11. ágú. 2012 - 09:30
Erna Gunnþórsdóttir var tekin í yfirheyrslu um helgina
Erna Gunnþórsdóttir er á þriðja ári í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Hún vinnur einnig við fyrirsætustörf í hjáverkum. Hún hefur haft blendnar tilfinningar til fyrirsætustarfa og hætt oft en byrjað síðan aftur. Erna kom fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum og var þá þekkt fyrir ögrandi myndir í tímaritum á borð við Bleikt og blátt. Pressan tók Ernu í yfirheyrslu og komst m.a. að því að hún er einlægur aðdáandi History channel og finnst fátt leiðinlegra en persónuárásir á kommentakerfum.
Fjölskylduhagir? Er trúlofuð Óla Rúnari og saman eigum við tvo stráka. Jón Inga sem er 4. ára og Gunnþór sem er tæplega 3. ára.
Menntun/atvinna?
Ég er að hefja mitt þriðja ár í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Ég stunda einnig fyrirsætustörf í hjáverkum. Ég hef haft blendnar tilfinningar til fyrirsætustarfa í gegnum tíðina og hef hætt ansi oft og byrjað síðan aftur. Neikvæð gagrýni fylgir því að stunda þessa tegund fyrirsætustarfa sem í dag er nefnd glamúr og hún getur svosem verið réttmæt. Myndir af þessu tagi eru oft alveg „á mörkunum“ og virðist snerta strengi siðapostula samfélagsins.
Uppáhalds Sjónvarpsefni? Ég hef gaman að fræðsluþáttum og er einlægur aðdáandi Discovery channel, History channel og National geographic. Þegar kemur að gamanþáttum þá eru uppáhaldsþættirnir mínir Vampire diaries, Buffy the vampire slayer, Angel og Nurse Jackie. Ég er núna að horfa á Game of thrones en ég verð að viðurkenna að þessi þáttur er ekki enn búinn að fanga aðdáun mína. Mér líður eins og ég sé að horfa á miðaldaútgáfuna af Glæstum vonum.
Leikari? Það er svo mikið til af hæfileikafólki en þeir sem koma fyrst upp í hugann eru Ewan McGregor, Edward Norton og Christian Bale af karlkyns leikurum. Meryl streep og Natalie Portman eru mjög góðar leikkonur.
Rithöfundur? Ég hef lesið mikið í gegnum tíðina og á uppáhalds bækur en ekki uppáhalds rithöfunda. Glerfjallið eftir Aðalstein Ásberg, Skuggi vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón, Dýragarðsbörnin eftir Kristjönu F, Ég man þig eftir Yrsu Sigurðar og Ein til frásagnar sem er saga Immaculée Ilibagiz. Þetta eru þær bækur sem koma fyrst upp í hugann þegar ég hugsa um eftirminnilegar sögur.
Bók eða bíó? Ef ég hefði meiri tíma þá væru það bækur en ég er í fullu háskólanámi þar sem ég er alltaf lesandi og með tvö lítil börn. Þá er meira freistandi að fara í bíó þegar maður fær tækifæri til að bregða sér frá. Bíóferð er bæði tilbreyting og afþreying þar sem ég get fjarlægt mig aðeins frá raunveruleikanum. Þegar maður les bækur fær maður að skapa umhverfið í kringum það sem maður les en kvikmyndir gera ekki sömu kröfur, þær í raun mata mann á sýn einhvers annars.
Besti matur?
Nautakjöt, svínabógur, Mcflurry, karmelludýr (frá Góu), hnetusmjör og morgunkorn. Ég er með mikið hömluleysi þegar það kemur að morgunkorni. Það lýsir sér þannig að ég ét allan pakkann þegar ég kemst í það. Ég er mikil dellumanneskja og það er alltaf eitthvað eitt sem ég er með æði fyrir á hverjum tíma. Núna er það lakkrís með marsípani.
Kók eða Pepsí? Pepsí og þá sérstaklega pepsí max.
Fallegasti staðurinn?
Fegurð fyrir mér eru hughrif og mikilfengleg náttúra fangar mig ekkert sérstaklega. Ég er með mikinn áhuga á eyðibýlum og fer hvert sumar að skoða slíkt. Ég er þá með síðustu ábúendaupplýsingar með mér og upplýsingar um jörðina ef það er til. Ég hef mikinn áhuga á minjum um menningu. Það er svo sérstakt að fara að eyðibýli, tala nú ekki um ef þau eru afskekkt, að ganga inná svæði þar sem einu sinni voru hlátur og líf og nú er bara ekkert nema minningar um það sem áður var. Þetta hrífur mig og þar af leiðandi eru eyðibýli fallegustu staðirnir sem ég fer á.
