15. jún. 2012 - 12:39

Auglýsir eftir eggjagjafa á vefmiðli - vantar umræðu um þessi mál

Kona sem þráir það heitt að eignast barn skrifar bréf á bleikt.is í dag þar sem hún óskar eftir eggjagjafa. Hún kýs að koma ekki fram undir nafni enda sé um viðkvæmt mál að ræða fyrir sig.

Hún segir skorta umræðu um þessi mál í samfélaginu. Hún hefur auglýst eftir eggjagjafa á vefmiðli en engin svör hafa borist.

Ósk mín um að eignast barn getur ekki orðið að veruleika þar sem ekki er hægt að nota mín eigin egg því ég er komin yfir fertugt. Ég er búin að fara í tvær glasafrjóvganir sem ekki skiluðu þeim árangri sem vænst var og er því eini möguleiki minn að fá gjafaegg. Erfitt er að komast í samband við konur sem hugsanlega eru tilbúnar til að gefa egg og leita ég því á ykkar náðir um að koma umræðu um þetta þarfa málefni á framfæri  og að auglýsa eftir hugsanlegum egggjafa.

Hún segir gjafaegg nauðsynleg þeim konum sem langar til að eignast barn en af ýmsum ástæðum geta ekki notað eigin egg. Megi þar nefna einstaklinga sem eiga við ófrjósemi að stríða, breytingarskeið og ýmsa sjúkdóma. Eggjagjöf gefi því ákveðnum pörum von og tækifæri til að láta draum sinn rætast um að eignast barn, draum  sem annars er ekki raunhæfur.


Þetta er fremur viðkvæmt málefni fyrir mig og er því ekki tilbúin að koma fram undir nafni. Þetta er því mín eina leið til að, eins og áður sagði, koma af stað umræðu um þetta málefni og óska eftir gjafaeggi. Jafnframt vísa ég í auglýsingu mína á forsíðu Tilveru.is, sem því miður hefur ekki skilað sér en auglýsingin hljómar svona:

 Par sem þarf á gjafaeggi að halda óskar eftir að komast í samband við hugsanlegan egggjafa. Sú sem kynni að hafa áhuga og er tilbúin að gefa egg er vinsamlegast beðin um að hafa samband á póstfangið egggjafi@gmail.com.

Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt sem á heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á pressan@pressan.is - Fyllsta trúnaðar gætt, sé hans krafist.



23.maí 2013 - 21:30

Aðlaðandi og feit

Jes Baker hefur heldur betur slegið í gegn með því að deila á Abercrombie & Fitch með sjóðheitri myndaseríu á The Militant Baker. Jes kom fram í The Today Show til að ræða uppnámið sem Mike Jeffries frá A&F olli með ummælum sínum um hverjir ættu helst að ganga í fötunum frá þeim, semsagt „minna svölu krakkarnir“ sem væru þá meðal annars feitu krakkarnir.
23.maí 2013 - 20:40

Vandræðalegt! Fréttamaður spyr trúleysingja hvort það sé Guði að þakka að hann sé á lífi

Hinn kunni fréttamaður  Wolf Blitzer sem starfar fyrir CNN var heldur vandræðalegur þegar hann tók viðtal við Rebeccu Vitsmun sem slapp með naumindum þegar skýstrókur lagði Moore, úthverfi Oklahomaborgar í rúst.
23.maí 2013 - 20:10

Árshátíðarmyndband forsætisráðuneytisins: „Er bomba hér?“

Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, þakkar fyrir sig í sérstöku árshátíðarmyndbandi forsætisráðuneytisins. Þar tekur hún meðal annars létt dansspor sem minna á atriði úr kvikmynd eftir Quentin Tarantino.
23.maí 2013 - 19:20

Orðalag í stjórnarsáttmála býður upp á fjölmargar útfærslur til skuldalækkunar

Orðalag um skuldalækkanir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar felur í sér óvissu varðandi útfærslu sem eftir á að skýra. Þannig þarf að meta hvað telst fyrirséð eða ófyrirséð hækkun á höfuðstóli húsnæðislána.
23.maí 2013 - 18:15

