11. júl. 2012 - 13:45

Einar Bárðarson varð fyrir bíl á hjóli sínu: Væri ekki til frásagnar hefði ég ekki haft hjálm

Einar Bárðarson athafnamaður varð fyrir bíl á reiðhjóli sínu í Fossvogi í gær og liggur nú laskaður á olnboga og hné heima hjá sér. Hann segir það enga spurningu að það hafi bjargað lífi sínu að hann var með hjálm.

Maður bara blótar hressilega þegar svona gerist og svo þakkar maður guði fyrir það að geta staðið upp aftur,
segir Einar, sem var koma úr Fossvogi og hjólaði inn á  Fossvogsveg í átt að brúnni yfir Kringlumýrarbraut.

Ég var að koma af hjólastíg og leit vel í kringum mig áður en ég fór út og götuna,

segir Einar en gatan liggur í beygju einmitt á þessum stað.

Í millitíðinni hafði bíll beygt inn í götuna. Bíllinn rennur upp að mér en honum er ekki beinlínis ekið á mig. Bílstjórinn virðist ekki hafa tekið eftir mér fremur en ég eftir honum. Þessi dans endaði þannig að ég missti jafnvægið og hjólið skaust undan mér í aðra átt.
Einar var á um 20 km hraða þegar þetta gerðist. Hann segir að bílinn hafi ýtt við sér með þessum afleiðingum frekar en að hann hefði keyrt á sig.

 Einar segir að um slys hafi verið að ræða og bílstjórinn hafi verið miður sín vegna þessa.

Ég átti erfitt með andardrátt og þetta leit frekar illa út í fyrstu,
segir Einar sem var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.

Hann segir að allt hafi þó sloppið furðu vel. Olnboginn sé illa laskaður en óbrotinn og sama er að segja um vinstra hné. Miklar bólgur og ljót sár eru víða.

Hjálmurinn segir ákveðna sögu líka. Það er þannig far á honum að ég væri líklega ekki hérna að ræða málin í dag ef hann hefði ekki verið á sínum stað þegar þetta gerðist.

Einar hjólar mikið en þetta er í fyrsta sinn sem hann lendir í slysi á hjólinu.

Þetta var bara slys og nú ætla ég að jafna mig á þessu og svo held ég áfram að hjóla. Ég er heima fyrir núna - of slasaður til að sinna heimilisstörfum en ágætur í því að liggja upp í sófa. Þetta fór á besta veg miðað við hvernig þetta leit út. Ég hefði getað lent undir bílnum eða verið hjálmlaus og þá væri ég varla hérna að ræða málin.

Hann segir að algjör sprenging hafi orðið í hjólreiðum á landinu og hjól í umferðinni sennilega fimm sinnum fleiri nú en fyrir örfáum árum. Það sé þess vegna orðið tímabært að allir taki tillit þess að hve mikil umferð hjólandi fólks er í borginni.

Vinur Einars fór með hjólið hans í úttekt og tók við það tilefni myndina af honum sem birtist með fréttinni. Hann ber sömuleiðis fyrir miklar þakkir fyrir góðar móttökur á Landspítalanum þar sem hann segir starfsfólk hafa verið einstaklega ljúft í kynningu.



17.jún. 2013 - 17:15

Mynd dagsins: Forseti Íslands sæmdi níu Íslendinga hinni íslensku fálkaorðu

Mynd dagsins er af átta Íslendingum sem í dag voru heiðraðir á Bessastöðum.  Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands og Óli H. Þórðarson fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs eru í hópi þeirra níu Íslendinga sem forseti Íslands sæmdi í dag heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. 
17.jún. 2013 - 12:35

Erum öll jöfn, þolum illa yfirvald, hvað þá kúgun

„Mikilvægi menntunar fyrir okkar fámennu þjóð verður seint ofmetið. Þekking er og verður undirstaða framfara. Íslendingar hafa upplifað miklar framfarir frá lýðveldisstofnun, framfarir sem þjóðin hefur unnið að í sameiningu, framfarir sem byggjast ekki síst á þekkingu, bjartsýni og því að þjóðin hafði til að bera þann kjark sem þurfti til að ráðast í að byggja upp samfélagið til lengri tíma.“
17.jún. 2013 - 10:00

