16. mar. 2017 - 18:05Kristján Kristjánsson
Sérfræðingur segir að Madeleine McCann hafi ekki verið rænt: „Það var eitthvað allt annað sem gerðist þetta kvöld“

Madeleine McCann.
Breskur sérfræðingur telur að rannsóknin á hvarfi Madeleine McCann sé peningasóun því henni hafi ekki verið rænt. Madeleine hvarf sporlaust frá sumardvalarstað í Algarve í Portúgal í maí 2007 og hefur ekkert til hennar spurst síðan. Hún var tæplega fjögurra ára þegar hún hvarf en hún var í fríi í Praia da Luz með foreldrum sínum og systkinum þegar hún hvarf.
Foreldrar hennar höfðu skilið börnin eftir í íbúðinni og sátu að snæðingi á nærliggjandi veitingastað. Þegar faðirinn fór til að líta eftir börnunum var Madeleine horfin. Á þeim tæpa áratug sem er liðinn frá hvarfi hennar hefur mikið verið fjallað um málið og margar kenningar hafa verið á lofti um það. Ljósmyndir af Madeleine hafa verið birtar óteljandi sinnum og margir kannast vel við andlit hennar þegar þeir sjá myndir af henni.
Breska lögreglan hefur rannsakað málið í öll þessi ár og er kostnaðurinn við rannsóknina nú orðinn sem nemur um 1,5 milljörðum íslenskra króna. Undanfarið hafa fleiri gagnrýnisraddir heyrst þar sem því er velt upp af hverju sé verið að eyða svo miklum peningum í þessa rannsókn á sama tíma og lögreglan hefur orðið að skera niður á mörgum sviðum vegna fjárskorts. Bent hefur verið á að mörg mál upplýsist aldrei og að mörg hundruð önnur börn hverfi frá fjölskyldum sínum.
Sue Hill, sem var meðal þeirra sem stýrði rannsókninni um tíma, kom fram í morgunþættinum Good Morning Britain fyrr í vikunni til að ræða málið. Þar sagði hún að nú væri kominn tími til að láta staðar numið.
„Þegar maður hugsar um hversu mörg morðmál eru óleyst og tekur allan niðurskurðinn hjá lögreglunni með í reikninginn þá finnst mér nauðsynlegt að við leggjum tilfinningarnar stundum til hliðar og segjum að nú sé nóg komið.“
Í sama streng tekur Pat Brown, sem er sérfræðingur í að persónugreina afbrotamenn og gera prófíla af þeim fyrir lögregluna. Hún hefur lengi fylgst með málinu og hefur komist að niðurstöðu um hver örlög Madeleine voru en Brown er sannfærð um að henni hafi ekki verið rænt.
„Það er tilgangslaust að nota alla þessa peninga í rannsóknina því þeir munu ekki lífga hana við aftur. Madeleine er dáin.“
Sagði hún í samtali við news.com/au.
Madeleine áður en hún hvarf og tölvugerð mynd af henni.
Brown gaf árið 2011 út bókina ´Profile of the Disapperance of Madeleine McCann´ þar sem hún fór nákvæmlega yfir málið. Í bókinni lýsir hún efasemdum sínum um að Madeleine hafi verið rænt eins og foreldrar hennar, Gerry og Kate McCann, hafa alla tíð haldið fram.
Þessi skoðun hennar hefur ekki breyst og Brown er sannfærð um að Madeleine sé dáin.
„Þegar ég geri greiningu á brotavettvangi byggi ég kenningu mína á sönnunargögnum og læt lögreglunni þau í té. Ég leita alltaf að skjölum og sönnunargögnum sem er hægt að nota fyrir dómi. Þegar ég greindi mál Madelein fann ég engin gögn sem styðja kenninguna um að henni hafi verið rænt.“
Sagði hún og bætti við:
„Það er mjög ólíklegt að henni hafi verið rænt ef litið er til tímans í kringum hvarfið, sönnunargagna á vettvangi og annarra hugsanlegra sönnunargagna.“
Brown telur lang líklegast að Madeleine hafi látist fyrir slysni og að síðan hafi dauða hennar verið leynt. Með þessu gefur hún sterklega í skyn að það séu foreldrar hennar sem standi á bak við harmleikinn.
„Sönnunargögnin styðja kenninguna um að óhapp hafi orðið af völdum vanrækslu eða lyfjagjafar. Ég er sannfærð um að líkið hafi verið flutt á afskekktan stað og muni aldrei finnast.“
Kate og Gerry McCann.
Á mánudaginn var skýrt frá því að breska lögreglan hefði nú fengið enn frekari fjárveitingu til að rannsaka málið en hún leitar nú að portúgölskum starfsmanni hótelsins og hefur verið lýst eftir honum en lögreglan vill yfirheyra hann.
„Það eru önnur börn sem hafa horfið í Bretlandi sem fá ekki svona mikla athygli. Það ætti að nota peningana í þeirra mál.“
Sagði Brown.
19.apr. 2018 - 16:00
Mörgum þeirra sem hafa náð góðum árangri í baráttu við offitu hættir til að eiga erfitt með að losna við síðustu aukakílóin til að komast í kjörþyngd. Oft eru það þessi síðustu 5–10 kíló sem fólk á erfitt með.
19.apr. 2018 - 12:00
Þegar Cara Brookins yfirgaf ofbeldisfullan eiginmann sinn var ljóst að hún þyrfti á nýju heimili að halda sem hentaði henni og fjórum börnum hennar; 2, 11, 15 og 17 ára. Cara vissi sem var að hún þyrfti að stilla væntingum í hóf enda var hún skyndilega orðin einstæð fjögurra barna móðir sem hafði ekki efni á mjög dýrri fasteign.
19.apr. 2018 - 08:00
DV
Lítil japönsk eyja, Minamitorishima, er heldur betur kominn inn á heimskortið eftir ótrúlega uppgötvun sem vísindamenn gerðu á og við eyjuna. Fæstir vita eflaust nokkuð um þessa litlu eyju, sem er aðeins 1,3 ferkílómetrar, í Kyrrahafi. Eyjan er um 1.100 km suðaustan við Japan og er óbyggð.
18.apr. 2018 - 22:00
Bleikt
Það er algjör óþarfi að fara í sturtu á hverjum einasta degi og þú ert í rauninni frekar að valda húðinni skaða en gera henni gagn með því. Þetta er mat sérfræðings við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum, dr. Elaine Larson.
18.apr. 2018 - 20:00
Bakteríudrepandi sápur gætu verið skaðlegar þunguðum konum og börnum þeirra. Þetta er samkvæmt niðurstöðum skýrslu sem rúmlega tvö hundruð vísindamenn lögðu nafn sitt við og birtust í tímaritinu Environmental Health Perspectives.
18.apr. 2018 - 16:30
Ef þú vilt helst af öllu drekka kaffið þitt svart eru líkur á að þú tilheyrir hópi fólks sem vill drekka eitthvað bragðmikið. Þú gætir líka tilheyrt þeim hópi fólks sem hugsar um heilsuna og sleppir þar af leiðandi mjólk,sykri eða kaffirjóma. Svo gætirðu tilheyrt enn öðrum hópi fólks, þeim sem eru siðblindir.
18.apr. 2018 - 12:30
Reykingar, drykkja eða neysla á óhollum fæðutegundum þurfa ekki að vera hættulegustu venjurnar í lífi fólks. Ný rannsókn sýnir að streitan sem fylgir því að taka vinnuna með sér heim, vera alltaf í sambandi og trufla þannig fjölskyldulífið – er sennilega skaðlegast af öllu. Þetta kemur fram í Sunday Times.
18.apr. 2018 - 07:48
Á föstudaginn munu þingmenn í heilbrigðismálanefnd danska þingsins funda á lokuðum fundi. Fundarefnið er hvort banna eigi umskurð drengja. Á fundinn hafa heilbrigðisráðherrann, dómsmálaráðherrann, utanríkisráðherrann, varnarmálaráðherrann og kirkjumálaráðherrann verið boðaðir. Ræða á málið ítarlega og fara yfir hugsanlegar afleiðingar ef þingið samþykkir að banna umskurð drengja af öðrum ástæðum en læknisfræðilegum.
17.apr. 2018 - 20:00
Þú ert úti að ganga í skóginum og átt þér einskis ills von, sallaróleg/ur og nýtur góða veðursins og sólarinnar þar sem þú ert í sumarleyfi í fjarlægu landi. Skyndilega staðnæmist þú og það hvolfist yfir þig gífurleg hræðsla og spenna þar sem þú stendur augliti til auglits við ljón sem sér þig líka og býst til árásar.
17.apr. 2018 - 12:29
Hver er besta leiðin til að komast í toppform? Þetta er spurning sem brennur á vörum margra nú þegar sumarið nálgast með hverjum deginum sem líður. Dylan Rivier er ástralskur einkaþjálfari sem hefur mikla reynslu af því að aðstoða þá sem vilja auka vöðvastyrk sinn og fá vöðvastæltan líkama.
17.apr. 2018 - 09:30
Orðtakið „að stara sig blindan” ber að taka bókstaflega. Ef maður einblínir á tiltekinn punkt í kyrru landslagi hverfur afgangurinn af sjónsviðinu smám saman.
17.apr. 2018 - 08:00
DV
Á Borgundarhólmi, sem er lítil dönsk eyja rétt undan suðurströnd Svíþjóðar, hafa félagar í nýnasistahreyfingunni Den Nordiske Modstandsbevægelse verið ötulir við dreifingu áróðurs það sem af er ári. Áróðursmiðum hefur verið dreift og límmiðar hafa verið settir upp víða um eyjuna.
16.apr. 2018 - 16:30
Lögreglunni í Ísrael tókst að bera kennsl á týndan hund með því að athuga hvort hann syngur við uppáhaldslagið sitt.
16.apr. 2018 - 12:30
Melanie Darnell er samfélagsmiðlaáhrifavaldur og móðir. Hún varð vinsæl á samfélagsmiðlum eftir að hún byrjaði að deila reynslu sinni af móðurhlutverkinu og hvernig hún heldur sér í formi.
16.apr. 2018 - 07:47
DV
Hin umdeilda sænska nýnasistahreyfing Nordiska Motståndsrörelsen hefur nú tekið upp nýjar aðferðir við að afla nýrra félagsmanna. Nú herja félagar í samtökunum á börn í Lorensbergaskolan grunnskólanum í Ludvika sem er norðaustan við Stokkhólm.
15.apr. 2018 - 20:00
Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þrátt fyrir að geta verið bráðskemmtileg þá geta fyrstu stefnumótin verið taugatrekkjandi og stressandi. Þökk (eða óþökk) sé stefnumótaöppum á borð við Tinder þá eru góðar líkur á að þú hafir aldrei hitt viðkomandi áður en þið farið á stefnumót þannig að það skiptir miklu máli að koma vel fram.
15.apr. 2018 - 16:00
Bloggarinn Laura Mazza stundar að taka upp óborganleg atvik úr lífi sínu öðrum til skemmtunar. Nýverið tók hún upp myndband af sjálfri sér í bíl og náði því á myndband þegar hún tók eftir könguló inni í bílnum.
15.apr. 2018 - 12:00
Stundum er því haldið fram að þeir sem vilja léttast ættu að forðast það eins og heitan eldinn að stíga á baðvigtina. Það geti virkað fráhrindandi að sjá sömu tölu tvo, jafnvel þrjá daga í röð.
14.apr. 2018 - 22:00
Ragna Gestsdóttir
Í nýjasta myndbandi söngkonunnar Janelle Monáe með laginu PYNK kemur píkan við sögu og meðal annars klæðist hún og dansarar hennar buxum sem vísa til píkunnar.
14.apr. 2018 - 20:00
Nátthrafnar segja stundum að þeir muni sofa þegar þeir deyja, en með því að sofa lítið þá gæti dauðinn barið að dyrum fyrr en síðar.
14.apr. 2018 - 16:00
Árið 1994 var blásið til herferðar í Bandaríkjunum sem miðaði að því hvetja mæður – og feður vitanlega – til að láta ungbörn sín sofa á bakinu. Þetta var talið geta komið að gagni í baráttunni gegn ungbarna- og vöggudauða.
14.apr. 2018 - 12:00
Ef þú þjáist af geðsjúkdómi eru líkur á að þú sért gáfaðri en meðalmaðurinn. Þetta er samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem framkvæmd var á tæplega fjögur þúsund meðlimum Mensa.
13.apr. 2018 - 20:00
Leikkonan Julia Louis-Dreyfus, sem er best þekkt fyrir að leika Elaine Benes í þáttunum Seinfeld, leit vel út þegar hún sást á gangi í Beverly Hills í vikunni. Dreyfus hefur nánast ekkert sést opinberlega síðan hún tilkynnti síðasta haust að hún væri að glíma við brjóstakrabbamein og væri á leið í lyfjameðferð.
13.apr. 2018 - 16:00
Ragna Gestsdóttir
Leikkonan Rachel McAdams eignaðist nýlega frumburð sinn, dreng, ásamt unnustanum Jamie Linder. Nafn, fæðingardagur og stærðir hafa hins vegar ekki tilkynntar né hefur kynningarfulltrúi McAdams gefið út tilkynningu. McAdams gaf aldrei út tilkynningu um meðgönguna heldur.
13.apr. 2018 - 12:30
Í gegnum tíðina hefur verið reynt að mæla gáfur með ýmsum aðferðum og engin ein leið sem getur skorið almennilega úr um hvort einhver sé gáfaður eða ekki. Manneskja með lága greindarvísitölu gæti alveg verið snillingur á einhverju öðru sviði svo dæmi sé tekið.
13.apr. 2018 - 09:30
Oftar en ekki má koma í veg fyrir hina ýmsu húðkvilla með breyttu mataræði. Að borða hollan mat hefur ekki aðeins góð áhrif á mittislínuna, ónæmiskerfið og líkamlega og andlega líðan. Mataræðið getur einnig skipt sköpum fyrir heilbrigða húð, hár og neglur.
13.apr. 2018 - 08:00
Það leikur enginn vafi á að stríð setja mark sitt á umhverfi sitt og sögu okkar. Flest þessara spora sjást fljótlega en það var fyrst nýlega, rúmlega 70 árum eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar, sem spor eftir óhugnanlega fortíð fundust í norskum trjám.
12.apr. 2018 - 22:00
Kynlíf á almannafæri, æsandi tal og óundirbúið og snöggt kynlíf í eldhúsinu. Á þetta við um þig? Kannski ekki en sem betur fer hefur fólk mismunandi smekk þegar kemur að kynlífi því annars gæti það kannski bara orðið leiðinlegt.
12.apr. 2018 - 20:00
Sumt er ekki til þess fallið að birta á Facebook og þar með deila með umheiminum. Aðallega út af því að þetta fer í taugarnar á sumum og lítur einfaldlega út fyrir að vera mont og ekkert annað. En samt sem áður birta margir ýmislegt á Facebook sem er til þess fallið að ergja Facebookvinina mikið.
12.apr. 2018 - 12:30
Hnattræn hlýnun er stærsta tilraun sem líffræðingar hafa orðið vitni að. Því hvað mun gerast þegar hnötturinn hitnar um tvær gráður? Stráfalla tegundir eða munu þær ná að aðlagast? Það er ekki vitað, en verður það eftir eina öld? Og margar tegundanna eru að leita sér nýrra búsvæða eða laga sig að hærra hitastigi.
12.apr. 2018 - 07:41
Í ágúst 2016 var Fardous El-Sakka fengin til að leysa af við kennslu í listaskóla í Helsingborg í Svíþjóð. Hún hafði áður kennt þar og var því ekki alveg ókunnug í skólanum. Hún er múslimi og af trúarlegum ástæðum vill hún ekki heilsa karlmönnum með handabandi. Þegar karlkyns samstarfsmenn hennar réttu fram hönd til að heilsa henni lagði hún hönd á hjarta sér og hneigði sig.
11.apr. 2018 - 15:16
Við gætum fengið svar við einni stærstu spurningu allra tíma innan nokkurra daga. Á næstu dögum mun gervihnötturinn ExoMars, sem er á vegum Evrópsku geimferðastofnunarinnar, ESA, byrja að leita að leita að lífi á plánetunni rauðu.
Verkefni ExoMars er að „þefa“ af þunnum lofthjúpi Mars og athuga hvort þar sé að finna metangas, ef metan er að finna á Mars þá bendir það sterklega til að það sé líf að finna en ExoMars getur greint hvort metanið komi frá lífverum eða ekki.
Þetta er stórt skref fyrir ExoMars og fyrir Evrópu. Okkur hefur tekist í fyrsta sinn að komast í sporbaug um Mars og erum tilbúin að leita að lífi,
segir Pia Mitschdoefer stjórnandi leiðangurs ExoMars hjá ESA. ExoMars var skotið á loft árið 2016. Næsta skref ESA er svo að lenda ómönnuðu geimfari á Mars og bora í yfirborðið til að leita að lífi ofan í jörðinni.
11.apr. 2018 - 11:46
Ástarbréf sem skrifað var um borð í skipinu sögufræga Titanic fer brátt á uppboð. Bréfið varpar ljósi á síðustu dagana um borð í skipinu áður en það sökk eftir árekstur við ísjaka fyrir rúmum 106 árum.
11.apr. 2018 - 08:00
Á síðasta ári velti tekjuhæsti Airbnbleigusali landsins 230 milljónum krónum en hann var með 46 gistirými í útleigu. Tíu tekjuhæstu íslensku leigusalarnir á Airbnb veltu 1,3 milljörðum á síðasta ári. Gisting í gegnum Airbnb tekur til sín stóran hluta af heildarfjölda gistinótta eða um 27 prósent á síðasta ári. Hótelin voru með 37 prósent og gistiheimili 12 prósent.
10.apr. 2018 - 20:00
Því er stundum haldið fram að litlu hlutirnir geti gert gæfumuninn þegar heilsa er annars vegar. Hægt sé að taka stigann í staðinn fyrir lyftuna, fá sér vatnsglas í staðinn fyrir djúsglas og svo framvegis.
10.apr. 2018 - 18:30
Þú ert að gera þig reiðubúinn til að borða þessa girnilegu samloku fyrir framan þig. Skyndilega sérðu flugu sveima yfir matnum, hún lendir á samlokunni en flýgur svo á brott jafn skjótt og hún kom. Líklega læturðu þig hafa það að borða samlokuna, ekki satt?
10.apr. 2018 - 15:30
Fyrir áratug voru ekki eftir nema um 50 dýr af gíraffastofninum í Vestur-Afríku. En í samvinnu yfirvalda í Níger og samtakanna „Giraffe Conservation Foundation“ hefur tekist að snúa þróuninni við. Nú eru gíraffarnir orðnir um 200 og öll dýrin er að finna á svæði skammt frá höfuðborginni Niamey.
10.apr. 2018 - 12:30
Myndir af dóttur halda í höndina á föður sínum í gegnum árin hafa gengið eins og eldur í sinu um netheima.
10.apr. 2018 - 08:00
DV
Undirbúningur fyrir útför Margrétar Þóhildar II Danadrottningar er langt á veg kominn. Mörgum kann að þykja þetta undarlegt í meira lagi enda er drottningin við góða heilsu og sinnir embættisverkum sínum. Drottningin er nú 78 ára gömul og á afmæli næstkomandi mánudag. En það er ekki ráð nema í tíma sé tekið þegar kemur að því að undirbúa útför drottningarinnar því undirbúningurinn hófst fyrir 15 árum síðan og er nú á lokametrunum.
09.apr. 2018 - 20:00
Samtök stúlknaskáta í Bandaríkjunum sendu frá sér áminningu til foreldra um að neyða ekki börnin sín til þess að faðma fólk.
09.apr. 2018 - 18:30
Vissir þú að áður fyrr var fyrirburum vafið inn í plastfilmu til að halda á þeim hita. Þó svo að nýjar aðferðir hafi nú tekið við af plastfilmunni á barnaspítölunum þá er hún til margs gagnleg á heimilinu. Hér má finna nokkur sniðug ráð um það hvernig má nota plastfilmu.
09.apr. 2018 - 15:30
Unnið er hörðum höndum að því að framleiða betri rafhlöður fyrir rafrænt samfélag framtíðar. Nú á dögum eru rafhlöður klossaðar, óskilvirkar og hættulegar, og nýrri tækni er ætlað að ráða bót á þessu. Brátt mun líftími rafhlaðna í farsíma aukast verulega, rafhlöður verða saumaðar beint inn í ýmis klæði og farþegaflug kannski knúið af skammtarafhlöðum.
09.apr. 2018 - 12:30
Einhvern tíma fá allir nóg. Yfir árin hafði Tony Bussey þyngst svo mikið að hann tók tvö flugsæti í stað fyrir eitt þegar var verið að flytja hann og annað fólk í burtu frá Fort McMurray eldsvoðanum í maí 2016.
09.apr. 2018 - 11:00
Eftir margra mánaða skipulag þá átti loks að fella 72 metra háan turn í bænum Vordingborg í Danmörku. Tugir verkfræðinga voru búnir að reikna út hvar turninn myndi lenda og koma fyrir sprengiefni á stöðum til að tryggja að svo yrði. Mikið af fólki var svo komið á staðinn til að fylgjast með.
09.apr. 2018 - 08:00
DV
Í dag munu notendur samfélagsmiðilsins Facebook fá skilaboð frá fyrirtækinu. 87 milljónir þeirra munu fá skilaboð um að greiningarfyrirtækið Cambridge Analytica hafi komist yfir upplýsingar um þá. Þessu til viðbótar fá 2,1 milljarður Facebooknotenda skilaboð sem bera heitið „Verndaðu persónupplýsingarnar þínar“. Í þeim kemur fram hvaða öpp eru tengd Facebookaðgandi notendanna og hvaða upplýsingum þessi öpp hafa aðgang að.
08.apr. 2018 - 20:00
Föt fyrir fólk, algjörlega óháð kyni, er það eina sem má finna í fatabúðinni Phluid Project sem opnaði nýverið í Soho-hverfinu í New York borg.
08.apr. 2018 - 16:00
Árið 1997 tókst bandarískum vísindamönnum að rækta mús sem var tvöfalt vöðvameiri en venjulegar mýs. Nú hafa sömu vísindamennirnir við John Hopkins-háskólann ræktað mús sem er fjórfalt vöðvameiri en venjulegar mýs.
08.apr. 2018 - 12:00
Margir telja að gáfur séu meðfæddar og að lítið sé hægt að gera til að auka þær. Það sé í raun ákvarðað strax í móðurkviði hvort einstaklingur komi til með verða gáfaður eða ekki þegar hann vex úr grasi. En þetta er alls ekki raunin. Gáfur má auka með ýmsum hætti, meira að segja á gamals aldri.
07.apr. 2018 - 20:00
Þegar mamma og pabba segjast ekki eiga upphalds barn þá gætu þau verið að segja ósatt og mestar líkur eru á að það sé yngsta systkinið. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar birt er á vefnum Mumsnet.
07.apr. 2018 - 18:05
433
Stoke tók á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna.
Það var Christian Eriksen sem skoraði bæði mörk Tottenham í dag en Mame Biram Diouf jafnaði metin fyrir Stoke í stöðunni 1-0.