Ekkert lát á óeirðunum í Stokkhólmi: Kveikt í lögreglustöð og 15 bílum í nótt

Ótrúleg atburðarás í Stokkhólmi... Ekki virðist vera að draga úr óeirðunum í Stokkhólmi sem hafa geysað allar nætur í vikunni. Í nótt var kveikt í að minnsta kosti 15 bílum og einni lögreglustöð. Lögreglan var með mikinn viðbúnað í mörgum hverfum Stokkhólms en þrátt fyrir það fóru óeirðaseggir af stað seint í gærkvöldi og voru á götum úti fram á morgun.
23.maí 2013 - 16:58

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs formlega tekin við völdum

Ráðherrar úr ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks komu saman til ríkisráðsfundar á Bessastöðum í dag og lauk fundinum á fimmta tímanum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er þar með orðinn forsætisráðherra eftir að forseti Íslands veitti fráfarandi ríkisstjórn lausn frá störfum í morgun.
23.maí 2013 - 15:55 Guðjón Ólafsson - Spjallið

Spjallið: Jansen afplánar einungis tvo leiki fyrir hrottalega árás sína – Hvað finnst þér?

Torsten Jansen, leikmaður Hamburg í þýska boltanum, var í dag dæmdur í tíu leikja bann fyrir að skalla mótherja sinn í leik á þriðjudag. Jansen þarf jafnframt að greiða háa sekt en reglur í þýska boltanum gera það að verkum að bannið er í raun ekki nema tveir leikir.
23.maí 2013 - 15:00

Girðing á Akureyri elur á fordómum

Dýrleif Skjóldal, sem starfar sem leikskólakennari á Akureyri telur að breytingar sem gerðar hafa verið á andarpolli en þar var reist girðing til að vernda andarunga frá mávinum, ali á fordómum. Börnunum er með þessu kennt að sumir fuglar séu betri en aðrir.
23.maí 2013 - 14:40

Mynd dagsins: Ingólfur með íslenska fánann á toppi Everest

Að morgni 21. maí náði Ingólfur Geir Gissurarson þeim magnaða árangri að komast upp á topp Mount Everest. Ingólfur er nú kominn niður í grunnbúðir Everest. Hér má sjá mynd af því þegar hann flaggaði íslenska fánanum á þessum hæsta punkti jarðar.
23.maí 2013 - 13:35

Vinstri stjórnin lýkur störfum á Bessastöðum – Hélt að menn væru tilbúnari en þetta

Ráðherrar í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna mættu á sinn síðasta ríkisráðsfund á Bessastöðum klukkan 11 í morgun. Þeir eru mishrifnir af stjórnarsáttmála nýrrar ríkistjórnar.
23.maí 2013 - 12:40

Atvikið sem allir eru að tala um

Skelfileg uppákoma í þýska boltanum. Hræðilegt atvik átti sér stað í þýska handboltanum á þriðjudag þegar Torsten Jansen, leikmaður Hamburg, skallaði Ivan Nincevic, leikmann Füchse Berlin með hræðilegum afleiðingum. Myndband af atvikinu má sjá hér.
23.maí 2013 - 12:20

Myndir dagsins: Hrafninn sækir í álverið

Myndir dagsins tók starfsmaður Norðuráls af hrafnapari sem hefur gert sér laup á uppgöngupalli utan á kerskála Norðuráls á Grundartanga.
23.maí 2013 - 11:55

Pepsi-leikurinn: Einn tippari með alla leikina rétta í fjórðu umferð

Einn tippari með alla leikina rétta! Í morgun komst talningavél Íþróttapressunnar að því að einungis einn tippari náði að hitta rétt á alla leiki fjórðu umferðar Pepsi-deildar karla. Eins og vanalega verðlaunum við hið hina sannspáu tippara með Pepsi og boðsmiðum.
23.maí 2013 - 11:15

Jóhannes aðstoðarmaður Sigmundar: „Þetta er allt Svanhildi að kenna“

Jóhannes Þór  Skúlason Jóhannes Þór  Skúlason, aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, var kampakátur þegar þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson skrifuðu undir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar á Laugarvatni.
23.maí 2013 - 10:10

