16. jún. 2012 - 11:25

Rekin: Ljósmynd Brynju af konu að gefa brjóst fór fyrir brjóstið á yfirmanninum: Myndband

Ljósmyndir Brynju Sigurðardóttur af brjóstagjöf kvenna halda áfram að komast í heimsfréttirnar. Nú heldur amerísk kona að nafni Crystal Scott  því fram að hún hafi misst vinnuna vegna myndar sem Brynja tók af henni að næra barnið sitt. Fyrr í mánuðinum vöktu myndir Brynju af konum í herbúningum að gefa brjóst bæði hneykslan og hrifningu á meðal amerísku þjóðarinnar og var fjallað um myndaflokkinn í öllum helstu fréttamiðlum víðs vegar í heiminum.

Tvær vikur eru síðan Crystal Scott  missti starf sitt sem röntgentæknir. Hún var látin fara aðeins nokkrum dögum eftir að myndirnar birtust í fjölmiðlum.

Yfirmaðurinn rak mig. Það var mikið andlegt áfall. Þeir komu heim til mín og sögðu að fyrirtækið hefði ákveðið að láta mig fara. Þegar ég spurði um ástæður uppsagnarinnar sögðu þau að það væri út af fjölmiðlaumfjölluninni sem ég fékk út af brjóstagjöfinni.

Fyrrverandi vinnuveitandi Crystal hefur sagt að ástæðan fyrir brottrekstrinum hafi ekkert með myndir Brynju að gera. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu kemur fram að hún hafi hringt sig inn veika en yfirmaðurinn hafi fundið út að sama dag var hún í einkaerindum á bíl á vegum fyrirtækisins en GPS tæki í bílnum kom upp um ferðir hennar.

Crystal Scott heldur fast í sína frásögn og segir að yfirlýsing fyrrum vinnuveitanda hennar sé yfirvarp. Hún hafi kvartað undan yfirmanninum mánuði áður og fyrirtækið verið að bíða eftir ástæðu til þess að láta hana fara. Myndaflokkurinn hafi verið tækifærið sem þeir voru að bíða eftir.




19.jún. 2013 - 18:30

Fjölmenn mótmæli í Brasilíu

Flestir mótmælenda eru ungir að árum og er samfélagsmiðlum á borð við Facebook þakkað fyrir hversu mikil þátttakan var. Á mánudag mótmæltu meira en 100.000 manns í Brasilíu og beindust mótmælin aðallega gegn almennt harkalegri framgöngu lögreglunnar, lélegri opinberri þjónustu og miklum kostnaði vegna undirbúnings HM í knattspyrnu.
19.jún. 2013 - 09:15 Kristján Kristjánsson

130.000 manns fluttu frá Þýskalandi 2012 vegna efnahagsástandsins

Þýskaland er fjölmennasta aðildarland Evrópusambandsins og stærsta hagkerfi ESB ríkjanna er það þýska. En nú ber svo við að fólk er farið að flytja frá Þýskalandi vegna vantrúar á að hagkerfið taki við sér og of flókinnar lagalegrar umgjarðar í kringum atvinnulífið.
19.jún. 2013 - 08:10

Nýtt mannránsmál í Ohio: Mæðgur frelsaðar úr prísund

Jordie L. Callahan, fórnarlambið Jessica L. Hunt og Daniel Brow. Myndir FBI. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, og lögreglan í Ashland í Ohio fylki frelsuðu í gær konu og barn sem hafði verið haldið föngnum í minnst tvö ár á heimili í Ashland við ömurlegar aðstæður.
18.jún. 2013 - 20:09

NASA vill aðstoð almennings við að finna hættulega loftsteina

NASA telur að líklega séu um 25.000 loftsteinar á sveimi nærri jörðinni.

Á fimmtudaginn mun Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, í samvinnu við Hvíta Húsið biðja almenning um aðstoð við að finna loftsteina sem geta hugsanlega rekist á jörðina með hrikalegum afleiðingum.

