25. jan. 2012 - 16:27

Lítil ánægja hjá BSRB með yfirlýsingar Ögmundar: Óásættanlegur málflutningur frá manni í hans stöðu

bsrb

Mikil óánægja er með ummæli Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, um sífellt lengri og fleiri ferðir til Brussel á kostnað ríkisins.  „Óásættanlegur málflutningur“, segir framkvæmdastjóri BSRB. 

Innanríkisráðherra lýsti í gær áhyggjum sínum af málinu á Alþingi í gær:

Það er vegna þess að það er búið að fara með flugvélafarma, viku eftir viku eftir viku, mánuð eftir mánuð eftir mánuð, út til Brussel þar sem menn halda til á kostnað ríkisins. Þetta fólk ánetjast Evrópusambandinu og vill ólmt halda áfram og fá að fara í fleiri ferðir. Fleiri ferðir, fleiri hótelferðir, meiri dagpeninga. Það er þetta sem er að gerast. Það er þess vegna sem stofnanaveldið ánetjast Evrópusambandinu.

Framkvæmdastjóri BSRB er allt annað en ánægður með ummæli Ögmundar og segir:

Málflutningur Ögmundar er óásættanlegur.

Ögmundur var formaður BSRB í 21 ár.

BSRB þykir mjög miður hvernig Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra talar um opinbera starfsmenn úr ræðustóli Alþingis. Að halda því fram að embættismenn hins opinbera séu að ánetjast ferðalögum og sæki það hart að komast sem oftast út fyrir landssteinana til þess eins að fá greidda dagpeninga er mjög ómaklegt,

segir Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB.

Hún ítrekar að ummælin séu sérstaklega óviðeigandi vegna starfa Ögmundar innan BSRB og stöðu hans í dag.

Núverandi ríkisstjórn sóttist eftir aðild að ESB en ekki opinberir starfsmenn sem eru væntanlega aðeins að vinna vinnuna sína eins vel og þeir geta. Sú vinna felst m.a. í því að framfylgja stefnu ríkisstjórnarinnar og undir það falla vissulega fundir erlendis vegna umsóknar um aðild að ESB. Málflutningur Ögmundar er því algerlega óásættanlegur, sérstaklega komandi frá manni í hans stöðu.

Því má bæta við að Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er einmitt í Brussel í dag á fundum.





22.maí 2012 - 20:00

Miðstýrður áætlunarbúskapur: Frjálsum markaði er hafnað og marxískri miðstýringu hampað

Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 17:23

Lát fanga á Litla Hrauni bar að með voveiflegum hætti: Annþór og Börkur liggja undir grun

Tveir fangar á Litla Hrauni hafa verið færðir í einangrunarvist á Litla Hrauni, grunaðir um að hafa veitt fanga alvarlega áverka með þeim afleiðingum að hann lést í fyrri viku.
22.maí 2012 - 17:00

Gunnar Birgisson: Dómurinn kemur mér á óvart - við Sigrún erum saklaus

Gunnar Birgisson, fyrrum stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, og Sigrún Ágústa Bragadóttir framkvæmdastjóri sjóðsins, voru í dæmd til greiðslu 150.000 kr. sektar hvor fyrir ranga upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins. Málskostnaðurinn nam yfir átta milljörðum kr. og var hann að mestu greiddur úr ríkissjóð. Gunnar segir að dómurinn hafi komið sér á óvart.




22.maí 2012 - 15:51

Taldi 12 ár í forsetastól eðlileg: Enginn gott af því að ímynda sér að hann sé ómissandi

Dr. Kristján Eldjárn var forseti Íslands 1968-1980. Sjálfur tel ég að tólf ár séu eðlilegur og jafnvel æskilegur tími í þessu embætti og er það drjúgur spölur í starfsævi manns, sagði dr. Kristján Eldjárn í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980, er hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist hverfa úr embætti eftir tólf ár á forsetastóli.
22.maí 2012 - 15:00

Sala hafin á aflögðum kirkjum: Mikill áhugi að setja upp veitingastaði og næturklúbba í þeim

Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.