Steinunn Stefánsdóttir nýr formaður Kvenréttindafélags Íslands

Steinunn Stefánsdóttir ásamt Ragnheiði Bóasdóttur fráfarandi formanni Steinunn Stefánsdóttir var kosin formaður Kvenréttindafélags Ísland á aðalfundi félagsins þann 11.júní síðastliðinn. Fríða Rós Valdimarsdóttir verður varaformaður og í stjórn voru einnig kosnar Eygló Árnadóttir,Helga Dögg Björgvinsdóttir, Hildur Helga Gísladóttir, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Hugrún R. Hjaltadóttir og Ragnhildur G. Guðmundsdóttir.
17.jún. 2013 - 09:00

Lífsþráður: Saga kvenna í persónulegu ljósi

Íris Elfa Friðriksdóttir Íris Elfa Friðriksdóttir er ein af þeim fjölmörgu listamönnum sem sýnir um þessar mundir á útisýningunni „Undir berum himni“ sem er hluti af Listahátíð Reykjavíkur og stendur til 25. ágúst. Íris útskrifaðist á sínum tíma úr textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands en hefur fengist við fjölbreytt verk í gegn um tíðina.
16.jún. 2013 - 15:48

Landeigendur loka Leirhnjúkssvæði og gönguleiðum í kringum Víti

Göngustígar í kringum Víti eru mjög hálir og viðsjárverðir, að mati landeigenda. Hætta er á að fólk gangi til hliðar við þá. Því er óhjákvæmilegt að loka gönguleiðunum, öryggisins vegna. Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit hefur ákveðið að loka alveg svæðinu við Leirhnjúk, norðvestur af Kröflu, fyrir ferðamönnum frá og með morgundeginum, 17. júní, um óákveðinn tíma. Áberandi skilti um lokun verða sett upp svo ekkert fari á milli mála.
16.jún. 2013 - 11:00

Dæmdur í fangelsi fyrir þátttöku í kvótasvindli: Er enn í starfi

Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi nýlega í máli sem höfðað var gegn nokkrum aðilum vegna brota á lögum um umgengni við nytjastofna sjávar en málið kom upp á Bíldudal í júlí 2009.
16.jún. 2013 - 10:30

Úthlutun úr Háskólasjóði KEA

Styrkþegarnir ásamt þeim Halldóri Jóhannssyni framkvæmdastjóra KEA, Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra Akureyrar og Stefáni B. Sigurðssyni rektor HA. Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri Akureyrarbæjar, afhentu í gær styrki úr Háskólasjóði KEA við athöfn sem fram fór á Sólborg, húsnæði Háskólans á Akureyri við Norðurslóð.
15.jún. 2013 - 19:33

Kerfisfræðingurinn og kokkurinn lét drauminn rætast og opnaði veitingastað á Patreksfirði

Lét drauminn rætast: Þorsteinn Sæþór Guðmundsson. „Ég hef alltaf átt þann draum að opna veitingastað, nú kom til þess tækifæri og ég lét verða af því,“ segir Þorsteinn Sæþór Guðmundsson kerfisfræðingur og matreiðslumaður úr Reykjavík, sem rekur nú Veitingastaðinn Þorpið á Patreksfirði, sem slegið hefur í gegn meðal heimamanna og ferðamanna nú í sumar.
15.jún. 2013 - 16:00

Mynd dagsins: Róa öllum árum til Orkneyja

Fjórir sæfarar, þeir Einar Örn Sigurdórsson, Eyþór Eðvarðsson, Kjartan Jakob Hauksson og Svanur Wilcox, eru á leið yfir Atlantshafið á sérstökum úthafsróðrarbát og róa nú öllum árum til Kirkwall í Orkneyjum sem er fyrsti viðkomustaður þeirra á leið yfir hafið. Í fyrsta skipti síðan þegar lögðu af stað frá Sirivåg í Noregi snemma mánudagsmorgun eru þeir með vindinn í bakið.
14.jún. 2013 - 20:45

Edda Björgvins stöðvuð af lögreglu fyrir of hægan akstur, tvisvar!

