11. des. 2011 - 11:50

Facebook / Sigga Maja Siggapalladóttir
Getur það verið? Fannst fullvaxta njálgur í sykurpúða í lokuðum umbúðum sem fylgdu Strumpakönnu? Það virðist að minnsta kosti hjónunum á Melanesi á Rauðasandi.
Sigríður María Sigurðardóttir, bóndi á Melanesi ásamt eiginmanni sínum, Ástþóri Skúlasyni, birti mynd af hvítum þræði sem teygði sig úr sykurpúða á Facebook í gær og skrifaði:
Ég vil vara fólk við að kaupa þessa vöru. Ég lenti í þeirri óskemmtilegu (vægast sagt) reynslu að opna einn svona poka með sykurpúðum í (loftþéttar umbúðir) og við mér blasti njálgur...... já NJÁLGUR!!!! Viljið þið deila þessu áfram og svo væri líka fínt ef einhver veit hver flytur þetta inn. Frændi minn fékk þetta í afmælisgjöf og ég veit ekki hvar þetta var keypt.
Þræðirnir, sem hjónunum sýnist vera njálgur, voru líflausir.
Sykurpúðarnir fylgdu Strumpakönnu sem lítill frændi Sigríðar Maríu fékk í afmælisgjöf.
Vægast sagt ógeðslegt,
segir hún og það finnst fleirum. Sagan gengur staflaust um bæi á Facebook og spjallþráðum.
Læknavaktin fær reglulega sjúklinga í heimsókn sem hafa óþægindi af njálgi.
En þá er njálgurinn líka í líkamanum þar sem hann þrífst best. Hann skríður sjaldnast um nema þegar kvendýrið stingur sér út um endaþarminn til að verpa eggjum. Eggin geta við kjöraðstæður lifað í þrjár vikur.
En er þessi þráður í sykurpúðunum þá njálgur?
Lyfsali sem Pressan talaði við efast stórlega um það.
Mér finnst eiginlega trúlegra að það verði 17 stiga hiti á landinu á morgun,
sagði hann.
Hjónin á Melanesi á Rauðasandi telja líklegt að kannan með sykurpúðunum hafi verið keypt á Patreksfirði og ætla að komast að hinu sanna um leið og tækifæri gefst.
Um njálg er það almennt að segja að hann er sníkjudýr sem lifir í þörmum manna. Ormurinn smitast auðveldlega milli manna með því að egg hans berast inn um munn frá smituðum einstaklingi. Algengast er að eggin berist með fingrum, en einnig geta þau borist frá fötum, sængurfötum, leikföngum og öðrum hlutum, en þau geta lifað við stofuhita í allt að þrjár vikur. Eggin geta einnig svifið um og þannig borist inn um öndunarfærin. Eggin berast niður í smáþarmana þar sem þau klekjast út og ormurinn verður fullþroska á 2-6 vikum. Kvendýrin halda síðan för sinni áfram, jafnan að nóttu til, og út um endaþarmsopið þar sem þau verpa eggjum sínum og hringrásin heldur áfram. Flestir þeirra sem eru smitaðir eru einkennalausir en algengustu einkennin eru kláði við endaþarm síðla kvölds og að nóttu til, eða á þeim tíma sem kvendýrið er á ferli. Það sem veldur kláðanum er annars vegar hreyfing njálgsins og hins vegar límkennd eggin sem festast í húðfellingar við endaþarmsopið.
Ef njálgur greinist, og ætlunin er að meðhöndla þá smituðu, er mikilvægt að meðhöndla alla fjölskyldumeðlimi og það á sama tíma. Lyfjameðferð ein og sér dugar ekki. Hreinlæti er mikilvægt á meðan á meðferð stendur og skal þvo þá staði og hluti sem líklega geyma egg njálgsins vel og vandlega. Sérstaklega ber að athuga nærföt, sem skal skipta um og þvo daglega, sængurföt, leikföng og klósettsetu. Þvo skal hendur fyrir mat og eftir klósettferðir, snyrta neglur allra, þvo sitjanda daglega og kenna skal barninu að halda fingrum þess og hlutum frá munni og nefi.