27. nóv. 2011 - 15:00
Með hverjum á Robert Mugabe að vera á jólunum þegar búið er að drepa alla hina einræðisherrana? Þetta er inntakið í suðurafrískri sjónvarpsauglýsingu sem vakið hefur óskipta athygli.
Auglýsingin sýnir þá Mugabe, Saddam Hússeins og Múammar Gaddafí í góðum fíling.
Mugabe hefur lengi styrkt stöðu sína í Zimbabwe með einræðislegum tilburðum.
Gaddafí var drepinn í Lýbíu í október síðastliðnum.
Saddam var hengdur í jólamánuðinum 2006.
Þarna má líka sjá Idi Amín líka sem murkaði lífið úr fjölda þegna sinna í Úganda á áttunda áratugnum. Hann dó árið 2003 á flótta í Sádí-Arabíu.
Svo er það Botha, forseti í Suður-Afríku til ársins 1989 en talið er að rúmlega 4000 manns hafi verið drepnir í stjórnartíð hans.
Auglýsingin sýnir Robert Mugabe hafa dúkað borð fyrir vini sína, gamla einræðisherra og harðstjóra, en enginn kemur í boðið. Mugabe áttar sig á því að þeir eru allir dauðir.
En hvað er verið að auglýsa?
Jú, veitingahúsakeðjuna Nando í Suður-Afríku.
Leikari sem er nauðalíkur Mugabe verður sorgmæddur og lætur sig dreyma um gamla tíma og undir hljómar „Those were the days“ sem Mary Hopkins gerði frægt.
Mugabe fer í byssuleik með Gaddafí, býr til engla í eyðumerkursandinn með Saddam og rúntar um á skriðdreka með Idi Amín. Svo hrekkur hann upp úr dagdraumum sínum við matarborðið og þulur segir:
Enginn ætti að þurfa að borða einn á þessum árstíma. Kaupið Nandomáltíð fyrir sex.