02.sep. 2010 - 22:15
Sumir einstaklingar hér á jörð eru þannig af Guði gerðir að þeim tekst í sífellu að koma sér í aðstæður sem ætti varla að vera hægt að koma sér í.
02.sep. 2010 - 18:00
Eftir að myndband fór í dreifingu um netheima, með stúlku að þrykkja hvolpum í á, varð allt vitlaust. Ýmsir þrýstihópar létu til sín taka og há peningaverðlaun voru boðin þeim sem gæti nafngreint hana.
02.sep. 2010 - 15:18
Myndband af hundruð vatnakarfa takast hátt á loft þegar hraðbát er siglt framhjá hefur vakið mikla athygli í netheimum. Veiðistangirnar um borð voru gersamlega óþarfar.
01.sep. 2010 - 22:10
Söng- og leikhæfileikar fólks eru mismiklir og fólk leggur mismikið á sig til að ná árangri. Þetta tilvik hér synir svo ekki verður um villst að sumir eiga meira erindi í opinbera birtingu en aðrir.
01.sep. 2010 - 21:30
Þykkir lokkar íþróttamannsins Troy Polamalu hafa verið tryggðir fyrir gríðarháa upphæð. Hann sjálfur pungar ekki út upphæðinni, heldur hárvörufyrirtæki.
01.sep. 2010 - 12:00
Lögreglan handsamaði metralangan snák í Breiðholti.
01.sep. 2010 - 07:02
Hver kannast ekki við að reyna að sofa í flugvél eða rútu, en ná ekki að festa svefn vegna birtunnar eða annarra óþæginda? Nú er komin lausn á þessu hvimleiða vandamáli, en því miður hefur hún hlotið misjafnar móttökur.
31.ágú. 2010 - 22:00
Franski hrekkjalómurinn Rémi Gaillard, sem hefur lagt stund á prakkarstrik í fjölda ára, er líklegast að gera samlanda sína gráhærða. Að minnsta kosti þau sem lenda í honum.
31.ágú. 2010 - 21:00
Leitað er ljósum logum að ungri stúlku sem talin er vera frá Evrópu. Myndband af henni, þar sem hún framkvæmir hrottalegt ofbeldi gagnvart hvolpum, hefur farið eins og eldur í sinu um netheima. Ekki liggur fyrir hvers lensk stúlkan er, en tal í myndbandinu bendir til þess að hún sé frá einhverju Austur-Evrópulandi.
31.ágú. 2010 - 15:07
Ertu einfætt kona? Nú getur þú fengið gervifót sem skýtur litboltum.
31.ágú. 2010 - 10:06
Ove Kaltveit var 186 kíló þegar hann gekkst undir magaminnkun í mars í fyrra. Hann hefur grennst svo hratt að hann er á góðri leið með að verða lífshættulega grannur.
31.ágú. 2010 - 07:00
Í fjóra mánuði hafði lögreglan í Las Vegas leitað að Billie Jean James eftir að eiginmaður hennar tilkynnti um hvarf hennar. Leitinni var hætt eftir að lík konunnar fannst á heimili þeirra hjóna þar sem hún lá undir haug af drasli.
29.ágú. 2010 - 15:45
Dauðadrukknir íslenskir karlmenn slást í nýjasta þætti
Dead drunk but trying. Þátturinn er númer tvö í þáttaröðinni og hefur hann vakið mikla athygli um allan heim.
29.ágú. 2010 - 12:30
Klósettið sem John Lennon notaðist við á árunum 1969 til 1972 seldist fyrir stórfé á uppboði á dögunum. Klósettið sem þykir ekki merkilegra en hvert annað, fyrir utan að John Lennon notaði það, fór á tæplega tvær milljónir króna á uppboðinu.
28.ágú. 2010 - 21:35
Eins og allir karlar þekkja geta eldhússtörfin reynst þrautinni þyngri. Sumum karlmönnum þykir ekki mjög karlmannlegt að sinna eldhússtörfunum en hérna er komin leið sem allir karlar ættu að geta fellt sig við. Hið svokallaða Macho salat hefur verið kynnt til sögunnar.
28.ágú. 2010 - 20:10
Rannsókn bresku lögreglunnar á morði njósnarans sem fannst pakkaður inní íþróttatösku stendur nú yfir. Fjölmörgum spurningum um manninn er enn ósvarað og hafa slúðurmiðlar tengt veru hans í íþróttatöskunni við einkennilegar hvatir hans í kynlífinu.
28.ágú. 2010 - 18:56
Hvað var Guð að hugsa þegar hann skapaði manninn? Hvað sagði ísjakinn við Titanic? Hvernig brást Newton við þegar eplið féll á höfuð hans? Og hvað ef allir ofangreindir höfðu viðrað skoðanir sínar á Facebook?
28.ágú. 2010 - 17:35
Gunnar Þorsteinsson, kenndur við Krossinn, og Jónína Benediktsdóttir gengu í það heilaga fyrir framan fjölda fólks í dag. Gunnar segist hafa verið viðstaddur margar kirkjulegar athafnir en hann segir sú sem hann tók þátt í dag hafi verið hreinlega stórkostleg.
27.ágú. 2010 - 22:57
Það er óhætt að segja að kínverski listamaðurinn Liu Wei hafi slegið í gegn í China´s Got Talent þáttunum og komið dómurum jafnt sem áhorfendum í opna skjöldu þegar hann hóf að spila á píanó af mikilli list...með tánum.
27.ágú. 2010 - 21:40
Það er óhætt að segja að offita sé vandamál í vestrænum þjóðfélögum en stundum gengur letin út í öfgar.
27.ágú. 2010 - 19:50
Vörubílstjóri fékk hjartaáfall og dó þegar hann uppgötvaði að hann var í þann mund að hafa mök við klæðskipting í vændishúsi en ekki raunverulega konu.
26.ágú. 2010 - 08:40
Mary Bale, konan sem hefur öðlast heimsfrægð- og fordæmingu - fyrir að henda ketti ofan í ruslatunnu, hefur beðist opinberlega afsökunar á hegðun sinni. Henni hefur borist fjölmargar morðhótanir frá óðum dýravinum.
26.ágú. 2010 - 07:00
Eftir áralanga baráttu við kerfið hefur Carlos Bebeacua þurft að lúta í lægra haldi í viðleitni sinni til að stofna trúfélag sem tileinkað er kynferðislegri fullnægingu. Sænskir dómstólar úrskurðuðu að kirkjan væri móðgandi fyrir hina trúuðu.
25.ágú. 2010 - 22:20
Karlmenn eru mismiklar hetjur þegar á reynir. Sumir eru harðir naglar þegar ekkert er um að vera en þegar álagið hefst, þá er oft stutt í tárin. Sú var raunin í tilfelli þessa unga manns, hann grét við hliðina á ungri kærustu sinni í einu tækjanna í tívolíinu.
25.ágú. 2010 - 20:45
Elin Nordegren hefur loks rofið þögnina og talar á opinskáan hátt um ítrekuð svik fyrrverandi eiginmanns síns, Tiger Woods. Hún segist hafa verið gersamlega grunlaus um hegðun Tiger og segist hún hafa gengið í gegnum mjög erfiða tíma frá því framhjáhaldið komst upp.
25.ágú. 2010 - 18:45
Bretar taka nú andköf yfir dularfullu morðmáli í London: 31 árs gamall maður fannst stunginn til bana og líkinu hafði verið troðið í íþróttatösku á heimili hans. Margt bendir til að maðurinn hafi verið njósnari hennar hátignar.
25.ágú. 2010 - 11:26
Bresk kona sem henti ketti í ruslatunnu og lokaði, segist ekki skilja af hverju fólk sé í uppnámi. Þetta hafi bara verið einn köttur og hún hafi gert þetta í gríni. Kötturinn var fastur í ruslatunnunni í fimmtán klukkustundir en atvikið náðist á myndband.
25.ágú. 2010 - 08:28
Óþekktur aðili hefur síðustu mánuði notað nafn fyrirsætunnar Ásdísar Ránar og fengið tugi stúlkna til að fækka fötum fyrir framan vefmyndavélar og senda sér nektarmyndir. Ásdís Rán segist miður sín yfir þessu og hefur látið lögreglu vita.
25.ágú. 2010 - 07:00
Pólskur karlmaður, sem búsettur er í Bochum í Þýskalandi, varð rasandi hissa þegar læknar fundu byssukúlu aftan í höfðinu á honum. Í ljós kom að hann hafði verið skotinn í höfuðið fimm árum áður.
24.ágú. 2010 - 22:35
Súlufimi nýtur vaxandi vinsælda sem íþróttagrein á Íslandi. Súlufimi hefur lengi notið mikilla vinsælda úti í heimi og eru margir sem hafa náð ótrúlegum árangri í greininni. Á Íslandi eru iðkendur súlufimi nánast eingöngu kvenmenn en sú er ekki raunin víða erlendis.