12.mar. 2010 - 18:45
„Við lesum bara blöðin eins og aðrir og fáum ýmsar fréttir þaðan, en könnumst nú ekki mikið við þær,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, um fyrirhugaða uppstokkun í ráðherraliðinu. Hann gefur lítið uppi um breytingar á ráðherraliðinu.
12.mar. 2010 - 17:50
Þýski þjálfarinn Rudi Assauer hefur varpað sprengju inn í knattspyrnuheiminn með stóryrtum fullyrðingum sínum um að samkynhneigðir ættu ekkert erindi í íþróttina. Sjálfur myndi hann sparka leikmanni sínum ef hann kæmi út úr skápnum.
12.mar. 2010 - 16:35
Gjaldþrota eignarhaldsfélög éta upp mest af þeim afskriftum sem fóru milli gömlu og nýju bankanna, segir efnahags- og viðskiptaráðherra. Bankarnir þurfa að afskrifa stórar fjárhæðir hjá þessum félögum og því skapast ekki svigrúm til afskrifta annars staðar.
12.mar. 2010 - 15:58
„Ég setti inn umsókn upp á von og óvon,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason, sem er einn þeirra sem sótti um stöðu dagskrárstjóra RÚV. Hann spyr sig þó þeirrar spurningar hvort hann verði betur settur þar en í þeirri stöðu sem hann er nú, enda auðvelt að verða óvinsæll í stöðu dagskrárstjóra.
12.mar. 2010 - 15:30
Sölustjóri tískurisans Prada í Japan hefur farið í mál við fyrirtækið eftir að yfirmaður hennar fyrirskipaði henni að gera átak í starfsmannamálum. Átakið fólst í því að losa sig við „gamla, feita, ljóta eða ógeðslega“ starfsmenn sem ekki hentuðu ímynd fyrirtækisins.
12.mar. 2010 - 15:04
Tveir karlar veita stofnunum ríkisins forstöðu á móti hverri einni konu. Konur hafa auk þess minni mannaforráð en karlar. Hlutfallið er konum mest í hag í forsætisráðuneytinu en síst í umhverfisráðuneytinu.
12.mar. 2010 - 14:28
Alls sóttu 37 manns um stöðu dagskrárstjóra RÚV sem auglýst var eftir að Þórhallur Gunnarsson lét af störfum. Meðal umsækjanda eru þekkt nöfn á borð við Felix Bergsson, Sigurjón Kjartansson, Þorfinn Ómarsson, Davíð Þór Jónsson og Ágúst Héðinsson.
12.mar. 2010 - 13:40
Fjármálaráðherra útilokar ekki að Alþingi setji lög á verkfall flugumferðarstjóra í næstu viku, eins og til stóð að gera í gær. Hann vonast þó að til þess þurfi ekki að koma. Hann segir kröfur flugumferðarstjóra háar og ekki í takti við efnahagslegan veruleika.
12.mar. 2010 - 12:40
Stéttarfélag hollenskra hjúkrunarfræðinga hleypti í dag af stokkunum átaki gegn kröfum sjúklinga um að kynferðisleg þjónusta verði eitt af reglubundnum verkefnum þeirra. Samtökin NU'91 nefna átakið „Hér dreg ég mörkin“.
12.mar. 2010 - 11:57
Samningaviðræður um Icesave hafa enn ekki hafist og vonast ríkisstjórnin til að af því verði í næstu viku. Engar tímasetningar hafa verið ákveðnar. Fjármálaráðherra segir óraunhæft að hafa ætlað að hefja viðræður í þessari viku eins og vonir stóðu til.
12.mar. 2010 - 11:22
Stórsýningin Netið 2010 verður haldin í Vetrargarðinum Smáralind dagana 12-14. mars, en sýningunni er ætlað að fræða almenning um þær nýjungar og möguleika sem netið býður upp á.
12.mar. 2010 - 11:16
Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar, hefur svarað bréfi Jóhannesar í Bónus til þingmanna og segist ekki skilja að hann upplifi sig fórnarlamb „pólitískra ofsókna“ nema því aðeins að hann hafi stöðu grunaðs manns. Og grunaðir menn eigi ekki að eignast fyrirtæki að aflokinni fjárhagslegri endurskipulagningu.
12.mar. 2010 - 10:18
Þingmenn í Kanada gæddu sér á selskjöti í vikunni til að mótmæla dýraverndarsinnum og Evrópusambandinu sem hefur bannað innflutning á selafurðum.
12.mar. 2010 - 09:32
Stöðug kvikuinnskot eru undir Eyjafjallajökli og eldfjallið tútnar út. Skjálftar um 3 stig mældust síðdegis í gær og í síðustu viku, en að öðru leyti er smáskjálftavirkni viðvarandi, aðallega á 7-11 km dýpi. Á meðan er ekki búist við að fari að gjósa.
12.mar. 2010 - 08:46
Þrátt fyrir að Norðmenn hafi létt á þrýstingnum á Íslendinga að ganga frá Icesave-deilunni áður en frekari lánafyrirgreiðsla fæst sitja hinar norrænu þjóðirnar enn við sinn keip. Á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda í gær kom fram að frágangur Icesave-málsins er forsenda fyrir meiri stuðningi.
12.mar. 2010 - 07:41
Arionbanki naut mestra afskrifta þegar lán til viðskiptavina voru færð yfir í nýju bankana. Valdís Beck, liðlega þrítugur lyfjafræðingur og markaðsfulltrúi, sendi bankanum fyrirspurn fyrir mánuði og spurði hvort hún fengi ekki að njóta afslátta bankans í neinu. Ekkert svar hefur borist.
12.mar. 2010 - 07:00
Óvelkomin ungmenni í verslanamiðstöðvum, meðal annars í Bretlandi, eru fæld burt með tæki, eins konar unglingahræðu, sem gefur frá sér óþægilegt hljóð. Evrópuríki eru nú hvött til að fjarlægja þessi tæki þar sem þau þykja skerða mannréttindi ungs fólks.
11.mar. 2010 - 22:17
Það er nógu slæmt fyrir einstaklinga að vera handjárnaðir af lögreglu eða öðrum yfirvöldum í eðlilegum klæðnaði. Hvað þá að vera handjárnaðir uppáklæddir sem Spiderman, lukkudýr einhvers íþróttaliðs eða bara í gervi Mjallhvítar, vinkonu dverganna sjö? Svo ekki sé talað um ef einstaklingur er í heilgalla sem trúður.
11.mar. 2010 - 21:06
Umræða um neyðarhnapp á samskiptavefnum Facebook hefur komið upp á Bretlandseyjum í kjölfar sífellt fleiri dæmi um barnaníðinga sem nýta sér samskiptamátann til þess að komast í tæri við ungmenni.
11.mar. 2010 - 20:41
Margrét Kristmannsdóttir, formaður SVÞ skaut harkalega á þingheim á aðalfundi samtakanna í dag. Margrét sagði það einfeldni að halda að 63 þingmenn þjóðarinnar, með takmarkaða reynslu af atvinnulífinu, kæmi Íslendingum upp úr kreppunni. Þá sagði hún að Vinstri grænir þyrftu að ákveða hvorum megin við borðið þeir væru og að þingmenn ættu að eyða minni tíma í innihaldslaust karp og viðræður við fjölmiðla í tímabundnum vinsældarkosningum.