Hvað er skemmtilegt? Fjölskyldan mín, saga, fornleifafræði, lífeðlisfræði, teikning, photoshop, list, arkitektúr, útihlaup og líkamsrækt. Ég hef mikinn áhuga á mannslíkamanum og ritrýndum upplýsingum. Ég er á móti bullvísindum og gervifræðum sem varða gervifæðu í formi fæðubótaefna. Sama á við ofstækisáróður sem settur er fram af fólki sem er ekki menntað á þessu sviði og kann ekki að nota heimildir.
Hvað er leiðinlegt? Það er fátt sem mér finnst leiðinlegra en persónuárásir á kommentakerfum. Mér finnst sárt að sjá hvað fólk getur verið tillitslaust. Ég tala nú ekki um þegar það ber fyrir sig málfrelsi og skoðanafrelsi. Illa ígrundaðar skoðanir eru ekki einkamál og geta verið beinlínis hættulegar, rasismi og fordómar eru dæmi um það. William K. Clifford lýsti þessu mjög vel í „Rétturinn til sannfæringar“. Það að vera kurteis og særa ekki aðra er ef til vill eitthvað sem maður ætti að temja sér fram yfir það að lifa í þeirri hugsum að telja það vera sinn rétt að skrifa ókvæðisorð í skjóli tölvuskjásins.
Það voru skrif um mig í DV um daginn og það sem stóð upp úr á kommentakerfinu þar, var að landsfrægur feministi lét ummæli falla sem mér þótti heldur leiðinleg. Ég get ekki skilið hvernig einstaklingur sem berst fyrir mannréttindum finnst það í lagi að svipta mig þeim grunnmannréttindum að vera ekki að tala illa til mín og niðurlægja á opinberum vettvangi. Það sem mér finnst ef til vill verst við þetta er að þetta er kona sem ég hef hingað til borið virðingu fyrir.
Hvaða flokkur? Ég hálf skammast mín fyrir áhugaleysi mitt þegar kemur að stjórnmálum. Ég er frjálshyggjumanneskja í grunninn og kann illa við að lifa við stýringu þar sem allt er bannað vegna þess að það þarf að hafa vit fyrir fólki.
Hvaða skemmtistaður? Ég hef ekki drukkið áfengi síðan 2006. Ég er bindindismanneskja og hef ekki farið á skemmtistað síðan það mátti reykja þar inni. Ég tel mig ekki hafa neitt að sækja niður í miðbæ, ég er ekki fyrir það að vera í kringum mikið af fólki og er einfari í eðli mínu.
Kostir:
Dugleg, ákveðin, ábyrg, stundvís, áreiðanleg, löngun til að vera réttsýn, kærleiksrík, nægjusöm, gáfuð, traust, góður vinur, brosmild og glöð.
Lestir? Þver, get verið hrokafull, klaufi, morgunfúl, á erfitt með að treysta fólki, á erfitt með að fyrirgefa, skapstór, einræn, reiðist auðveldlega og ég er draslari.
Hver er fyndinn? Unnusti minn getur verið mjög hnyttinn og skemmtilegur. Pabbi minn er líka húmoristi
Hver er leiðinlegur?
Fólk er ekki leiðinlegt en hegðun getur verið það. Fólk sem er alltaf reitt og tuðandi yfir öllu er mjög fráhrindandi.
Trúir þú á drauga? Ég hef aldrei séð draug en ég hef enga ástæðu til að efast um að þeir sem segjast hafa séð eitthvað yfirnáttúrulegt séu bara ímyndunarveikir og alveg í ruglinu. Það er svo margt í þessu lífi sem við getum ekki útskýrt. Ég trúi því ekki að þessi jörð og það sem vísindin geta útskýrt sé það eina sem til er í þessum heimi.
Stærsta augnablikið? Fæðing barnanna minna
Mestu vonbrigðin?
Ég var lögð í einelti í barnaskóla og sá tími er fullur af vonbrigðum og sársaukafullum minningum.
Hver er draumurinn? Verða hjúkrunarfræðingur og vera góð móðir. Ég er mjög hamingjusöm í dag og tel mig vera að lifa í mínum draumi.
Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Það mun koma í ljós á næstu mánuðum
Ertu búin að ná öllum þínum markmiðum? Nei, en ég er að vinna að því
Manstu eftir einhverjum brandara? Nei, ég er alveg hræðileg í að segja brandara ég fer alltaf að hlægja eða gleymi þeim í miðri sögu. Ég er meira að segja farin að hlægja núna þegar ég er að skrifa þetta og veit ekkert hversvegna
Mikilvægast í lífinu?
Vera góð manneskja og heiðarleg við sjálfa mig og aðra. Að láta drauma mína rætast og njóta hverrar stundar.
22.maí 2013 - 17:40
Pálmi Hilmarsson sem starfað hefur sem húsvörður á Laugarvatni um árabil sagði í samtali við Pressuna að það væri afar jákvætt fyrir staðinn að stjórnmálaforingjarnir skyldu hafa valið Héraðsskólann á Laugarvatni til að skrifa undir stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar.
22.maí 2013 - 15:30
Lík sem ferðafólk gekk fram á í Kaldbaksvík á Ströndum þann 17. maí sl. er af Gunnari Gunnarssyni, fæddum 1962.
22.maí 2013 - 14:36
Ruth Ásdísardóttir
Það má með sanni segja að ævintýralegir hlutir séu að gerast í lífi Gunnars Andra og eftir aðeins nokkurra mínútna spjall, er blaðamaður orðinn fullur eldmóðs vegna verkefnanna sem bíða hans. En, skemmst er frá því að segja að hann er að gefa út bók í samvinnu við
Brian Tracy, sem þarf að sjálfsögðu ekki að kynna. Bókin er væntanlega í september á þessu ári og heitir
Against the Grain.
22.maí 2013 - 13:30
Heimilisköttur sem hafði verið saknað um skeið fannst dauður á hafnarsvæðinu í Bolungarvík í gær en kötturinn hafði verið skotinn. Kötturinn var í eigu sjö ára stúlku.
22.maí 2013 - 08:54
Tveir menn brutu upp hurð á íbúð í Vesturbænum, ruddust inn og réðust á húsráðanda. Maðurinn hlaut áverka í andliti.
21.maí 2013 - 21:23
Miðstjórnarfundir Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks eru hafnir. Á fundunum kynna þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson flokksmönnum sínum málefnaáherslur nýrrar ríkisstjórnar og verkaskiptingu. Eyjan birtir hér skiptingu ráðuneytanna milli flokkanna og færir lesendum fréttir af miðstjórnarfundunum.
21.maí 2013 - 15:30
Mynd dagsins tók Ágúst G. Atlason af Sveinbirni Hjálmarssyni, eða Simba eins og hann er kallaður í daglegu tali. Simbi er þekktur fyrir að birta skopmyndir af sér á Facebook-síðu sinni en hann birtir eina á dag.
21.maí 2013 - 12:19
Kona á Suðurnesjum sem hafði áhyggjur af heilsu eiginmanns síns óskaði fyrir skömmu eftir aðstoð lögreglu til að reyna tala um fyrir eiginmanni sínum. Hún kvaðst vera orðin langþreytt á mataræði hans.
21.maí 2013 - 11:00
„Í gegnum árin hef ég reynt að horfa fram hjá hvernig sumir hafa skrifað um mig á kommentakerfum en nú er nóg komið,“ skrifar tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens í pistli sem birtur var hér á Pressunni í morgun.
21.maí 2013 - 09:10
Um klukkan 01:00 að íslenskum tíma náði Ingólfur Geir Gissurarson því magnaða afreki að komast á topp Everest fjalls. Ingólfur er elstur Íslendinga til að ná toppi þessa hæsta fjalls heims en hann er 50 ára gamall. Everest er hvorki meira né minna 8,848 metrar á hæð.
21.maí 2013 - 08:00
Heimilislæknirinn Vilhjálmur Ari Arason segir að fjórða hvert barn komi á bráðamóttökuna í Huddinge í Svíþjóð vegna taugaeinkenna sem tengjast (TBE). TBE er veiruheilabólga sem berst í fólk með biti skógarmítils.
20.maí 2013 - 18:00
Það er ótrúlegt til þess að hugsa að það eru liðin 20 ár síðan Toyota frumkynnti RAV4. Ekki nóg að bíllinn væri nýr frá Toyota heldur markaði hann upphafið að nýjum flokki bíla, götujepplingaflokkinn. Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar og samkeppnin er eitilhörð í þessum stærðarflokki. Flestir framleiðendur bjóða fram sinn valkost í flokknum. Það er ekki síst af þeirri ástæðu að framleiðendur verða að vera á tánum og bjóða endurnýjaðar útfærslur og nýjar kynslóðir sinna jepplinga til að vera með í slagnum.
