19.jún. 2013 - 17:00
Kristjón Kormákur Guðjónsson
Íbúar í Bolungarvík eru harmi slegnir eftir að 11 ára piltur, Ísak Ingi Guðbjartsson, féll frá fyrir skömmu. Nú hafa vinir fjölskyldunnar hrundið af stað söfnun fyrir foreldrana. Ylfa Mist Helgadóttir er ein af þeim sem kemur að söfnuninni.
19.jún. 2013 - 17:00
WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin hefst í dag kl. 18 og stendur yfir dagana 19. júní -22. júní . Í keppninni verður hjólað með boðsveitarformi hringinn í kringum landið, um Hvalfjörð og yfir Öxi, samtals 1.332 kílómetra á innan við 72 tímum.
19.jún. 2013 - 16:55
Júlía Helgadóttir
Guðlaugur Valgarðsson útskrifaðist frá Listháskóla Íslands árið 2001 með skúlptúr sem sérgrein og hefur síðan starfað að myndlist á ýmsum vettvangi. Hér sýnir hann og ræðir verk sitt, Sólsetu, sem hann gerði fyrir sýninguna
Undir berum himni.
19.jún. 2013 - 16:15
Skagamenn hafa fundið eftirmann Þórðar Þórðarsonar, sem lét af störfum sem þjálfari liðsins á þriðjudag, en hann fundu þeir í Þorvaldi Örlygssyni, fyrrverandi þjálfara Fram í Pepsideildinni.
19.jún. 2013 - 15:30
Stefán Logi Sívarsson og Þorsteinn Birgisson voru í Hæstarétti í dag sýknaðir af ákæru um nauðgun gegn stúlku á tvítugsaldri. Mönnunum var í ákæru gefið að sök að hafa, með ofbeldi og ólögmætri nauðung, þröngvað stúlkunni til samræðis og annarra kynferðismaka en þeir neituðu sök.
19.jún. 2013 - 15:00
Ray Allen var hetja Miami Heat í nótt þegar liðið tryggði sér oddaleik gegn San Antonio Spurs í lokaúrslitum NBA-deildarinnar. Allt leit út fyrir að San Antonio Spurs væri að tryggja sér titilinn, en liðið leiddi allan leikinn og var þremur stigum yfir þegar örfáar sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma.
19.jún. 2013 - 14:22
Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinn. Efni póstsins hefur þá verið:
„Staðfesting reiknings Alerts“
19.jún. 2013 - 13:00
Glæpastarfsemi innan fjármálastofnana á Wall Street hafa skaðlegri áhrif en hefðbundin skipulögð glæpastarfsemi, segir afbrotafræðingur. Hins vegar heyrir nánast til undantekninga að fjármálastofnanir og stjórnendur þeirra séu látnir sæta ábyrgð.
19.jún. 2013 - 12:45
Það er mikið um að vera í þjálfaramálum í Pepsideild karla um þessar mundir. Knattspyrnudeild Keflavíkur og Zoran Daníel Ljubicic hafa nú komist að samkomulagi um að Zoran láti af störfum sem þjálfari liðsins. Eftirmaður hans er Kristján Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari liðsins.
19.jún. 2013 - 11:40
„
Það eina sem hefur vantað er sólin. Að öðru leyti hefur þetta bara verið mjög fínt, milt veður og hiti yfir meðaltali. Sumarið er löngu komið,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Pressuna. Hún segir helgarspána góða, aðeins bjartara verði yfir landinu og hægur vindur.
19.jún. 2013 - 10:52
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.
19.jún. 2013 - 10:50
Hvorki fleiri né færri en 23 tipparar höfðu alla leikina rétta í sjöundu umferð í Pepsileiknum okkar góða. Það þýðir bara eitt, fimm heppnir og sannspáir tipparar fá að gjöf kassa af Pepsi og tvo miða á leik í deildinni.
19.jún. 2013 - 10:20
Íslendingar kæmust enn og aftur í heimsfréttirnar, nú sem afreksfólk í aðhlátri, féllist ríkisstjórnin á þá skoðun að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik, segir fyrrum ráðherra.
