19.jún. 2013 - 15:30
Stefán Logi Sívarsson og Þorsteinn Birgisson voru í Hæstarétti í dag sýknaðir af ákæru um nauðgun gegn stúlku á tvítugsaldri. Mönnunum var í ákæru gefið að sök að hafa, með ofbeldi og ólögmætri nauðung, þröngvað stúlkunni til samræðis og annarra kynferðismaka en þeir neituðu sök.
19.jún. 2013 - 14:22
Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinn. Efni póstsins hefur þá verið:
„Staðfesting reiknings Alerts“
19.jún. 2013 - 11:40
„
Það eina sem hefur vantað er sólin. Að öðru leyti hefur þetta bara verið mjög fínt, milt veður og hiti yfir meðaltali. Sumarið er löngu komið,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Pressuna. Hún segir helgarspána góða, aðeins bjartara verði yfir landinu og hægur vindur.
19.jún. 2013 - 10:52
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.
18.jún. 2013 - 21:05
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir létti sig um 40 kíló á síðastliðnum 2 árum. Hún segir á einlægan og opinskáan hátt frá baráttu sinni við aukakílóin en hún prófaði marga mismundandi megrunarkúra áður en hún náði þeim árangri sem hún stefndi að.
18.jún. 2013 - 18:50
Kristján Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, hvers vegna séreignasparnaðarleið Sjálfstæðisflokksins væri ekki að finna í þingsályktunartillögu forsætisráðherra um aðgerðir vegna skuldavanda íslenskra heimila.
18.jún. 2013 - 11:45
Mynd dagsins er af fjölmiðlamanninum Sigmari Vilhjálmssyni, betur þekktur sem Simmi Vill, en hann var fluttur með sjúkrabíl á 8 ára brúðkaupsafmæli sínu eftir að hafa fengið þursabit í ræktinni. Simmi sem er annar eigandi Hamborgarafabrikkunnar greinir frá þessu á Facebook-síðu.
18.jún. 2013 - 10:39
Mikill áhugi var fyrir sumarstörfum hjá hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software, en rúmlega 100 umsóknir bárust í TM Software Labs fyrir tölvunarfræðinema. 9 nemendur fengu vinnu í Labs fram í lok ágúst.
18.jún. 2013 - 09:47
Jón Hilmar Hallgrímsson, betur þekkur sem Jón stóri, varð bráðkvaddur á heimili sínu í nótt. Hann var 34 ára gamall. Jón var ókvæntur og barnslaus en lætur eftir sig unnustu.
17.jún. 2013 - 17:15
Mynd dagsins er af átta Íslendingum sem í dag voru heiðraðir á Bessastöðum. Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands og Óli H. Þórðarson fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs eru í hópi þeirra níu Íslendinga sem forseti Íslands sæmdi í dag heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
17.jún. 2013 - 12:35
„Mikilvægi menntunar fyrir okkar fámennu þjóð verður seint ofmetið. Þekking er og verður undirstaða framfara. Íslendingar hafa upplifað miklar framfarir frá lýðveldisstofnun, framfarir sem þjóðin hefur unnið að í sameiningu, framfarir sem byggjast ekki síst á þekkingu, bjartsýni og því að þjóðin hafði til að bera þann kjark sem þurfti til að ráðast í að byggja upp samfélagið til lengri tíma.“
17.jún. 2013 - 10:00
Steinunn Stefánsdóttir var kosin formaður Kvenréttindafélags Ísland á aðalfundi félagsins þann 11.júní síðastliðinn. Fríða Rós Valdimarsdóttir verður varaformaður og í stjórn voru einnig kosnar Eygló Árnadóttir,Helga Dögg Björgvinsdóttir, Hildur Helga Gísladóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Hugrún R. Hjaltadóttir og Ragnhildur G. Guðmundsdóttir.
17.jún. 2013 - 09:00
Íris Elfa Friðriksdóttir er ein af þeim fjölmörgu listamönnum sem sýnir um þessar mundir á útisýningunni „Undir berum himni“ sem er hluti af Listahátíð Reykjavíkur og stendur til 25. ágúst. Íris útskrifaðist á sínum tíma úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands en hefur fengist við fjölbreytt verk í gegn um tíðina.