Þróttarar heiðra sinn helsta stuðningsmann með frábæru tónlistarmyndbandi

Flott tvíeyki hér á ferðinni! Grínistinn Sólmundur Hólm, í samstarfi við Billy Joel og Pálma Gunnarsson, hefur sett saman stórskemmtilegt lag til heiðurs helsta stuðningsmanni Þróttar í íslenska boltanum, sjálfum Konna. Konna þekkja margir íslenskir knattspyrnuáhugamenn en harðari stuðningsmann er vart að finna.
23.maí 2013 - 10:00

Gríðarlegar rigningar í Noregi: Tugir húsa rýmd, mikið eignatjón

Gríðarlegar rigningar hafa verið í Noregi og er vatnselgurinn víða gríðarlegur og meiri en elstu menn muna. Vegir hafa farið í sundur og lestarsamgöngur hafa farið úr skorðum. Rýma hefur þurft tugi húsa vegna flóða og í Holt í Eidsvold hefur þurft að flytja fólk á brott vegna hættu á að stífla á svæðinu bresti. Ef það gerist mun vatnselgurinn hrífa allt með sér sem fyrir verður.
23.maí 2013 - 08:45

Stefán nokkuð sáttur: Lítil dólgafrjálshyggja í stjórnarsáttmála – „Gamli Sjálfstæðisflokkurinn“

„Hugmyndir frjálshyggjumanna og vúdú-hagfræðinga um dólgslegar skattalækkanir sjást varla í stjórnarsáttmálanum,“ segir Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði um stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Hann segir anda Framsóknar svífa yfir vötnum í stjórnarsamstarfinu.
23.maí 2013 - 08:00

Málverkið er á stærð við góða íbúð: Til minningar um það þegar Jesú reddaði víni í partíið

Íbúð sem er 67 fermetrar að stærð þykir bara alveg dágóð. Í gamla daga hefði hún rúmað heila stóra fjölskyldu og jafnvel tvær en nú á dögum mundi hún þykja heppileg fyrir einstakling sem vill hafa rúmt um sig, eða fyrir par – jafnvel með eitt barn af smærra taginu.
22.maí 2013 - 22:00

Enn færast óeirðirnar í Svíþjóð í aukana

Þriðju nóttina í röð voru óeirðir í Husby í Stokkhólmi en nú virðist sem óeirðirnar séu farnar að breiðast enn frekar út en auk bíla sem eldur var borinn að í Husby loguðu eldar í Rinkeby, Skarpnäck, Norsborg, Kista og Tensta. Í Fittja, sem er suðvestan við Stokkhólm, var kveikt í bílum og gámi og voru það grímuklæddir menn sem voru þar að verki.
22.maí 2013 - 20:55

Framsókn skipar ráðherra – Gunnar Bragi utanríkisráðherra

Þingflokkur framsóknarmanna samþykkti nú fyrir skömmu tillögu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um hverjir verða ráðherrar flokksins í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
22.maí 2013 - 20:40

Ráðherralisti Sjálfstæðisflokksins liggur fyrir

Bjarni Benediktsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Illugi Gunnarsson, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Kristján Þór Júlíusson skipa ráðherralið Sjálfstæðisflokksins.
22.maí 2013 - 20:00

Flott upphitunarmyndband fyrir úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu

Rándýr úrslitaleikur á laugardag... Það verður sannkallaður risaslagur á Wembley í Lundúnum þegar þýsku risarnir frá Munchen og Dortmund mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á laugardag. Bayern Munchen og Dortmund hafa bæði leikið óaðfinnanlega knattspyrnu á þessu tímabili og því við hæfi að þessi tvö lið berjist um bikarinn eftirsótta.
22.maí 2013 - 19:30

Einn drepinn á götu úti í London síðdegis, tveir særðir: Talið að um hryðjuverk sé að ræða

Lögreglan í Lundúnum skaut tvo menn á götu úti í Woolwich hverfinu seinnipartinn í dag. Mennirnir höfðu áður ráðist á þann þriðja með sveðju og beinlínis höggvið hann í spað. Lögreglan telur að um hryðjuverk sé að ræða.
22.maí 2013 - 18:30

Spáð í spilin: Þau verða ráðherrar í nýrri ríkisstjórn gangi spá sérfræðinganna eftir