19.jún. 2013 - 09:20
Í morgun birti enska knattspyrnusambandið leikjaplanið fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Flautað verður til leiks þann 17. ágúst en óhætt er að segja að Englandsmeistarar United fái krefjandi byrjun í enska boltanum á komandi leiktíð.
19.jún. 2013 - 09:15
Kristján Kristjánsson
Þýskaland er fjölmennasta aðildarland Evrópusambandsins og stærsta hagkerfi ESB ríkjanna er það þýska. En nú ber svo við að fólk er farið að flytja frá Þýskalandi vegna vantrúar á að hagkerfið taki við sér og of flókinnar lagalegrar umgjarðar í kringum atvinnulífið.
19.jún. 2013 - 08:10
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, og lögreglan í Ashland í Ohio fylki frelsuðu í gær konu og barn sem hafði verið haldið föngnum í minnst tvö ár á heimili í Ashland við ömurlegar aðstæður.
18.jún. 2013 - 21:05
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir létti sig um 40 kíló á síðastliðnum 2 árum. Hún segir á einlægan og opinskáan hátt frá baráttu sinni við aukakílóin en hún prófaði marga mismundandi megrunarkúra áður en hún náði þeim árangri sem hún stefndi að.
18.jún. 2013 - 20:09
Á fimmtudaginn mun Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, í samvinnu við Hvíta Húsið biðja almenning um aðstoð við að finna loftsteina sem geta hugsanlega rekist á jörðina með hrikalegum afleiðingum.
18.jún. 2013 - 18:50
Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, hvers vegna séreignasparnaðarleið Sjálfstæðisflokksins væri ekki að finna í þingsályktunartillögu forsætisráðherra um aðgerðir vegna skuldavanda íslenskra heimila.
18.jún. 2013 - 18:15
Breska vefsíðan og sjónvarpsstöðin Yesterday lét sérfræðinga sína nýlega breyta kunnum málverkum af ýmsu frægðarfólki úr sögunni. Breytingarnar áttu að gefa hugmynd um hvernig viðkomandi fólk myndi líta út nú ef það væri í fullu fjöri.
18.jún. 2013 - 17:32
Danski lýtalæknirinn Kim Tjelum var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi í undirrétti í Kaupmannahöfn fyrir ýmis afglöp í starfi.
18.jún. 2013 - 16:20
Enn einn lúxusblendingurinn er á leið á markað ef marka má bílavefinn inautonews.com. Þarna er um að ræða hreinan keppinaut við Audi Q3 og BMW X1. Bíllinn heitir Mercedes-Benz GLA og var fyrst kynntur sem hugmyndabíll undir sama heiti á bílasýningunni í Sjanghæ.
18.jún. 2013 - 15:00
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist vonast eftir að Reykjavíkurborg hætti við áform sín um að færa Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýri
18.jún. 2013 - 15:00
Þórður Þórðarson er hættur sem þjálfari ÍA í Pepsideild karla. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér og birti á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu, en hana má í heild sinni lesa hér.
18.jún. 2013 - 14:00
Xavi og Iniesta ná ansi vel saman inná vellinum, það gerðu Cole og Yorke á sínum tíma líka og ekki var samvinna þeirra Eiðs Smára og Jimmy Floyd Hasselbaink slæm heldur. Volodymyr Lysenko og Mirko Raicevic ná hins vegar engan veginn saman.
18.jún. 2013 - 13:30
27 ára karlmaður olli stórhættu á Stórabeltisbrúnni á milli Sjálands og Fjóns í nótt þegar hann ók á allt að 150 km/klst á móti umferð.
18.jún. 2013 - 11:45
Mynd dagsins er af fjölmiðlamanninum Sigmari Vilhjálmssyni, betur þekktur sem Simmi Vill, en hann var fluttur með sjúkrabíl á 8 ára brúðkaupsafmæli sínu eftir að hafa fengið þursabit í ræktinni. Simmi sem er annar eigandi Hamborgarafabrikkunnar greinir frá þessu á Facebook-síðu.
