04. ágú. 2012 - 18:27
Hér fer fram bein textalýsing frá leik Íslands og Frakklands á Ólympíuleikunum 2012.
Til að fá nýjustu upplýsingar þarf að uppfæra síðuna með því að ýta á F5.
Komið þið sæl og velkomin í bein textalýsingu.
Við höfum alltaf átt í erfileikum með þetta franska lið og sérstaklega eftir að þeir sendu okkur Evu Joly og það er spurning hvort hennar verkefni hafi verið annað en fólk hefur haldið hingað til.
Ísland og Frakkland eru bæði með full hús stiga og því er þetta úrslitaleikur í riðlinum, hvort liðið stendur uppúr sem sigurvegari þessa riðils?
Guðmundur slær í rassinn á strákunum í beinni útsendingu.
Virðist vera nokkuð góð stemming í höllinni og hjá strákunum. En þetta verður rosalega erfiður leikur jafnvel erfiðari en að fá Frakka til að tala ensku.
Ólafur með fyrsta skot leiksins og það fer ekki inn.
Frakkar missa boltann og Arnór fer alla leið og skorar
1-0
Skot ekki á rammann hjá Frökkum og Ísland því í sókn.
Ágætis byrjun ( Eins og platan hjá Sigurrós).
Frakkar hirða boltann og eru komnir í sókn, þetta verður rosalegur leikur gott fólk.
Aron Pálm í dauðfæri en markvörður Frakka ver, þeir beint í sókn og skora
1-1 Björgvin ekki langt frá því að verja!
Koma svo, skjóta þá í kaf helst strax í byrjun.
Höndin komin upp hjá dómurunum, það þarf að fara innleiða skotklukka í þessa íþrótt.
Tvö skot hjá Íslendingum en markvörðurinn þeirra ver í bæði skiptin.
Ísland í sókn eftir klúður hjá Frökkum. Við verðum að halda einbeitingu. Þeir eru hrikalega fastir fyrir þessir Frakkar.
Róbert Gunnarsson og Ingimundur, þarna sameinast tvö stór úthverfi í Reykjavík ( Árbær og Breiðholt) og koma okkur í 3-1
Svona á að vinna saman!
3-2 Frakkar skora.
Við erum með meira blóðbragð eins og er.
Alexander Peterson með frábært mark.
Aron beint á eftir 5-2 þetta er meira ruglið , já rugl hvað við erum góðir! Magnaður leikur framan af.
Frakkar tapa boltanum , Ingimundur með skot í stöng, við missum boltann og frakkar í sókn.
Frakkar skora gott mark en Óli Stef með geggjað mark! Hann er 39 ára gamall!
6-3 Sverre er eins og amerískur ísskápur þarna í vörninni!
6-4 já þeir geta þetta vel Frakkarnir en við erum ennþá yfir og ætlum að halda því þannig!
Róbert nær ekki að grípa boltan og Frakkar fara í sókn, rosaleg vörn hjá okkur þessa stundina, grimmir !
Rosalegt mark hjá nautinu í liði Frakka 6-5 og við verðum að passa þennan kappa.
Aron með gott mark, hann er búinn að vera ótrúlegur í þessu móti miðað við mann sem næstum því missti af leikunum vegna meiðsla. Aftur skora Frakkar.
7-6 þetta verður í járnum allan leikinn, spenna sem ætti að vera bönnuð hjartveikum.
Frakkar vinna boltann.
Vá! Alexander Petersson með geggjað mark, hann hljóp þá út og inn þeir vissu ekkert hvaðan hann kom .
8-6 El Importante þetta mark ( mikilvægt).
Arnór Atlason með létt mark, gerði þetta eins og að drekka vatn ( íslenskt vatn).
9-6
Guðjón Valur hlýtur að vera á vespu hann er svo snöggur, löngu mættur fram og Frakkarnir ennþá að spá í sókninni sinni.
