem sagan segir að hafi ekki fengist sýnd:

 



10.mar. 2010 - 22:10

Þarf óhugnalegar auglýsingar til þess að fólk láti af viðbjóðslegum gjörðum? MYNDIR

Hvatt til hreinlætis.

Auglýsingar verða sífellt beittari og meira skapandi eftir því sem tækninni fleygir fram. Eftir því sem meira framboð er af þeim verður væntanlega erfiðara að koma skilaboðum áleiðis og hitta í hjartastað neytenda. Oftar en ekki grípa auglýsingahönnuðir því til ógnvekjandi auglýsinga og hárbeitts myndmáls til þess eins og neytendur skilji alvöru málsins. Það liggur fyrir að tilgangur þannig auglýsinga er að hreyfa við fólki og oft á tíðum skapa hjá þeim hræðslu með þeim skilaboðum sem eru send.

10.mar. 2010 - 21:23

Birkir Jón: Leiðréttir Ögmund - segir ekkert breytast með núverandi ríkisstjórn

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Birkir Jón Jónsson, þingmaður, varaformaður Framsóknarflokksins og Pressupistill segir það undarlegt að framsóknarmenn, sem talað hafa fyrir hvað mestri samstöðu á Alþingi, séu nú sakaðir um að vera ekki heilir í sínum málaflutningi. Birkir segir það umhugsunarefni, í ljósi krafna um breytt vinnubrögð Alþingis, að ekkert hafi breyst eftir fjármálahrunið. Hann býst ekki við breytingum af hálfu Jóhönnu forsætisráðherra og Steingríms fjármálaráðherra sem hafa samtals setið á Alþingi í 60 ár.
10.mar. 2010 - 20:49

Chuck Norris er sjötugur í dag: 40 mögnuðustu þjóðsögurnar um harðasta mann heims

Chuck Norris í öllu sínu veldi. Einhvern tíma var sagt um Chuck Norris að hann pissi ekki nafn sitt í snjóinn eins og aðrir, heldur í steypu. Það getur hann eflaust ennþá þótt hann fagni 70 ára afmæli sínu í dag, enda harðari menn vandfundnir.
10.mar. 2010 - 20:00

Menningarverðlaun DV veitt: Jórunn Viðar, Hjálmar, Jesú litli og Víkurprjón verðlaunuð

Allir verðlaunahafar Menningarverðlauna DV.

Menningarverðlaun DV voru veitt síðdegis í dag í Iðnó en þau hafa verið haldin síðan 1978. Keppt var í 10 flokkum um verðlaun. Fornleifastofnun Íslands, Daníel Bjarnason, tónlistarmaður, Vík Prjónsdóttir, aðstandendur sýningarinnar Jesú litli, Listasafn Reykjavíkur, kvikmyndagerðarkonan Þórunn Hafsteð og hljómsveitin Hjálmar voru meðal þeirra sem verðlaunuð voru.

10.mar. 2010 - 19:27

Stjórnmálafræðingur: Breytingar á ríkisstjórn nauðsynlegar ætli hún ekki að hrynja í fylgi

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon. Breytingar munu eiga sér stað innan ríkisstjórnarinnar öðru hvoru megin við páska en mikill kapall gæti fylgt þeim í kjölfarið. Gunnar Helgi Kristinsson, stjórnmálafræðingur segir að breytingar hljóti að verða á ríkisstjórninni fyrr en seinna áður en hún fer að tapa miklu fylgi sem hann segir að geti verið í spilunum.
10.mar. 2010 - 19:16

Útlitið skiptir víst máli: Sölutölur fara eftir forsíðum - þær bestu og verstu - MYNDIR

Ein af þeim bestu til vinstri, ein af þeim verstu til hægri.

Útlit og hönnun forsíða tímarita getur haft gríðarlega mikið um það að segja hvort og í hve stóru upplagi viðkomandi blað selst. Þannig getur sama tímarit selst í mjög mismunandi magni, allt eftir því hvernig forsíðan lítur út. Árið 2009 virðist það hafa verið poppgoðið Michael Jackson sem seldi flest tímarit í Bandaríkjunum sem og sniðugar grafískt-hannaðar forsíður með þekktum aðilum framan á miðað við upplýsingar frá tímaritaútgefandanum Min Online.

