30. des. 2009 - 16:23
Sitt sýnist hverjum þegar kemur að því að velja einstakling ársins 2009. Tólf nöfn komu upp þegar álitsgjafar Pressunnar voru beðnir um að velja einstakling ársins, allt frá starfsmanni á plani, upp í Georg Bjarnfreðarson og Steingrím J. Sigfússon. Sá síðastnefndi var þó oftast nefndur ásamt Evu Joly.
Pressan leitaði til hóps álitsgjafa til að spyrja út í helstu viðburði ársins. Fyrr í dag birtum við svör álitsgjafanna um
markverðustu viðburði ársins. Við höldum áfram að birta svör þeirra næstu daga, auk þess sem val lesenda Pressunnar á manni ársins verður tilkynnt í hádeginu á morgun, gamlársdag.
Hægt er taka þátt í kosningunni hér.
Svör álitsgjafanna er að finna hér að neðan.
Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður á Viðskiptablaðinu„Starfsmaður á plani, sem græddi ekkert á góðærinu en axlar samt byrðarnar sem það skilur eftir sig. Án hans værum við í helvíti vondum málum.“
Egill Helgason, fjölmiðlamaður
„Eva Joly er sú persóna sem helst virðist gefa Íslendingum von, og hún hefur meira siðferðilegt vald en aðrir í þessu samfélagi. En maður kemst ekki hjá því að nefna Guðmund Sesar Magnússon.“
Jón Steinsson, lektor í hagfræði við Colombia háskóla„Jóhanna Sigurðardóttir. Hún tók við stjórn landsins á afskaplega erfiðum tíma þegar fáir aðrir hefðu getað valdið því verkefni. Hún tókst á við öll þau stóru og erfiðu mál sem við okkur blöstu síðastliðinn vetur af festu og einurð. Hún lét verkin tala í stað þess að standa í endalausri spuna- og smjörklípukeppni við andstæðinga sína. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar var að mestu til fyrirmyndar: Ný yfirstjórn Seðlabanka Íslands, stöðugleikasáttmáli við aðila vinnumarkaðarins, samningar um Icesave, samningar við kröfuhafa gömlu bankana, aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna og markverð skref í átt að jöfnuði í ríkisrekstri. Eins og gengur var ekki vel haldið á öllum málum. T.d. sýnist manni að standa hefði mátt betur að samningagerð vegna Icesave. En yfir heildina hafa stjórnvöld að mínu mati staðið sig mun betur en maður hefði þorað að vona. Margir kvarta yfir skorti á „sterkum leiðtoga“ En ég er búinn að fá nóg af þeirri gerð sterkra leiðtoga sem þessir aðilar virðast vera að kalla eftir.“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði„Davíð Oddsson, að standa af sér hatursherferð jafnt vinstriforingja og auðmanna og þýja þeirra.“
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1„Guðjón Már Guðjónsson í Hugmyndaráðuneytinu. Fyrir utan að gefa mörg hundruð klukkustundir á árinu í sjálfboðaliðastarf þá var hann hluti af því teymi sem kom Þjóðfundinum á og að auki stóð Guðjón fyrir því að fyrsta Ted ráðstefnan var haldin á Íslandi. Við erfiðar aðstæður lagði hann sig fram um að skapa jarðveg fyrir frjóa og uppbyggilega samræðu í þjóðfélaginu og halda henni gangandi allt árið. Guðjón var verðlaunaður á árinu af heimsþingi JCI sem einn af 10 áhugaverðustu frumkvöðlum heimsins.“
Andrés Jónsson, almannatengill„Það koma margir til greina. En ég held ég verði að nefna Evu Joly. Ég er ekki viss um að við hefðum ráðið við það verkefni að rannsaka þessi mál sem tengjast bankahruninu án utanaðkomandi hjálpar. Án hennar aðkomu hefðum við horft upp á enn meira vantraust myndast í samfélaginu en raunin varð.“
Magnús Halldórsson, blaðamaður á Viðskiptablaðinu„Steingrímur J. Sigfússon. Flokkurinn sem hann stofnaði og veitir formennsku komst til valda og náði árangri í kosningum sem verður að teljast ótrúlegur, miðað við það pólitíska landslag sem ríkt hefur hér á landi lengst af. Steingrímur J. hefur auk þess verið í eldlínunni vegna umdeildra mála, s.s. aðgerða í ríkisfjármálum, samstarfsins við IMF og Icesave.“
Sölvi Tryggvason, sjónvarpsmaður„Menn ársins eru tveir. Gífurlega ólíkir. Ögmundur Jónasson var samviska íslensku þjóðarinnar í Icesave málinu. Nokkur vínglös rétt fyrir jólin varpa engum skugga á það. Hinn maður ársins er Egill Einarsson. Fólk hefur ekki tekið hann alvarlega, en hann veit upp á hár hvað hann er að gera. Maður sem skrifar bók sem selst í átta þúsund eintökum í hjáverkum er helvíti öflugur.“
Ólafur Arnarson, rithöfundur og hagfræðingur„Íbúðareigandinn, sem hefur horft á eignina sína lækka og lánin tvöfaldast en er enn staðráðinn í að berjast fyrir endurreisn Íslands og standa sína pligt þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ákveðið að skerða ráðstöfunartekjur hans með sköttum, sem munu hindra endurreisnina.“
Ármann Þorvaldsson, rithöfundur og fyrrum forstjóri Kaupþings, Singer og Friedlander„Georg Bjarnfreðarson. Vegna velgengni í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu, en ekki síður vegna þess að hann er holdi gerður fulltrúi þeirrar stemmningar sem ríkti á Íslandi 2009.“
Lára Ómarsdóttir, fréttakona á RÚV„Edda Heiðrún Bachman sem tókst á ótrúlegan hátt að fá þjóðina í lið með sér og safna fyrir endurbótum á Grensás. Söfnunin sýndi líka að þegar á reynir stöndum við saman.“
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Pressunnar„Guðmundur Sesar, sem framdi einstaka hetjudáð sem pólitík eða viðskipti komast hvergi nærri.“
Eiríkur Bergmann Einarsson, doktor í stjórnmálafræði„Steingrímur J. Sigfússon. Burtséð frá því hvort menn séu sammála Steingrími og stjórnmálastefnu hans eða ekki, þá er engin leið að líta framhjá því að það er hann sem heldur lífinu í ríkisstjórninni. Steingrímur virðist vera dráttarklárinn sem enn heldur Íslandi á floti. Eljan er aðdáunarverð og starfsþrekið nánast óþrjótandi. Eða svo virðist í það minnsta.“
Svanborg Sigmarsdóttir, blaðakona„Allar byrðar heimsins hafa lent á herðum Steingríms J. Sigfússonar þetta árið og fyrir það - og hvernig hann hefur unnið úr því fær hann að mínu mati að vera einstaklingur ársins 2009.“
Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auðar Capital„Ég get ekki valið neinn einn einstakling sem á skilið þann titil, en met mikils þann fjölda einstaklinga sem á einn eða annan hátt tók þátt í Þjóðfundinum eða gerði okkur kleift að halda hann. Tvö þúsund manna mauraþúfa vann ótrúlega óeigingjarnt starf og þjóðin hefur fengið niðurstöðurnar í jólagjöf. Þær ættu að vera öllum hollt og mikilvægt veganesti inn í framtíðina.“
Ólafur Ísleifsson, lektor í hagfræði„Maður ársins er Steingrímur J. sem stjórnaði landinu. Stjarna ársins er Eva Joly.“
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.