28. nóv. 2011 - 07:20
Tveir slökkvibílar voru kallaðir út í afar sérstakt verkefni á Sjúkrahús Elísabetar Bretadrottningar. Maður með hring utan um getnaðarliminn upplifði skelfilegan sársauka í 20 mínútur á meðan tíu slökkviliðsmenn unnu við að frelsa kynfæri hans.
Slökkviliðsmenn í Lundúnaborg hafa margt undarlegt séð en þetta er óneitanlega í þeim hópi.
Starfsmenn spítalans gáfust upp við að ná hringnum af getnaðarlim mannsins, eftir því sem segir í breksa Metro, og fengu aðstoð stóru strákanna með rauðu axlaböndin.
Þeir kunnu aðferðir sem dugðu en hringberinn þurfti að bíta á jaxlinn á meðan.
Slökkviliðsmenn fengu tvö útköll af sama toga á tímabilinu frá apríl 2010 til maí 2011 svo að þeir eru farnir að ná nokkurri þjálfun. Raunar hafa þeir komið til hjálpar í 417 tilvikum þar sem fólk er fast í hlutum, vélum eða húsgögnum í Lundúnum undanfarið ár.
Dæmi eru um fólk sem festist í straubretti og DVD spilara. Þrjátíu og sex komust ekki úr handjárnum.
Einn maður leitaði til bráðaþjónustunnar í Kingston-upon-Thames eftir að hafa fest sig í barnabílstól.
Bresk börn eiga sína fulltrúa í hópnum, meðal annars nokkur sem festu höfuðið í klósettsetunni.
Dave Brown, talsmaður slökkviliðsins, hefur beðið almenning í fjölmiðlum að fara gætilega og koma sér ekki í þessar neyðarlegu aðstæður.
Það sé sjálfsagt að hjálpa en aðgerðir af þessu tagi kosti tíma og fé og trufli bráðaþjónustur frá því að sinna erindum fólks sem getur verið í lífshættu.