20.maí 2013 - 13:15
Íslandsþáttur Simpsons-fjölskyldunnar var frumsýndur vestanhafs í gærkvöldi. Í þættinum ómaði tónlist Sigur Rósar og var sögusviðið Ísland. Þar talaði Hómer m.a. íslensku eins og heyra má í myndskeiðinu hér fyrir neðan.
20.maí 2013 - 11:09
Gunnar Bender
Samkvæmt heimildum Veiðipressunnar hefur samningum við Pálma Gunnarsson og félaga um Eldavatn í Meðalandi verið rift en veiðifélagið gerði fyrir skömmu samning við þá til sjö ára og áttu þeir að greiða næstum 28 milljónir, 4 milljónir á ári.
20.maí 2013 - 10:00
Leikarinn Stefán Karl Stefánsson gagnrýnir foreldra í Vesturbænum fyrir að grípa ekki í taumana þegar þau urðu vitni að því að tveir ungir drengir, um níu ára gamlir, stóðu úti á miðri götu og öskruðu ókvæðisorðum á annan pilt.
20.maí 2013 - 09:00
Já sem rekur meðal annars upplýsingavefinn Já.is, mun á næstu dögum hefja 360° myndatökur við helstu kennileiti og ferðamannastaði á Íslandi. Um er að ræða myndatökur sem gera Já kleift að bjóða upp á sambærilega þjónustu og Google hefur gert með svokölluðum Street View myndum. En slíkar myndir má sjá á kortavef Google af fjölmörgum stöðum í heiminum. Þó ekki frá Íslandi. Fyrirtækið hefur fengið sérútbúinn, umhverfisvænan Tyota Yaris Hybrid til verksins.
20.maí 2013 - 09:00
Lögreglunni á Selfossi barst að kvöldi Hvítasunnudags tilkynning um að hjón um sjötugt væru meðvitundarlaus í hjólhýsi í Þjórsárdal. Sjúkrabílar og lögregla fóru þegar á vettvang. Nærstaddir brutust inn í húsið og komu þeim út undir bert loft og hófu þar tilraunir til endurlífgunar
19.maí 2013 - 19:00
Helgi Skúlason hefur á síðustu árum getið sér mjög gott orð fyrir náttúrumyndir sínar og hefur sérhæft sig í fuglamyndum. Hann hefur haldið nokkrar sýningar á myndum sínum, til dæmis í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem vakið hafa mikla athygli. Sérstaka eftirtekt vekur hve persónulegar fuglamyndir Helga eru, enda leggur hann sig fram um að komast í mikið návígi við fuglana.
19.maí 2013 - 15:30
Á skilti í einni Bónusverslun í Reykjavík segir: „Viðskiptavinir athugið. Nautalundir eru afgreiddar af lager. Vinsamlegast snúðu þér að næsta starfsmanni". Er þetta gert til að reyna stemma stigu við þjófnaði á dýrari kjötvörum.
19.maí 2013 - 11:00
Björn Bragi Arnarsson er fæddur árið 1984. Hann er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og þá er hann með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Björn var fyrr í vetur kosinn sjónvarpsmaður ársins fyrir frammistöðu sína sem stjórnandi Týndu kynslóðarinnar og hlaut hann Edduna fyrir.
18.maí 2013 - 22:25
Eins og flestir Íslendingar vita fór Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva fram í kvöld. Eyþór Ingi söng fyrir Íslands hönd og stóð sig frábærlega en það var hinsvegar Emelie de Forrest sem söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með framlagi Danmerkur
Only Tearsdrop.
18.maí 2013 - 22:00
Samskiptasíðurnar Twitter og Facebook loguðu á meðan söngvarar stigu á svið í Eurovision-keppninni. Líflegar umræður fóru fram um lögin og á báðum samskiptasíðunum mátti finna skemmtilega gullmola um hina ýmsu listamenn í keppninni.
18.maí 2013 - 18:30
Eyþór Ingi sem í kvöld flytur lagið Ég á líf í Eurovision-keppninni spjallaði á léttu nótunum við Davíð Lúther Sigurðarson. Þá sýndi hann skartið sem hann ber og ræddi um fataval fyrir stóru stundina.