18.jún. 2013 - 17:32

Lýtalæknir dæmdur í fangelsi: Gleymdi þurrku í brjósti sjúklings

Kim Tjelum. Danski lýtalæknirinn Kim Tjelum var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi í undirrétti í Kaupmannahöfn fyrir ýmis afglöp í starfi.
18.jún. 2013 - 13:30

Ók á 150 km/klst á móti umferð á Stórabeltisbrúnni

Í ljós kom að bíllinn sem hann hafði ekið var stolinn og í honum fannst ætlað þýfi. 27 ára karlmaður olli stórhættu á Stórabeltisbrúnni á milli Sjálands og Fjóns í nótt þegar hann ók á allt að 150 km/klst á móti umferð.
18.jún. 2013 - 08:20

Google í baráttu við barnaklám

Google vonast til að geta innan árs opnað nýjan gagnabanka sem á að vera mjög áhrifaríkur í baráttunni við barnaklám á netinu. Gagnabankinn á að vera einskonar samskiptamiðstöð þar sem fyrirtæki og samtök geta skipst á gögnum um barnaklám sem þau finna á netinu.
17.jún. 2013 - 21:15 Kristján Kristjánsson

Lyfturnar bilaðar: Verða að ganga upp 97 hæðir til að komast í íbúðirnar sínar

Princess Towers í Dubai er hæsti skýjakljúfur heims með íbúðarhúsnæði samkvæmt Heimsmetabók Guinness. Þar eru átta lyftur sem flytja íbúana upp og niður nema þessa dagana því það vill svo til að allar átta lyfturnar eru bilaðar og það þýðir aðeins eitt: Íbúarnir verða að nota stigana til að komast til og frá íbúðum sínum, sumar eru á 97. hæð.
17.jún. 2013 - 18:40

Er Tom einn heppnasti maður í heimi? Féll af 15. hæð og lifði af

Hinn tvítugi Tom Stilwell er sagður hafa verið í fríi á Nýja Sjálandi þegar atvikið átti sér stað. Breskur karlmaður lifði í gær af fall af 15. hæð í fjölbýlishúsi í Auckland á Nýja Sjálandi. Tom Stilwell heitir maðurinn og féll hann af svölum nágranna síns sem býr á 15. hæð, en sjálfur er Tom með íbúð á 14. hæð.
17.jún. 2013 - 15:15

Einn magnaðasti skutbíll sögunnar - Mercedes AMG S 4Matic - Myndskeið

Hann er sneggri upp en Porsche 911 Carrera 4S og næstum jafnfljótur og Audi R8 V10 Plus. Samt er hann ekki eiginlegur sportbíll. Miklu frekar fjölskyldubíll með stærsta farangursrýmið í stærðarflokknum, 695 lítra. En hann á fátt sameiginlegt með öðrum skutbílum þegar tölur um afköst eru skoðaðar.


17.jún. 2013 - 11:38

Kettir eru gáfaðri en hundar

Það eru skiptar skoðanir hjá fólki hvort það sé meira fyrir ketti eða hunda. Hvort dýrið er skemmtilegra, gáfaðra og svo framvegis. Nú hafa háskólanemar Bandaríkjunum komist að því að kettir eru betri í því að drekka.
16.jún. 2013 - 19:43

26 skotnir í Chicago í nótt: 6 látnir

Síðastliðin nótt og það sem af er degi hefur verið blóðug og mannskæð í Chicago en 26 hafa verið skotnir og þar af eru 6 látnir og að minnsta kosti fjórir eru í lífshættu. Yngsta fórnarlambið var aðeins 16 ára.
15.jún. 2013 - 15:00

Í 39 ár hafa að meðaltali 2.000 manns keypt nýjan Golf á hverjum degi

Þau tímamót urðu 14. júní sl. að 30 milljónasta Volkswagen Golf bifreiðin rann af færibandinu í verksmiðjunni í Wolfsburg í Þýskalandi. Framleiðsla á Golf hófst árið 1974 og síðastliðin 39 ár hafa að meðaltali yfir 2.000 viðskiptavinir keypt nýjan Golf á hverjum einasta degi.
15.jún. 2013 - 12:00

Stóra handabandsmálið: Neitar að taka í höndina á kvenkyns nemendum

Mikil umræða hefur verið í Danmörku eftir að fjölmiðlar fluttu fréttir í gær af prófdómara við  framhaldsskóla í Herning sem neitar að heilsa kvenkyns nemendum og kennurum með handabandi af trúarlegum ástæðum.
15.jún. 2013 - 09:25

Víðtækt kerfi neðanjarðarganga staðsett undir Evrópu

Skjáskot af mynd á vef Ancient Origins Fornleifafræðingar hafa fundið þúsundir neðanjarðarganga sem gerð voru á Steinöld. Göngin liggja yfir Evrópu frá Skotlandi til Tyrklands en rannsóknarmenn eru ekki vissir um hvaða tilgangi þau hafi þjónað.
14.jún. 2013 - 18:00

Af hverju sýnum við tennurnar í brosinu?

Fyrir 5 – 7 milljónum ára skildi leiðir manna og simpansa í þróunarsögunni. Jafnframt varð sú mikilvæga breyting á tönnum forfeðra manna að augntennurnar urðu stórum minni en þær stóru augntennur eða vígtennur sem enn má sjá í öðrum mannapategundum og mörgum öðrum dýrum.
13.jún. 2013 - 18:30

Eitt glæsilegasta skemmtiferðaskip heims vígt í dag: 12 daga ferð kostar hálfa milljón – Sjáðu myndirnar

Í dag verður nýtt skemmtiferðaskip nefnt með pompi og prakt og mun Kate Middleton, hertogaynjan af Cambridge sjá um að skýra nýjasta skip Princess cruises. Mun skipið hljóta nafnið Royal princess eða konunglega prinsessan og samkvæmt myndum stendur skipið fyllilega undir því nafni.
13.jún. 2013 - 17:30

Kókaín streymir til Danmerkur með bananasendingum

Í síðustu viku fundust um 80 kíló af kókaíni í nokkrum bananakössum sem komu frá Kólumbíu til vöruhúss COOP í Hasselager í nágrenni Árósa. Í morgun fannst svo enn meira kókaín í annarri bananasendingu.
13.jún. 2013 - 11:20

Telja að brjóstamyndataka vegna krabbameinsleitar dragi ekki úr dánartíðni

Það voru vísindamenn við Oxford Háskóla sem framkvæmdu rannsóknina. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar breskrar rannsóknar minnka líkurnar á andláti vegna brjóstakrabbameins ekki þó að konur fari í brjóstamyndatöku.
13.jún. 2013 - 10:10

Snilldar brellur glöddu strætisvagnafarþega: Myndband

Biðstöð strætisvagna, myndavél og góður tæknimaður. Þetta er það sem þarf til að blekkja fólk og gleðja um leið.
13.jún. 2013 - 08:00

Dacia Duster grunnurinn fyrir nýjan Nissan Terrano

Nissan hefur sent frá sér teikningu af bíl sem gefur fyrstu hugmyndir um hvernig nýi Terrano jepplingurinn mun líta út. Það merkilega við þennan nýja bíl er að hann er í raun ekkert annað en Dacia Duster undir nýju merki.

12.jún. 2013 - 20:30

15 prósent danskra karlmanna hafa keypt kynlíf

„Allir aðrir gera það, þess vegna gerði ég það líka.“ Niðurstöður nýrrar könnunar sem Rambøll gerði fyrir danska jafnréttisráðuneytið sýna að 15,5 prósent danskra karlmanna hafa keypt sér kynlífsþjónustu. Þetta eru svipaðar niðurstöður og árið 2005 þegar viðlíka könnun var síðast gerð.
12.jún. 2013 - 09:00 Kristján Kristjánsson

Það getur verið dýrt að brjóta umferðarlögin í Evrópu

Í mörgum löndum er hægt að fá afslátt af sektarupphæðunum. Þeir sem hyggjast aka um Evrópu í sumarfríinu ættu að temja sér að fylgja þeim umferðarreglum sem gilda í löndunum sem þeir hyggjast aka í. Það er auðvitað almenn skynsemi sem eykur öryggi allra í umferðinni en getur líka sparað ansi margar krónur að sleppa við sektargreiðslur.
11.jún. 2013 - 21:30

Börnum líður illa vegna notkunar samfélagsmiðla

Elsa Dunkels hefur rannsakað notkun barna og unglinga á samfélagsmiðlum. Mörg börn byrja ung að nota samfélagsmiðla eins og Facebook og Instagram þrátt fyrir að 13 ára aldurstakmark sé á notkun þeirra. Kennarar benda nú á að mörg barnanna verði stressuð og líði illa vegna notkunar þeirra á samfélagsmiðlunum.
11.jún. 2013 - 19:20

Átti að millifæra 64 evrur en millifærði 222 milljónir

Yfirstjórn bankans brást við með því að reka yfirmann þreytta starfsmannsins. Þýskur bankastarfsmaður var ansi þreyttur einn vinnudaginn. Þegar hann var að vinna að millifærslu fyrir viðskiptavini dottaði hann örlítið með þeim afleiðingum að fingur hans, sem var á tölunni 2 á lyklaborðinu, ýtti lengi á töluna. Þetta varð til þess að í stað þeirra 64,20 evra sem millifærslan átti að vera, margfaldaðist hún og varð 222.222.222,22 evrur.
11.jún. 2013 - 13:00

Orðið „bjór“ eykur kynhvöt

Margir verða varir við aukna kynhvöt eftir nokkra bjóra, en nú sýnir ný rannsókn að kynáhugi karlmanna getur aukist af því einu að sjá orð sem leiðir hugann að áfengi.
11.jún. 2013 - 12:00

Verkfall franskra flugumferðarstjóra getur breiðst til fleiri landa

Danir og Svíar hafa nú þegar sameiginlegt loftrými. ESB stefnir á að koma upp sameiginlegu loftrými yfir Evrópu í stað þess að hvert aðildarland reki sína eigin flugumferðarstjórn. Franskir flugumferðarstjórar hófu verkfall í morgun til að mótmæla þessum fyrirætlunum og snúa ekki aftur til starfa fyrr en á fimmtudag. Líkur eru taldar á að verkfall þeirra breiðist út til fleiri landa.
11.jún. 2013 - 08:00 Kristján Kristjánsson

Metfjöldi útlendinga við nám í breskum háskólum: Áhyggjur af vanskilum námslána

Á síðasta ári skráðu 132.000 stúdentar frá aðildarlöndum ESB sig í nám við breska háskóla og fengu rúmlega 20 milljarða í námslán.
10.jún. 2013 - 10:30

Þrjátíu danskir menntaskólanemendur slösuðust í rútuslysi

30 ungmenni slösuðust við áreksturinn / myndin tengist ekki fréttinni beint. Tveggja hæða rúta með 50 danska menntaskólanemendur rakst upp undir járnbrautarbrú í bænum Moosach, sem er í námunda við München í Þýskalandi, í gærmorgun.
10.jún. 2013 - 09:15

Tæplega helmingur Breta mun fá krabbamein

Sortuæxli. Árið 1992 fengu 32 prósent Breta krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni. Árið 2010 var hlutfallið komið í 44 prósent og nú segja sérfræðingar að árið 2020 verði hlutfallið komið í 47 prósent.
09.jún. 2013 - 21:30

Sjö leiðir til þess að sofna fyrr á kvöldin

Að eiga í erfiðleikum með að sofna er vandamál sem margir kannast við og hafa flestir einhvern tímann lent í því að liggja andvaka á kvöldin. Svefnleysi getur haft neikvæðar afleiðingar og heilsufarsleg vandamál í för með sér, sérstaklega ef það er viðvarandi ástand.
09.jún. 2013 - 20:15

10 sparneytnustu bílarnir - eyðsla frá 1,8 lítra á hundraðið

Íslenski bílaflotinn er einn sá elsti í Evrópu. Að meðaltali eru fólksbílar í notkun hér á landi rúmlega tíu ára gamlir. Það gefur að skilja að eldri bílar eru þjóðhagslega óhagkvæmir. 10-15 ára bílar eyða margir hverjir allt að 25% meira eldsneyti en nýjustu bílar svipaðrar stærðar og þyngdar. Þá er mengun frá elstu bílunum allt að 90% meiri en frá þeim nýju. En hvaða bílar eru þeir sparneytnustu í heimi? Breska dagblaðið Telegraph hefur tekið saman lista yfir tíu sparneytnustu og þá um leið umhverfismildustu bíla á markaði í Bretlandi að undanskildum rafbílum.



09.jún. 2013 - 17:15

Tveggja ára gutti syngur Bítlaslagara: Með yfir milljón áhorf

Bítlalögin virðast búa yfir galdramætti. Vinsældir þessara laga ganga milli kynslóða en þann dag í dag. Hinn tæplega tveggja ára gutti, Diogo Mello, kann vel að meta tóna drengjanna fjögurra frá Liverpool. Þetta myndskeið hefur farið eins og eldur í sinu um netheima og fengið yfir milljón áhorf. 
09.jún. 2013 - 13:00

5 matvæli sem draga úr þér orkuna: Fáðu meiri orku í dagsins önn

Þreyta og orkuskortur eru vandamál sem margir kannast við. Afleiðingin er í mörgum tilvikum langur svefn í eftirmiðdaginn sem síðan veldur svefnleysi að kvöldi til. Rannsóknir sýna að það tekur eldra fólk oft meira en 30 mínútur að sofna á kvöldin. Þeir hinir sömu sofa auk þess ekki jafn djúpt og best væri á kosið og vakna oftar upp um miðja nætur.
09.jún. 2013 - 10:34

Biðst afsökunar á að hafa grýtt eggjum í Simon Cowell: Myndband

Natalie Holt sem æddi upp á svið í lokaþætti hæfileikakeppninnar Britains Got Talent og grýtti eggjum í Simon Cowell í beinni útsendingu hefur beðist afsökunar. Holt tók þátt í keppninni í fyrra en komst ekki áfram.
09.jún. 2013 - 09:00

Google getur spáð fyrir um vinsældir bíómynda

Ætli Google geti spáð fyrir um hvað Man of Steel mun fá í kassann Nú segist Google geta spáð fyrir um vinsældir bíómynda með 94 prósenta nákvæmni og geti sagt til um hversu miklu miðasala muni skila fyrstu sýningarvikuna.
08.jún. 2013 - 21:30 Kristján Kristjánsson

Kaffi er heilsusamlegt

Í hundruði ára hefur kaffi verið einn af vinsælustu drykkjum fólks um víða veröld. En það var bara nýlega sem vísindamenn komust að því að kaffi hefur góð áhrif á heilsuna.
08.jún. 2013 - 17:00

Bjór drap veiðimann

Í Stromechevo í Hvíta-Rússlandi lést veiðimaður sem vildi ná mynd af sér með bjór. Bjórinn var hins vegar ekki sáttur við þá hugmynd og réðst á manninn og beit slagæð í sundur. Manninum blæddi út og lést á leið á spítala.
08.jún. 2013 - 13:29 Kristján Kristjánsson

Svona getur Facebook eyðilagt ástarsambönd

Facebook og aðrir samfélagsmiðlar geta verið gagnlegir fyrir félagslíf fólks en þeir geta verið til óþurftar þegar kemur að ástarsamböndum þeirra.
08.jún. 2013 - 11:45

Elsta systkinið er gáfaðast: Nú hefur það verið sannað

Elstu systkinin fá hærri einkunir í greindarvísitöluprófum en þau yngri. Sennilega eru foreldrar duglegri að örva heilastarfsemi fyrsta barnsins en þeirra sem á eftir koma. Hvert aukastig á greindarvísitöluprófi gefur að meðaltali um 3,5 milljónir í aukatekjur á lífsleiðinni.
08.jún. 2013 - 08:00

Chevrolet TRAX fær fimm stjörnur í Euro NCAP

TRAX, nýi jepplingurinn frá Chevrolet, er þegar farinn að hlaða á sig rósum á mörkuðum erlendis. Nýlega hlaut hann fimm stjörnur í árekstrarprófun Euro NCAP.

 

07.jún. 2013 - 11:05

Grófu meintan morðingja lifandi

Ekki er óalgengt að íbúar í afskekktum héruðum Bólivíu taki lögin í eigin hendur. Á miðvikudagskvöldið fór útför fram í bænum Colquechaca í Bólivíu þar sem Leandra Arias Janco, 35 ára, var jarðsett. Ráðist hafði verið á hana og hún myrt.
07.jún. 2013 - 08:30

Flugfreyja lifði af 10 kílómetra hrap

Flugfreyjan Vesna Vulovic átti eiginlega ekki að vera í vinnu þann 26. janúar 1972. Þessi 22 ára serbneska kona var kölluð út í misgripum í stað nöfnu sinnar og var þess vegna ein af 28 manns um borð í DC-9-flugvél á leið frá Kaupmannahöfn til Belgrad, þegar sprenging varð í vélinni í 10 km hæð yfir Tékkóslóvakíu.
06.jún. 2013 - 22:00

Klámmyndastjörnu stungið í steininn fyrir að smita níu manns af sárasótt

Gríðarlegt uppnám varð í klámiðnaðinum í Los Angeles í Kaliforníu í ágúst á síðasta ári þegar níu klámmyndaleikarar greindust á skömmum tíma með sárasótt. Þúsundir leikara voru sendir í skoðun og var framleiðsla á bláum kvikmyndum stöðvum um tíma.
06.jún. 2013 - 19:00

Brotist inn í tölvukerfi dönsku lögreglunnar

Tveir karlmenn liggja undir grun. Danska lögreglan tilkynnti í morgun að sumarið 2012 hafi tölvuþrjótar brotist inn í tölvukerfi lögreglunnar. Ekki er talið útilokað að upplýsingum í ökuskírteinaskrá og eftirlýsingakerfum tengdum Schengen-samstarfinu hafi verið breytt. Það voru embætti danska ríkislögreglustjórans og tölvufyrirtækið CSC sem unnu að rannsókn málsins, en CSC sér um rekstur tölvukerfanna.
06.jún. 2013 - 08:15

Hvað ákvarðar hvar fita sest á líkamann?

Mikið estrógen gerir konur perulaga, en lítið estrógen gerir karla eplalaga. Hvernig stendur á því að á mörgum konum skuli fitan helst setjast á rass og læri en aðrir fitna á maganum en halda grönnum lærum?
05.jún. 2013 - 20:26

Rindfleischetikettierungsüberwachungs-aufgabenübertragungsgesetz

Nú hefur orðið verið tekið úr umferð. Það er sennilega ekki á allra færi að bera fram orðið sem prýðir fyrirsögn þessarar fréttar en þetta orð var um árabil lengsta orðið sem til var á þýsku og er heilir 63 bókstafir. En fyrir þá sem eru að læra þýsku er hægt að segja þá gleðifrétt að þeir þurfa ekki að læra þetta ágæta orð því nú hefur það verið tekið úr umferð og telst ekki lengur vera til.
05.jún. 2013 - 11:20

Er þetta besta eða versta uppsagnarbréf sem hefur verið skrifað?

Það getur verið meiriháttar mál að ganga í gegnum sambandsslit, þá sérstaklega ef sambandið hefur staðið yfir lengi. Flestir hjónabandsráðgjafar mæla með því að fólk ræði saman og geri upp sambandið augliti til auglitis.
04.jún. 2013 - 13:15

Fyrsti múslimski heimavistarskólinn í Danmörku tekur til starfa

Fyrsti skólinn af þessari tegund var stofnaður árið 1879. Margir danskir heimavistarskólar, þar sem ungmenni á aldrinum 14 til 18 ára geta lokið námi á grunnskólastigi, eru starfræktir á kristnum grunni. En nú dregur til tíðinda því að á næsta ári tekur fyrsti heimavistarskólinn til starfa þar sem múslimsk gildi ráða á meðan ungmennin ljúka grunnskólanáminu.
04.jún. 2013 - 08:00

Tíu ára löngu verkfalli lokið: Árangurinn enginn

Í tíu ár hafa starfsmenn á Congress Plaza hótelinu í Chicago í Bandaríkjunum verið í verkfalli. Verkfallið hófst árið 2003 þegar 130 hótelstarfsmenn neituðu að samþykkja að lág laun þeirra yrðu lækkuð um 7 prósent. Þeir fengu þá 8.40 dollara á tímann.

Sena - Jeff
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 12.6.2013
Þegar hæfileikana vantar
Brynjar Nielsson
Brynjar Nielsson - 17.6.2013
Af hverju ekki allan hagnaðinn?
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Már Sigurðsson - 10.6.2013
Golf fyrir alla 3 (Brautarholtsvöllur) 9. hola - Myndband
Björn Jón Bragason
Björn Jón Bragason - 17.6.2013
Engin kvöldskemmtun á 17. júní?
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 11.6.2013
Stóriðjan borgar verkafólki betur
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens - 19.6.2013
365 miðlar í fararbroddi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 13.6.2013
Laugarvatn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - 16.6.2013
Íslensk fyndni eða erlend
Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson - 17.6.2013
Útúrsnúningar
Fleiri pressupennar