20. des. 2011 - 07:00
Alþjóðlegi kynlífsskólinn í Austurríki, AISOS, sem komst í heimsfréttirnar fyrir ekki svo löngu reyndist vera tilbúningur. Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna sleppur við að athuga hvort námið sé lánshæft.
Hagsmunasamtökin „The BirdBase“ standa á bak við þessa tálsýn til að vekja athygli á slæmu eftirlaunakerfi í Austurríki.
Fyrsti alþjóðlegi kynlífsskólinn var útstúderuð auglýsingabrella og var meira að segja opnuð vefsíða þar sem áhugasamir gátu skráð sig. Skólameistari átti að vera hin sænska Ylva-Maria Thompson sem sagði að skólinn væri lítt fræðilegur, mest verklegur, og hún hvatti alla yfir 16 ára aldri til að skrá sig og gera heimaverkefnin sín í svefnálmu fyrir bæði kyn.
„The BirdBase“ hafa nú sent út fréttatilkynningu þar sem fram kemur að tilgangurinn hafi verið að vekja athygli á bágum ellilífeyrisréttindum í Austurríki.
Við berjumst gegn einhverju sem raunverulega snertir framtíð okkar, lélegu ellilífeyriskerfi Austurríkis.
Við vildum að fólk færi að tala saman um eitthvað. Umræða. Saman getum við komið breytingum til leiðar. Við getum haft áhrif. Jafnvel á stjórnmál.
Langsótt? Já. Áhrifaríki? Ekki spurning.
Sex hundruð manns höfðu sýnt því áhuga að skrá sig í alþjóðlega kynlífsskólann. BirdBase hefur tilkynnt þeim að þeir þurfi ekki að gera ráðstafanir til að hefja nám á nýju ári.
Kynlífsskólinn er önnur brella samtakanna. Í nóvember dreifðu þau bók í skólum í Vínarborg eftir Franz Kafka sem var full af málfræði- og stafsetningarvillum. Með því vildu þau vekja athygli á slakri kennslu í grunnskólum.