Leikkonan Edda Björgvinsdóttir var stöðvuð tvisvar af lögreglu í sömu ferðinni á leið sinni frá Reykjavík vestur til Bolungarvíkur. Ástæðan var þó ekki sú að Edda væri að keyra of hratt miðað við aðstæður, hún fór svo hægt að laganna verðir töldu að ökutækið væri bilað.
14.jún. 2013 - 16:45

Aurora tryggir Vin: Rekstur athvarfsins tryggður í 3 ár

Hrafn Jökulsson frá Vin, Auður Einarsdóttir framkvæmdastjóri Auroru velgerðasjóðs og Hermann Ottósson framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi. Í gær, þann 13. júní, skrifuðu fulltrúar Auroru velgerðasjóðs, Rauða krossinum á Íslandi og Vinafélags Vinjar undir þriggja ára styrktarsamning til að tryggja rekstur Vinjar sem er athvarf fólks með geðraskanir. 
14.jún. 2013 - 13:42

Sviptur ökuleyfi nokkrum mínútum eftir að hann fékk prófið

Það var heldur stutt gamanið hjá unga ökumanninum sem lögreglan stöðvaði á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Sá var í sinni allra fyrstu ökuferð, en viðkomandi hafði öðlast ökuréttindi nokkrum mínútum áður en lögreglan stóð hann að hraðakstri.
14.jún. 2013 - 11:00

Ökumaður fældi hesta: Fimm ára drengur á gjörgæslu - „Þökkum Guði að ekki fór verr“

Hann er á gjörgæslu strákurinn minn. Þetta hefði getað endað mjög illa. Ég er þakklátur fyrir að þetta fór ekki verr,“ segir Jóhannes William Grétarsson faðir fimm ára drengs  sem  lenti í alvarlegu slysi þegar hestur sem hann sat á fældist eftir að ökumaður á hraðferð þandi flautuna ítrekað til að komast leiðar sinnar.
14.jún. 2013 - 10:51

Flugfélag Íslands býður fargjöld án skatta og gjalda í sumar

Tilboðið verður í gildi frá 14. – 18. júní en ferðatímabilið er hásumarið eða 18.júní – 18.ágúst. Dagana 14. – 18. júní mun Flugfélag Íslands bjóða öll fargjöld innanlands án skatta og gjalda sé bókað á netinu.  Eina sem þarf að gera er að fara inná vef félagsins og slá inn flugsláttinn SUMAR.  Þetta er gert til að koma til móts við landsmenn sem vilja nýta sér flugið innanlands í sumar.
14.jún. 2013 - 09:00 Sylvía Rut Sigfúsdóttir

Fyrrverandi kaupsýslumaður skrifar bók: „Ég hef alltaf reynt að horfa fram á við“

Sverrir Berg Steinarsson er fyrrum verslunarrekandi og viðskiptamaður. Nú á dögunum gaf hann út sína fyrstu bók, Drekinn. Sverri hafði lengi gælt við það að reyna að skrifa bók en aldrei haft tíma eða tækifæri til þess.
14.jún. 2013 - 08:00

Kia Carens - laglegur, sjö manna fjölnotabíll

Ef einhver skyldi velkjast í vafa um þau áhrif sem einn maður getur haft innan bílaheimsins skyldi sá sami leiða hugann að þeirri byltingu sem Þjóðverjinn Peter Schreyer hefur innleitt hjá Kia. Schreyer er sennilega áhrifamesti bílahönnuður samtímans.
13.jún. 2013 - 22:07

