06. des. 2011 - 14:02
6 ára ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn 5 ára stúlku: Fóru í læknisleik - MYNDBAND
6 ára drengur í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni gagnvart 5 ára stúlku eftir að upp komst að þau höfðu farið í læknisleik. Saksóknarinn hefur verið kærður fyrir misbeitingu á valdi sínu.
Atvikið átti sér stað í Wisconsin ríki í Bandaríkjunum nýverið og til að bæta gráu ofan á svart fékk saksóknarinn sett lögbann á að foreldrar drengsins fengju að tala við fjölmiðla um málið.
Lögmenn drengsins og fjölskyldu hans segja saksóknara hafa misbeitt valdi sínu og farið offari í lögsókninni enda svo kallaður læknisleikur ungra barna algengur. Í þessu tilfelli á drengurinn að hafa snert stúlkuna með vísifingri.
Lögfræðingur drengsins segir að drengurinn sjálfur haldi því fram að hann hafi snert aðra rasskinn stúlkunnar og samkvæmt vitnisburði stúlkunnar sjálfrar er það rétt.
Lögfræðingurinn segir ennfremur að saksóknari hafi sent stefnu beint á drenginn þar sem honum er hótað fangelsisvist mæti hann ekki til réttarhalda. Hann sé nú afar óttasleginn við að verða handtekinn. Hefur verið farið fram á að ríkið greiði fjölskyldu drengsins 12 milljón dollara í skaðabætur vegna málsins.
Litla stúlkan sem um ræðir er dóttir háttsetts embættismanns í ríkinu sem vinnur náið með saksóknaranum.
Fréttaumfjöllun um málið má sjá í myndbandi hér að neðan.
02.des. 2011 - 12:15
Það hefur verið sagt að Íslendingar séu alls staðar. Það staðfestist enn einu sinni í spjallþætti bandaríska grínistans Jimmy Kimmel þar sem Íslendingurinn Anna Claessen lenti í sviðsljósinu.
01.des. 2011 - 19:38
Logi Geirsson er ekki allur sem hann er séður, en nú hefur verið gefið út lag með hárprúðu handboltastjörnunni og ber það nafnið „Komdu með“.
01.des. 2011 - 18:30
Vinir og samstarfsfélagar Hermanns Fannars Valgarðssonar, sem lést um aldur fram í byrjun síðasta mánaðar, ætla að heiðra minningu hans og safna í Minningarsjóð Hemma með risatónleikum 20. desember.
01.des. 2011 - 13:52
Íslensk fótboltastúlka brást öðruvísi við en þjófur í Mílanó bjóst við, því hún elti hann uppi og skriðtæklaði. Hún sagðist hafa „straujað undan honum.“
30.nóv. 2011 - 11:51
Bresk yfirvöld hafa bannað nærfataauglýsingar verslunarkeðjunnar Marks og Spencer. Þær þykja einfaldlega of kynferðislegar og óhollar fyrir börn.
29.nóv. 2011 - 14:45
Eiginkonu fertugs manns rak í rogastans þegar hún skoðaði myndefni í farsímanum hans. Þar var myndband tekið í laumi af konu á virðulegum aldri afklæðast - og gott ef hún þekkti ekki konuna ...
29.nóv. 2011 - 08:06
Davíð Oddsson varð afi í gær. Fréttirnar drógu út sumt það versta í hatursmönnum hans sem líktu honum jafnvel við Adolf Hitler á netinu.
29.nóv. 2011 - 07:00
Bandarískur fótbolti kvenna í kynþokkafullum nærfatnaði færir út kvíarnar. Kanadamenn og Ástralir eru að stofna deild og stefnt er að því að stofna deildir í suðlægum Evrópulöndum árið 2014.
28.nóv. 2011 - 07:20
Tveir slökkvibílar voru kallaðir út í afar sérstakt verkefni á Sjúkrahús Elísabetar Bretadrottningar. Maður með hring utan um getnaðarliminn upplifði skelfilegan sársauka í 20 mínútur á meðan tíu slökkviliðsmenn unnu við að frelsa kynfæri hans.
27.nóv. 2011 - 21:56
Æ fleiri nota síma og hvers kyns tæki til að koma skilaboðum sínum á framfæri. Það þykir einfaldlega þægilegra.
27.nóv. 2011 - 21:15
Hæfileikar manna eru margs konar og mismunandi. Keppendur í lokakeppni um hæfileikaríka skemmtikrafta á Indlandi fengu dómarana til að gapa af undrun í bókstaflegri merkingu. Hverjum dettur eiginlega svona vitleysa í hug ...?
