04. des. 2011 - 09:09
Jómfrúr hverfa með öllu fái konur aukin réttindi. Þetta segja öldungaráðsmenn í æðsta trúarráði Sádí Arabíu, Majlis al-Ifta' al-A'ala, í bréfi til löggjafarþingsins í landinu.
Með bréfinu bregðast þeir við frumvarpi sem heimilar konum að aka bíl.
Afleiðingin, að þeirra mati, verður að þá missi þær allar meydóminn.
Í egypska ritinu BikyaMasr kemur fram að ráðið, sem starfar með prófessor emeritus Kamal Subhi, álykti að frumvarpið stuðli að auknu vændi, klámvæðingu, samkynhneigð og hjónaskilnuðum.
Eftir tíu ár verði engin kona eftir í landinu sem ekki hefur verið afmeyjuð.
Konur í Sádí Arabíu hafa upp á síðkastið storkað yfirvöldum með því að setjast undir stýri og láta handtaka sig.
Abdúlla konungur hefur sýnt nokkurt frjálslyndi og heimilað konum að kjósa og taka þátt í konunglegri ráðgjafanefnd. Hann náðaði persónulega konu sem átti að húðstrýkja fyrir að aka bíl.
Talið er að trúarleiðtogar í landinu bregðist harðar við en ella, þegar kvenfrelsi er til umræðu, vegna þess að þeir sjá að áhrif þeirra fara dvínandi.