26. júl. 2009 - 21:02
Breska blaðið
Telegraph gerir íslensku krónuna að umfjöllunarefni á vef sínum og segir hana kraftaverkameðal við kreppunni. Hún muni hjálpa Íslendingum á flot ólíkt Írum sem búa við evruna eða Lettum sem þurfa að keyra niður eftirspurn.
Í greininni segir að fjöldi evrópskra ferðamanna sæki nú Ísland heim og hafi loks efni á að skemmta sér fram undir morgun á því sem blaðamaðurinn kallar Suðurskauts-Ibiza. Meira að segja japanskir ferðamenn, sem voru sjaldséðir áður fyrr, borði hjá Sigga Hall og og kaupi 66° Norður jakka í Bankastræti. Þá framleiði álverið á Reyðarfirði ál eins og enginn sé morgundagurinn.
Vitnað er í Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sem segir útlit fyrir að Ísland komist betur út úr kreppunni en búist var við. Hann finnur fyrir krafti í efnahagslífinu sem sé afleiðing hagstæðra gjaldeyriskjara. Einnig er rætt við rithöfundinn Andra Snæ Magnason sem segir allt ganga sinn vanagang í þjóðfélaginu. Krónan hafi veitt Íslendingum vörn sem hafi komið í veg fyrir fjöldaatvinnuleysi. Rætt er við Svein Harald Öygard sem segir ganga vel að halda gengi krónunnar stöðugu. Nú sé krónan drifkrafturinn á bak við endurreisnina.
Telegraph birtir þó ekki bara glansmyndina, því tekið er fram að stór hluti skulda fyrirtækja og heimila er í erlendri mynt. Fyrirtæki eru mörg hver í slæmum málum vegna þessa. Þá er komið inn á niðurskurð og launalækkanir.
Ísland er þó í mun betri stöðu en Írar sem hafa evru og Lettar, sem eru tengdir við evruna, segir í greininni. Í Írlandi er útlit fyrir 9,8 prósenta samdrátt en 7 prósent á Íslandi. Í Lettlandi hefur útflutningur dregist hratt saman en innflutningur enn meira. Stjórnvöld þar þrýsta eftirspurninni niður.
Að lokum er minnst á ESB umsókn Íslands. Segir að stormurinn verði genginn yfir á Íslandi þegar kjósa á um aðild á meðan enn verði timburmenn af kreppunni í Evrópu. Því gæti reynst erfitt fyrir stjórnvöld að selja ESB sem einhvers konar vörn.
Ertu með athyglisverða ábendingu sem gæti átt heima á Pressunni?
Sendu okkur póst á
pressan@pressan.is - fyllsta trúnaðar gætt.