10. feb. 2012 - 11:45
Forbes um Lagarfljótsorminn: Vísvitandi blekking sem RÚV sýnir því engin tröll sáust - Mótor í hausnum!

Úr myndbandi Hjartar Kjerúlf
Forbes segir að myndband sem RÚV sýndi af meintum Lagarfljótsormi sé vísvitandi blekking þar sem engin tröll hafi sést þann dag. Um sé að ræða fjarstýrt tæki með krókódílahaus úr plasti.
Forbes er eitt tuga erlendra vefrita og raunar hefðbundinna fjölmiðla út um allan heim sem tekið hafa upp frétt RÚV um Lagarfljótsorminn sem náðist á myndband og sýndur var í fréttum Sjónvarps. Vefurinn segir að hinir trúðu tali um sönnun fyrir Lagarfljótsorminum en svo sé alls ekki.
Leggjum aðeins til hliðar allar góðar ástæður fyrir því af hverju svona skepna, ekki ósvipuð frænku sinni í Loch Ness, ætti að vera til, þá ættirðu að sjá það ef þú horfir á myndbandið nokkrum sinnum...Takið eftir hvernig höfuðið á að vera eins og krókódílahaus eða snákahaus, kannski stór kyrkislanga, og er í engu hlutfalli við líkamann. Og fyrst við erum á þessum nótum, hversu margar kródódíla- eða snákalegar skepnur vitið þið um sem þrífast í ísköldu vatni? Einmitt!
Forbes kemst að þeirri niðurstöðu og upplýsir lesendur sína um að hér sé á ferðinni vísvitandi blekking. Líklega sé hér á ferð fjarstýrð skepna úr plasi og öðrum efnum þar sem vélin er staðsett í höfðinu.
Þú getur búið til þitt eigið sjóskrímsli með því að taka skelina utan af fjarstýrðum smábáti með sæmilegri vél og sett plasthaus af krókódíl í staðinn. Bættu svo nokkrum tréplönkum eða kannski plasti fyrir aftan og tengdu með keðju. Komdu þessu svo vel fyrir í ísilagðri ánni og láttu það liðast um svæðið. Ó, og myndaðu það fyrir YouTube að sjálfsögðu (eða sendu það bara til RÚV og þeir munu víst sýna það, að því gefnu að það sjáist engin tröll þann daginn.)
Myndbandið sem RÚV birti má sjá hér fyrir neðan.
08.maí 2012 - 20:00
Frægðina getur verið erfitt að höndla. Það varð líka allt vitlaust þegar fræg stórstjarna mætti í verslunarmiðstöðina. En hver er stjarnan?
07.maí 2012 - 19:30
„Mér fannst þetta mjög fyndið“, segir móðir ríflega ársgamals barns sem ljón sem reynir að éta í dýragarði í Bandaríkjunum.
07.maí 2012 - 17:35
Breska lögreglan hefur bannað starfsmönnum sínum að nota frasann „svartur listi“ yfir eitthvað óæskilegt. Frasinn þykir nú lykta af rasisma.
06.maí 2012 - 20:00
Hin 41 árs Dawn McManus tók sig til nýlega og breytti nafni sínu. Nýja nafnið er 161 orð alls og inniheldur meðal annars yfir 20 kvenmannsnöfn.
21.apr. 2012 - 20:00
Lofthræðsla er eitthvað sem margir kannast við. Þessi gefur lofthræðslu nýja merkingu.
21.apr. 2012 - 13:50
Sænskur lögreglumaður sem stöðvaði ökumann sem ók án bílbeltis, stakk upp á að fá salat gegn því að sleppa að skrifa sektarmiða. Ökumaðurinn kærði lögregluna vegna atviksins.
20.apr. 2012 - 19:10
Dómstóll í Ástralíu hefur úrskurðað að opinber starfsmaður sem ljós féll á meðan hún stundaði kynlíf á hóteli, eigi að fá bætur. Um vinnuslys hafi verið að ræða.
19.apr. 2012 - 20:05
Auglýsingagerðarmaður sem beðinn var um að búa til auglýsingu fyrir Nike, ákvað frekar að ferðast um heiminn fyrir peningana sem áttu að fara í auglýsinguna. Og afraksturinn er hreint ótrúlegur.
19.apr. 2012 - 18:45
Myndbandsupptaka af óvenjulegu athæfi við Vestmannaeyjabæ þar sem maður hangir í mikilli hæð í 2x260 metra reipi sem hann svo losar, hefur vakið mikla eftirtekt.
18.apr. 2012 - 22:42
Það eru ekki allir fæddir undir heillastjörnu. Það sannast á þessum bílstjóra.
16.apr. 2012 - 11:47
„Ég er vissulega orðin 85 ára en ég er aldeilis ekki dauð“, segir hin 85 ára gamla Klara Hegerland sem fékk bréf frá lækninum sem sagði að hún væri látin.
14.apr. 2012 - 20:00
Sænsk blondínuauglýsing hefur valdið miklum usla í frönsku forsetakosningunum en þar biður 24 ára gömul frönsk-sænsk stúlka hinn sextuga Jean-Luc Mélenchon um að stjórna sér og stýra.
14.apr. 2012 - 16:30
26 ára sænsk kona vill láta skrá sig sem kött. Hún er nefnilega sannfærð um að hún sé kisa.
14.apr. 2012 - 15:00
Nærri 12 milljónir hafa horft á nýtt myndband sem gerir grín af þrívíddarútgáfu stórmyndarinnar Titanic. Aðeins vika er síðan myndbandið var sett á YouTube.
28.mar. 2012 - 11:01
Breskur almenningur er í uppnámi eftir að myndband úr eftirlitskerfi verslunar, sem sýnir þegar fimm ára stúlka sem eina stundina dansar af lífsgleði milli vörurekka og lamast því næst fyrir lífstíð eftir skotárás, var sýnt í réttarhöldum þar í landi.
26.mar. 2012 - 20:00
Hinn 51 árs gamli Lauw Tjoan Eng þjáist af sjaldgæfum húðsjúkdómi en þráir það heitast að upplifa sinn fyrsta koss. Hann segist ekki þora út að deginum og enginn vilji ráða sig í vinnu vegna útlitsins.
26.mar. 2012 - 18:20
83 ára gamall, bandarískur ellilífeyrisþegi hefur krafið Apple tölvufyrirtækið um bætur sem nema um 167 milljónum kr. Konan gekk á glervegg Apple-verslunarinnar á Long Island og nefbrotnaði meðal annars við það.
26.mar. 2012 - 16:25
Gyðingar eru æfir eftir vegna auglýsingaherferðar þar sem nasistaleiðtoginn Adolf Hitler er í aðalhlutverki. Þar hvetur hann karlmenn til að nota karlasjampó.
25.mar. 2012 - 14:55
Maður nokkur var stöðvaður af lögreglu þegar hann reyndi að klífa byggingu dagblaðsins New York Times í miðri Manhattan í gær. Erindið var að sækja sér eintak af blaði dagsins. Byggingin er 52 hæðir en maðurinn hafði aðeins náð að klífa fimm hæðir, að því er fram kemur í New York Post.
24.mar. 2012 - 21:11
Þátturinn Britain´s Got Talent hefur skartað mörgum áhugaverðum atriðum. Sumum góðum, öðrum talsvert verri. Austanhafs er nú veðjað á að þetta sé líklega það versta sem komið hefur.
22.mar. 2012 - 20:00
Gróf klámsíða tengir sig Íslandi og sjást þar afar grófar myndir af stúlkum sem sagðar eru heita Bryndís, Kristbjörg, Sigurvina og Eva, svo dæmi séu tekin. Ekkert hægt að gera í þessu, segir tölvusérfræðingur.
21.mar. 2012 - 13:40
Þegar bíllinn festist í snjó fór hann út og ætlaði að setja mottu undir dekkinn til að losa hann. Þá hrökk bíllinn í gang með þeim afleiðingum að hann festist undir afturhjólinu.
20.mar. 2012 - 20:10
Maður á fertugsaldri losaði sig við 45 kíló á 6 mánuðum með því að nota amfetamín sem megrunarlyf. Hann segist hins vegar í staðinn hafa orðið fíkill í peningavanda.
20.mar. 2012 - 16:55
Nokia hefur sótt um einkaleyfi á tækni sem felst í því að örflaga er grædd undir húð símnotenda og gefur hún frá sér titring þegar síminn hringir eða þér berst sms.
20.mar. 2012 - 14:42
Tveggja ára stúlka fannst á götu úti í Björgvin í Noregi á náttfötum og í stígvélum um miðja nótt. Foreldrarnir voru ekki heima hjá barninu.
19.mar. 2012 - 20:10
Þetta var eins og atriði úr James Bond mynd, sagði sjónarvottur, eftir að fjórir menn drukku og átu fyrir háar fjárhæðir á veitingastað á 55. hæð og köstuðu sér svo skyndilega fram af svölum hússins til að stinga af frá reikningnum.
17.mar. 2012 - 20:31
Hollenskur karlmaður sem fór í aðgerð eftir að hafa beinbrotnað þegar hann datt á gangstétt, hlær nú allan liðlangann daginn. Eiginkonunni er hins vegar ekki skemmt.
17.mar. 2012 - 12:56
Martröð hvers foreldris varð að veruleika í skemmtigarði í Houston í Texas í Bandaríkjunum á miðvikudag, þegar móðir horfði á þriggja ára dóttur sína losna úr tækinu Kolkrabbinn og kastast úr tækinu á ferð.
15.mar. 2012 - 10:20
12 ára stúlka hefur greinst með lífshættulegt og afar sjaldgæft ofnæmi. Hún getur hreinlega dáið úr kulda og verður að vera lokuð inni til að halda á sér hita.
13.mar. 2012 - 18:50
Það gengur ýmislegt á í sjónvarpi. En stundum gerist ekkert, eins og sjá má hér.