20. des. 2011 - 19:40
Þjóðsögur um ótrúlega hæfileika hins nýfallna leiðtoga Norður Kóreu, Kim Jong-il, berast nú frá landinu. Þannig átti hann að hafa lært að ganga 3 vikna og í eina skiptið sem hann spilaði golf, hafi hann farið 11 sinnum holu í höggi.
Norður Kóreumenn hafa syrgt Kim Jong-il frá því að tilkynnt var um lát hans í fyrrinótt. Rétt eins og með föður hans, Kim Il Sung, hafa opinberir fréttamiðlar nú sagt frá hæfileikum leiðtogans, sem eru hreint undraverðir.
Á fæðingardegi Kim Jong-il skinu stjörnurnar þannig óvenju skært og hann fæddist á snævi þöktum hæsta tindi landsins. Hann lærði að ganga 3 vikna gamall og aðeins fimm vikum síðar var hann altalandi. Ungur að aldri áttaði hann sig á því að hann gat breytt veðri með einbeittri hugsun og hann samdi sex óperur sem taldar eru meistaraverk á aðeins tveggja ára tímabili.
Þá fann Kim Jong-il upp hamborgarann, sem flestir hafa hingað til talið að væri upprunninn á vesturlöndum, en svo er ekki samkvæmt fjölmiðlum í Norður Kóreu.
Kim Jong-il reyndist afburða arkitekt, þrátt fyrir að hafa aldrei lært slíkt, og teiknað helstu byggingar landsins sem reistar voru á valdatíma hans. Þá var hann sérfræðingur í netmálum, samdi kennslubækur um blaðamennsku og kvikmyndagerð sem eru taldar þær fremstu á sínu sviði í heiminum, að mati fjölmiðla í Norður Kóreu.
1994 ákvað Kim Jong-il að prófa að spila golf. Það hafði hann aldrei gert áður. Á 18 holu golfvelli fór hann 11 sinnum holu í höggi og ákvað þá að golf væri einfaldlega of auðveld íþrótt og spilaði aldrei aftur.
Norður kóreskir fjölmiðlar skýra einnig frá því að gervöll heimsbyggðin hafi haldið upp á afmælisdag Kim Jong-il með flugeldasýningum og skrúðgöngum og að hann hafi haft mikil áhrif á tískubransann með klæðaburði sínum.