06. jan. 2012 - 13:55
Nýtt lyf hindrar ofurölvun og kemur í veg fyrir þynnku daginn eftir. Að auki rennur af mönnum á 15 mínútum.
Þetta er að minnsta kosti niðurstaða vísindamanna sem reyndu lyfið á rottum en þeir segja að áhrifin lyfja á rottur séu nánast þau sömu og hjá mönnum.
Vísindamenn hjá Háskólanum í Los Angeles unnu lyfið meðal annars úr kínverskum jurtum en þær hafa verið notaðar gegn þynnku um aldaraðir. Samkvæmt ScienceDaily eru elstu heimildir um þynnkulyfið frá árinu 659.
Vísindamennirnir segjast hafa rannsakað jurtir sem áttu að hafa þynnkuminnkandi áhrif og fljótlega uppgötvað áhrif af efnasambandinu DHM eða dihydromyricetin.
Við rannsóknina á áhrifum lyfsins á rottur fengu þær ígildi 15 - 20 bjóra á tveggja klukkutíma tímabili. Án efnisins urðu rotturnar afar fjótt ofurvöldi og flestar dóu áfengisdauða. Þær rottur sem fengu DHM voru mun lengur að sýna áhrif áfengisins, dóu ekki áfengisdauða og það rann af þeim á 15 mínútum eftir að áfengisneyslu lauk.
Að auki kom í ljós að rotturnar sýndu ekki nein merki þynnku.
Óvænt hliðaráhrif DHM efnasambandsins voru svo að rotturnar misstu alla löngun til áfengisdrykkju, að sögn vísindamanna, sem útskýrðu þó ekki hversu mikla löngun rottur hafa yfir höfuð til áfengisdrykkju.
Unnið er að því að hefja tilraunir með lyfið á mönnum en ekki liggur fyrir hvenær lyfið verður sett á markað, hafi það sömu áhrif á menn og rottur.