18.jún. 2013 - 11:20
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður Norrköping, hefur verið sjóðandi heitur í sænska boltanum á þessu tímabili. Í gær hélt hann uppá þjóðhátíðardag okkar Íslendinga með því að skora eitt og leggja upp annað. Sjáðu taktana hér!
18.jún. 2013 - 11:00
Forsætisráðherra og innanríkisráðherra hafa hundsað beiðni um fund með talsmanni Wikileaks sem hefur milligöngu um að bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden fái pólitískt hæli á Íslandi.
18.jún. 2013 - 09:47
Jón Hilmar Hallgrímsson, betur þekkur sem Jón stóri, varð bráðkvaddur á heimili sínu í nótt. Hann var 34 ára gamall. Jón var ókvæntur og barnslaus en lætur eftir sig unnustu.
18.jún. 2013 - 09:30
Í gær féll dómur yfir átta aðilum vegna morðs á línuverði á knattspyrnuleik 15 og 16 ára leikmanna í Hollandi í desember síðastliðnum.
18.jún. 2013 - 08:20
Google vonast til að geta innan árs opnað nýjan gagnabanka sem á að vera mjög áhrifaríkur í baráttunni við barnaklám á netinu. Gagnabankinn á að vera einskonar samskiptamiðstöð þar sem fyrirtæki og samtök geta skipst á gögnum um barnaklám sem þau finna á netinu.
17.jún. 2013 - 21:15
Kristján Kristjánsson
Princess Towers í Dubai er hæsti skýjakljúfur heims með íbúðarhúsnæði samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Þar eru átta lyftur sem flytja íbúana upp og niður nema þessa dagana því það vill svo til að allar átta lyfturnar eru bilaðar og það þýðir aðeins eitt: Íbúarnir verða að nota stigana til að komast til og frá íbúðum sínum, sumar eru á 97. hæð.
17.jún. 2013 - 20:00
17. júní er ekki bara þjóðhátíðardagur Íslands. Víðar í veröldinni er þessi dagur, eða hefur verið, notaður til að minnast eða halda upp á merkisatburði í sögu ýmissa þjóða.
17.jún. 2013 - 18:40
Breskur karlmaður lifði í gær af fall af 15. hæð í fjölbýlishúsi í Auckland á Nýja Sjálandi. Tom Stilwell heitir maðurinn og féll hann af svölum nágranna síns sem býr á 15. hæð, en sjálfur er Tom með íbúð á 14. hæð.
17.jún. 2013 - 18:00
Franski tenniskappinn Gael Monfils stal senunni á Gerry Weber Open nú um helgina þegar hann gerði eitthvað sem mjög fáir hafa gert á tennisvellinum, í það minnsta í móti!
17.jún. 2013 - 17:15
Mynd dagsins er af átta Íslendingum sem í dag voru heiðraðir á Bessastöðum. Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands og Óli H. Þórðarson fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs eru í hópi þeirra níu Íslendinga sem forseti Íslands sæmdi í dag heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
17.jún. 2013 - 16:00
Jón Gnarr borgarstjóri útnefndi í dag Þorgrím Þráinsson rithöfund sem borgarlistamann Reykjavíkur 2013. Útnefningin fór fram í Höfða og gerði Einar Örn Benediktsson formaður menningar- og ferðamálaráðs grein fyrir vali ráðsins á borgarlistamanni. Við þetta tækifæri var listamanninum veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé.
17.jún. 2013 - 15:50
Skóbúnaður Ólafs Stefánssonar í kveðjuleik hans gegn Rúmeníu í gær hefur vakið athygli. Í stað þess að klæðast þessum hefðbundnu handboltaskóm skartaði Ólafur svokölluðum táskóm. Slíkir skór hafa meðal annars verið að ryðja sér til rúms í lyftingaríþróttum og eiga þeir að auka tilfinningu til muna.