 

22.maí 2012 - 14:10

Skákgripir úr einvígi aldarinnar metnir á allt að 40 milljónir króna

Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi  bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.


22.maí 2012 - 12:11

Árni Páll: Getum gert Vigdísi Hauks að forsætisráðherra og hvar er pláss fyrir Hall Hallsson?

„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29

Kaupmáttur launa 7,6% lægri en hann var fyrir hrun - stefnir í enn meiri kaupmáttarrýrnun

Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.

22.maí 2012 - 10:45

FÍkniefnabrotum hefur snarfjölgað það sem af er árinu - hraðakstur aukist um 38%

Hraðakstursbrotum og fíkniefnabrotum hefur snarlega fjölgað fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Í fyrra voru skráð 494 fíkniefnabrot á landinu fyrstu fjóra mánuðina en 650 fyrstu fjóra mánuði þessa árs.  


22.maí 2012 - 09:30

Einmenningsbílaríkið Ísland: 72 prósent allra aka sjálfir til vinnu - 9,3% fer á reiðhjólum

72,4% allra sem svöruðu spurningum í skoðanakönnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, aka sjálfir til og frá vinnu.

21.maí 2012 - 18:43

Ólafur og Lilja fjalla um íslensku leiðina: Erlend krónueign veldur stöðugum þrýstingi á gengið

Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 16:58

Stöðvaður að gera bjölluónæði: Hafði eytt aleigunni í vín og villtar meyjar

Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan er stundum kölluð til í slíkum málum og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið.

 

 
21.maí 2012 - 13:45

Öskumistur liggur yfir höfuborginni: Svifryk yfir heilsuverndarmörkum

Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall.
21.maí 2012 - 11:30

Veiking krónunnar gerir okkur erfitt fyrir: Nú er meira að segja tippið orðið dýrara

Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.  
21.maí 2012 - 10:33

Flug til London tvöfaldast í verði hjá Icelandair : WOW hefur hækkað minnst

Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.

21.maí 2012 - 08:22

Félagið Íslensk ættleiðing gengur á varasjóð félagsins: Ekki forsendur til að ljúka málum

Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent Innanríkisráðuneytinu tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins. Þær ráðstafanir kunna að hafa í för með sér að þegar félagið verður lagt niður verða ekki öruggar rekstrarforsendur til að ljúka málum  er kunna að vera til meðferðar á vegum félagsins á þeim tíma.
20.maí 2012 - 23:00

Arion banka mótaraðir: Metfjöldi þátttakenda - úrslit helgarinnar

Um helgina hófust mótaraðir unglinga og var leikið á Arion banka mótaröð unglinga á Garðavelli Akranesi en Golfklúbbur Reykjavíkur sá um framkvæmd mótsins. Það var svo Nesklúbburinn sem hélst stærsta Áskorendamót frá upphafi þar sem 108 keppendur mættu til leiks á Nesvelli.
20.maí 2012 - 20:55

Íslendingar fengið 11 milljörðum meira úr sjóðum ESB en þeir hafa lagt til þeirra

Íslendingar hafa fengið um 11 milljörðum króna meira úr styrkjasjóðum eða áætlunum Evrópusambandsins en þeir hafa greitt til þessara sömu sjóða.


20.maí 2012 - 19:27

Útlánaæði í Noregi: Fjármálaráðherra landsins varar landsmenn við

Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.

20.maí 2012 - 16:00

Sjávarútvegurinn rekinn með gríðarlegum hagnaði: Getur vel lagt af mörkum til þjóðarinnar

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir gríðarlega tekjumyndun hafa verið síðastliðin fjögur ár í sjávarútvegi og greinin standi vel undir því að leggja meira af mörkum til eigenda auðlindarinnar.