10.mar. 2010 - 18:43

Fréttamaður RÚV: Stend fyllilega við fréttir af málefnum Jóns Þorsteins og Byrs

Ægir Þór Eysteinsson, fréttamaður á RÚV, segir enga ástæðu til annars en að standa við fréttaflutning sinn af málefnum Jóns Þorsteins Jónssonar, fyrrum stjórnarformanns Byrs. Sérstakur saksóknari hefur lánveitingar sparisjóðsins til stjórnenda hans til skoðunar.
10.mar. 2010 - 18:10

Varúð, drykkjumenn framundan! Rúmenar taka á umferðarslysum vegna mikillar drykkju

„Varúð - drykkjumenn“ Ráðamenn í Pecica í Rúmeníu eru orðnir langþreyttir á fyllibyttum sem hafa valdið ómældu tjóni í umferðinni. Hafa þeir komið upp umferðarskiltum á tíu stöðum í borginni þar sem varað fer við drukknum vegfarendum.
10.mar. 2010 - 17:00

„Kerfið brást algjörlega“ - Sýndu vanrækslu þegar karlmaður barnaði dætur sínar 19 sinnum

Maðurinn misnotaði dætur sínar í þrjá áratugi fyrir framan nefið á félagsmálayfirvöldum. Lögregla og félagsmálayfirvöld í Bretlandi gáfu í dag út opinbera afsökunarbeiðni eftir að kerfið lét hjá líða að skerast í mál fjölskyldu sem mátti þola líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í þrjá áratugi. Á þessum tíma barnaði maðurinn dætur sínar tvær alls 19 sinnum og barði þær ítrekað.
10.mar. 2010 - 16:42

Stór stund í lífi íslenskra barna: Leiða leikmenn Manchester United inn á völlinn í kvöld

Þau Rakel Marín Konráðsdóttir og Viktor Blær Hafþórsson verða í eldlínunni á Old Trafford í kvöld ásamt leikönnum Manchester United og AC Milan. Þau Rakel Marín Konráðsdóttir og Viktor Blær Hafþórsson verða í hópi þeirra barna sem leiða leikmenn Manchester United inn á Old Trafford í leik liðsins gegn AC Milan í Meistaradeild Evrópu. Verða þau fyrstu Íslendingarnir sem njóta þess heiðurs.
10.mar. 2010 - 15:20

Icesave er beiskur kaleikur: Stingi stjórnarandstaðan af enn á ný, klárum við þetta bara sjálf

Icesave er beiskur kaleikur segja Jóhanna og Steingrímur Formenn stjórnarflokkanna segjast klára Icesavesamningana upp á eigin spýtur velji stjórnarandstaðan að hlaupast á brott frá þeirri vinnu. Þeim beiska kaleik geti ábyrg ríkisstjórn ekki vikið frá sér.
10.mar. 2010 - 14:41

Hægt miðar með skipan nýrrar stjórnar Arion: FME athugar hæfi Kaupskila, svo stjórnarmanna

Fjármálaeftirlitið kannar nú hæfi stjórnarmanna móðurfélags Arion banka en ný stjórn bankans tekur ekki til starfa fyrr en því mati er lokið - og þá hæfi mögulegra stjórnarmanna bankans.