Banaslys í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi

Lögreglunni á Vestfjörðum barst skömmu fyrir hádegi í dag tilkynning um alvarlegt umferðarslys í Skötufirði  í Ísafjarðardjúpi.  Lögregla og sjúkrabifreið var send frá Ísafirði og þá var þyrla frá  Landhelgisgæslunni send á slysstað. 
13.jún. 2013 - 13:30

Mynd dagsins: Handtekinn með stinningarlyf og kannabisplöntur

Mynd dagsins er af kannabisplöntum sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann við húsleit í Garðabæ í gær. Lagt var hald á 25 plöntur, auk búnaðar sem tengdist starfseminni en ræktunin var falin á millilofti í húsnæðinu.  Þá var einnig lagt hald á verulegt magn af stinningarlyfjum.
13.jún. 2013 - 07:00

Nýherji styrkir unga Íslendinga af erlendum uppruna til náms í Háskóla unga fólksins

Glæsilegur hópur nemenda ásamt Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, og Finni Oddssyni, aðstoðarforstjóra Nýherja. Háskóli unga fólksins stendur nú sem hæst í Háskóla Íslands en skólann sækja nemendur víða af landinu og af fjölbreyttum uppruna. Í hópnum í ár eru meðal annarra ungir Íslendingar af erlendum uppruna sem sækja skólann fyrir tilstyrk Nýherja.
12.jún. 2013 - 23:00

Hægt á leitinni í Hjaltadalsá: Fleiri reköld sett í ána á morgun

Hjaltadalsá er í miklum vexti og mórauð þessa dagana Leitin að manninum sem féll í Hjaltadalsá í gær hefur engan árangur borið. Tugir björgunarsveitamanna hafa verið við leit í og við ána.  Í samráði við lögreglu hefur verið hægt á leitinni. Björgunarsveitir eru komnar í hvíld þar til í fyrramálið en þá hefst leit að nýju.
12.jún. 2013 - 18:15

Mynd dagsins: Orrustuþotur á Akureyri

Mynd dagsins tók Hörður Geirsson af orrustuþotum á Akureyri. Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst á mánudaginn með komu flugsveitar ítalska flughersins.
12.jún. 2013 - 16:10

Leoncie: „Bubbi, þú hljómar eins og geltandi froskur“

Þannig kemst indverska prinsessan að orði en hún hefur nú skorað á Bubba Morthens í tónlistareinvígi í Bandaríkjunum.  Fyrr í morgun birti Bubbi pistil á Pressunni sem vakið hefur mikla athygli. Þar bað Bubbi Leoncie um að hafa sig hæga, nóg væri komið af svívirðingum í garð íslenskra tónlistarmanna.

 
  


12.jún. 2013 - 12:36

Bubbi svarar Leoncie: Farðu að þegja - „Hrikalegt ofmat á eigin getu og hæfileikum“

„Leoncie; farðu að að þegja. Það er komið nóg af ásökunum og svívirðingum í garð íslenskra tónlistarmanna sem margir hverjir hafa reynst þér vel. Þú ert einfaldlega dóni með hrikalegt ofmat á  eigin getu  og hæfileikum.“
12.jún. 2013 - 10:06

Handpoint: Einföld og ódýr greiðslulausn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki

Handpoint er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem sérhæfir sig í greiðslulausnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. SNJALLGREIÐSLUR HANDPOINT er glæný, einföld og ódýr greiðslulausn sem veitir einyrkjum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum möguleika á að taka á móti kortagreiðslum án þess að greiða mánaðargjöld, líkt og nú tíðkast með hefðbundnum posum. Lausnin samanstendur af ókeypis Handpoint appi, snjallsíma eða spjaldtölvu og Handpoint snjallposanum, sem er greiðslukortalesari.
11.jún. 2013 - 21:57

Leita að manninum við fjörur og ósa á bátum og kajökum: Ráðgert að leita í alla nótt

