30. jún. 2012 - 11:22
Vilja mynda varnarmúr í Leifsstöð fyrir stúlkurnar þrjár sem teknar voru frá móður sinni

Mynd/Pressphotos.is
Íslenskir aðstandendur þriggja stúlkna sem voru teknar með lögregluvaldi af móður sinni í gær í kjölfar dómsúrskurðar í forræðisdeilu konunnar og dansks föður þeirra, biðla til almennings hér á landi að mæta út á Keflavíkurflugvöll til að hindra að stúlkurnar verði færðar úr landi. Þeir benda á að danskir dómstólar virðist ávallt dæma löndum sínum í vil í forræðismálum sem þessum.
Frétt Pressunnar frá í gær um það þegar lögregla og sýslumaður framfylgdu dómsúrskurðinum og tóku þrjár dætur af móður sinni hefur vakið þjóðarathygli og gífurleg viðbrögð. Lesa má þá frétt HÉR.
Á fésbókarsíðu hóps sem lætur sig málefni fjölskyldunnar varða, var þessi orðsending sett inn í gærkvöldi:
Á morgun á að nauðungarflytja 3 ungar systur í hendurnar á ofbeldismanni í Danmörku. Þær eru 5, 6 og 8 ára og hafa aldrei áður búið fjarri móður sinni.
Allir sem málið varðar og allir sem vilja aðstoða okkur mæti út á Keflavíkurflugvöll til að hindra að stelpurnar fari úr landi.
Um leið og við vitum tímasetninguna verður það tilkynnt á síðunni okkar og við myndum varnarvegg til að hindra að þær verði teknar.Hafist hefur verið handa við undirskriftasöfnun til að fá yfirvöld til að skoða mál stúlkanna. Hægt er að skrifa undir hana með rafrænum hætti HÉR.
Barátta móðurinnar við að halda dætrum sínum hefur staðið yfir um langt skeið.
Bleikt tók viðtal við hana á síðasta ára þar sem hún upplýsti að hún hefði flúið heimilið með dætur sínar í Danmörku vegna ofbeldis og hótana. Engu að síður var foreldrunum dæmt sameiginlegt forræði og danskir dómstólar töldu að lögheimili ætti að vera hjá föður dætranna. Íslensk lögregluyfirvöld voru nú að framfylgja þeirri niðurstöðu danska landsréttarins.
Ragnheiður Rafnsdóttir hjúkrunarfræðingur we móðursystir stúlknanna. Hún hafði þessa sögu að segja Pressunni:
Í gær fóru sýslumaðurinn í Kópavogi ásamt barnaverndarnefnd í Kópavogi með ofsa og tóku þrjár saklausar stúlkur í sína vörslu, hrifsuðu þær úr faðmi móður sinnar sem hefur alltaf hugsað um þær. Móðirin hefur hugsað um börnin allt þeirra líf, móðirin hefur huggað þær, gefið þeim að borða, klætt þær, hugað að andlegu, líkamlegu heilbrigði ásamt því að næra sál þeirra með gleði og góðum siðum.
Nú hefur yfirvaldið talað og finnst sjálfsagt að faðir þeirra systra, sem hefur beitt þær miklu ofbeldi allt þeirra líf ásamt því að beita móður þeirra og bróður öllu því ofbeldi sem fyrir finnst í skólabókum fái þær systur og við sem þekkjum hinn meinta ofbeldismann vitum hvers megnugur hann er...Hver er réttur þessara barna og hver talar þeirra máli þegar barnavernd fer fram með slíkum hætti??Núna er systurnar á ókunnugum stað, þekkja engan og þess skal getið að þær hafa alltaf farið að sofa með mömmu sinni og hún passað þær. Þegar þær eins og raunverulegir fangar fengu eitt símtal í gær, grétu þær svo mikið að varla skildist hvað þær voru að segja.
Þetta voru dólgslegar aðfarir og til mikillar skammar fyrir stjórnvöld og þá sem fara með barnamál í þessu landi.
Þess skal getið að talað hefur við alla sem vettlingi geta valdið en allir virðast loka augum og tala um lögin, rétt föðurins sem er svo sterkur að þrátt fyrir að elsta barnið hafið legið í viku á sjúkrahúsi með áverka eftir hann og fleira og fleira þá á hann samt rétt á því að fá þær og flytja þær með sér til annars lands þar sem þær hafa engan til að rétta sér hjálparhönd. Það sem þessum stelpum vantar er hlýr faðmur mömmu sinnar sem alltaf hefur verið til taks í gleði og sorg....