27.nóv. 2011 - 15:00
Með hverjum á Robert Mugabe að vera á jólunum þegar búið er að drepa alla hina einræðisherrana? Þetta er inntakið í suðurafrískri sjónvarpsauglýsingu sem vakið hefur óskipta athygli.
27.nóv. 2011 - 09:00
Par má þakka sínum sæla fyrir að hafa ekki lagt af stað í göngutúr tíu sekúndum fyrr en þau gerðu því að þá hefði ræsi sprungið undir þeim og stórslasað eða drepið.
26.nóv. 2011 - 18:00
Það getur verið erfitt að halda andlitinu, sérstaklega í sjónvarpinu. En hvað er svona erfitt?
25.nóv. 2011 - 21:00
Hvað gerirðu þegar þú vaknar daginn eftir djammið og við hliðina á þér liggur einstaklingur sem þú vilt kannski ekki vekja?
25.nóv. 2011 - 20:08
Neysla orkudrykkja eykur líkurnar á ofbeldisverkum. Fimm dósir eða fleiri á viku nægja, samkvæmt nýrri rannsókn.
24.nóv. 2011 - 16:39
Lögregla var kölluð til að heimavistarskóla í Hróarskeldu í Danmörku eftir að faðir eins nemandans barði nuddara með hafnaboltakylfu. 16 ára dóttir hans hafði sakað nuddarann um kynferðislega áreitni.
23.nóv. 2011 - 21:15
Afhverju er manneskjan svona miður sín? Ef að þú ert dýravinur myndir þú líklega alls ekki vilja lenda í þessum aðstæðum.
23.nóv. 2011 - 18:35
Óhætt er að segja að ummæli bæjarstjóra um að flöskuvatn breyti gagnkynhneigðum karlmönnum í homma hafi valdið deilum.
23.nóv. 2011 - 08:40
Ástin er blind segir máltækið og það á jafnt við í Bandaríkjunum og hér á landi. Fyrrverandi eiginmaður feitustu konu heims hefur snúið til hennar aftur.
22.nóv. 2011 - 16:09
Hljómsveitir nota misjafnar aðferðir til að ná athygli. Norska hljómsveitin Souldrops framleiddi myndband við nýtt lag sem vakið hefur mikla athygli, svo mikla að hljómsveitin er hreinlega hætt við.
22.nóv. 2011 - 07:00
Faðir fimm ára drengs í Englandi hefur tjáð sig við fjölmiðla um draug sem hann segir að ásæki son sinn. Drengurinn kallar drauginn „manninn með gráu húðina“.
18.nóv. 2011 - 21:30
Þau eru mörg myndböndin af ofurölvi fólki sem dettur og gerir sig almennt að fífli sem finna má á netinu. Hér er er eitt...en er hér kannski eitthvað allt annað á ferðinni?
18.nóv. 2011 - 15:53
Lögregla mætti í skólastofu í Menntaskólanum á Egilsstöðum, veifuðu handtökuskipun og handtóku kennarann fyrir framan furðu lostna nemendur.
18.nóv. 2011 - 14:58
Aldrei hafa fleiri Norðmenn horft á norska kynfræðsluþáttinn Trekant en í fyrrakvöld þegar kona fékk fullnægingu í útsendingu.
18.nóv. 2011 - 12:50
Ein spurning varð þess valdandi að hann tók sig á og er nú 170 kílóum léttari. En hver var spurningin?
18.nóv. 2011 - 08:43
Það sem fólki dettur í hug ...! Án hugmyndaflugs væri listin dauð, framfarir engar í vísindum og tækni og fá afrek unnin. En þeir væru líka færri sem leituðu á bráðadeild spítala með hluti sem þeir hafa gleypt eða troðið inn í líkama sinn með einum eða öðrum hætti.
17.nóv. 2011 - 07:00
Áttu sex lítra af mjólk? Það er nóg í uppskriftina að einum kjól. Efnið er viðkomu eins og silki og af því kemur ekki súr lykt.
16.nóv. 2011 - 21:20
Myndband af konu í einstaklega vafasömum aðstæðum hefur farið eins og eldur um sinu á internetinu en um 300.000 hafa skoðað myndbandið á aðeins fimm dögum.
16.nóv. 2011 - 19:15
Það var ekki ánægður viðskiptavinur sem opnaði pokasalatið sitt og uppgötvaði að þar var ekki bara blandað kál heldur einnig hræ af litlum fugli. Salatblandan var keypt í venjulegum stórmarkaði en viðskiptavinurinn hefur nú krafist þess að fá skaðabætur frá stórmarkaðinum vegna atviksins.