Hjaltadalsá  / Skjáskot af fréttum Ríkissjónvarpsins Á sjöunda tug björgunarsveitamanna er við leit í og við Hjaltadalsá þar sem minkaveiðimanns er saknað eftir að hann féll í ána í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns og hefur ekki sést til hans síðan.
11.jún. 2013 - 20:15

Rúnar Freyr var tekinn í yfirheyrslu í morgun

Dómharður en duglegur, áhrifagjarn en hugmyndaríkur, hvatvís en geðgóður, fórnfús og móðgunargjarn. Með þessum orðum lýsir leikarinn Rúnar Freyr Gíslason kostum sínum og löstum.
11.jún. 2013 - 16:49

Veiðimaður féll í Hjaltadalsá: Hvarf sjónum veiðifélaga síns

Björgunarsveitir frá Blönduósi að Siglufirði hafa verið kallaðar út til leitar að minkaveiðimanni er féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal fyrr í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns og hefur ekki sést til hans síðan.
11.jún. 2013 - 14:50

Börkur borinn inn í dómsal: Fluttur á sjúkrahús eftir þingfestingu

Börkur Birgisson sem ákærður er fyrir stórfellda líkamsárás var borinn inn í Héraðsdóm Suðurlands í dag en þar var mál gegn honum og Annþóri K. Karlssyni þingfest. Þann 18. apríl sl. lauk lögreglan á Selfossi rannsókn á láti refsifanga á Litla-Hrauni sem lést í klefa sínum þann 17. maí 2012.
11.jún. 2013 - 10:40

Úkraínsk sinfóníuhljómsveit hljóðritar tónverk Árna Johnsen

Árni Johnsen, fyrrum þingmaður, heldur til Kænugarðs í Úkraínu síðar í vikunni þar sem Þjóðarsinfóníuhljómsveit Úkraínu hljóðritar tónverk hans sem kallast Sólarsvítan.
11.jún. 2013 - 09:30

Erfið ferð framundan: Ofurhugar róa frá Noregi til Íslands

Róðrarkapparnir fjórir, Einar Örn Sigurdórsson, Eyþór Eðvarðsson, Kjartan Jakob Hauksson og Svanur Wilcox, sem ætla að róa yfir Atlantshafið á sérstökum úthafsróðrarbát, eru nú á leið til Orkneyja en það er fyrsti viðkomustaðurinn á leið þeirra frá Noregi til Íslands.
10.jún. 2013 - 17:45

Töldu sig hafa séð tvo ísbirni í Svínadal

Klukkan ellefu í morgun fékk lögreglan tilkynningu um að sést hefði til tveggja ísbjarna í grennd við byggð í Svínadal. Íbúar höfðu nokkrar áhyggjur en þeir höfðu fylgst með dýrunum um tíma sem þó voru í nokkurri fjarlægð frá bænum.
10.jún. 2013 - 15:50

„Ég var hrærður og mig setur hljóðan yfir unglingum nú til dags“

Aron og verðlaunapeningarnir Aron Hinriksson, grunnskólakennari á Selfossi, kvaddi bekk sinn til fjögurra ára á föstudaginn síðastliðinn þegar 10. AH útskrifaðist úr grunnskóla. Þessari útskrift fylgir falleg saga sem sýnir okkar hversu vel innrættir unglingar þessa lands geta verið nú til dags.
10.jún. 2013 - 14:30

Mynd dagsins: „Þessi kona gaf mér fokkmerki“

Mynd dagsins tók Gísli Friðrik Ágústsson fyrir utan IKEA. Þar hafði kona lagt bíl sínum á ská yfir tvö stæði sem eru ætluð fötluðum. Gísli segir að konan hafi sent honum fingurinn þegar hann tók mynd af bílnum.
10.jún. 2013 - 12:30

Íslendingur varð vitni að fallhlífaslysi: Óhugnanlegt myndskeið

Fallhlífastökk er svokölluð jaðaríþrótt. „Hún kipptist að hótelinu og lenti utan í byggingunni,“ segir Sóldís Elfa Loftsdóttir sem varð vitni að því þegar fallhlífastökkvari var hætt kominn eftir að hafa stokkið fram af hóteli á Benidorm.
10.jún. 2013 - 08:29