10.mar. 2010 - 14:10

Nú er eins gott að drepa í: Sænsk sjúkrahús neita að framkvæma aðgerðir á reykingamönnum

Betra að drepa í áður en farið er í aðgerð í Svíþjóð Að minnsta kosti fimm sænsk sjúkrahús neita nú að gera stórar aðgerðir á reykingamönnum. Fylgikvillar séu of margir og vandamál sem fylgir reykingamönnum séu einfaldlega of mikil.
10.mar. 2010 - 13:15

Sigurjón Sighvatsson keypti Icesave-málverk daginn eftir að það var afhjúpað

Málverkið sem Sigurjón Sighvatsson keypti. „Það hlýtur að vera einsdæmi að svona stórt málverk sé selt aðeins einum degi eftir að það er afhjúpað,“ segir listamaðurinn Hjalti Parelius Finnsson sem málaði málverk sem túlkar þjóðfélagsástandið í dag. Verkið var selt um helgina og var kaupandinn Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi.
10.mar. 2010 - 12:00

Financial Times: Ólafur Ragnar varar Breta við og bendir á áhuga Kínverja og Indverja á Íslandi

Breska stórblaðið Financial Times segir að forseti Íslands gefi í skyn að Bretar ættu að vingast við Íslendinga, ekki þvinga þá í Icesave-málum í ljósi þess að Kínverjar og Indverjar séu farnir að sýna Íslandi áhuga þar sem siglingaleiðin yfir norðurskautið sé að opnast.
10.mar. 2010 - 11:48

Neitaði að borga reikninginn: Heimtaði að vera settur í fangelsi en var vísað af lögreglustöðinni

Fjársvikamaður krafðist þess að lögreglan í Reykjavík setti sig í fangelsi. Lögreglan þurfti að beita fortölum til að losna við hann af lögreglustöðinni.
10.mar. 2010 - 11:05

Nýtt áhlaup svínaflensu í sumar eða haust: Helmingur þjóðarinnar enn í smithættu

Helmingur íslensku þjóðarinnar hefur látið bólusetja sig við svínaflensu. En betur má ef duga skal. Sóttvarnarlæknir kallar þá lægð sem svínaflensan er í „svikalogn“. Hún blossi aftur upp síðsumars eða í haust.
10.mar. 2010 - 10:55

Fyrrverandi stjórnarformaður Byrs: Skil sárindi stofnfjáreigenda en ég tapaði líka miklu

Jón Þorsteinn segist hafa tapað miklu eins og aðrir Fyrrverandi stjórnarformaður Byrs segir rangfærslur hafðar uppi um lánveitingar til fyrrum eigenda. Himinn og haf sé milli þess að skulda 3 milljarða eða 418 milljónir. Hann skilji sárindi stofnfjáreigenda hann hafi sjálfur tapað miklu.
10.mar. 2010 - 09:49

Karl Wernersson: Ísland var komið á svartan lista 2007, ári áður en allt hrundi hér á landi

Karl segir að íslensk fyrirtæki hafi verið sett á svartan lista í september 2007, ári fyrir hrun Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, segir að Ísland hafi verið komið á svartan lista í september 2007, ári áður en hrunið varð. Erlendir bankar hafi ekki lengur viljað fjármagna íslensk fyrirtæki.
10.mar. 2010 - 08:43

Tvær sálir boðnar upp á Nýja-Sjálandi: Seldar hæstbjóðanda fyrir 254.000 kr

Tveir andar í flösku voru seldir hæstbjóðanda. Tvær sálir voru seldar saman í einni flösku á uppboði á Nýja-Sjálandi fyrir ríflega 254.000 íslenskar krónur. Sálirnar voru að sögn Avie Woodbury, uppboðshaldarans, gómaðar inni á heimili hennar og settar í flöskuna. Í flöskunni var einnig heilagt vatn sem ku hafa dregið úr orku andanna.

Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 07.3.2010
Þegar mér stóð ekki
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Skvísukosningin hafin fyrir Miss febrúar!
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 07.3.2010
Stóra blekkingin
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 10.3.2010
,,Áttum bara helvítis helling af peningum"
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 06.3.2010
Sprengja á síðustu metrunum
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.3.2010
Hrunkóngurinn hraunar
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 09.3.2010
Steingrímur afhjúpar bjánaskap
Marta María
Marta María - 10.3.2010
Finnst ykkur þetta í lagi?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - 09.3.2010
Þegar á reynir er ástin ekki sönn
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 06.3.2010
Farvel Jóhanna!
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 06.3.2010
Hrunkóngurinn
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson - 08.3.2010
Eitruð leikföng!
Fleiri pressupennar


Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit