17. mar. 2010 - 22:15

Enn af furðulegum myndum - Hvernig er eiginlega hægt að útskýra þessar ? MYNDIR

Mynd 1 af 10

Hvað er eiginlega um að vera þarna ? Tíðkast svona ræktun víða?

Aftur í frétt

Left Right



02.sep. 2010 - 22:15

Taktu mjög vel eftir: Þetta fólk í þessum aðstæðum sést bara einu sinni - MYNDIR

Superman á skíðum í góðum fíling. Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 18:00

Hvolpamorðinginn gaf sig fram: Segja almenningi standa ógn af henni - Hótað öllu illu

Þarna sést Katja Puschnik þrykkja hvolpunum í ána. Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 15:18

Útivistarfólki stafar hætta af eldisfiski sem stekkur þrjá metra í loft upp - MYNDBAND

Minnstu munar að vatnakarfinn stökkvi á Kirby og roti hann Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá  hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
01.sep. 2010 - 22:10

uuuu .... hvað gengur eiginlega á? Hver yrði ekki hræddur við þessa? MYNDBAND

Þessi huggulega stúlka tekur hressilega á því í flutningi sínum. Söng- og leikhæfileikar  fólks eru mismiklir og fólk leggur mismikið á sig til að ná árangri. Þetta tilvik hér synir svo ekki verður um villst að sumir eiga meira erindi í opinbera birtingu en aðrir.
01.sep. 2010 - 21:30

Eru lokkarnir svo mikils virði? Makki íþróttastjörnu tryggður fyrir rúmar 120 milljónir

Troy Polamalu. Þykkir lokkar íþróttamannsins Troy Polamalu hafa verið tryggðir fyrir gríðarháa upphæð. Hann sjálfur pungar ekki út upphæðinni, heldur hárvörufyrirtæki.
01.sep. 2010 - 12:00

Kornsnákur í íbúð í Breiðholti - Lögreglan handsamaði hann og gerði „viðeigandi ráðstafanir“

Lögreglan handsamaði metralangan snák í Breiðholti.
01.sep. 2010 - 07:02

Er þetta versta uppfinning sögunnar eða tímalaus snilld? Alla vega aðeins fyrir þá huguðu

Hver kannast ekki við að reyna að sofa í flugvél eða rútu, en ná ekki að festa svefn vegna birtunnar eða annarra óþæginda? Nú er komin lausn á þessu hvimleiða vandamáli, en því miður hefur hún hlotið misjafnar móttökur.
31.ágú. 2010 - 22:00

Mest pirrandi gaur í heimi? Já! Sérstaklega fyrir saklaus fórnarlömb - MYNDBAND

Gaillard stingur eitt fórnarlambið af upp vegg. Franski hrekkjalómurinn Rémi Gaillard, sem hefur lagt stund á prakkarstrik í fjölda ára, er líklegast að gera samlanda sína gráhærða. Að minnsta kosti þau sem lenda í honum.
31.ágú. 2010 - 21:00

Leita geranda grófs dýraofbeldis: Þrykkir litlum hvolpum út í á - Ekki fyrir viðkvæma

Stúlkan hendir hvolpunum út í ána. Leitað er ljósum logum að ungri stúlku sem talin er vera frá Evrópu. Myndband af henni, þar sem hún framkvæmir hrottalegt ofbeldi gagnvart hvolpum, hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Ekki liggur fyrir hvers lensk stúlkan er, en tal í myndbandinu bendir til þess að hún sé frá einhverju Austur-Evrópulandi.
31.ágú. 2010 - 15:07

Hann er með myndavél í stað auga - Nú vill hann finna konu sem vill skotvopn í stað fótar

Ertu einfætt kona? Nú getur þú fengið gervifót sem skýtur litboltum.
31.ágú. 2010 - 10:06

Vó 186 kíló í fyrra og fór í aðgerð- Er á leið með að verða lífshættulega grannur

Hægra megin má sjá Kaltveit fyrir aðgerðina. Ove Kaltveit var 186 kíló þegar hann gekkst undir magaminnkun í mars í fyrra. Hann hefur grennst svo hratt að hann er á góðri leið með að verða lífshættulega grannur.
31.ágú. 2010 - 07:00

Hafði saknað eiginkonunnar í fjóra mánuði: Fann hana undir ruslahaug á heimilinu

Hin 67 ára Billie Jean James fannst undir ruslahrúgu á heimili sínu. Hennar hafði verið leitað í 4 mánuði. Í fjóra mánuði hafði lögreglan í Las Vegas leitað að Billie Jean James eftir að eiginmaður hennar tilkynnti um hvarf hennar. Leitinni var hætt eftir að lík konunnar fannst á heimili þeirra hjóna þar sem hún lá undir haug af drasli.
29.ágú. 2010 - 15:45

Dauðadrukknir Íslendingar slást á Youtube - „Það er ekkert fake í þessu“ - MYNDBAND

Það er stíft drukkið í Dead drunk but trying. Dauðadrukknir íslenskir karlmenn slást í nýjasta þætti Dead drunk but trying. Þátturinn er númer tvö í þáttaröðinni og hefur hann vakið mikla athygli um allan heim.
29.ágú. 2010 - 12:30

Mismunandi óskir aðdáenda - Klósettið sem John Lennon notaði í þrjú ár selt fyrir stórfé

John Lennon og klósettið góða. Klósettið sem John Lennon notaðist við á árunum 1969 til 1972 seldist fyrir stórfé á uppboði á dögunum. Klósettið sem þykir ekki merkilegra en hvert annað, fyrir utan að John Lennon notaði það, fór á tæplega tvær milljónir króna á uppboðinu.
28.ágú. 2010 - 21:35

uuuuhhh? Eiga karlar að gera þetta svona? Er þetta virkilega rétta leiðin? MYNDBAND

Eins og allir karlar þekkja geta eldhússtörfin reynst þrautinni þyngri. Sumum karlmönnum þykir ekki mjög karlmannlegt að sinna eldhússtörfunum en hérna er komin leið sem allir karlar ættu að geta fellt sig við. Hið svokallaða Macho salat hefur verið kynnt til sögunnar.
28.ágú. 2010 - 20:10

Breski njósnarinn sem fannst í íþróttatösku gæti hafa tekið þátt í furðulegum kynlífsleikjum

Lögregluþjónn á vaktinni fyrir utan heimili njósnarans. Hann fannst á heimili sínu ofan í íþróttatösku. Rannsókn bresku lögreglunnar á morði njósnarans sem fannst pakkaður inní íþróttatösku stendur nú yfir. Fjölmörgum spurningum um manninn er enn ósvarað og hafa slúðurmiðlar tengt veru hans í íþróttatöskunni við einkennilegar hvatir hans í kynlífinu.
28.ágú. 2010 - 18:56

Hvað ef Facebook hefði alltaf verið til? Guð, Lincoln, Darwin og fleiri tjá sig - MYNDIR

Hvað var Guð að hugsa þegar hann skapaði manninn? Hvað sagði ísjakinn við Titanic? Hvernig brást Newton við þegar eplið féll á höfuð hans? Og hvað ef allir ofangreindir höfðu viðrað skoðanir sínar á Facebook?
28.ágú. 2010 - 17:35

Gunnar og Jónína giftu sig í dag: „Hef aldrei séð aðra eins athöfn“ - Leystist upp í lofgjörð!

Mynd frá fyrra brúðkaupi þeirra hjóna. Gunnar Þorsteinsson, kenndur við Krossinn, og Jónína Benediktsdóttir gengu í það heilaga fyrir framan fjölda fólks í dag. Gunnar segist hafa verið viðstaddur margar kirkjulegar athafnir en hann segir sú sem hann tók þátt í dag hafi verið hreinlega stórkostleg.
27.ágú. 2010 - 22:57

Ómögulegt ekki í orðabókinni: Kemur öllum á óvart með snilldar spili...með tánum - MYNDBAND

Það er óhætt að segja að kínverski listamaðurinn Liu Wei hafi slegið í gegn í China´s Got Talent þáttunum og komið dómurum jafnt sem áhorfendum í opna skjöldu þegar hann hóf að spila á píanó af mikilli list...með tánum.
27.ágú. 2010 - 21:40

Hámark letinnar: Er hægt að spara sér nokkrar kaloríur til með þessu móti? MYNDIR

Pissa sitjandi....og hafa fyrir því að draga stólinn með sér... Það er óhætt að segja að offita sé vandamál í vestrænum þjóðfélögum en stundum gengur letin út í öfgar.
27.ágú. 2010 - 19:50

Vörubílstjóri keypti köttinn í sekknum – Fékk hjartaslag eftir kelerí með klæðskiptingi

Vörubílstjóri fékk hjartaáfall og dó þegar hann uppgötvaði að hann var í þann mund að hafa mök við klæðskipting í vændishúsi en ekki raunverulega konu.
26.ágú. 2010 - 08:40

Ekki lengur grín að henda kisu í ruslið: Biðst loksins afsökunar - Stundarbrjálæði og man ekkert

Mary Bale, konan sem hefur öðlast heimsfrægð- og fordæmingu - fyrir að henda ketti ofan í ruslatunnu, hefur beðist opinberlega afsökunar á hegðun sinni. Henni hefur borist fjölmargar morðhótanir frá óðum dýravinum.
26.ágú. 2010 - 07:00

Hvað varð um trúfrelsið á Norðurlöndum? Bannað að stofna kirkju fullnægingarinnar

Meg Ryan fær frægustu fullnægingu sögunnar. Svíar fá þó ekki að tilbiðja hana. Eftir áralanga baráttu við kerfið hefur Carlos Bebeacua þurft að lúta í lægra haldi í viðleitni sinni til að stofna trúfélag sem tileinkað er kynferðislegri fullnægingu. Sænskir dómstólar úrskurðuðu að kirkjan væri móðgandi fyrir hina trúuðu.
25.ágú. 2010 - 22:20

Ekki svo harður nagli í tívolíinu - Kærastinn hágrét þegar fjörið náði hámarki - MYNDBAND

Ungi maðurinn hágrét fyrir framan kærustuna. Karlmenn eru mismiklar hetjur þegar á reynir. Sumir eru harðir naglar þegar ekkert er um að vera en þegar álagið hefst, þá er oft stutt í tárin.  Sú var raunin í tilfelli þessa unga manns, hann grét við hliðina á ungri kærustu sinni í einu tækjanna í tívolíinu.
25.ágú. 2010 - 20:45

Elin rýfur loks þögnina um framhjáhald Tiger Woods - „Ég var algerlega grunlaus um svikin“

Á meðan allt lék í lyndi hjá Tiger og Elinu. Elin Nordegren hefur loks rofið þögnina og talar á opinskáan hátt um ítrekuð svik fyrrverandi eiginmanns síns, Tiger Woods. Hún segist hafa verið gersamlega grunlaus um hegðun Tiger og segist hún hafa gengið í gegnum mjög erfiða tíma frá því framhjáhaldið komst upp.
25.ágú. 2010 - 18:45

Dularfullt morðmál skekur Bretland: Dauður njósnari finnst heimavið... í íþróttatösku

Bretar taka nú andköf yfir dularfullu morðmáli í London: 31 árs gamall maður fannst stunginn til bana og líkinu hafði verið troðið í íþróttatösku á heimili hans. Margt bendir til að maðurinn hafi verið njósnari hennar hátignar.
25.ágú. 2010 - 11:26

Kona sem henti ketti í ruslið: Hvað er málið eiginlega? Þetta er bara einn köttur! MYNDBAND

Bresk kona sem henti ketti í ruslatunnu og lokaði, segist ekki skilja af hverju fólk sé í uppnámi. Þetta hafi bara verið einn köttur og hún hafi gert þetta í gríni. Kötturinn var fastur í ruslatunnunni í fimmtán klukkustundir en atvikið náðist á myndband.
25.ágú. 2010 - 08:28

Ókunnur aðili notar nafn Ásdísar Ránar og fær stúlkur til að fækka fötum og senda sér nektarmyndir

Ásdís Rán er miður sín yfir misnotkun óþekkta tölvuþrjótsins Óþekktur aðili hefur síðustu mánuði notað nafn fyrirsætunnar Ásdísar Ránar og fengið tugi stúlkna til að fækka fötum fyrir framan vefmyndavélar og senda sér nektarmyndir. Ásdís Rán segist miður sín yfir þessu og hefur látið lögreglu vita.
25.ágú. 2010 - 07:00

Hversu drukkinn getur maður orðið? Skotinn í höfuðið en kúlan uppgötvaðist 5 árum síðar

Röngtenmynd af höfuðkúpu Pólverjans sem hafði gengið með byssukúlu úr 22 kalíbera byssu í höfðinu í fimm ár. Pólskur karlmaður, sem búsettur er í Bochum í Þýskalandi, varð rasandi hissa þegar læknar fundu byssukúlu aftan í höfðinu á honum. Í ljós kom að hann hafði verið skotinn í höfuðið fimm árum áður.
24.ágú. 2010 - 22:35

Þetta kallar maður súludans! Hvernig fara þeir eiginlega að þessu? MYNDBAND

Indversku karlmönnunum leiðist ekki að sveifla sér á súlunni. Súlufimi nýtur vaxandi vinsælda sem íþróttagrein á Íslandi. Súlufimi hefur lengi notið mikilla vinsælda úti í heimi og eru margir sem hafa náð ótrúlegum árangri í greininni.  Á Íslandi eru iðkendur súlufimi nánast eingöngu kvenmenn en sú er ekki raunin víða erlendis.



Skipta um leturstærð

Breyta um tungumál



Leit