16.jún. 2013 - 15:48
Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit hefur ákveðið að loka alveg svæðinu við Leirhnjúk, norðvestur af Kröflu, fyrir ferðamönnum frá og með morgundeginum, 17. júní, um óákveðinn tíma. Áberandi skilti um lokun verða sett upp svo ekkert fari á milli mála.
16.jún. 2013 - 11:00
Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi nýlega í máli sem höfðað var gegn nokkrum aðilum vegna brota á lögum um umgengni við nytjastofna sjávar en málið kom upp á Bíldudal í júlí 2009.
16.jún. 2013 - 10:30
Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrarbæjar, afhentu í gær styrki úr Háskólasjóði KEA við athöfn sem fram fór á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð.
15.jún. 2013 - 19:33
„Ég hef alltaf átt þann draum að opna veitingastað, nú kom til þess tækifæri og ég lét verða af því,“ segir Þorsteinn Sæþór Guðmundsson kerfisfræðingur og matreiðslumaður úr Reykjavík, sem rekur nú Veitingastaðinn Þorpið á Patreksfirði, sem slegið hefur í gegn meðal heimamanna og ferðamanna nú í sumar.
15.jún. 2013 - 16:00
Fjórir sæfarar, þeir Einar Örn Sigurdórsson, Eyþór Eðvarðsson, Kjartan Jakob Hauksson og Svanur Wilcox, eru á leið yfir Atlantshafið á sérstökum úthafsróðrarbát og róa nú öllum árum til Kirkwall í Orkneyjum sem er fyrsti viðkomustaður þeirra á leið yfir hafið. Í fyrsta skipti síðan þegar lögðu af stað frá Sirivåg í Noregi snemma mánudagsmorgun eru þeir með vindinn í bakið.
14.jún. 2013 - 20:45
Leikkonan Edda Björgvinsdóttir var stöðvuð tvisvar af lögreglu í sömu ferðinni á leið sinni frá Reykjavík vestur til Bolungarvíkur. Ástæðan var þó ekki sú að Edda væri að keyra of hratt miðað við aðstæður, hún fór svo hægt að laganna verðir töldu að ökutækið væri bilað.
14.jún. 2013 - 16:45
Í gær, þann 13. júní, skrifuðu fulltrúar Auroru velgerðasjóðs, Rauða krossinum á Íslandi og Vinafélags Vinjar undir þriggja ára styrktarsamning til að tryggja rekstur Vinjar sem er athvarf fólks með geðraskanir.
14.jún. 2013 - 13:42
Það var heldur stutt gamanið hjá unga ökumanninum sem lögreglan stöðvaði á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Sá var í sinni allra fyrstu ökuferð, en viðkomandi hafði öðlast ökuréttindi nokkrum mínútum áður en lögreglan stóð hann að hraðakstri.
14.jún. 2013 - 11:00
„
Hann er á gjörgæslu strákurinn minn. Þetta hefði getað endað mjög illa. Ég er þakklátur fyrir að þetta fór ekki verr,“ segir Jóhannes William Grétarsson faðir fimm ára drengs sem lenti í alvarlegu slysi þegar hestur sem hann sat á fældist eftir að ökumaður á hraðferð þandi flautuna ítrekað til að komast leiðar sinnar.
14.jún. 2013 - 10:51
Dagana 14. – 18. júní mun Flugfélag Íslands bjóða öll fargjöld innanlands án skatta og gjalda sé bókað á netinu. Eina sem þarf að gera er að fara inná vef félagsins og slá inn flugsláttinn SUMAR. Þetta er gert til að koma til móts við landsmenn sem vilja nýta sér flugið innanlands í sumar.
14.jún. 2013 - 09:00
Sylvía Rut Sigfúsdóttir
Sverrir Berg Steinarsson er fyrrum verslunarrekandi og viðskiptamaður. Nú á dögunum gaf hann út sína fyrstu bók, Drekinn. Sverri hafði lengi gælt við það að reyna að skrifa bók en aldrei haft tíma eða tækifæri til þess.
14.jún. 2013 - 08:00
Ef einhver skyldi velkjast í vafa um þau áhrif sem einn maður getur haft innan bílaheimsins skyldi sá sami leiða hugann að þeirri byltingu sem Þjóðverjinn Peter Schreyer hefur innleitt hjá Kia. Schreyer er sennilega áhrifamesti bílahönnuður samtímans.
13.jún. 2013 - 22:07
Lögreglunni á Vestfjörðum barst skömmu fyrir hádegi í dag tilkynning um alvarlegt umferðarslys í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi. Lögregla og sjúkrabifreið var send frá Ísafirði og þá var þyrla frá Landhelgisgæslunni send á slysstað.
13.jún. 2013 - 13:30
Mynd dagsins er af kannabisplöntum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann við húsleit í Garðabæ í gær. Lagt var hald á 25 plöntur, auk búnaðar sem tengdist starfseminni en ræktunin var falin á millilofti í húsnæðinu. Þá var einnig lagt hald á verulegt magn af stinningarlyfjum.
13.jún. 2013 - 07:00
Háskóli unga fólksins stendur nú sem hæst í Háskóla Íslands en skólann sækja nemendur víða af landinu og af fjölbreyttum uppruna. Í hópnum í ár eru meðal annarra ungir Íslendingar af erlendum uppruna sem sækja skólann fyrir tilstyrk Nýherja.
12.jún. 2013 - 23:00
Leitin að manninum sem féll í Hjaltadalsá í gær hefur engan árangur borið. Tugir björgunarsveitamanna hafa verið við leit í og við ána. Í samráði við lögreglu hefur verið hægt á leitinni. Björgunarsveitir eru komnar í hvíld þar til í fyrramálið en þá hefst leit að nýju.
12.jún. 2013 - 18:15
Mynd dagsins tók Hörður Geirsson af orrustuþotum á Akureyri. Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst á mánudaginn með komu flugsveitar ítalska flughersins.
12.jún. 2013 - 16:10
Þannig kemst indverska prinsessan að orði en hún hefur nú skorað á Bubba Morthens í tónlistareinvígi í Bandaríkjunum. Fyrr í morgun birti Bubbi pistil á Pressunni sem vakið hefur mikla athygli. Þar bað Bubbi Leoncie um að hafa sig hæga, nóg væri komið af svívirðingum í garð íslenskra tónlistarmanna.
12.jún. 2013 - 12:36
„Leoncie; farðu að að þegja. Það er komið nóg af ásökunum og svívirðingum í garð íslenskra tónlistarmanna sem margir hverjir hafa reynst þér vel. Þú ert einfaldlega dóni með hrikalegt ofmat á eigin getu og hæfileikum.“
12.jún. 2013 - 10:06
SNJALLGREIÐSLUR HANDPOINT er glæný, einföld og ódýr greiðslulausn sem veitir einyrkjum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum möguleika á að taka á móti kortagreiðslum án þess að greiða mánaðargjöld, líkt og nú tíðkast með hefðbundnum posum. Lausnin samanstendur af ókeypis Handpoint appi, snjallsíma eða spjaldtölvu og Handpoint snjallposanum, sem er greiðslukortalesari.
11.jún. 2013 - 21:57
Á sjöunda tug björgunarsveitamanna er við leit í og við Hjaltadalsá þar sem minkaveiðimanns er saknað eftir að hann féll í ána í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns og hefur ekki sést til hans síðan.
11.jún. 2013 - 20:15
Dómharður en duglegur, áhrifagjarn en hugmyndaríkur, hvatvís en geðgóður, fórnfús og móðgunargjarn. Með þessum orðum lýsir leikarinn Rúnar Freyr Gíslason kostum sínum og löstum.
11.jún. 2013 - 16:49
Björgunarsveitir frá Blönduósi að Siglufirði hafa verið kallaðar út til leitar að minkaveiðimanni er féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal fyrr í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns og hefur ekki sést til hans síðan.
11.jún. 2013 - 14:50
Börkur Birgisson sem ákærður er fyrir stórfellda líkamsárás var borinn inn í Héraðsdóm Suðurlands í dag en þar var mál gegn honum og Annþóri K. Karlssyni þingfest. Þann 18. apríl sl. lauk lögreglan á Selfossi rannsókn á láti refsifanga á Litla-Hrauni sem lést í klefa sínum þann 17. maí 2012.
11.jún. 2013 - 10:40
Árni Johnsen, fyrrum þingmaður, heldur til Kænugarðs í Úkraínu síðar í vikunni þar sem Þjóðarsinfóníuhljómsveit Úkraínu hljóðritar tónverk hans sem kallast Sólarsvítan.
11.jún. 2013 - 09:30
Róðrarkapparnir fjórir, Einar Örn Sigurdórsson, Eyþór Eðvarðsson, Kjartan Jakob Hauksson og Svanur Wilcox, sem ætla að róa yfir Atlantshafið á sérstökum úthafsróðrarbát, eru nú á leið til Orkneyja en það er fyrsti viðkomustaðurinn á leið þeirra frá Noregi til Íslands.
10.jún. 2013 - 17:45
Klukkan ellefu í morgun fékk lögreglan tilkynningu um að sést hefði til tveggja ísbjarna í grennd við byggð í Svínadal. Íbúar höfðu nokkrar áhyggjur en þeir höfðu fylgst með dýrunum um tíma sem þó voru í nokkurri fjarlægð frá bænum.
10.jún. 2013 - 15:50
Aron Hinriksson, grunnskólakennari á Selfossi, kvaddi bekk sinn til fjögurra ára á föstudaginn síðastliðinn þegar 10. AH útskrifaðist úr grunnskóla. Þessari útskrift fylgir falleg saga sem sýnir okkar hversu vel innrættir unglingar þessa lands geta verið nú til dags.
10.jún. 2013 - 14:30
Mynd dagsins tók Gísli Friðrik Ágústsson fyrir utan IKEA. Þar hafði kona lagt bíl sínum á ská yfir tvö stæði sem eru ætluð fötluðum. Gísli segir að konan hafi sent honum fingurinn þegar hann tók mynd af bílnum.
10.jún. 2013 - 12:30
„Hún kipptist að hótelinu og lenti utan í byggingunni,“ segir Sóldís Elfa Loftsdóttir sem varð vitni að því þegar fallhlífastökkvari var hætt kominn eftir að hafa stokkið fram af hóteli á Benidorm.
10.jún. 2013 - 08:29
Lögreglan stöðvaði í síðustu viku spænskan ferðamann sem ók á 170 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi. Er þetta ekkert einsdæmi en svo virðist sem ferðamenn virði ekki alltaf hámarkshraðann hér á landi.
09.jún. 2013 - 18:45
Eyþór Kolbeinn Kristbjörnsson sem á föstudaginn var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot gegn 12 ungum stúlkum braut gegn minnst fjórum stúlkum á skömmum tíma eftir að gæsluvarðhaldsúrskurður gegn honum rann út.
09.jún. 2013 - 18:00
Skákhátíð í Árneshreppi verður haldin dagana 21. til 23. júní og sem fyrr verður boðið upp á fjölda skemmtilegra viðburða fyrir áhugamenn úr öllum áttum. Þetta er sjötta skákhátíðin á Ströndum, sem hefur unnið sér sess sem fastur liður í skákdagatalinu
09.jún. 2013 - 14:45
Nú er sumarið gengið í garð og margir farnir að huga að gönguferðum. Við hjá Pressunni vildum kanna hverjar tíu skemmtilegustu gönguferðir á Íslandi væru. Nefnd álitsgjafa var sett saman og hún beðin um að telja upp þær tíu sem þeim finnst skemmtilegastar. Athugið að leiðirnar eru ekki í neinni sérstakri röð.
09.jún. 2013 - 11:59
Gunnar Bender
Veiðin hefur byrjað betur en margir áttu von, reyndar áttu menn alls ekki von á mikilli veiði. Norðurá hefur gefið 30 laxa og Blanda er komin með 15 laxa. Lítið hefur frést af Straumunum í Borgarfirði ennþá en Brennan hefur gefið einn lax.
08.jún. 2013 - 10:45
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti í gær norrænu frímerkjasýninguna Nordia 2013 á afmælisári íslenska frímerkisins. NORDIA 2013 fer fram í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ og er stærsti viðburður norrænna frímerkjasafnara á árinu. Reiknað er með á þriðja hundrað erlendra gesta til landsins af þessu tilefni. Forseti Íslands er verndari NORDIA 2013.
07.jún. 2013 - 19:00
Anna Lovísa Þorláksdóttir er ótrúlega sterk og hugrökk kona. Hún var alltof feitur krakki og unglingur sem tók sig á svo um munar. Hún er um þessar mundir að útskrifast með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði þar sem hún skrifaði um áhrif offitu á félagslegu hliðina.