Fyrsta ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar verður formlega kynnt til sögunnar eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum kl. 15 á morgun. Bjarni Benediktsson verður fjármálaráðherra, en hverjir fá önnur ráðherraembætti? Þingflokkar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks funda í kvöld, þar sem formenn flokkanna munu kynna tillögur sínar um ráðherraskipan. Eyjan leitaði til aðila innan nýju stjórnarflokkanna og fleiri stjórnmálaskýrenda og niðurstaðan úr þeim samtölum er að þessir muni taka við ráðherraembættum á morgun.
22.maí 2013 - 17:40

Húsvörður varar Bjarna og Sigmund við: „Það er eins gott að þeir standi sig, annars er mér að mæta“

Pálmi Hilmarsson sem starfað hefur sem húsvörður á Laugarvatni um árabil sagði í samtali við Pressuna  að það væri afar jákvætt fyrir staðinn að stjórnmálaforingjarnir skyldu hafa valið Héraðsskólann á Laugarvatni til að skrifa undir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar.
22.maí 2013 - 16:30

Sex starfshópar í stjórnarsáttmála og fjölmörg stefnumál endurskoðuð

Kveðið er á um skipun sex starfshópa/nefnda í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Hóparnir munu meðal annars fara yfir fyrirkomulag verðtryggingar, ríkisútgjöld og Evrópusambandsumsókn. Fjölmörg verkefni verða sömuleiðis endurskoðuð eða könnuð frekar.
22.maí 2013 - 15:30

Líkið er af Gunnari Gunnarssyni

Lík sem ferðafólk gekk fram á í Kaldbaksvík á Ströndum þann 17. maí sl. er af Gunnari Gunnarssyni, fæddum 1962.
22.maí 2013 - 14:40

Þurfti að ganga í gömlum og slitnum fötum í tvo daga eftir að hafa lagt skólafélaga sinn í einelti

Tíu ára gömul skólastelpa fékk heldur óhefðbundna refsingu fyrir að leggja skólafélaga sinn í einelti fyrir klæðaburð. Stjúpmóðir stúlkunnar, sem búsett er í Utah í Bandaríkjunum, tók til sinna ráða. Hún keypti föt á nytjamarkaði og lét stúlkuna klæðast ódýrum og slitnum fötum í tvo daga.
22.maí 2013 - 13:35

„Ég fer einungis í félag þar sem þjálfararnir virkilega vilja mig“

Marouane Fellaini er nú orðaður við sinn gamla þjálfara, David Moyes. Það verður forvitnilegt að fylgjast með framgangi mála innan herbúða Manchester United í sumar. Nú reynir á hvernig David Moyes, nýráðinn stjóri félagsins, gengur að styrkja hópinn fyrir næsta tímabil. Fellaini er sagður ansi gómsætur biti fyrir David Moyes.
22.maí 2013 - 13:30

Skaut kött sjö ára stúlku: Fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Heimilisköttur sem hafði verið saknað um skeið fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær en kötturinn hafði verið skotinn.  Kötturinn var í eigu sjö ára stúlku.
22.maí 2013 - 10:45

Erlendir fjölmiðlar halda áfram að lofsama Gunnar Nelson

Fróðleg samantekt um Gunnar Nelson. Íslenski bardagajaxlinn Gunnar Nelson er fyrir löngu orðinn þekkt nafn innan vébanda UFC. Í tilefni þess að vinsældir sportsins fara nú um heiminn eins og eldur í sinu hefur FUEL TV gert greinagóða umfjöllun um feril og umhverfi Gunnars.
22.maí 2013 - 10:00

Forsetinn ánægður með myndun nýrrar ríkisstjórnar: Gekk eftir samkvæmt stjórnskipan

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, lýsti ánægju sinni með myndun nýrrar ríkisstjórnar, að loknum fundi hans og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, á Bessastöðum nú í morgun. Fyrsta ráðuneyti Sigmundar Davíðs tekur við á ríkisráðsfundi eftir hádegi á morgun.
22.maí 2013 - 09:50

