13. jan. 2012 - 19:30

Getty Images
Samkvæmt nýrri rannsókn Harvard háskólans gerir nikótíntyggjó ekkert gagn fyrir þá sem eru að reyna að hætta að reykja. Jafn miklar líkur eru á falli hvort sem menn nota tyggjóið eða ekki.
Karl Erik Lund hjá norska vímuvarnarráðinu segir þessar niðurstöður afar merkilegar og staðfesti fyrri rannsóknir sem hafa sýnt svipaðar niðurstöður.
Það er þjóðsaga að flestir sem hætta að reykja geri það vegna þess að þeir nota hjálparmeðöl.
Langflestir sem ná að hætta að reykja gera það á eigin vegum, án annarra hjálparmeðala en hvatningar og viljastyrks.
Lund bendir jafnframt á að það þurfi hvorki ítarlega skipulagningu né að trappa sig niður til að hætta að reykja.
Skyndiákvarðanir eru alveg jafn vel heppnaðar. Ef þú vilt hætta þá eru það engin vísindi. Það er ekki til nein rétt leið.
Rannsóknin við Harvard háskólann í Bandaríkjunum leiðir í ljós að akkúrat enginn munur er á þeim sem notuðu nikóntíntyggjó eða þeirra sem notuðu það ekki þegar hlutfall þeirra sem falla á bindinu er skoðað.
Það sem gerir þessa rannsókn sérstaklega athyglisverða er að hér var fylgst með venjulegu fólki en ekki þeim sem tóku þátt í rannsókninni sérstaklega til að hætta að reykja.
Við vitum að aðeins fleiri hætta þegar þeir eru meðvitaðir um að þeir séu í rannsókn og finnst eins og stöðugt sé fylgst með þeim.
Rannsóknir sýna að 9 af hverjum 10 falla á fyrsta árinu eftir að þeir hætta að reykja.
Talsmenn fyrirtækja sem framleiða nikótíntyggjó segjast ekki draga þessa rannsókn í efa en benda á fleiri rannsóknir vestanhafs sem sýna að fólki finnist auðveldar að hætta að reykja með aðstoð slíkra hjálparmeðala. Hér sé því ekki neinn stóridómur á ferð.