18.maí 2013 - 17:35
Anna Sigurlaug Pálsdóttir eiginkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar segir að hún hafi um tíma tekið afar nærri sér allt baktal og ljót ummæli um eiginmann hennar í kommentakerfum fjölmiðlanna. Hún laumaðist í tölvuna á kvöldin, sat fram eftir nóttu og las ummælin með tárin í augunum.
18.maí 2013 - 14:30
Sjórekið lík fannst í fjöru í Kaldbaksvík á Ströndum í morgun. Ekki er vitað hvenær viðkomandi lést.
18.maí 2013 - 11:10
Everest-farinn Ingólfur Geir Gissurarson kom í gær í aðrar búðir á leið sinni á toppinn. Í dag er hvíldardagur en snemma á morgun mun Ingólfur halda áfram upp í þriðju búðir. Ef allt gengur að óskum þá er stefnt að því að vera á toppnum að morgni 21. maí.
18.maí 2013 - 10:00
Karlmaður sem slasaðist alvarlega þegar hópur manna réðst á hann í Breiðholti síðdegis í gær dvelur enn á sjúkrahúsi. Tveir menn hafa verið handteknir vegna árásarinnar en þeir hafa báðir hlotið dóm fyrir ofbeldisverk.
18.maí 2013 - 08:30
IDAHO-dagurinn, alþjóðlegur baráttudagur gegn hómó-, bi- og transfóbíu var í gær. Dagurinn hefur verið haldinn 17. maí ár hvert síðan árið 2005, en þann dag árið 1990 var samkynhneigð tekin út af sjúkdómalista Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.
17.maí 2013 - 19:30
Karlmaður er mikið slasaður eftir að minnst þrír menn réðust á hann í Breiðholti síðdegis í dag. Íbúar við Ystasel telja að um handrukkun hafi verið að ræða en árásarmennirnir notuðu m.a. hafnarboltakylfu þegar þeir gengu í skrokk á manninum fyrir allra augum.
17.maí 2013 - 15:30
Eyþór Ingi sem í gær söng sig inn í hug og hjörtu margra Evrópubúa þakkaði Íslendingum og þá sérstaklega fólkinu í heimabæ sínum á Dalvík fyrir stuðninginn í gærkvöldi. Þá sagðist hann hafa orðið meyr í miðju lagi þegar honum varð hugsað til dætra sinna og eiginkonu.
17.maí 2013 - 11:30
Hljómsveitin Sigur Rós bregður fyrir í Simpsons þættinum The Saga of Carl Carlsson sem sýndur verður í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Nú hefur fyrsta myndskeiðið verið sett á netið og það má sjá hér fyrir neðan.
17.maí 2013 - 10:15
„Þetta var fólk frá barnabarninu mínu. Það ruddist hér inn hópur fólks í þeim tilgangi að ráðast á mig persónulega. Það var mjög ósmekklegt að ráðast á þjónustumiðstöðina með þessum hætti en ég bað þau um fara út.“
17.maí 2013 - 09:00
Laugardaginn 18. maí fer sendinefnd frá Íslandi til Kulusuk, á vegum Kalak, vinafélags Íslands og Grænlands, Skákfélagsins Hróksins, Flugfélags Íslands og fleiri velunnara Grænlendinga. Við þetta tækifæri verða afhent hljóðfæri, tæknibúnaður og fleiri gjafir, en tónlistarhúsið í Kulusuk brann til grunna í fárviðri í byrjun mars.
17.maí 2013 - 08:30
Banaslys varð á Akranesi í gær þegar ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjóli sínu er hann ók austur Faxabraut á Akranesi. Hafnaði hjólið á grjótgarði með þeim afleiðingum að maðurinn kastaðist yfir grjótgarðinn og niður í fjöru á Langasandi.
17.maí 2013 - 08:00
Tæknin mun bjarga þeim sem ekki komast í miðbæinn í dag til að sjá einstakt átta mínútna skipaflautuverk Lilju Birgisdóttur. Lilja lofar tilkomumikilli sjón þegar hún stýrir verki sínu, Vessel Orchestra, í höfninni á Listahátíð í Reykjavík, en það er opnunarverk hátíðarinnar.
16.maí 2013 - 22:17
Enginn á að þurfa að missa af Eurovision - hvorki leikarar né leikhúsgestir. Englar alheimsins gerðu stutt hlé á sýningu kvöldsins og sungu ,,Ég á líf" með Eyþóri og áhorfendum í beinni útsendingu á stóra sviðinu
16.maí 2013 - 21:45
Á samskiptasíðunum Twitter og Facebook fóru fram líflegar umræður um Eurovisionkeppnina, þó Twitter hafi verið ótvíræður sigurvegari þegar kom að skemmtanagildi. Á Twitter má finna fjöldann allan af gullmolum frá íslenskum notendum sem réðu sér ekki fyrir kæti þegar framlag Íslands komst áfram í lokakeppnina sem fram fer í Malmö á laugardag.