Dwyane Wade mætti óvænt á skólaball

Dwyane Wade kom öllum í opna skjöldu! Körfuboltasnillingurinn Dwyane Wade hefur gaman af því að koma stuðningsmönnum sínum á óvart, enda léttur og skemmtilegur persónuleiki. Hér sjáum við þennan magnaða leikmann Miami Heat koma ungri stúlku fullkomlega á óvart þegar hann mætti til hennar á skólaball.
22.maí 2013 - 08:54

Líkamsárás í Vesturbænum: Brutu upp hurð á íbúð og réðust á húsráðanda

Tveir menn brutu upp hurð á íbúð í Vesturbænum, ruddust inn  og réðust á húsráðanda. Maðurinn hlaut áverka í andliti.
22.maí 2013 - 08:17

Stjórnarsáttmálinn „almennt orðaður“: Verðtrygging gerð óþörf með betri efnahagsstjórn

Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar er almennt orðaður þar sem markmið eru tilgreind frekar en ítarlegar útfærslur. Þannig eru úrlausnir í skuldamálum heimilanna ekki endanlega afgreiddar í sáttmálanum, heldur markmiðunum lýst og verðtrygginguna á að gera óþarfa með betri efnahagsstjórn.
21.maí 2013 - 22:30

18 ára piltur sem samdi lag til að kveðja fjölskyldu og vini er látinn

18 ára unglingur sem vann hug og hjörtu fólks er hann greindi á einlægan hátt frá baráttu sinni við krabbamein í desember er látinn. Pressan sagði sögu hans á síðasta ári.
21.maí 2013 - 22:27 Guðjón Ólafsson

Pepsi-deildin: Fyrstu stig Skagamanna og Róbert hetja FH-inga

Bjarni Ólafur Eiríksson skoraði jöfnunarmark Valsmanna í dag Þrír leikir voru á dagskrá í Pepsi-deild karla í kvöld. Skagamenn nældu sér í þrjú stig á heimavelli sínum með 2-0 sigri á Fram, Stjarnan og Valur gerðu jafntefli og Íslandsmeistararnir gerðu góða ferð á Kópavogsvöll.
21.maí 2013 - 21:23

Flokkarnir með fimm ráðherra hvor: Sigmundur Davíð formaður sérstakrar ráðherranefndar um ríkisfjármál

Miðstjórnarfundir Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru hafnir. Á fundunum kynna þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson flokksmönnum sínum málefnaáherslur nýrrar ríkisstjórnar og verkaskiptingu. Eyjan birtir hér skiptingu ráðuneytanna milli flokkanna og færir lesendum fréttir af miðstjórnarfundunum.
21.maí 2013 - 18:05

Skattsvik eitt helsta viðfangsefnið á leiðtogafundi ESB

Leiðtogar allra aðildarríkja ESB hittast á morgun á fundi í Brussel.  Á dagskrá fundarins er að komast að samkomulagi um nýjar aðgerðir gegn skattsvikum.
21.maí 2013 - 16:45

Sigmundur Davíð á fund forseta í fyrramálið

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson mun á morgun, miðvikudaginn 22. maí, eiga fund með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, sem forseti fól umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar þann 30. apríl síðastliðinn. Fundurinn verður á  Bessastöðum og hefst kl. 09:00.
21.maí 2013 - 15:30

Mynd dagsins: Simbi í djúpum skít

Mynd dagsins tók Ágúst G. Atlason af Sveinbirni Hjálmarssyni, eða Simba eins og hann er kallaður í daglegu tali. Simbi er þekktur fyrir að birta skopmyndir af sér á Facebook-síðu sinni  en hann birtir eina á dag.
21.maí 2013 - 15:00

Allt það eftirminnilegasta úr enska boltanum á þremur mínútum

Mörg eftirminnileg atvik hér á ferð! Hér er á ferðinni skemmtilegt myndskeið sem tekur á öllu því merkilegasta sem gerðist á nýloknu tímabili í enska boltanum. Tímabilið 2012 til 2013 hafði í för með sér mörg eftirminnileg augnablik. Allur pakkinn hér, á einungis þremur mínútum!
21.maí 2013 - 14:10

Vigdísi tækist að gera íslensku þjóðina að Evrópusinnum á mettíma

„Þekki ég gang stjórnarmyndana rétt er bitist fram á síðustu stund um ráðherrastóla og mér kæmi ekki á óvart þó fram á kvöldið væru menn enn að tosast milli flokka um hvoru megin stöku ráðuneyti lendir,“ segir Össur Skarphéðinsson sem spáir í ráðherrakapalinn í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar og Sjálfstæðisflokks.
21.maí 2013 - 12:45