Ég biðla til allra þeirra sem með einhverjum hætti geta hjálpað okkur að gefa sig fram hið fyrsta þar sem tíminn er naumur.
Stefán Svan, móðurbróðir telpnanna, segir að það eina sem fjölskyldan hafi farið fram á í á þriðja ár sé að börnin fái að tjá sig um málið heild sinni. Málið sé harmleikur og þau hafi óskað eftir að leggja fram áverkavottorð, frásagnir og læknaskýrslur.
Stefán Svan segir:
En það hefur aldrei mátt, við fjölskyldan hennar sem að þekktum vel til og höfum sannanir fyrir ofbeldinu höfum ekki mátt tjá okkur því að við erum of tengd þessu máli.
Við höfum alltaf viljað fá sannleikan í ljós en það hefur verið unnið hart af því frá lögfræðingum ofbeldismannsins að fá þau gögn dæmd ógild.
Stefán segir að dönsk yfirvöld horfi einkum til þess að móðirin hafi einhliða ákveðið að taka þau með sér til Íslands:
Það eina sem alltaf er horft í og það virðist engin komast framhjá er að Hjördís kom heim með stelpurnar undan ómanneskjulegum aðstæðum í Danmörku. Það gerði hún að sjálfsögðu til að vernda börn sín í von um að á þær væri hlustað hér heima. Það hefur ekki verið gert því það eina sem að kemst að er að hún kom heim með börnin án hans samþykkis.
Hjördís fékk aðfararbeiðni og gekkst við henni á sínum tíma og fór út með stelpurnar í sátt við dómstóla.
Það var hins vegar ekki að ganga vegna ítrekaðra ofbeldisverka í vikulegum heimsóknum til föðursins.
Eftir eitt skiptið var farið með elstu stelpuna á slysadeild og hún lögð inn vegna andlegs og líkamlegs ofbeldis. Það skiptið tóku dönsk yfirvöld í taumana og bönnuðu heimsóknir, en það entist bara í 2 vikur.
Hann segir það hafa verið örþrifaráð hjá systur sinni að flýja með dætur sínar til Íslands:
Þá var ekkert annað en að koma aftur heim. Hvað átti að gera? Taka því bara að senda börnin aftur í opið ginið á þessum manni? Þegar hún kom heim þá kom aftur upp þessi gamla aðfarabeiðni sem að auðvitað var úr gildi þar sem henni hafði verið framfylgt.
Hann segir fjölmarga lögfræðinga segja fjölskylduna í fullum rétti:
Það vita það allir og okkur hefur verið sagt það að þetta er ólöglegt og það liggur inni kæra vegna þess hjá Innanríkisráðuneytinu, en það tekur allt svo langan tíma. Sýslumaður lagði sig fram við að taka þessa gömlu beiðni og nota hana án þess að taka það til greina að hún væri úr gildi.
Hjördís á son frá fyrra sambandi sem ólst upp inná heimilinu hjá manninum. Hann varð líka fyrir miklu ofbeldi en það hefur aldrei mátt hlusta á hann, hann hefur aldrei fengið að segja sína sögu því að hann skiptir ekki máli í þessu, Það var sagt síðast í dag. Sonur hennar skiptir ekki máli.
Stefán Svan bendir að lokum á að svo virðist sem dómstólar í Danmörku felli oftast úrskurði í forræðismálum dönskum einstaklingum í vil þegar deilt er við maka af öðru þjóðerni. Um þetta hafi verið mikið fjallað í dönskum fjölmiðlum, sjá til dæmis í nokkrum tenglum hér að neðan.
http://www.metroxpress.dk/nyheder/dansk-statsborgerskab-trumfer-barnets-bedste/KObkkb!FOGMXVtruNxY/
http://www.metroxpress.dk/nyheder/voldelig-far-far-fuld-forldremyndighed/KObkkb!ubUQlFxkuDziw/ http://portal.foreignersindenmark.dk/forum/forum_posts.asp?TID=3888&PN=6
http://portal.foreignersindenmark.dk/forum/forum_posts.asp?TID=3888&PN=65
http://portal.foreignersindenmark.dk/forum/forum_posts.asp?TID=3888&PN=8
http://www.barnetstarv.nu/barnets_tarv_nu_indholdsoversigt.htm
http://www.barnetstarv.nu/boern_faar_ikke_hjaelp.pdf http://femininfremtid.dk/danmark-gav-kidnapperfar-foraeldremyndighed-pa-falsk-grundlag/
19.maí 2013 - 11:00
Björn Bragi Arnarsson er fæddur árið 1984. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og þá er hann með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björn var fyrr í vetur kosinn sjónvarpsmaður ársins fyrir frammistöðu sína sem stjórnandi Týndu kynslóðarinnar og hlaut hann Edduna fyrir.
18.maí 2013 - 22:25
Eins og flestir Íslendingar vita fór Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fram í kvöld. Eyþór Ingi söng fyrir Íslands hönd og stóð sig frábærlega en það var hinsvegar Emelie de Forrest sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með framlagi Danmerkur
Only Tearsdrop.
18.maí 2013 - 22:00
Samskiptasíðurnar Twitter og Facebook loguðu á meðan söngvarar stigu á svið í Eurovision-keppninni. Líflegar umræður fóru fram um lögin og á báðum samskiptasíðunum mátti finna skemmtilega gullmola um hina ýmsu listamenn í keppninni.
18.maí 2013 - 18:30
Eyþór Ingi sem í kvöld flytur lagið Ég á líf í Eurovision-keppninni spjallaði á léttu nótunum við Davíð Lúther Sigurðarson. Þá sýndi hann skartið sem hann ber og ræddi um fataval fyrir stóru stundina.
18.maí 2013 - 17:35
Anna Sigurlaug Pálsdóttir eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar segir að hún hafi um tíma tekið afar nærri sér allt baktal og ljót ummæli um eiginmann hennar í kommentakerfum fjölmiðlanna. Hún laumaðist í tölvuna á kvöldin, sat fram eftir nóttu og las ummælin með tárin í augunum.
18.maí 2013 - 14:30
Sjórekið lík fannst í fjöru í Kaldbaksvík á Ströndum í morgun. Ekki er vitað hvenær viðkomandi lést.
18.maí 2013 - 11:10
Everest-farinn Ingólfur Geir Gissurarson kom í gær í aðrar búðir á leið sinni á toppinn. Í dag er hvíldardagur en snemma á morgun mun Ingólfur halda áfram upp í þriðju búðir. Ef allt gengur að óskum þá er stefnt að því að vera á toppnum að morgni 21. maí.
18.maí 2013 - 10:00
Karlmaður sem slasaðist alvarlega þegar hópur manna réðst á hann í Breiðholti síðdegis í gær dvelur enn á sjúkrahúsi. Tveir menn hafa verið handteknir vegna árásarinnar en þeir hafa báðir hlotið dóm fyrir ofbeldisverk.
18.maí 2013 - 08:30
IDAHO-dagurinn, alþjóðlegur baráttudagur gegn hómó-, bi- og transfóbíu var í gær. Dagurinn hefur verið haldinn 17. maí ár hvert síðan árið 2005, en þann dag árið 1990 var samkynhneigð tekin út af sjúkdómalista Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.
17.maí 2013 - 19:30
Karlmaður er mikið slasaður eftir að minnst þrír menn réðust á hann í Breiðholti síðdegis í dag. Íbúar við Ystasel telja að um handrukkun hafi verið að ræða en árásarmennirnir notuðu m.a. hafnarboltakylfu þegar þeir gengu í skrokk á manninum fyrir allra augum.
17.maí 2013 - 15:30
Eyþór Ingi sem í gær söng sig inn í hug og hjörtu margra Evrópubúa þakkaði Íslendingum og þá sérstaklega fólkinu í heimabæ sínum á Dalvík fyrir stuðninginn í gærkvöldi. Þá sagðist hann hafa orðið meyr í miðju lagi þegar honum varð hugsað til dætra sinna og eiginkonu.
17.maí 2013 - 11:30
Hljómsveitin Sigur Rós bregður fyrir í Simpsons þættinum The Saga of Carl Carlsson sem sýndur verður í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Nú hefur fyrsta myndskeiðið verið sett á netið og það má sjá hér fyrir neðan.
17.maí 2013 - 09:00
Laugardaginn 18. maí fer sendinefnd frá Íslandi til Kulusuk, á vegum Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, Skákfélagsins Hróksins, Flugfélags Íslands og fleiri velunnara Grænlendinga. Við þetta tækifæri verða afhent hljóðfæri, tæknibúnaður og fleiri gjafir, en tónlistarhúsið í Kulusuk brann til grunna í fárviðri í byrjun mars.
17.maí 2013 - 08:30
Banaslys varð á Akranesi í gær þegar ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjóli sínu er hann ók austur Faxabraut á Akranesi. Hafnaði hjólið á grjótgarði með þeim afleiðingum að maðurinn kastaðist yfir grjótgarðinn og niður í fjöru á Langasandi.
17.maí 2013 - 08:00
Tæknin mun bjarga þeim sem ekki komast í miðbæinn í dag til að sjá einstakt átta mínútna skipaflautuverk Lilju Birgisdóttur. Lilja lofar tilkomumikilli sjón þegar hún stýrir verki sínu, Vessel Orchestra, í höfninni á Listahátíð í Reykjavík, en það er opnunarverk hátíðarinnar.
16.maí 2013 - 22:17
Enginn á að þurfa að missa af Eurovision - hvorki leikarar né leikhúsgestir. Englar alheimsins gerðu stutt hlé á sýningu kvöldsins og sungu ,,Ég á líf" með Eyþóri og áhorfendum í beinni útsendingu á stóra sviðinu
16.maí 2013 - 21:45
Á samskiptasíðunum Twitter og Facebook fóru fram líflegar umræður um Eurovisionkeppnina, þó Twitter hafi verið ótvíræður sigurvegari þegar kom að skemmtanagildi. Á Twitter má finna fjöldann allan af gullmolum frá íslenskum notendum sem réðu sér ekki fyrir kæti þegar framlag Íslands komst áfram í lokakeppnina sem fram fer í Malmö á laugardag.
16.maí 2013 - 17:10
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í átta ára fangelsi fyrir margítrekuð og svívirðileg kynferðisbrot gegn tveim börnum. Hæstiréttur taldi rétt að þyngja dóminn en maðurinn var dæmdur til sjö ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember sl.
16.maí 2013 - 13:47
Karlmaður á fertugsaldri sem í gær var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí, grunaður um að hafa brotið á 10 ára stúlku segist ekki muna eftir atburðum gærdagsins.
16.maí 2013 - 12:00
Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar, afhenti í dag fulltrúa Samtaka um kvennaathvarf Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Höfða á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar.
16.maí 2013 - 11:00
Mynd dagins birti Örlygur Smári á Facebook-síðu Nýherja en þar segir:
16.maí 2013 - 08:00
DUST 514 sem framleiddur er af íslenska fyrirtækinu CCP fyrir Playstation 3 er kominn út. Um er að ræða skotleik sem gerist í sama sýndarheimi og fjölspilunarleikurinn EVE Online, sem fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Áskrifendur hans í dag rúmlega 500.000. Ljóst er að með tilkomu DUST 514 stækkar EVE heimurinn umtalsvert. Leikurinn er ókeypis.
15.maí 2013 - 16:09
Karl á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en það var gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn var handtekinn í gær, en hann er talinn hafa brotið kynferðislega gegn stúlku á ellefta ári. Lögreglu barst tilkynning um málið skömmu fyrir kl. 17 í gær þegar foreldrar stúlkunnar höfðu samband, en stúlkan var þá nýkomin til síns heima í vesturbæ Reykjavíkur.
15.maí 2013 - 08:00
Um helgina kom til landsins bílaflutningaskip með 300 nýjum Chevrolet bílum fyrir Bílabúð Benna. Mörg ár eru síðan að flutningaskip kom til landsins aðeins hlaðið bílum.
15.maí 2013 - 07:00
Skráning í hina árlegu hjólreiðakeppni WOW Cyclothon, þar sem hjólað er 1332 kílómetra hringinn í kringum Ísland með boðsveitarformi, hefur gengið framar björtustu vonum. Nú þegar hafa 25 lið staðfest þátttöku en liðsfjöldi verður takmarkaður við 30 lið. Áheitasöfnun mun fara fram í kringum keppnina og mun allur ágóði renna til Barnaheilla.
14.maí 2013 - 16:50
Steingrímur Njálsson er látinn 71 árs að aldri.
14.maí 2013 - 15:25
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi húsleit á fjórum stöðum í austurborg Reykjavíkur á föstudag og lagði hald á fíkniefni og fjármuni. Kannabisræktun var stöðvuð í íbúð fjölbýlishúss, en lagt var hald á tæplega 70 kannabisplöntur, auk tugi gramma af tilbúnum kannabisefnum. Ræktunin var í tveimur herbergjum íbúðarinnar, en barn var á heimilinu.
14.maí 2013 - 14:00
Einar Ágúst Víðisson sem söng lagið Tell me ásamt Telmu Ágústsdóttur í Eurovision keppninni fyrir þrettán árum síðan segir að það hafi verið virkilega ánægjulegt en taugatrekkjandi að taka þátt í keppninni. Í skemmtilegu myndskeiði sem birt var á heimasíðu Vodafone segir hann frá sögunni á bak við pilsið fræga og af hverju hann valdi að klæðast því á úrslitakvöldinu.
14.maí 2013 - 12:00
Kreppan er enn við lýði í Evrópu og því við hæfi að stilla eyðslunni í hóf, það er að minnsta kosti skoðun forsvarsmanna sænska ríkissjónvarpsins sem hafa ákveðið að stilla öllum glamúr í hóf þegar kemur að Eurovision keppninni sem fram fer í þessari viku.
13.maí 2013 - 19:48
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gunnhildi Líf Egilsdóttur, 17 ára. Gunnhildur Líf er sirka 163 sm. á hæð, grannvaxin og með sítt svart hár niður að öxlum.
13.maí 2013 - 15:25
Mynd dagsins er af 8 metra löngum fiskibát sem kviknaði í um 4 sjómílur SA af Arnarstapa. Einn skipverji um borð og var honum bjargað um borð í nærliggjandi fiskibát.
13.maí 2013 - 10:15
Tölvuforrit eru til margra hluta nytsamleg og hönnuð í ýmsum tilgangi og auðvitað hafa vísindamenn búið til forrit sem reiknar út hvaða land sigrar í Júróvisíón þetta árið.
13.maí 2013 - 09:23
Norvik, sem rekur meðal annars fjölmargar smásöluverslanir á Íslandi, hefur tekið í notkun Rent A Prent, sem er umhverfisvæn prentþjónusta frá Nýherja. Einungis fimm prenttæki verða notuð á aðalskrifstofu Norvikur og Kaupáss á Bíldshöfða í stað 30 prentækja áður.
12.maí 2013 - 20:35
Á bloggsíðunum við netfljótið berjast reiðir bloggarar við hvorn annan með eitruðum athugasemdum og fúkkyrðaflauminn að vopni. Níð, hatur og fordómar mynda eitrað fenjasvæði og fúlar uppsprettulyndir. Og enginn er þar annars bróðir eða systir.
11.maí 2013 - 14:31
Kristjón Kormákur Guðjónsson hefur verið ráðinn fréttastjóri Pressunnar. Kristjón hefur starfað sem blaðamaður á Vefpressunni frá 1. júní 2012. Hann hefur aðallega fengist við fréttaskrif fyrir Pressuna en einnig skrifað á Bleikt og Eyjuna.
11.maí 2013 - 10:30
Á mynd dagsins má sjá eina af ótal aðferðum sem menn nota til að reyna smygla fíkniefnum til landsins. Nýverið fann tollgæslan til dæmis poka með amfetamíni sem saumaður var inn í streng á gallabuxum. Þær voru sendar sem gjöf til landsins, að því er fram kom í farmbréfi og var verðmæti gjafarinnar skráð 0 bandaríkjadalir. Tollverðir stöðvuðu sendinguna og fundu amfetamínið við leit.
10.maí 2013 - 16:45
Rétt fyrir klukkan fjögur í dag varð umferðarslys á Suðurlandsbraut. Þá var bíl ekið á mikilli ferð á strætóskýli sem gjöreyðilagðist. Samkvæmt vitnum stóðu tvær unglingsstúlkur með barnavagn í skýlinu stuttu áður en slysið varð.
10.maí 2013 - 14:40
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Brynju Mist Snorradóttur. Hún er fædd 1997. Brynja er um 163 cm á hæð, um 50 kg. Hún er afar grönn, með ljóst sítt hár og ljósar strípur og er oftast með hárið í tagli.
10.maí 2013 - 12:37
Umhverfissjóður Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka, hefur veitt tveimur verkefnum styrki, samtals að fjárhæð 1 milljón króna. Styrkirnir eru veittir árlega til að styðja við frumkvöðlaverkefni á sviði umferðar- og umhverfismála. Markmiðið með styrkjunum er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum.
10.maí 2013 - 11:00
Ríkissaksóknari hefur lokið meðferð kærumáls Erlu Bolladóttur á hendur lögreglumanni fyrir ætlað kynferðisbrot um mitt ár 1976, þá er Erla sætti gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á Guðmundar- og Geirfinnsmálum, en kærði starfaði þá sem rannsóknarlögreglumaður og vann að rannsókn málanna.
09.maí 2013 - 19:00
Mikil gleði og ánægja ríkti á Barnahátíð SÁÁ í Efstaleiti í dag. Um þúsund manns á öllum aldri komu saman og glöddust yfir stofnun Barnahjálpar SÁÁ sem mun hafa það hlutverk að aðstoða börn alkóhólista.
09.maí 2013 - 18:10
Stórlið Ajax í hollenska boltanum tryggði sér á dögunum sinn 32. deildarmeistaratitil. Með liðinu leikur Kolbeinn Sigþórsson en hann, ásamt tveimur öðrum í liðinu, kom nokkrum stuðningsmönnum liðsins heldur betur á óvart nú fyrir stuttu.
09.maí 2013 - 13:29
Karl Jónsson sem myrtur var á Egilsstöðum aðfaranótt þriðjudags blæddi út vegna fjölda stungusára.
09.maí 2013 - 12:00
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði ansi mikilvægt mark fyrir Tottenham í gærkvöldi þegar liðið heimsótti Chelsea í ensku deildinni. Gylfi skoraði jöfnunarmark liðsins þegar tíu mínútur voru til leiksloka en hann hafði komið inn á sem varamaður stuttu áður.
09.maí 2013 - 09:00
Mörgum brá í brún þegar þeir skoðuðu heimasíðu Veðurstofunnar seint í gær en þar sagði að jarðskjálfti upp á 6.4 á richter hefði orðið austur af Grímsey eða á svipuðum slóðum þar sem töluverðar jarðhræringar voru í byrjun aprílmánaðar. Samkvæmt heimasíðunni átti skjálftinn að hafa riðið yfir rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi.
08.maí 2013 - 15:30
Sverrir S. Sverrisson hefur kært Ólaf Helga Kjartansson til lögreglu fyrir brot í starfi. Sverrir segir að þann 4. apríl hafi hjá embætti sýslumannsins á Selfossi verið tekin fyrir beiðni um nauðungarsölu sem hafði borist frá Arion banka og beindist gegn eign Sverris í Grímsnesinu þar sem hann hefur búsetu.
08.maí 2013 - 14:15
25% prósent starfsmanna íslenskra fyrirtækja eru óvirkir í starfi. Slíkir starfsmenn eru óánægðir, sjá fyrirtækið ekki fyrir sér sem framtíðar vinnustað, skapa úlfúð og finna sig ekki í starfi.
08.maí 2013 - 13:30
Maðurinn sem lést á heimili sínu að Blómvangi 2 á Egilsstöðum, aðfararnótt 07. maí síðastliðinn hét Karl Jónsson og var frá Galtastöðum fram í Hróarstungu á héraði.
08.maí 2013 - 11:00
Fyrrverandi ástkona annars grunaðs höfuðpaurs í stóra IKEA-málinu svokallaða segist vilja gera hið rétta í málinu en hún sakar manninn um að hafa beitt sig blekkingum. Konan skilaði vörum fyrir manninn en taldi aldrei að um þýfi væri að ræða. Hún telur að ástmaðurinn hafi heilaþvegið sig og hún hafi orðið að leita sér sálfræðiaðstoðar eftir að sambandi þeirra lauk.
08.maí 2013 - 10:00
Hópur Kínverja leitar leiða til að fá aðgang að jörð í Reykjadal í Þingeyjarsveit til 33 ára. Þar ætla þeir að byggja fjölda húsa og stunda Norðurslóðarannsóknir.