03. feb. 2012 - 15:20
Aðeins sex manns stöðvuðu til að hlusta á fiðluleikara á lestarstöð í Washington í Bandaríkjunum. Sá sem þar spilaði var heimsþekktur fiðluleikari sem tveimur kvöldum áður hafði spilað á uppseldum tónleikum þar sem hver miði kostaði 12.500 krónur. Uppákoman var hluti af tilraun um mannlegt eðli.
Joshua Bell er einn þekktasti konsertfiðluleikari heims og spilaði hann sex fiðluverk eftir Bach á 45 mínútum á háannatíma í Washington í Bandaríkjunum. Þúsundir manna gengu framhjá honum meðan hann spilaði, en á þeim tíma stöðvuðu aðeins sex til að njóta tónlistarinnar og samtals voru honum gefnar tæpar 4.000 krónur.
Þegar hann hætti að spila og pakkaði fiðlunni, klappaði enginn né brást við með einum eða öðrum hætti.
Það sem enginn áttaði sig á var að fiðluleikarinnar á lestarstöðinni væri ekki sveltandi listamaður, heldur heimsþekktur fiðluleikari sem lék verkin á fiðlu sem metin er á um 430 milljónir króna og að verkin sem hann hafði leikið voru einhver erfiðustu fiðluverk heims.
Jafnframt að Bell er einhver eftirsóttasti fiðluleikari heims og er alla jafna uppselt á tónleika hans og slegist um miða. Þannig hafði hann tveimur kvöldum áður spilað á tónleikum í Boston þar sem meðalverð á sæti var 12.500 krónur og löngu var uppselt á þá.
Uppákoman á lestarstöðinni var tilraun sem skipulögð var af bandaríska stórblaðinu Washington Post. Tilgangurinn var að kanna mannlegt eðli um forgangsröðun, smekkvísi og skilning á menningu þegar fólk á ekki von á slíku. Stóra spurningin var; kann fólk að meta hámenningu í hversdagsleikanum á stað þar sem ekki var von á slíku.
Óhætt er að segja að mannskepnan hafi fengið falleinkunn á þessu prófi og spyr Washington Post hvort ekki sé kominn tími til að gefa sér tíma til að tíma til að njóta lífsins. Listin leynist alls staðar.
Upptöku af uppákomunni má sjá hér að neðan.