22.maí 2012 - 20:00
Ólafur Arnarson hagfræðingur gerir gys að þeim málflutningi útgerðarinnar að það hámarki afrakstur þjóðarinnar af sjávarútvegi að virðiskeðjan í greininni sé óslitin og öll á einni hendi. Í nýjum Pressupistli líkir hann óslitinni virðiskeðju í sjávarútvegi við miðstýrðan áætlunarbúskap í Sovétríkjunum sálugu.
22.maí 2012 - 17:23
Tveir fangar á Litla Hrauni hafa verið færðir í einangrunarvist á Litla Hrauni, grunaðir um að hafa veitt fanga alvarlega áverka með þeim afleiðingum að hann lést í fyrri viku.
22.maí 2012 - 17:00
Gunnar Birgisson, fyrrum stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, og Sigrún Ágústa Bragadóttir framkvæmdastjóri sjóðsins, voru í dæmd til greiðslu 150.000 kr. sektar hvor fyrir ranga upplýsingagjöf til Fjármálaeftirlitsins. Málskostnaðurinn nam yfir átta milljörðum kr. og var hann að mestu greiddur úr ríkissjóð. Gunnar segir að dómurinn hafi komið sér á óvart.
22.maí 2012 - 15:51
Sjálfur tel ég að tólf ár séu eðlilegur og jafnvel æskilegur tími í þessu embætti og er það drjúgur spölur í starfsævi manns, sagði dr. Kristján Eldjárn í nýársávarpi sínu 1. janúar 1980, er hann tilkynnti þjóðinni að hann hygðist hverfa úr embætti eftir tólf ár á forsetastóli.
22.maí 2012 - 15:00
Nýlega var ákveðið að loka 16 kirkjum í Kaupmannahöfn og margar kirkjur hafa einnig verið lokaðar á Jótlandi. Ástæðan er sú að prestar messa í síauknum mæli fyrir tómum bekkjum. Í Árrósum hefur fasteignasali nú þegar selt þrjár kirkjur sem tilheyra fríkirkjusöfnuðinum þar í landi og segir hann mikinn áhuga á kaupum á hefðbundnum þjóðkirkjum einnig.
22.maí 2012 - 14:10
Uppboðshaldari hjá Bruun Rasmussen í Danmörku segir í viðtali við Jyllandsposten að hann efist um að nokkur Dani hafi bolmagn til að eignast taflborð, taflmenn, skákklukku og borð sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972. Munirnir verða boðnir upp hjá Bruun Rasmussen 14. júní næstkomandi.
22.maí 2012 - 12:11
„Ef hótun af þessum toga á að vera trúverðug þarf samfélagið að vera tilbúið að hóta höftum til áratuga. Hver er tilbúinn til þess?“ spyr Árni Páll Árnason, þingmaður og fyrrum efnahags- og viðskiptaráðherra sem telur svokallaða „íslensku leið“ Róberts Wessman óraunhæfa.
22.maí 2012 - 11:29
Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,1% á síðastliðnum tólf mánuðum. Í mars hafði hann ekki verið jafnmikill síðan á hinu mikla neysluári 2007. Íslandsbanki telur hins vegar blikur á lofti og telur að verðlag hækki mun hraðar en laun þegar líður fram á haustið.
22.maí 2012 - 10:45
Hraðakstursbrotum og fíkniefnabrotum hefur snarlega fjölgað fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Í fyrra voru skráð 494 fíkniefnabrot á landinu fyrstu fjóra mánuðina en 650 fyrstu fjóra mánuði þessa árs.
22.maí 2012 - 09:30
72,4% allra sem svöruðu spurningum í skoðanakönnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, aka sjálfir til og frá vinnu.
21.maí 2012 - 18:43
Hagfræðingarnir Ólafur Ísleifsson og Lilja Mósesdóttir, sem einnig er alþingismaður, fagna hugmyndum Róberts Wessman um svokallaða íslenska leið í gjaldeyrismálum þjóðarinnar. Lilja segir erlendra krónueign valda stöðugum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar og það þýði rýrnun lífskjara og hærri verðbólgu.
21.maí 2012 - 16:58
Bjölluónæði er hvimleitt og ekki síst ef það á sér stað að næturlagi. Lögreglan er stundum kölluð til í slíkum málum og svo var einmitt raunin þegar íbúum fjölbýlishúss í Kópavogi var nóg boðið.
21.maí 2012 - 13:45
Mistur hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu í gær og dag, 20. og 21. maí. Um er að ræða svifryk sem berst frá öskufallssvæðinu fyrir austan fjall.
21.maí 2012 - 11:30
Veiking á gengi krónunnar heldur áfram að gera okkur Íslendingum lífið leitt og nú hafa Íslenskar getraunir hafa ákveðið að hækka röð hverrar raðar í getraunum um 1 krónu, úr 17 krónum í 18 krónur. Tekur hækkunin gildi í dag, mánudaginn 21. maí 2012.
21.maí 2012 - 10:33
Hægt er að kaupa flugfarmiða til London og tilbaka eftir fjórar vikur á 31.400 krónur með Iceland Express. Ef flugið hefði verið bókað 21. mars sl. þá hefði WOW air verið ódýrasti kosturinn og verðið 39.544 krónur. Það borgar sig því ekki alltaf að kaupa flugmiðann með löngum fyrirvara.
21.maí 2012 - 08:22
Stjórn Íslenskrar ættleiðingar hefur sent Innanríkisráðuneytinu tilkynningu um að ganga þurfi á varasjóð félagsins. Þær ráðstafanir kunna að hafa í för með sér að þegar félagið verður lagt niður verða ekki öruggar rekstrarforsendur til að ljúka málum er kunna að vera til meðferðar á vegum félagsins á þeim tíma.
20.maí 2012 - 23:00
Um helgina hófust mótaraðir unglinga og var leikið á Arion banka mótaröð unglinga á Garðavelli Akranesi en Golfklúbbur Reykjavíkur sá um framkvæmd mótsins. Það var svo Nesklúbburinn sem hélst stærsta Áskorendamót frá upphafi þar sem 108 keppendur mættu til leiks á Nesvelli.
20.maí 2012 - 20:55
Íslendingar hafa fengið um 11 milljörðum króna meira úr styrkjasjóðum eða áætlunum Evrópusambandsins en þeir hafa greitt til þessara sömu sjóða.
20.maí 2012 - 19:27
Aldrei í sögunni hafa útlán verið jafnmikil í Noregi og núna, í miðri efnahagskreppu allrar Evrópu. Norsk heimili hafa aldrei haft meiri á milli handanna en skuldirnar hafa aldrei verið hærri.
20.maí 2012 - 16:00
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir gríðarlega tekjumyndun hafa verið síðastliðin fjögur ár í sjávarútvegi og greinin standi vel undir því að leggja meira af mörkum til eigenda auðlindarinnar.
20.maí 2012 - 12:24
Birgitta Jónsdóttir, þingkona, hefur ásamt sex öðrum, unnið mál gegn bandarískum stjórnvöldum fyrir rétti í New York vegna nýrra laga þar í landi sem hópurinn segir að gefi Bandaríkjaher heimild til að handtaka almenna borgara hvar sem er í heiminum og hneppa þá í varðhald án dóms og laga.
20.maí 2012 - 10:36
Markmið fjárfestingaáætlunar fyrir Ísland (2013-2015) sem kynnt hefur verið er að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja áætlunina lið í nýrri sókn eftir efnahagshrunið og henni sé ætlað að styðja við efnahagsbata og hagvöxt.
20.maí 2012 - 09:18
Björgunarskip og bátur Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Snæfellsbæ var kallað út um þrjúleytið í nótt vegna rækjuskips sem var orðið vélarvana um 5 sjómílur norðan við Rif. Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi.
19.maí 2012 - 22:39
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og forsetaframbjóðandi kveðst hálfklökk yfir öllum þeim fallegu og góðu kveðjum sem henni og Svavari Halldórssyni sambýlismanni hennar hafa borist í tilefni af fæðingu lítillar dóttur í gær.
19.maí 2012 - 15:30
Netöryggi, netleynd, grænn rekstur tölvukerfa, stuðningur við rannsóknarstarfsemi og Netið sem frumkvöðlavettvangur eru meðal þess sem fjallað verður um á stórri ráðstefnu Samtaka rannsókna- og menntaneta í Evrópu (TERENA) sem fram fer í Háskólabíói í næstu viku.
19.maí 2012 - 12:45
Tveir mikilvægir leiðtogafundir eru haldnir í Bandaríkjunum um helgina. Fyrri fundurinn er leiðtogafundur átta helstu iðnríkja heims (G8) og að honum loknum tekur við leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Chicago.
19.maí 2012 - 10:44
„Hringt var í föður minn úr skólanum þegar ég var sex ára. Kennarinn sagði pabba að hann ætti mjög heimska dóttur sem truflaði kennsluna. Vinsamlegast ekki senda hana aftur í skólann. Pabbi sagði, ók. Ég var sátt, því ég vildi ekkert endilega fara aftur í skólann og var svo lánsöm að hann kenndi mér sjálfur og svo fékk ég einkakennslu heima. Við vorum svo lánsöm að hafa efni á því.“
19.maí 2012 - 08:58
Búið er að tryggja áframhaldandi rekstur Vinjar, athvarfs fyrir geðsjúka, með samningi milli Rauða krossins, velferðarráðuneytisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Vinafélags velunnara Vinjar, sem undirritaður var í gær. Velferðarráðuneytið leggur samtals tæplega 21 milljón króna til rekstursins til ársloka 2014.
18.maí 2012 - 20:34
Flugvél Icelandair sem snúið var við skömmu eftir flugtak frá Keflavíkurflugvelli lenti heilu og höldnu klukkan 21:15. Vélinni var snúið við skömmu eftir flugtak eftir að í ljós kom að lendingarbúnaður vélarinnar hafði skemmst. Lendingin tókst með afbrigðum vel.
18.maí 2012 - 18:00
Hugmynd að viskíframleiðslu og byggingu verksmiðju til slíkrar framleiðslu á Austurlandi þótti besta viðskiptahugmyndin á Atvinnu- og nýsköpunarhelginni sem fram fór um síðustu helgi í Fjarðabyggð. Hugmyndin er hugarfóstur Gillian „Dillý“ Haworth.
18.maí 2012 - 16:00
Tvær tillögur um óháð mat á því hvort lög um verðbréfaviðskipti og innherjaupplýsingar hafi verið brotin voru felldar á ársfundi Lífeyrissjóðs Festu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að fulltrúar atvinnurekenda í sjóðnum hafi tífalt atkvæðavægi á móti fulltrúum sjóðsfélaga.
18.maí 2012 - 15:20
Margir þekkja þá óþægilegu tilfinningu að hafa læst sig úti. Öllu sjaldgæfara er að fólki sé óvart læst inni en kemur þó fyrir. Sú var einmitt raunin með ónefnda konu á höfuðborgarsvæðinu en konan býr í fjölbýlishúsi.
18.maí 2012 - 14:10
Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og frambjóðandi til forseta Íslands og Svavar Halldórsson sambýilismaður hennar eignuðust dóttur í morgun og heilsast móður og barni vel.
18.maí 2012 - 13:00
Danska ríkisstjórnin og verkalýðsfélög hafa komist að samkomulagi um að sleppa úr tveimur frídögum á hverju ári og skapa með því 20.000 ný störf. Með þessu móti á danski ríkissjóðurinn einnig að gildna um heila 80 milljarða króna á ári. Fækkun frídaga hefur aldrei komið til umræðu hér á landi en vilji er fyrir því innan Samtaka atvinnulífsins að færa til frídaga, einkum þá sem koma upp á fimmtudögum.
18.maí 2012 - 12:00
Nýr efnisþáttur, Bílapressan, hefur göngu sína á Pressunni á hádegi í dag. Eins og nafnið gefur til kynna verður þar fjallað um bíla og bílatengt efni út frá sjónarmiðum bíleigenda og bílkaupenda.
18.maí 2012 - 11:00
90% fjölgun hefur orðið á reiðhjólaslysum frá árinu 2002. 70% allra þessara slysa eru á höfuðborgarsvæðinu.
18.maí 2012 - 09:33
Framboð Þóru Arnórsdóttur til forseta hefur rekið á reiðanum í tvær vikur. Enginn virðist passa sjoppuna meðan hún er í fæðingarfríi, segir fyrrverandi ritstjóri sem fullyrðir að forsetaefni getur aldrei verið i fríi af neinu tagi.
18.maí 2012 - 09:05
Það sem af er máímánuði er álagning olíufélaganna á bensín 6-7 krónum yfir meðalálagningu síðustu ára aðteknu tilliti til vísitölu neysluverðs og gengis dollars gagnvart krónunni.
17.maí 2012 - 16:58
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og forseti Tékklands Václav Klaus fjölluðu á fundi sínum í morgun, fimmtudaginn 17. maí, um þróun mála í Evrópu, afleiðingar fjármálakreppunnar fyrir efnahagslíf álfunnar og hvort stöðugleiki kunni að skapast á evrusvæðinu. Fundurinn, sem haldinn var í Pragkastala, var upphaf opinberrar heimsóknar forseta Íslands til Tékklands. Áður hafði verið formleg móttökuathöfn við kastalann.
17.maí 2012 - 16:00
Svo virðist sem brandarar um óstundvísi Iceland Express eigi ekki lengur við, því ferðum félagsins til og frá Keflavíkurflugvelli seinkaði aldrei á fyrri hluta þessa mánaðar.
17.maí 2012 - 14:00
Arkitektastofan Arkitektúr varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um hús fyrir alþjóðlega tungumálamiðstöð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Framkvæmdir hefjast á næsta ári og lýkur 2014. Alþjóðlega tungumálamiðstöðin verður sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
17.maí 2012 - 12:00
Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík vill að þingmenn flokksins vinni ötullega að því að Ísland gangi úr Atlantshafsbandalaginu (NATO) þar til markmiðinu er náð. Ekkert bendir til þess að flokkurinn hafi unnið samkvæmt þessari stefnu í stjórnarsamstarfinu við Samfylkinguna.
17.maí 2012 - 10:03
Alltof mörg börn ráða ekki við að stjórna tölvunotkun sinni og eiga erfitt með að fara eftir reglum foreldra sinna. Það má þó ekki gleyma að tölvur eru mikilvægur og nauðsynlegur hluti af lífi barna og unglinga.
17.maí 2012 - 08:52
Fyrstu niðurstöður íslenskrar rannsóknar sem staðið hefur yfir í þrjú ár leiða í ljós tengsl útblásturs frá jarðvarmavirkjunum.
16.maí 2012 - 20:24
Tvær af vinsælustu vefsíðum landsins runnu saman í dag þegar Bleikt.is, varð sjálfstæður vefhluti á Pressunni. Er markmiðið að sameinaður fjölmiðill verði einn sá stærsti á landinu á næstu vikum og mánuðum. Þá verður samstarf aukið milli Pressunnar og Eyjunnar, einkum þegar kemur að stjórnmálaskrifum.
16.maí 2012 - 17:22
Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður hefur ákveðið að láta af formennsku í Lögmannafélagi Íslands, en aðalfundur þess verður síðar í mánuðinum. Brynjar hefur gegnt formennsku í Lögmannafélaginu síðastliðin tvö ár.
16.maí 2012 - 16:00
Jón Magnússon, lögmaður og fyrrum alþingismaður, segir menn veigra sér við að taka þátt í umræðu um ólöglega innflytendur af ótta við að vera stimplaðir kynþáttahatarar. Staðreyndin sé hins vegar sú að ólöglegum innflytjendum fjölgi nú sem aldrei fyrr enda hafi spurst út að hér sé tekið á málum af linkind. Kostnaður við hvern hælisleitanda er að meðaltali 215.000 kr. á mánuði en öryrkjar fá 173.000 kr. og ellilífeyrisþegar 166.000 kr.
16.maí 2012 - 14:50
Verð á orku og þjónustu Orkuveitunnar er allt að fjórum sinnum lægra en í Kaupmannahöfn, þar sem verðið er hæst í höfuðborgum Norðurlandanna. Í öllum tilvikum nema einu er þjónustan ódýrust í Reykjavík en minna er greitt fyrir fráveitu í Stokkhólmi.
16.maí 2012 - 12:05
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Sigurð Einarsson, fyrrum forstjóra Kaupþings, til að endurgreiða Kaupþingi tæpar 500 milljónir króna.
16.maí 2012 - 11:00
Gréta Ingþórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri þingsflokks Sjálfstæðisflokksins, minnist þess í pistli á Pressunni, að fimm ár eru liðin frá því dóttir hennar lést af völdum krabbameins. Pistillinn er opinská lýsing á harmi fjölskyldu og hvernig hún tekst á við hann.