10-6 og leikhlé og Gummi lofar öllum Super size máltíð á Mcdonalds ef þeir vinna leikinn ( enginn Mcdonalds á Íslandi).
Björgvin ver þrumuskot utan af velli en Frakkar ná frákastinu og skora staðan 10-7
Dómrarnir með smá Tv-Time fyrir sig og taka sig nokkuð vel út í sjónvarpinu.
Guðjón Valur með skot en markvörðurinn hjá Frökkum ver, vel útfærð sókn samt hjá okkar mönnum.
Róbert með frábært mark!
11-7 er hægt að stoppa þetta lið okkar,
Karabatic með mark! Allt annað að sjá hann eftir klippingu sem var löngu kominn tími á hjá honum.
11-8
Guðjón Valur mættur fremstur og hann skorar 12-8 Guðjón Valur búinn að skora 25 mörk á mótinu.
Þessi vörn okkar er stórkostleg. En Fernandez skorar gott mark utan af velli það þarf mjög sérstök skot til að skora framhjá vörninni.
Róbert Gunnarsson skorar, hann var einu sinni efnilegur markvörður í fótbolta og Aston Villa bauð honum á æfingu.
Ingimundur rekinn útaf, íslendingar einum færri núna. Björgvin ver vítakastið og frákastið ! Ég tek kastið hérna!
Vel gert!
13-9 og Íslandí sókn, verið að þurrka gólfið aðeins eftir mannaleg slagsmál.
Björgvin flottur í slow motion í sjónvarpinu. Vel gert hjá okkar manni.
Alexander Petterson með ótrúlegt mark, veiddi boltann og laumaði honum inn úr horninu.
Fernandez með mark.
14-10 5 mín eftir af þessum hálfleik.
Björgvin Páll ver frá einum besta handboltamanni heim Karabatic. En það er víti.
Fernandez gegn Björgvini, mark.
14-11
Við erum einum færri og frakkar vinna boltann. Guðjón Valur stoppar hraðupphlaup hjá Frökkum.
Skref á Aron, flott handahreyfing hjá dómurunum. Frakkar skora.
14-12. Við þurfum að halda haus síður 2 mín af þessum hálfleik.
Frábært mark hjá Snorra Stein, 15-12 mjög gott mark.( tvöfallt hrós).
Vörn Íslands opnuð þarna , Frakkar skora og sending í næsta sókn hjá okkar misheppnast.
15-13 og Frakkland á víti. Þetta er rosalegur leikur og við fáum ofan á allt saman brottvísun.
Einum færri enn einu sinni í þessum leik.
1 mín eftir og Frakkar skora úr víti og staðan því 15-14.
Guðjón Valur með gott skot en vel varið hjá markverði Frakka sem hefur átt góðan leik.
Frakkar í sókn og þeir byrja með boltann í seinni hálfelik.
Mark, jafnt 15-15 og Guðmundur tekur leikhlé!
Spenna!
Ólafur með mark sem minnir á Franskan koss, beint í hornið.
16-15
Hálfleikur og því fínt að fara pissa eða drekka smá vatn, ekki öfugt samt.
Jæja gott fólk, seinni hálfleikur hafinn og þetta verður spenna alveg til loka spái ég.
Frakkar byrja með boltann og geta því jafnað.
Grimmdin í vörninni í fyrri hálfleik var rosaleg og vonandi heldur hún áfram í þeim seinni.
Ísland einum færri í 35 sek.
Karabatic reynir að skora úr ómögulegu færi.
Víti á Íslendinga, Sverre grimmur. Björgvin ver! Vel gert!
6 skot varinn hjá honum. Slær í slá og lagar tagl, þessi drengur!
Ísland í sókn. Missum boltann.
Góð vörn aftur hjá Sverre, hann er búinn að vera frábær!
16-16 Frakkar skora. Allt jafnt, þessi leikur!
Vörn frakkana góð en Róbert skorar, það er ekki hægt að stöðva drenginn þegar hann sér markið !
17-16.
Karabatic með skot langf yfir, Petersson með frábæra vippu yfir markvörð Frakka.
Frakkland svarar strax! staðan er 18-17 fyrir Ísland.
Sjá Róbert! Hann lætur þessi tröll ekki hræða sig! Aron með frábært mark! 19-17.
Karabatic með gott mark. Þetta er góður leikmaður og gleymum því ekki að þetta er rosalega sterkt lið það Franska. Þeir eru engar Franskar kartöflur ( ok, slappt grín en lét það flakka).
Aron skorar bara þegar hann vill og hann vill það oft! Mark !
20-18
Rosalegt mark hjá Karabatic 20-19.
Guðjón Valur í gegn en markvörður Frakka ver.
Ísland er með boltann, eitt mark skilur liðin að.
Dripl hjá frökkum, flott mark þetta var eins af skólavellinu 20-20 og allt í járnum.
Neglurnar eru búnar hjá mér ( þær sem eftir voru eftir Svía leikinn).
Frakkar vinna boltann, en við vinnum hann aftur.
Ísland á boltann og Karabatic liggur eftir smá meiddur en allt í góðu og hann er fljótur að gleyma meiðslunum þegar hann stendur upp.
Frakkland komið yfir! 21-20. Ódýrt mark en mark engu að síður.
Nóg eftir.
Aron með skot yfir markið.
Jæja! Ekkert rugl. Erfitt að fara byrja elta þetta franska lið.
Ruðningur á Frakka.
Guðjón Valur með frábært mark!¨
Óli Stef með flott sendingu og staðan er jöfn 21-21.
Fernandez með auðvellt mark. 21-22
Hörku leikur hjá tveimur mjög sterkum liðum.
Gummi öskrar af hliðarlínunni og kemur skipunum til strákanna.
Þjálfari Frakka er frekar rólegur svona rétt eins og hann hafi fengið sér nokkur rauðvíns glös.
Frábært mark hjá Kára Kristjáns , hann jafnar flott innkoma!
22-22.
Vippa yfir Björgvin sem lekur inn.
22-23 Frakkar yfir.
Já! Glæsilegt mark hjá Guðjóni Val. !
23-23 við erum ekkert að láta þá sigla neitt framúr okkur.
Björgvin Páll varði , hann sá við Karabatic.
Ísland með boltann og Hreiðar slær á rassinn hans Björgvins.
Karabatic skorar, 23-24 og þessi maður er ótrúlegur.
Ólafur Stefán rekinn útaf fyrir að kippa í Karabatic, og þetta er ekki beint þægilegt.
Erum undir , einum færri og Frakkar finna blóðbragðið. Við verðum að snúa þessu við núna!
23-25 Frakkar skora.
2 mín loksins á Frakka , skrítinn dómur held ég en við tökum honum fagnandi.
Alexander náði frákastinu og fékk víti og einum vikið útaf hjá Frökkum.
Gæti verið gríðarlegur vendipunktur í leiknum þessi dómur.
Snorri Steinn með vítið og markvörður Frakka ver.
ÆÆ
en við náum boltanum.
Frakkar tveimur færri þessa stundina, við ættum að geta laumað á þá einu marki.
Petersson með desert mark, frábært! 24-25.
Barátta í vörninni en frakkar missa boltann, við eigum sókn.
Ólafur fyrirliði með gott mark 25-25!
Jafnt í liðum núna, við nýttum þetta vel meðan þeir voru í ruglinu.
Ef þessi leikur væri eftirréttur þá væri hann Ber, Ís og Rjómi með dass af súkkulaði sósu.
Geggjaður leikur.
Góð Vörn við vinnum boltann og getum komist yfir.
Aron með frábært mark við erum komnir yfir.
Frakkar beint í sókn og Sverre rekinn útaf sem er furðurlegur dómur, alveg eins furðurlegt og Ronald Keating að spila á Þjóðhátið.
Mark hjá Frökkum!
26-26 og nóg eftir af þessum leik.
Veisla! fram og til baka brot báðum megin sem endar með að við fiskum ruðning á Frakka.
Getum komist yfir!
9 mín eftir og við missum boltann, Björgvin Páll varði rosaleg frá Frökkum. Hann reyndi að vippa yfir hann en þvílíkar hreyfingar hjá okkar manni ! Kötturinn Páll!
´
Ólafur með víti eftir frábæra baráttu hjá Róberti á línunni og hann skorar.
27-26.
Menn liggja hérna út um allan völl.Rosaleg barátta í báðum liðum!
Eruð þetta okkar nýju erkifjendur?
Vörnin okkar er fjandi grimm !
Ég myndi ekki viljam mæta henni í dimmu húsasundi, spurning samt hvað hún væri að gera þar?
Frakkar skora, Fernandez með sitt áttunda mark!
27-27
Frakkar vinna boltann, smá mistök hjá okkur en þau gerast og við tökum þeim og bætum bara fyrir þau seinna.
2 mín á Sverre, meira ruglið ! Dómararnir eru með hann í gjörgæslu.
Fótur, svo tæpt, en frakkar halda boltanum.
Flott hreyfing hjá Fernandez og hann skorar 27-28 og Frakkar komnir yfir.
5 mín eftir.
Við erum einum færri, og þetta er erfitt.
Já! Arnór Atlason skorar
28-28
Boltinn lak inn. Svokallað Wikileaks mark.
Björgvin Páll ver og höllin tryllist enda maðurinn stjarna hérna! Beckham handboltans vil ég meina!
Ruðningur á Arnór Atla! Frakka bruna í sókn en þurfa að róa leikinn enda okkar menn löngu mættir í vörnina.
Allt jafnt 28-28
Ólafur veiðir boltann og Guðjón Valur mættur fremstur í sóknina eins og alltaf og skorar! 29-28
Magnað ! Fyrirliðinn með frábæra baráttu! Veiðimaðurinn Ólafur og Kötturinn Páll í markinu.
1 mín og 30 sek eftir
Alexander stelur boltanum og skorar !!!!!
30-28 Já!!!!! magnað !
Víti hjá frökkum og þeir skora en þvílíkur leikur hjá okkar mönnum aðeins mín eftir og við erum einu marki yfirr.
30-29 Dúddemía!!!!
Grimm vörn hjá Frökkum en við sýnum klókindi og fiskum aukakast.
Frakkar vinna boltann eftir slæma sendingu beint í sókn og Fernandez missir sig og er rekinn út en halda boltanum!
Frakkar geta jafnað!
20 sek eftir.
Leikhlé hjá Frökkum og ég efast um að menn séu að segja eitthvað að viti þarna, þetta er bara púst og aðeins verið að róa sig.
Frakkar geta jafnað en það eru akkúrat 19 sek eftir af leiknum.
30-29!
Frakkar einum færri.
Aukamaður kominn inn á hjá Frökkum það er enginn í markinu hjá þeim.
2 mín á Alexander og aðeins 7 sek eftir.
Frakkar manni fleiri þessar fáu sek sem eftir eru.
Björgin ver!!!!!! þrumuskot utan af velli en Björgvin ver!!!!
Magnað!
Við sigrum Frakka og þetta er bara ótrúlegt, fullt hús stiga og allir eru að fá sér (vatn reyndar).
Já já , RÚV skiptir beint á textavarpsauglýsingar svona rétt til að róa fólkið niður, seiðandi rödd segir okkur frá tilboði hjá Slippfélaginu.
Frábær og spennandi leikur.
Takk kærlega fyrir mig og hafið það gott yfir helgina, farið varlega þarna úti.
Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.