08. feb. 2010 - 07:20
Bresk lögmannsstofa: Sendi Alþingi 25 millj. kr. reikning, reiknað var með 1,5 millj.
Breska lögfræðistofan Mishcon de Reya hefur sent Alþingi 25 milljóna króna reikning fyrir ráðgjöf sína í Icesave-málinu. Alþingi hafði reiknað með 1,5 milljóna króna reikningi. Í reikningnum er gert ráð fyrir 10 milljóna króna greiðslu fyrir milligöngu til fyrrverandi starfsmanns Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem enginn kannast við að hafa óskað eftir.
Frá málinu segir í DV í dag og kemur þar fram að forsætisnefnd Alþingis hafi um áramót orðið ljóst að reikningur bresku lögfræðistofunnar yrði frekar 10 milljónir en 1,5 og að fjármálaráðuneytinu hafi verið gert viðvart um aukinn kostnað.
Eins og áður sagði vekur athygli 10 milljóna króna þóknun til Gunnlaugs Erlendssonar, lögfræðings, sem búsettur er í Bretlandi. DV segir um þann þátt málsins:
„Áðurnefndur Gunnlaugur Erlendsson var á sínum tíma virkur félagi í Heimdalli meðal ungra sjálfstæðismanna. Hann er jafnframt sagður vinur Sigurðar Kára Kristjánssonar, fyrrverandi alþingismanns Sjálfstæðisflokksins og núverandi aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.
Gunnlaugur starfaði til ársins 2007 fyrir Björgólf Thor Björgólfsson, meðal annars í höfðuðstöðvum Novators í London.“
Ekki voru allir á eitt sáttir um þá ráðgjöf sem kom frá fyrirtækinu, sem var lögð fram ekki síst fyrir atbeina stjórnarandstöðunnar en DV segir að eftir því sem næst verði komist sé líklegt að Alþingi og stjórnvöld krefji Mischon de Reya skýringa og frekari sundurliðunar áður en reikningurinn verður greiddur.
15.mar. 2010 - 14:15
Unnið er að því að innkalla tugþúsundir auglýsingabæklinga frá norska fyrirtækinu Princess eftir að það uppgötvaðist að í auglýsingu fyrir barnasængurföt að þar liggur bók um kynlífsleikföng.
15.mar. 2010 - 12:55
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið verður „stjórnsýsluúttekt samin af sérfræðingum í stjórnsýslu“, segir heimildarmaður Pressunnar. Í nefndina vanti fólk með bakgrunn úr viðskiptum. Skýrslan er að koma úr prentun og á meðan er rannsóknarnefndin þögul sem gröfin.
15.mar. 2010 - 11:47
Eiríkur Bergmann stjórmálafræðingur, segir að hann sjái ekki betur en að skuldir almennings hafi átt að lækka við niðurfærslu lána úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju. Féð sé hins vegar notað til að fella niður skuldir óreiðumanna. Hann spyr hvort það heiti ekki eitthvað þegar fé er freklega hrifsa af fólki nánast í skjóli nætur.
15.mar. 2010 - 10:59
Hálfsextug nunna í Skotlandi fékk óvæntan arf nýverið; eitt stykki hóruhús í Austurríki. Kom í ljós að móðir nunnunnar hafði um árabil rekið það með góðum hagnaði.
15.mar. 2010 - 10:08
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra vísar á bug ásökunum Samtaka lánþega um að hann gangi erinda fjármögnunarfyrirtækja. Stjórnvöld láti hvorki lánþega njóta lakari kjara en þeir geti fengið með hjálp dómstóla né ívilni eignaleigum á nokkurn hátt.
15.mar. 2010 - 08:53
Stórsýningin Netið 2010 í Vetrargarðinum í Smáralind varð upptakturinn að árshátíð fyrirtækja á íslenskum netmarkaði sem haldin verður að ári liðnu. Þúsundir gesta lögðu leið sína á sýninguna um helgina.
15.mar. 2010 - 08:34
Lögreglan í Gautaborg handtók í nótt mann sem hafði hótað því að fremja fjöldamorð í Konunglega Tækniháskólanum í Stokkhólmi í dag. Lögreglan rakti slóð hans á netinu.
15.mar. 2010 - 07:50
Samtök lánþega segja að tillögur félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í 110% af söluandvirði bifreiða gagnist fjármögnunarfyrirtækjunum sjálfum. Erfitt sé að átta sig á hverra hagsmuna ráðherrann sé að gæta.
15.mar. 2010 - 07:40
Verið er að leggja lokahönd á skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en heimildir herma að hún verði ekki eins kolsvört og látið var að liggja. Sölvi Tryggvason segir í pistli á Pressunni að einn svonefndra hrunmanna spái því að lesendur sem þoli sig ekki verði svekktir.
15.mar. 2010 - 07:00
Áströlsk kona er sökuð um að hafa myrt eiginmann sinn á heimili þeirra í Sydney, Ástralíu. Þetta þætti ekki í frásögur færandi hér hinum megin á hnettinum nema vegna þess að konan er níutíu og tveggja ára og manninn vantaði tvö ár í hundrað.
14.mar. 2010 - 22:08
Skiptastjóri Fons vill að Landsbankinn, Arionbanki og skilanefnd Glitnis leggi fram tryggingarfé vegna mögulegrar kyrrsetningar hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Um er að ræða riftunarkröfu á milljarðsgreiðslu til Jóns Ásgeirs.
14.mar. 2010 - 20:22
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýtur föstum skotum að skiptastjóra Fons í Pressupistli, gefur í skyn að gerningar hans og starfshættir standist ekki skoðun og að hann hafi ásamt aðstoðarmönnum sínum tryggt sér tugmilljóna króna þóknun með sölu hlutabréfa úr þrotabúinu.
14.mar. 2010 - 20:02
Mohamed Nasheed, forseti Maldivíeyja, fullyrðir að alþjóðlegt samsæri reyni að grafa undan trúverðugleika vísindamanna sem færa rök fyrir hnattrænni hlýnun. Stórfyrirtæki kosti miklu til við spuna sem sýni fram á annað.
14.mar. 2010 - 19:26
Félagsmálaráðherra segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármögnunarfyrirtækin fari í þrot vegna tillagna hans um afskriftir bílalána. Mestu skipti að skuldurum sé gert kleift að borga af lánum sínum. Þá óttast hann ekki lögsókn.
14.mar. 2010 - 18:36
Margrét Hallgrímsdóttir sló Íslandsmet í langstökki á landsmóti UMFÍ á Eiðum árið 1952 sem stóð í 20 ár. Hún fékk verðlaunapeninginn afhentan núna fyrir helgi, 58 árum eftir að mótinu lauk.
14.mar. 2010 - 17:45
Ein langstærsta akstursíþróttakeppni sem haldin hefur verið hérlendis, Klausturskeppnin svokallaða, verður endurvakin á Kirkjubæjarklaustri um komandi hvítasunnuhelgi. Keppnin, sem síðast var haldin árið 2007, laðaði að sér hátt í 500 keppendur.
14.mar. 2010 - 16:20
Tveir lögreglumenn í þorpi skammt frá Spa í Belgíu sæta rannsókn vegna gruns um að hafa verið ölvaðir í vinnunni. Myndband, sem vegafarandi tók, er eitt af sönnunargögnunum en því hefur verið dreift á Youtube.
14.mar. 2010 - 15:17
Ólafur Ragnar Grímsson, Össur Skarphéðinsson og Eva Joly hafa hjálpað íslensku þjóðinni af hnjánum upp á fæturna. Þetta segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, og sakar Svía um að hugsa um eigin hag í Icesave-deilunni.
14.mar. 2010 - 14:37
Fréttahaukurinn Jóhann Hauksson, nýkjörinn blaðamaður ársins, er meðal umsækjenda um starf fjölmiðlafulltrúa fjármálaráðherra og fjármálaráðuneytisins.
14.mar. 2010 - 12:24
Hæstiréttur hefur hnekkt ákvörðun héraðsdóms um að hafna því að Pólverji verði framseldur frá Íslandi til að taka út fangelsisrefsingu í sínu heimalandi. Héraðsdómur taldi framsalið ósamrýmanlegt meðalhófsreglunni.