16.nóv. 2011 - 12:12
Allt er á öðrum endanum í Noregi eftir að upplýst hefur verið að kona fái fullnægingu í útsendingu á besta útsendingartíma í norska ríkissjónvarpinu. Íslendingar geta líka séð umrædda fullnægingu.
15.nóv. 2011 - 21:35
Sum augnablik eru vandræðalegri en önnur, þetta er einstaklega vandræðalegt og er alveg augljóst að þessi ungi herramaður sá strax eftir því að hafa opnað munninn.
15.nóv. 2011 - 07:00
Sonurinn hringdi í mömmu sína og sagði henni að búið væri að setja haft á hjólbarðann á bílnum sínum. Þegar hún heyrði stöðumælavörðinn gera grín að syninum fyrir að hringja í mömmu missti hún stjórn á skapi sínu.
14.nóv. 2011 - 09:00
Brúðurin fer óneitanlega yfir siðferðismörkin í eigin brúðkaupi og brúðguminn getur ekkert gert nema horft á - argur á svip. Hvernig myndir þú bregðast við?
13.nóv. 2011 - 16:45
Þau eru mörg athyglisverð heimsmetin. Eitt þeirra á Rakesh Kumar.
13.nóv. 2011 - 15:45
Níu ára undrabarn seldi upp öll málverkin sín á 10 mínútum. Hann fagnaði áfangum með því að panta kínverska skyndibitamáltíð með fjölskyldunni.
13.nóv. 2011 - 14:53
Breskir gagnrýnendur rakka niður nýjustu sjónvarpsþáttaseríu grínistans Ricky Gervais, með einni undantekningu. Þeir elska frammistöðu leikarans Liam Neeson.
13.nóv. 2011 - 14:00
19 afbrotamenn sem lögregla hafði ekki náð að handsama sitja nú í fangelsi eftir að hafa gengið beint í gildru lögreglu fyrir frían bjór.
12.nóv. 2011 - 21:00
Eiginkonan ákvað að koma eiginmanninum skemmtilega á óvart með því að strippa í símann, bara fyrir hann...eða það var það ekki annars?
12.nóv. 2011 - 11:00
Það er ekki óalgengt í samböndum að karlinn stundi það að stríða konunni með margvíslegum hætti. Þessi fékk nóg og borgar vel til baka.
11.nóv. 2011 - 21:00
Það er hiti í parinu sem hugsar sér gott til glóðarinnar. Þar til eitt lítið atriði setur allt úr skorðum.
11.nóv. 2011 - 20:00
Spænskt fyrirtæki er undir lögreglurannsókn eftir að tvær konur voru reknar, sem neituðu að ganga um með klósettskilti um hálsinn.
11.nóv. 2011 - 14:35
Hvað gerirðu þegar flugfélag brýtur gítarinn þinn og neitar að bæta skaðann? Jú, borgar til baka með uppákomu sem 11 milljónir manna hafa nú þegar horft á, flugfélaginu til ómælds skaða.
11.nóv. 2011 - 08:00
Stórfelld leit hefur verið gerð að sænskum ferðamanni í hrakningum uppi á Sólheimajökli og björgunarsveitarmenn leggja sig í bráða hættu við að reyna að bjarga honum. Hætt er við að þeir reki upp stór augu þegar þeir snúa heim og komast að því að billinn þeirra er horfinn.
10.nóv. 2011 - 17:10
Ótrúleg lífsreynsla konu á brimbretti og hjóna í kajak í síðustu viku hefur vakið heimsathygli og myndbandsupptaka af atvikinu fer sem eldur í sinu um netheima.
08.nóv. 2011 - 21:00
Það er hægt að fara margar leiðir að sama markinu en sumar eru svo sannarlega furðulegri en aðrar.
08.nóv. 2011 - 07:14
Miskunnarlaus mafíuforingi hefur verið dæmdur í ævilangt fangelsi eftir að hafa sofið og hrotið undir réttarhöldunum en hann lá í sjúkrarúmi í dómsal.
03.nóv. 2011 - 14:00
Íslenskar konur vilja ekki langtímasambönd. Þær vilja bara hitta karlmenn á djamminu og lifa eftir móttóinu „ríða, búið, bless“.
02.nóv. 2011 - 07:40
Niðurbrotinn leigubílstjóri brást illa við þegar heitkona hans neitaði að giftast honum. Hann datt í það, klæddi sig úr hverri spjör og skemmdi 12 bíla í kjölfarið.
01.nóv. 2011 - 07:00
Þeir voru heldur betur undrandi fréttamennirnir á Stöð 8 í San Diego þegar torkennileg ljós sáust á himni í miðri útsendingu hjá þeim.