20.maí 2012 - 12:24

Íslensk þingkona vinnur mál gegn bandarískum stjórnvöldum: Stórsigur fyrir mannréttindi í heiminum

Birgitta Jónsdóttir, þingkona, hefur ásamt sex öðrum, unnið mál gegn bandarískum stjórnvöldum fyrir rétti í New York vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga.
20.maí 2012 - 10:36

Fjárfestingaáætlun á að fjármagna með einkavæðingu, sölu eigna og veiðigjaldi í sjávarútvegi

Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
20.maí 2012 - 09:18

Bátur vélarvana utan við Snæfellsnes: Kominn eins metra hár sjór í vélarrúmi

Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi.
19.maí 2012 - 22:39

Þóra segist klökk yfir fallegum og góðum kveðjum: Hér ríkir hamingjan ein

Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi kveðst hálfklökk yfir öllum þeim fallegu og góðu kveðjum sem henni og Svavari Halldórssyni sambýlismanni hennar hafa borist í tilefni af fæðingu lítillar dóttur í gær.
19.maí 2012 - 15:30

Gríðarstór ráðstefna Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu: Á fimmta hundrað hingað til lands

Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45

Tveir mikilvægir leiðtogafundir haldnir í Bandaríkjunum um helgina: Jóhanna og Össur til Chicago

Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
19.maí 2012 - 10:44

Dorrit segir að ofvirkni og athyglisbrestur hái sér: Ég hef reynt rítalín, ég hef reynt allt

„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði, ók. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.“
19.maí 2012 - 08:58

Vin er mikilvægt athvarf sem rekið verður áfram: Ómissandi fyrir fólkið sem þangað kemur

Frá athöfn í gær, þar sem rekstur Vinjar var tryggður næstu árin. Búið er að tryggja áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í gær. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.
18.maí 2012 - 20:34

Flugvél Icelandair lent heilu og höldnu í Keflavík - Allt gekk eins og í sögu

Flugvélin sveimar nú yfir Keflavík til að brenna eldsneyti áður en til nauðlendingar kemur. Flugvél Icelandair sem snúið var við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli lenti heilu og höldnu klukkan 21:15. Vélinni var snúið við skömmu eftir flugtak eftir að í ljós kom að lendingarbúnaður vélarinnar hafði skemmst. Lendingin tókst með afbrigðum vel.
18.maí 2012 - 18:00

Vill reisa verksmiðju og framleiða viskí á Austurlandi úr íslensku byggi

Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth. 
 

18.maí 2012 - 16:00

Höfnuðu rannsókn vegna meintra innherjasvika: Tífalt atkvæðavægi atvinnurekenda

Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.


18.maí 2012 - 15:20

Kona læstist inni á klósetti á höfuðborgarsvæðinu: Lögregla kölluð á vettvang

Margir þekkja þá óþægilegu tilfinningu að hafa læst sig úti. Öllu sjaldgæfara er að fólki sé óvart læst inni en kemur þó fyrir. Sú var einmitt raunin með ónefnda konu á höfuðborgarsvæðinu en konan býr í fjölbýlishúsi.
18.maí 2012 - 14:10

Gleðifregnir hjá forsetaframbjóðanda: Þóra Arnórsdóttir fæddi stúlkubarn í morgun

Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og frambjóðandi til forseta Íslands og Svavar Halldórsson sambýilismaður hennar eignuðust dóttur í morgun og heilsast móður og barni vel.
18.maí 2012 - 13:00

Bregðast við kreppunni með því að fækka frídögum um tvo: Ætla með því að skapa 20.000 ný störf

Danska ríkisstjórnin og verkalýðsfélög hafa komist að samkomulagi um að sleppa úr tveimur frídögum á hverju ári og skapa með því 20.000 ný störf. Með þessu móti á danski ríkissjóðurinn einnig að gildna um heila 80 milljarða króna á ári. Fækkun frídaga hefur aldrei komið til umræðu hér á landi en vilji er fyrir því innan Samtaka atvinnulífsins að færa til frídaga, einkum þá sem koma upp á fimmtudögum.


18.maí 2012 - 12:00

Bílapressan - nýr vefur um bíla, fylgihluti, vélhjól og samgöngur á Pressunni

Nýr efnisþáttur, Bílapressan, hefur göngu sína á Pressunni á hádegi í dag. Eins og nafnið gefur til kynna verður þar fjallað um bíla og bílatengt efni út frá sjónarmiðum bíleigenda og bílkaupenda.