Hraðinn að aukast: Hefur áhyggjur af hraðakstri ferðamanna á þjóðvegum

Lögreglan stöðvaði í síðustu viku spænskan ferðamann sem ók á 170 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi. Er þetta ekkert einsdæmi en svo virðist sem ferðamenn virði ekki alltaf hámarkshraðann hér á landi.
09.jún. 2013 - 18:45

Eyþór Kolbeinn ginnti barnungar stúlkur til að hitta sig: Einungis sakfelldur fyrir eina nauðgun

Eyþór Kolbeinn Kristbjörnsson sem á föstudaginn var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot gegn 12 ungum stúlkum braut gegn minnst fjórum stúlkum á skömmum tíma eftir að gæsluvarðhaldsúrskurður gegn honum rann út. 
09.jún. 2013 - 18:00

Afmælismót Jóhanns Hjartarsonar haldið í Trékyllisvík: Skákhátíð í Árneshreppi haldin í sjötta sinn

Skákhátíð í Árneshreppi verður haldin dagana 21. til 23. júní og sem fyrr verður boðið upp á fjölda skemmtilegra viðburða fyrir áhugamenn úr öllum áttum. Þetta er sjötta skákhátíðin á Ströndum, sem hefur unnið sér sess sem fastur liður í skákdagatalinu
09.jún. 2013 - 14:45

10 skemmtilegustu gönguleiðir á Íslandi samkvæmt álitsgjöfum Pressunnar

Nú er sumarið gengið í garð og margir farnir að huga að gönguferðum. Við hjá Pressunni vildum kanna hverjar tíu skemmtilegustu gönguferðir á Íslandi væru. Nefnd álitsgjafa var sett saman og hún beðin um að telja upp þær tíu sem þeim finnst skemmtilegastar. Athugið að leiðirnar eru ekki í neinni sérstakri röð.
09.jún. 2013 - 11:59 Gunnar Bender

Allt annað hljóð í veiðimönnum en fyrir viku

Veiðin hefur byrjað betur en margir áttu von, reyndar áttu menn alls ekki von á mikilli veiði. Norðurá hefur gefið 30 laxa og Blanda er komin með 15 laxa. Lítið hefur frést af Straumunum í Borgarfirði ennþá en Brennan hefur gefið einn lax.

08.jún. 2013 - 10:45

Kínverskir kaupmenn koma alla leið til Íslands til að kaupa frímerki

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti í gær norrænu frímerkjasýninguna Nordia 2013 á afmælisári íslenska frímerkisins. NORDIA 2013 fer fram í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ og er stærsti viðburður norrænna frímerkjasafnara á  árinu. Reiknað er með á þriðja hundrað erlendra gesta til landsins af þessu tilefni.  Forseti Íslands er verndari NORDIA 2013.
07.jún. 2013 - 19:00

„Ég heiti Anna Lovísa og er fyrrverandi feitabolla” (Myndband)

Anna Lovísa Þorláksdóttir er ótrúlega sterk og hugrökk kona. Hún var alltof feitur krakki og unglingur sem tók sig á svo um munar. Hún er um þessar mundir að útskrifast með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði þar sem hún skrifaði um áhrif offitu á félagslegu hliðina.
07.jún. 2013 - 17:00

Mynd dagsins: Verið hress, ekkert stress, bless!