16.maí 2013 - 17:10
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í átta ára fangelsi fyrir margítrekuð og svívirðileg kynferðisbrot gegn tveim börnum. Hæstiréttur taldi rétt að þyngja dóminn en maðurinn var dæmdur til sjö ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember sl.
16.maí 2013 - 13:47
Karlmaður á fertugsaldri sem í gær var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí, grunaður um að hafa brotið á 10 ára stúlku segist ekki muna eftir atburðum gærdagsins.
16.maí 2013 - 12:00
Elsa Yeoman, forseti borgarstjórnar, afhenti í dag fulltrúa Samtaka um kvennaathvarf Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Höfða á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar.
16.maí 2013 - 11:00
Mynd dagins birti Örlygur Smári á Facebook-síðu Nýherja en þar segir:
16.maí 2013 - 08:00
DUST 514 sem framleiddur er af íslenska fyrirtækinu CCP fyrir Playstation 3 er kominn út. Um er að ræða skotleik sem gerist í sama sýndarheimi og fjölspilunarleikurinn EVE Online, sem fagnar tíu ára afmæli sínu í ár. Áskrifendur hans í dag rúmlega 500.000. Ljóst er að með tilkomu DUST 514 stækkar EVE heimurinn umtalsvert. Leikurinn er ókeypis.
15.maí 2013 - 16:09
Karl á fertugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en það var gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn var handtekinn í gær, en hann er talinn hafa brotið kynferðislega gegn stúlku á ellefta ári. Lögreglu barst tilkynning um málið skömmu fyrir kl. 17 í gær þegar foreldrar stúlkunnar höfðu samband, en stúlkan var þá nýkomin til síns heima í vesturbæ Reykjavíkur.
15.maí 2013 - 08:00
Um helgina kom til landsins bílaflutningaskip með 300 nýjum Chevrolet bílum fyrir Bílabúð Benna. Mörg ár eru síðan að flutningaskip kom til landsins aðeins hlaðið bílum.
15.maí 2013 - 07:00
Skráning í hina árlegu hjólreiðakeppni WOW Cyclothon, þar sem hjólað er 1332 kílómetra hringinn í kringum Ísland með boðsveitarformi, hefur gengið framar björtustu vonum. Nú þegar hafa 25 lið staðfest þátttöku en liðsfjöldi verður takmarkaður við 30 lið. Áheitasöfnun mun fara fram í kringum keppnina og mun allur ágóði renna til Barnaheilla.
14.maí 2013 - 16:50
Steingrímur Njálsson er látinn 71 árs að aldri.
14.maí 2013 - 15:25
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi húsleit á fjórum stöðum í austurborg Reykjavíkur á föstudag og lagði hald á fíkniefni og fjármuni. Kannabisræktun var stöðvuð í íbúð fjölbýlishúss, en lagt var hald á tæplega 70 kannabisplöntur, auk tugi gramma af tilbúnum kannabisefnum. Ræktunin var í tveimur herbergjum íbúðarinnar, en barn var á heimilinu.
14.maí 2013 - 14:00
Einar Ágúst Víðisson sem söng lagið Tell me ásamt Telmu Ágústsdóttur í Eurovision keppninni fyrir þrettán árum síðan segir að það hafi verið virkilega ánægjulegt en taugatrekkjandi að taka þátt í keppninni. Í skemmtilegu myndskeiði sem birt var á heimasíðu Vodafone segir hann frá sögunni á bak við pilsið fræga og af hverju hann valdi að klæðast því á úrslitakvöldinu.
14.maí 2013 - 12:00
Kreppan er enn við lýði í Evrópu og því við hæfi að stilla eyðslunni í hóf, það er að minnsta kosti skoðun forsvarsmanna sænska ríkissjónvarpsins sem hafa ákveðið að stilla öllum glamúr í hóf þegar kemur að Eurovision keppninni sem fram fer í þessari viku.
13.maí 2013 - 19:48
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gunnhildi Líf Egilsdóttur, 17 ára. Gunnhildur Líf er sirka 163 sm. á hæð, grannvaxin og með sítt svart hár niður að öxlum.