18.maí 2012 - 11:00

Reiðhjólaslysum fjölgað um 90%: Langflest slysin verða á höfuðborgarsvæðinu

90% fjölgun hefur orðið á reiðhjólaslysum frá árinu 2002. 70% allra þessara slysa eru á höfuðborgarsvæðinu.


18.maí 2012 - 09:33

Framboð Þóru sagt reka á reiðanum: Þið þarna rífið ykkur upp af rassinum!

Framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta hefur rekið á reiðanum í tvær vikur. Enginn virðist passa sjoppuna meðan hún er í fæðingarfríi, segir fyrrverandi ritstjóri sem fullyrðir að forsetaefni getur aldrei verið i fríi af neinu tagi.
18.maí 2012 - 09:05

Segja olíufélögin hafa hækkað álagninguna verulega: Eldsneytisverð hefur lækkað en of lítið

Það sem af er máímánuði er álagning olíufélaganna á bensín 6-7 krónum yfir meðalálagningu síðustu ára aðteknu tilliti til vísitölu neysluverðs og gengis dollars gagnvart krónunni.
17.maí 2012 - 16:58

Forsetahjónin í opinberri heimsókn í Tékklandi: Tékkar hafa engin áform um upptöku evru

Forsetarnir hlýddu á þjóðsöngva landanna við komuna til Prag. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og forseti Tékklands Václav Klaus fjölluðu á fundi sínum í morgun, fimmtudaginn 17. maí, um þróun mála í Evrópu, afleiðingar fjármálakreppunnar fyrir efnahagslíf álfunnar og hvort stöðugleiki kunni að skapast á evrusvæðinu. Fundurinn, sem haldinn var í Pragkastala, var upphaf opinberrar heimsóknar forseta Íslands til Tékklands. Áður hafði verið formleg móttökuathöfn við kastalann.
17.maí 2012 - 16:00

Öðruvísi mér áður brá: Iceland Express alltaf á réttum tíma með tékknesku leiðinni

Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
17.maí 2012 - 14:00

Hús Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum: Vinningshús Artitektúrs opnar 2014

Arkitektastofan Arkitektúr varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um hús fyrir alþjóðlega tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Framkvæmdir hefjast á næsta ári og lýkur 2014. Alþjóðlega tungumálamiðstöðin verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
17.maí 2012 - 12:00

Annar stjórnarflokkurinn vill ganga úr NATO: Vinna ötullega þar til markmiðinu er náð

Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík vill að þingmenn flokksins vinni ötullega að því að Ísland gangi úr Atlantshafsbandalaginu (NATO) þar til markmiðinu er náð. Ekkert bendir til þess að flokkurinn hafi unnið samkvæmt þessari stefnu í stjórnarsamstarfinu við Samfylkinguna.
17.maí 2012 - 10:03

Er barnið þitt haldið tölvufíkn? Allt of mörg börn ráða ekki við að stjórna tölvunotkun sinni

Alltof mörg börn ráða ekki við að stjórna tölvunotkun sinni og eiga erfitt með að fara eftir reglum foreldra sinna. Það má þó ekki gleyma að tölvur eru mikilvægur og nauðsynlegur hluti af lífi barna og unglinga.
17.maí 2012 - 08:52

Tengsl milli astma og útblásturs frá jarðgufuvirkjunum rannsökuð: Fleiri þurfa astmalyf

Fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem staðið hefur yfir í þrjú ár leiða í ljós tengsl útblásturs frá jarðvarmavirkjunum.
16.maí 2012 - 20:24

Tveir af stærstu vefjum landsins sameinast: Sameinað vefsvæði Bleikt og Pressunnar

Tvær af vinsælustu vefsíðum landsins runnu saman í dag þegar Bleikt.is, varð sjálfstæður vefhluti á Pressunni. Er markmiðið að sameinaður fjölmiðill verði einn sá stærsti á landinu á næstu vikum og mánuðum. Þá verður samstarf aukið milli Pressunnar og Eyjunnar, einkum þegar kemur að stjórnmálaskrifum.
16.maí 2012 - 17:22

Nýr formaður Lögmannafélagsins verður kjörinn undir lok mánaðarins: Brynjar Níelsson gefur ekki kost á sér

Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður hefur ákveðið að láta af formennsku í Lögmannafélagi Íslands, en aðalfundur þess verður síðar í mánuðinum. Brynjar hefur gegnt formennsku í Lögmannafélaginu síðastliðin tvö ár.
16.maí 2012 - 16:00

Kostnaður við hvern hælisleitanda á mánuði 215.000 kr. - öryrkjar fá 173.000 kr.

Jón Magnússon, lögmaður og fyrrum alþingismaður, segir menn veigra sér við að taka þátt í umræðu um ólöglega innflytendur af ótta við að vera stimplaðir kynþáttahatarar. Staðreyndin sé hins vegar sú að ólöglegum innflytjendum fjölgi nú sem aldrei fyrr enda hafi spurst út að hér sé tekið á málum af linkind. Kostnaður við hvern hælisleitanda er að meðaltali 215.000 kr.  á mánuði en öryrkjar fá 173.000 kr. og ellilífeyrisþegar 166.000 kr.


16.maí 2012 - 14:50

Húshitunarkostnaður tæpum 400.000 kr. lægri á ári í Reykjavík en Kaupmannahöfn

Verð á orku og þjónustu Orkuveitunnar er allt að fjórum sinnum lægra en í Kaupmannahöfn, þar sem verðið er hæst í höfuðborgum Norðurlandanna. Í öllum tilvikum nema einu er þjónustan ódýrust í Reykjavík en minna er greitt fyrir fráveitu í Stokkhólmi.



16.maí 2012 - 12:05

Sigurður Einarsson dæmdur til að greiða Kaupþingi tæpar 500 milljónir kr.: Frysting á eignum hans staðfest

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurð Einarsson, fyrrum forstjóra Kaupþings, til að endurgreiða Kaupþingi tæpar 500 milljónir króna.

16.maí 2012 - 11:00

Fimm ár í dag frá láti dótturinnar: Einstök lýsing á harmi fjölskyldu og árunum eftir missinn

Gréta Ingþórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri þingsflokks Sjálfstæðisflokksins, minnist þess í pistli á Pressunni, að fimm ár eru liðin frá því dóttir hennar lést af völdum krabbameins. Pistillinn er opinská lýsing á harmi fjölskyldu og hvernig hún tekst á við hann.



Gréta Ingþórsdóttir
Gréta Ingþórsdóttir - 16.5.2012
Lífið er dásamlegt – í minningu barns
Vilhjálmur Steinarsson
Vilhjálmur Steinarsson - 19.5.2012
6 verstu mistökin
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 18.5.2012
Einmana súkkulaðikaka- UPPSKRIFT
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 15.5.2012
Grýttur jarðvegur
Sölvi Tryggvason
Sölvi Tryggvason - 15.5.2012
Stoltir af steranotkun
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 17.5.2012
Hvað skyldi Guðmundur Andri skrifa núna? Og Illugi?
Ólafur Arnarson
Ólafur Arnarson - 15.5.2012
Gott hjá Ólínu
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 15.5.2012
Dómur yfir hælisleitendum
Sverrir Björn Þráinsson
Sverrir Björn Þráinsson - 17.5.2012
Hversu svöng erum við í raun?
Fannar Karvel
Fannar Karvel - 15.5.2012
Árangur í einu orði
Ólafur Margeirsson
Ólafur Margeirsson - 15.5.2012
Er vaxtahækkun svarið?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 21.5.2012
Golf fyrir alla 2 (Grafarholtsvöllur) 6.hola - Myndband
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 18.5.2012
Lýðræðislegt ofbeldi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 21.5.2012
Davíð Oddsson og Evrópusambandið
Ragga Nagli
Ragga Nagli - 22.5.2012
Rútínurask
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.5.2012
Rússagrýlan
Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson - 16.5.2012
Við getum fækkað umferðarslysum
Brynjar Eldon Geirsson
Brynjar Eldon Geirsson - 22.5.2012
Golf í Vestmannaeyjum
Fleiri pressupennar