16. jan. 2012 - 07:43

Ricky Gervais fór sem fyrr á kostum á Golden Globe í nótt
Breski grínistinn Ricky Gervais fór á kostum í nótt í hlutverki kynnis á Golden Globe verðlaunahátíðinni í nótt. Hann skaut föstum skotum á Justin Bieber, Kim Kardashian, verðlaunin sjálf og NBC sjónvarpsstöðina, sem sýndi hátíðina.
Gervais birtist á sviðinu með bjór, tók sopa og hóf útsendinguna með orðunum:
Hvert var ég kominn?
Hann sagði að Golden Globe verðlaunin væru eins og Óskarsverðlaunin, fyrir utan virðuleikann.
Hann notaði svo tækifærið og skaut föstum skotum á faðernispróf Justin Bieber og gerði grín að Kim Kardashian.
Hann eyddi svo drjúgum tíma í að skjóta á NBC sjónvarpsstöðina sem sýndi 69. Golden Globe verðlaunin.
Í kvöld sjáið þið stærstu stjörnu Bretlands, stýra næst stærstu verðlaunaafhendingu heims á þriðju stærstu sjónvarpsstöð Bandaríkjanna. Ó, afsakið, fjórðu. Fjórðu stærstu.
Og hann bætti við:
Golden Globe verðlaunin eru í samanburði við Óskarsverðlaunin eins og Kim Kardashian í samanburði við Kate Middleton. Háværari, druslulegri, fyllri og það er auðveldara að kaupa. Segir sagan. Það hefur ekkert verið sannað!
Opnunaratriði Gervais má sjá hér að neðan en helstu sigurvegarar Golden Globe í nótt voru svart-hvíta franska kvikmyndin The Artist, aðalleikarinn Jean Dujardin var valinn besti karlleikarinn, The Descendants var valin besta dramatíska myndin, George Clooney fyrir hlutverk sitt í henni og Martin Scorsese var besti leikstjórinn og Meryl Streep var valin besta kvenleikkonan.