17.jún. 2013 - 15:15
Hann er sneggri upp en Porsche 911 Carrera 4S og næstum jafnfljótur og Audi R8 V10 Plus. Samt er hann ekki eiginlegur sportbíll. Miklu frekar fjölskyldubíll með stærsta farangursrýmið í stærðarflokknum, 695 lítra. En hann á fátt sameiginlegt með öðrum skutbílum þegar tölur um afköst eru skoðaðar.
17.jún. 2013 - 12:35
„Mikilvægi menntunar fyrir okkar fámennu þjóð verður seint ofmetið. Þekking er og verður undirstaða framfara. Íslendingar hafa upplifað miklar framfarir frá lýðveldisstofnun, framfarir sem þjóðin hefur unnið að í sameiningu, framfarir sem byggjast ekki síst á þekkingu, bjartsýni og því að þjóðin hafði til að bera þann kjark sem þurfti til að ráðast í að byggja upp samfélagið til lengri tíma.“
17.jún. 2013 - 12:15
Englendingurinn Justin Rose sigraði í gærkvöldi Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Þetta er í fyrsta sinn sem Rose sigrar eitt af stóru mótunum fjórum. Rose endaði mótið á einu höggi yfir pari, tveimur höggum færri en þeir Phil Mickelson og Jason Day, sem deildu öðru og þriðja sætinu.
17.jún. 2013 - 11:38
Það eru skiptar skoðanir hjá fólki hvort það sé meira fyrir ketti eða hunda. Hvort dýrið er skemmtilegra, gáfaðra og svo framvegis. Nú hafa háskólanemar Bandaríkjunum komist að því að kettir eru betri í því að drekka.
17.jún. 2013 - 10:10
Stjörnukokkurinn Nigella Lawson fór að heiman í nótt, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að myndir birtust af ofbeldi eiginmanns á hendur henni á veitingastaðnum Mayfair í London.
17.jún. 2013 - 10:00
Steinunn Stefánsdóttir var kosin formaður Kvenréttindafélags Ísland á aðalfundi félagsins þann 11.júní síðastliðinn. Fríða Rós Valdimarsdóttir verður varaformaður og í stjórn voru einnig kosnar Eygló Árnadóttir,Helga Dögg Björgvinsdóttir, Hildur Helga Gísladóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Hugrún R. Hjaltadóttir og Ragnhildur G. Guðmundsdóttir.
17.jún. 2013 - 09:00
Íris Elfa Friðriksdóttir er ein af þeim fjölmörgu listamönnum sem sýnir um þessar mundir á útisýningunni „Undir berum himni“ sem er hluti af Listahátíð Reykjavíkur og stendur til 25. ágúst. Íris útskrifaðist á sínum tíma úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands en hefur fengist við fjölbreytt verk í gegn um tíðina.
16.jún. 2013 - 21:23
Guðjón Ólafsson
Það var stór stund í Laugardalshöllinni í kvöld þegar Ólafur Stefánsson kvaddi íslensku þjóðina sem leikmaður í sínum síðasta landsleik á ferlinum. Ísland mætti þá Rúmeníu í lokaleik liðsins í undankeppni EM og endaði leikurinn með öruggum 37-27 sigri íslenska liðsins.
16.jún. 2013 - 19:43
Síðastliðin nótt og það sem af er degi hefur verið blóðug og mannskæð í Chicago en 26 hafa verið skotnir og þar af eru 6 látnir og að minnsta kosti fjórir eru í lífshættu. Yngsta fórnarlambið var aðeins 16 ára.
16.jún. 2013 - 19:30
Yaya Toure, leikmaður Manchester City í enska boltanum og einn launahæsti leikmaður deildarinnar, sannaði það með landsliði sínu í dag að hann er einnig stórgóður spyrnumaður. Ásamt því að skora mark úr vítaspyrnu skoraði hann einnig mark beint úr aukaspyrnu.
16.jún. 2013 - 15:48
Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit hefur ákveðið að loka alveg svæðinu við Leirhnjúk, norðvestur af Kröflu, fyrir ferðamönnum frá og með morgundeginum, 17. júní, um óákveðinn tíma. Áberandi skilti um lokun verða sett upp svo ekkert fari á milli mála.