„Stoltur, glaður og þakklátur“

Um helgina urðu Guðmundur Guðmundsson og félagar í Rhein Neckar Löwen Evrópumeistarar í handbolta þegar liðið bar sigurorð af Nantes í hreinum úrslitaleik. Guðmundur var að sjálfsögðu himinlifandi með þennan fyrsta titil félagsins.
21.maí 2013 - 12:19

Ef þú borðar ekki heilsuréttina mína hringi ég á lögregluna

Kona á Suðurnesjum sem hafði áhyggjur af heilsu eiginmanns síns óskaði fyrir skömmu eftir aðstoð lögreglu til að reyna tala um fyrir eiginmanni sínum. Hún kvaðst vera orðin langþreytt á mataræði hans.
21.maí 2013 - 12:00

Óeirðir í Stokkhólmi aðra nóttina í röð: Enn meira eignatjón

Þá kom einnig fram að hluti ungmennanna sé aðeins 12 og 13 ára að aldri. Aðra nóttina í röð söfnuðust ungmenni saman í Husby hverfinu í Stokkhólmi og efndu til óeirða. Kveikt var í fjölda mörgum bílum og einn strætisvagn varð fyrir barðinu á brennuvörgum. Fjölmennt lögreglulið var til staðar í hverfinu en þrátt fyrir það voru ólætin í nótt verri en nóttina á undan.
21.maí 2013 - 11:30

Síðasta tyggjó Alex Ferguson á uppboði á eBay

Alls átta tilboð höfðu borist í gær. Athyglisverður munur rataði á uppboð hjá netversluninni eBay í gær en hann var sagður vera síðasta tyggjóið sem Alex Ferguson notaði á stjóratíð sinni. Allar líkur er á því að um grín hafi verið að ræða en uppboðið hefur nú verið fjarlægt af síðunni.
21.maí 2013 - 11:00

Bubbi Morthens: „Ummælin vekja hjá mér undrun og sorg“

„Í gegnum árin hef ég reynt að horfa fram hjá hvernig sumir hafa skrifað um mig á kommentakerfum en nú er nóg komið,“ skrifar tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens í pistli sem birtur var hér á Pressunni í morgun.
21.maí 2013 - 19:20

Versta flugfélag í heimi: Ógeðslegur matur, raki og byltingarmarsar

Það er sérstök upplifun að ferðast með Air Koryo. Flugfreyjurnar ganga um með tuskur til þurrka rakann sem drýpur niður á farþegana, maturinn er viðbjóðslegur og  byltingarmarsar eru spilaðir fyrir flugtak og lendingu.
21.maí 2013 - 10:00

Forsetinn veitti Sigmundi Davíð umboðið út á stefnumál Framsóknar

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur viðurkennt að hafa veitt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni umboð til stjórnarmyndunarviðræðna vegna þess að hann hreifst af hugmyndum flokksins að nota fé vogunarsjóða til skuldaniðurfellinga.

Sena - Frank
Pressupennarvinsælast í vikunni
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 18.5.2013
Ógleymanleg heimsókn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 20.5.2013
Myndband af mér í Brasilíu
Fleiri pressupennar
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 21.5.2013
Nú er nóg komið!
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2013
Frekja?
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.5.2013
Viktor Hólm
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 14.5.2013
Hamast á Sigmundi Davíð
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 15.5.2013
Ógeðsleg pólitík
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 21.5.2013
Umdeildur
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guðjónsson - 22.5.2013
Að fenginni áminningu
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 14.5.2013
Lærðu vipp úr háu grasi - Myndband
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 22.5.2013
Umsátrinu um heimilin er lokið
Kári Stefánsson
Kári Stefánsson - 22.5.2013
Óheft tjáningarþörf
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 15.5.2013
Rangfeðruð skammaskrif
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 14.5.2013
Árni Vilhjálmsson: Minningarorð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2013
Pétur Pétursson
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 20.5.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 6. hola - Myndband
Fleiri pressupennar