Það verður tilfinningaþrungin stund fyrir leik Íslands og Slóveníu í kvöld þegar leikmenn, þjálfarar, dómarar og aðrir áhorfendur í Laugardalnum munu klappa í eina mínútu til heiðurs okkar ástsæla Hemma Gunn, sem varð bráðkvaddur í vikunni.
07.jún. 2013 - 16:00

Hvalserfingi: „Mikið vildi ég óska að hann léti af þessari hvalveiðiþrjósku“

„Eins og staðan er í dag er aðeins einn maður sem hefur það í hendi sér hvort þessar langreyðar verða veiddar eða ekki. Mikið vildi ég óska að hann léti af þessari hvalveiðiþrjósku og fyndi kröftum sínum og fjármunum annan farveg,“ segir Birna Björk Árnadóttir, hluthafi í Hval hf.
07.jún. 2013 - 14:30

Nýr Ford Kuga fjórhjóladrifsbíll frumsýndur - Myndband

Nýr Ford Kuga verður frumsýndur laugardaginn 8. júní milli kl. 12-16 hjá Brimborg í Reykjavík og hjá Brimborg á Akureyri.


07.jún. 2013 - 12:15 Guðjón Ólafsson

Upphitun með Atla Eðvalds: „Þessi leikur gefur alveg gífurlega möguleika“

Atli Eðvaldsson fer yfir leikinn í kvöld... Pressupælingarnar eru með óhefðbundnu sniði þessa vikuna en í tilefni af landsleik kvöldsins fengum við einn af farsælustu knattspyrnumönnum Íslands í gott spjall, sjálfan Atla Eðvaldsson. Verandi afleitur spámaður, að eigin sögn, hefur hann þó trú á því að Ísland fái í það minnsta stig úr leiknum í kvöld.
07.jún. 2013 - 08:00 Júlía Helgadóttir

Endurspeglar örlög fólks sem fékk ekki að halda í menningararf sinn

Antonie Frank Grahamsdaughter er kanadísk/sænsk listakona sem starfað hefur við listsköpun allt frá árinu 1984. Hún tekur nú þátt í útisýningunni „Undir berum himni“ sem stendur yfir frá 25. maí til 25. ágúst.
07.jún. 2013 - 07:00

Bjarni Benediktsson: „Skýrt ákall um aðgerðir”

Hrafnhildur Hafsteinsdóttir og Gunnar Smári Egilsson afhenda Bjarna Benedikssyni fjármálaráðherra undirskriftirnar Þessir áhersluþættir hljóma mjög skynsamlega,”, sagði Bjarni Benedikstsson fjármálaráðherra, þegar hann tók á móti 31.000 undirskriftum frá Stjórn SÁÁ í Fjármálaráðuneytinu.   Undirskriftirnar, eru krafa um aðgerðir ríkis og sveitarfélaga sem lúta að aðstoð við alkóhólista og aðstandendur þeirra og gengur átakið undir nafninu Betra líf! 
06.jún. 2013 - 17:00

Hjólar hringinn í kringum landið fyrir börn Hjördísar Svan: „Ég gæti ekki sofið“

Magnús stefnir á að hjóla hringinn á fimmtán dögum Magnús Gíslason ætlar að safna fjármunum fyrir börn Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur með því að hjóla hringinn í kringum Ísland. Hjördís hélt af landi brott í ágúst í fyrra en hún berst fyrir forræði dætra sinna í Danmörku. Söfnunin hefur fengið heitið Hjólað til hjálpar.
06.jún. 2013 - 15:20

Forsetinn talar gegn ESB-aðild: Segir sambandið hvorki hafa vilja né getu til að klára viðræður

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í þingsetningarræðu sinni að Evrópusambandið hafi hvorki getu né vilja til að klára aðildarviðræður við Ísland. Forsetinn gaf sterklega í skyn Ísland á, að hans mati, ekkert erindi í sambandið.
06.jún. 2013 - 14:30

Varaformaður Framsóknar: Þjóðaratkvæði um ESB er ekki á dagskrá

Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Hann segir að „eitthvað stórkostlegt þurfi að gerast í heiminum“ svo að íslenska þjóðin sæki um aðild að ESB.

Sena - Jeff
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 09.6.2013
Er Jafnréttisstofa nauðsynleg?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 09.6.2013
Merkileg frétt í Ríkisútvarpinu
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Jón Ríkharðsson
Jón Ríkharðsson - 08.6.2013
Er þörf fyrir nýtt Ísland?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar